Morgunblaðið - 11.02.2006, Qupperneq 84

Morgunblaðið - 11.02.2006, Qupperneq 84
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.       FYRIR BÍLA FL GROUP hefur ákveðið að óska eftir skráningu Icelandair Group í Kauphöll Íslands og er undirbúning- urinn hafinn og stefnt að því að ljúka því ferli á vormánuðum. Eignir FL Group í Icelandair hafa ekki verið verðlagðar. Þá hefur FL Group einn- ig ákveðið að setja Kynnisferðir og Bílaleigu Flugleiða í sölumeðferð og sagði Hannes Smárason, forstjóri FL Group, ýmsa aðila hafa sýnt fyrir- tækjunum áhuga. Önnur félög innan FL Travel Group verða færð inn í Ice- landair Group og FL Travel Group lagt niður. Þá verða fyrirtækin Blá- fugl, Flugflutningar og Fjárvakur einnig færð undir Icelandair Group. Aðspurður sagðist Hannes Smára- son, forstjóri FL Group, gera ráð fyr- ir að söluhagnaður í tengslum við þessar breytingar gæti hlaupið á tug- um milljarða króna. „Við vitum hins vegar að söluhagn- aðurinn verður umtalsverður. Þessi félög eru bókfærð á það lágu verði í bókum FL Group vegna þess að þau hafa verið þar svo lengi.“ Gengi bréfa FL Group hækkaði mest allra bréfa í úrvalsvísitölunni í gær eða um 4,2%. Hannes sagði að markmið FL Group með þessari aðgerð væri að styrkja og efla fjárfestingargetu og fjárhagslegan styrk félagsins. Hlutafé FL Group var sem kunnugt er aukið um á fimmta tug milljarða króna í október og aðspurður hver þau stóru fjárfestingarverkefni væru sem kölluðu á enn meira fé svaraði Hannes því til að FL Group væri með mjög stór verkefni í burðarliðnum en tíminn yrði að leiða í ljós hvar félagið myndi bera niður. Hannes sagði FL Group ekki hafa tekið neina afstöðu til þess hve stóran hlut félagið ætlaði sér að eiga í Ice- landair en FL Group væri reiðubúið til að vera áfram bakhjarl félagsins. Hannes og Jón Helgi Guðmunds- son keyptu 38,5% hlutafjár í Flugleið- um í janúar árið 2004 á genginu 7. Gengi bréfa FL Group var 24,8 krón- ur á hlut við lokun markaða í gær. Icelandair Group verður skráð í Kauphöll Íslands í vor Söluhagnaður getur numið tugum milljarða  Stefnt að skráningu | 14 Eftir Arnór Gísla Ólafsson arnorg@mbl.is „ÞAÐ er búið að eyðileggja þessa vertíð, þó kannski sé hægt að plástra sárið aðeins með því að auka kvótann. Vonandi verður ekki staðið svona að málum í framtíð- inni. Það gengur ekkert að vera með fleiri hundruð manns á sjó og í landi sem tilraunadýr,“ sagði Bjarni Bjarnason, skipstjóri á Súl- unni, í gær, þegar hann var á loðnumiðunum vestan við Ingólfs- höfðann. „Það er alveg á hreinu að það er engin þörf á því að fara að gefa út dánarvottorð fyrir loðnuna. Hún er sprelllifandi og það er mikið af henni,“ sagði Bjarni. Rannsóknaskipið Árni Friðriks- son var við mælingar á svæðinu. Sveinn Sveinbjörnsson leiðangurs- stjóri sagði að það væri töluvert af loðnu á takmörkuðum bletti. Þar væru þéttar og fínar lóðningar. Þetta væri ekki stórt svæði, en mælingum væri ekki lokið og því gæti hann ekkert sagt til um hve mikið væri þarna á ferðinni. Auk þess væri einnig loðna austan við Höfðann og þar ætti eftir að mæla. Því yrði líklega ekki komin mynd á þetta fyrr en á morgun. Hrognafylling loðnunnar er komin upp í 18% og frysting loðnu fyrir markaðinn í Japan er því haf- in. „Ekki þörf á dánarvott- orði fyrir loðnuna“  Eins og | 14 Morgunblaðið/Golli „VIÐ héldum að það væru herþotur að fljúga í áttina að okkur. Svo mikið gekk á. Hávaðinn var gíf- urlegur. Hrossin urðu alvitlaus og hlupu um allt,“ sagði Sigurjón Páls- son, bóndi á Steinum I undir Eyja- fjöllum, í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi en mikil skriða féll úr Steinafjalli beint fyrir ofan bæinn fyrr um daginn. Reyndar féllu í það minnsta þrjár stórar skriður og eru stærstu björgin á að giska 15–20 tonn. Sigurjón segir hvorki menn né dýr hafa verið í hættu en að skemmdir hafi orðið á girðingum. Segir hann veður hafa verið með þeim hætti undanfarið, hlýindi og rigningar í kjölfar frosta, að að- stæður fyrir skriður hafi skapast. Skriðan náði ekki að neinum hús- um á svæðinu. Mjög tilkomumikið Sigurjón stóð á bæjarhlaðinu þegar miklar drunur kváðu við. Hann var fljótur að átta sig á því hvað væri á ferðinni. „Þvílíkur reykur steig upp þegar grjótið féll,“ segir hann. „Ég sá þá strax hvað var á ferðinni. Þetta var mjög tilkomumikið.“ Sigurjón telur að stærstu björgin séu 15–20 tonn og segir að skriðan sé mjög breið, þótt erfitt sé að meta umfangið að svo stöddu. „Þetta fór um allar brekkur. Það hrundi heil- mikið.“ Sigurjón segir grjóthrun úr Steinafjalli nokkuð algengt og þar sem hann hafi búið á Steinum alla sína tíð sé hann vanur skriðuföll- um. Skriðurnar hafi þó færst til, hafi fallið úr fjallinu nær bænum undanfarin fjögur ár. „Þetta er far- ið að ógna meira bæjunum, myndi ég segja. Ég held að skýringin hljóti að vera veðrið, hiti og mikil rigning.“ Þó að ekki hafi verið hætta á ferðum óttaðist Sigurjón fyrst í stað um bíl sem stóð við sjoppuna sem er við Steina I. „En þetta náði ekki að honum,“ segir hann. „En það urðu heilmiklar skemmdir á brekkunum og girðingum. Það þarf að girða aftur í sumar, ef það verð- ur þá gert.“ Sigurjón er sannfærður um að meira muni falla úr Steinafjalli á næstu sólarhringum enda sé áfram spáð hlýindum og rigningu. „Að- stæður eru þannig, það er mikið laust þarna og ég þekki þetta svæði mjög vel. Við þurfum því öll að vera vel á verði.“ Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Sigurjón Pálsson, bóndi á Steinum I, kannar skemmdir vegna skriðunnar. Stærstu björgin eru líklega 15–20 tonn. Héldu að herþotur væru að fljúga yfir Mikil skriða féll úr Steinafjalli fyrir ofan bæinn Steina I undir Eyjafjöllum Eftir Sunnu Ósk Logadóttur sunna@mbl.is GÍSLI Örn Garðarsson er að skoða tilboð frá nokkrum breskum leikhús- um um frekari leik- og leikstjóra- verkefni en hann leikur nú í upp- færslu Kneehigh-leikhópsins á Nights at the Circus eftir Angelu Carter í Lyric Hammersmith-leik- húsinu í London. Sýningin hefur fengið lofsamlega dóma. „Það er alveg útlit fyrir að ég sé að fara að gera meira hér í London, bæði hér í Lyric Hammersmith-leik- húsinu, eins hjá Young Vic-leikhús- inu og kannski líka hjá Breska þjóð- leikhúsinu, ýmist sem leikari eða leikstjóri,“ segir Gísli Örn í samtali í Lesbók í dag. Vesturport er enn fremur að und- irbúa að leika Rómeó og Júlíu á þýsku. Sýningin verður ein þriggja stórra leiksýninga á Shakespeare-leiklist- arhátíð í Rechlinghausen í Þýska- landi í júní nk. | Lesbók Gísli Örn með mörg tilboð
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.