Morgunblaðið - 11.02.2006, Blaðsíða 80
80 LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Davíð Þór Jónsson botnaði svo
í þættinum:
Að ennþá séu góðir Gög
og Gokke vil ég trúa.
Logi Bergmann Eiðsson orti
svo, með fyrirvara um núverandi
stöðu sína:
Leikur nú á lútu og sög,
lætur Baug sig kúga.
Hlustendur lögðu margt af
mörkum, m.a.:
Finnur Sturluson:
Á þingi lipur samdi lög
GESTIR þáttarins Orð skulu
standa í dag eru Harald G. Har-
alds leikari og Jórunn Sigurð-
ardóttir útvarpskona. Þau fást
við þennan fyrripart, ortan vegna
prófkjörs Samfylkingarinnar í
Reykjavík nú um helgina:
Steinunn V. og Stefán Jón
stríða Degi í góðu.
Fyrripartur síðustu viku var
ortur til heiðurs Þorsteini Páls-
syni, nýkomnum heim í ýmsum
skilningi:
Fréttaþyrstur þráði mjög
Þorsteinn heim að snúa.
en leiddist úti að búa.
Gunnar Kr. Sigurjónsson í
Kópavogi:
Og lætur sjálfsagt setja lög
um að svíkja, pretta og ljúga.
Magnús Halldórsson á Hvols-
velli:
Þó íhaldinu í lengstu lög
leiðist Baugi að trúa.
Auðunn Bragi Sveinsson sendi
að sjálfsögðu fleiri en einn góð-
an:
Fagnar þjóðin frægum mög,
fyrst hann vill hér búa.
Víkingssálin varla rög
vill á Fróni búa.
Fósturjarðar frægan mög
fýsir hér að búa.
Eysteinn Pétursson sendi m.a.
þessa tvo, með tilbrigðum í þeim
seinni:
Baugs að kynna lof og lög
eða ljóta gjá að brúa?
Skyldi takast seggi að sög-
u Samfylkingar hlúa?
Marteinn Friðriksson:
Er Bónusmiðlar brjóta lög,
brátt vill að þeim hlúa.
Erlendur Hansen á Sauð-
árkróki sendi tvo:
Þó að Baugur brjóti lög
blaktir silkihúfa.
Enn er bláa höndin hög
á henni þumalskrúfa.
Útvarp | Orð skulu standa
Degi strítt í góðu
Hlustendur geta sent sína botna
í netfangið ord@ruv.is eða til
„Orð skulu standa, Ríkisútvarp-
inu, Efstaleiti 1, 150 Reykjavík“.
Bandaríski leikarinn Tom Size-more viðurkenndi fyrir rétti í
fyrrakvöld að hafa neytt metamfe-
tamíns í janúar. Dómarinn tók
hins vegar vægt á brotinu og
dæmdi leikarann í þriggja ára
skilorðseftirlit.
Sizemore, sem er 44 ára, átti yf-
ir höfði sér allt að 16 mánaða
fangelsi fyrir að rjúfa skilorð sem
hann var á vegna fyrri dóms.
Dómarinn dæmdi Sizemore til að
dvelja í 90 daga á meðferð-
arstofnun og leikarinn verður
einnig að mæta í vikulegt lyfjapróf
allan skilorðstímann.
Sizemore hefur átt í vandræðum
vegna fíkniefnaneyslu. Hann
reyndi að svindla á lyfjaprófi í júlí
á síðasta ári, en í október ákvað
dómari að veita honum tækifæri
vegna þess að hann hefði náð góð-
um árangri í baráttu við fíkniefn-
in. Sizemore féll síðan á lyfjaprófi
23. janúar.
Sizemore var árið 2003 fundinn
sekur um líkamsárás fyrir að
leggja hendur á Heidi Fleiss, þá-
verandi sambýliskonu sína. Hann
er laus gegn tryggingu á meðan
það mál er í áfrýjunarmeðferð.
Fólk folk@mbl.is
SAMBÍÓ AKUREYRI SAMBÍÓ KEFLAVÍK
„Munich er tímabært
stórvirki sem á
erindi við alla.“
*****
S.V. Mbl.
mynd eftir
steven spielberg
TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA
Besta leikstjórn (Steven Spielberg), besta mynd, besta handrit,
besta tónlist og besta klipping.5*****L.I.B. Topp5.is
****
S.U.S. XFM 91,9
****
kvikmyndir.is
****
Ó.Ö. DV
eeee
„ÓGLEYMANLEG OG ÓVENJU
FRUMLEG UPPLIFUN!“
- S.V., Mbl
VINSÆLASTA MYND
FRANSKRAR HÁTÍÐAR OG
BESTA MYND EVRÓPU SÝND
ÁFRAMVEGNA FJÖLDA
ÁSKORANA.
Hér er á ferðinni frábært
framhald einnar ástsælustu
teiknimynd allra tíma.
Sýnd með íslensku tali.
TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA
m.a.: Charlize Theron sem besta leikkona í aðalhlutverki og Frances McDormand
sem besta leikkona í aukahlutverki. Frá leikstjóra Whale Rider.2
Frábær og kraftmikil mynd
sem styðst við raunverulega atburði með Óskarsverðlaunahöf
unum, Charlize Theron, Frances McDormand og Sissy Spacek.
Frábær og kraftmikil mynd
sem styðst við raunverulega atburði með Óskarsverðlaunahöf
unum, Charlize Theron, Frances McDormand og Sissy Spacek.
TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA
m.a.: Charlize Theron sem besta leikkona í aðalhlutverki og Frances McDormand
sem besta leikkona í aukahlutverki. Frá leikstjóra Whale Rider.2
BAMBI 2 kl. 2 - 4 - 6
DERAILED kl. 8 - 10:10 B.i. 16 ára
CHRONICLES OF NARNIA kl. 2 - 4:30
March of the Penguins kl. 7
MUNICH kl. 9 B.i. 16 ára
Bambi II kl. 2 - 4 - 6
Derailed kl. 8 - 10:10 B.i. 16 ára
Jarhead kl. 10 B.i. 16 ára
Fun with Dick and Jane kl. 6 - 8
The chronicles of Narnia kl. 2
North Country kl. 8 og 10.30 b.i. 12 ára
Munich kl. 5.50 og 9 b.i. 16 ára
Bambi 2 - íslenskt tal kl. 3 og 6.30
The Chronicles of Narnia kl. 3
Pride & Prejudice kl. 5.30 - 8 og 10.30
Oliver Twist kl. 3 og 5.30 b.i. 12 ára
Caché - Falinn kl. 8 og 10.30 b.i. 16 ára
Harry Potter and the Goblet of Fire kl. 3 b.i. 10 ára
Crash kl. 8 og 10.20 b.i. 16 ára
4TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNAM.a. besta aðalhlutverk kvenna (Keira Knigthley), bestu listrænu leikstjórn og tónlist.
3 BÍÓ 400 KR. MIÐAVERÐ Á ALLAR MYNDIR KL. 3 UM HELGAR Í HÁSKÓLABÍÓI.Laugardag & Sunnudag 400 KR MIÐAVERÐ Á ALLAHÁDEGISBÍÓ