Morgunblaðið - 04.03.2006, Page 8
8 LAUGARDAGUR 4. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Það hefði verið eitthvað skrítið ef okkur hefði ekki tekist að gera þessa atvinnugrein sjálfbæra. Í framhaldi af samkomulagi ís-lenskra stjórnvalda og álfyr-irtækisins Alcoa um að kanna
hagkvæmni þess að reisa álver á
Bakka við Húsavík hafa vaknað
spurningar um samgöngumál á
Norðurlandi. Rætt hefur verið um
Norðurland sem eitt atvinnusvæði
en til þess að af því verði þarf að
efla samgöngur frá því sem nú er.
Barist hefur verið fyrir göngum
undir Vaðlaheiði og fyrir þremur
árum var félagið Greið leið ehf.
stofnað til að undirbúa gerð gang-
anna. Þar á bæ eru menn bjart-
sýnir á að fyrirhugað álver muni
ýta á eftir göngunum, sem talin
eru mikilvæg samgöngubót, en
vegalengdin á milli Akureyrar og
Húsavíkur mun styttast um 16
kílómetra auk þess sem leiðin
mun öll verða á láglendi.
Samkvæmt upplýsingum frá
Pétri Þór Jónassyni, stjórnarfor-
manni Greiðrar leiðar, er undir-
búningur í fullum gangi. Verið er
að vinna úr rannsóknum til að afla
upplýsinga um jarðlög svæðisins
og stefnt að rafsegulmælingum í
apríl næstkomandi. Í framhaldi af
því verður gengið frá jarðfræði-
skýrslu og verkið þá tilbúið til
fjármögnunar.
Áætlaður kostnaður við göngin
er um 5,2 milljarðar króna. Þau
verða um sjö km löng frá Hal-
landsnesi Eyjafjarðarmegin undir
Vaðlaheiði og að Skógum.
Aðspurður um mikilvægi gang-
anna segir Pétur Þór þau sérstak-
lega mikilvæg að vetrarlagi en þá
getur leiðin milli Akureyrar og
Húsavíkur verið afar erfið.
Áætlunarflug til Húsavíkur?
Miðað er að því í áætlunum
Greiðrar leiðar að framkvæmdir
hefjist síðla árs 2007 og taki um
þrjú ár. Pétur Þór býst ekki við að
fyrirhugað álver breyti áætlunum
mikið en það bjóði hugsanlega
upp á að ríkið komi fyrr að samn-
ingaborðinu til að ganga frá form-
legum samningum um verkefnið.
Reinhard Reynisson, bæjar-
stjóri á Húsavík, segir æskilegt og
í raun nauðsynlegt að samgöngur
verði komnar í lag þegar og ef af
framkvæmdum verður. Hann tel-
ur að flýta ætti gerð ganganna.
„Það er í raun og veru nauðsyn-
legt að setja þau í forgang, frá því
sem nú er, þannig að göngin verði
tilbúin þegar og ef framkvæmdir
hefjast. Ef við erum að tala um að
álver gæti komist í gagnið hér á
milli áranna 2010 og 2012 myndu
framkvæmdir hefjast eitthvað
fyrr,“ segir Reinhard og bendir á
fleiri hagkvæmar styttingar, s.s.
nýja brú yfir Skjálfandafljót sem
er nauðsynlegt vegna aukinna
þungaflutninga.
Reinhard segir ennfremur að
verið sé að velta þeim möguleika
fyrir sér að taka Húsavíkurflug-
völl aftur í notkun, og að þangað
verði jafnvel áætlunarflug. Hann
segir flugvöllinn í aðalatriðum
góðan, þar séu mannvirki sem
dugi vel og flugbrautin sjálf í góðu
ásigkomulagi og auðveld til
stækkunar.
Stórt þjónustusvæði
Magnús Þór Ásgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Atvinnuþróunar-
félags Eyjafjarðar, telur að um
mikla innspýtingu í atvinnulífið
verði að ræða ákveði Alcoa að
reisa álver sitt á Bakka. Magnús
sér viðskiptatækifæri fyrir fyrir-
tæki á öllu Eyjafjarðarsvæðinu.
„Ef við hugsum okkur þessi af-
leiddu áhrif fyrir fyrirtæki á
svæðinu þá er þjónustusvæðið
mun stærra en vinnusókn. Akur-
eyri er á mörkunum að vera
vinnusókn Húsavíkur, jafnvel með
Vaðlaheiðargöngum, en við gefum
okkur þó að einhver hluti fólks
muni kjósa að ferðast þarna á milli
til vinnu. En það er alveg borð-
leggjandi að menn myndu ferðast
á milli til að þjónusta við álverið
og á mun stærra svæði,“ segir
Magnús Þór og bætir við að ekki
sé verið að ræða um nein smáræð-
is viðskipti.
Elvar Árni Lund, sveitarstjóri í
Öxarfjarðarhreppi, reiknar með
að álverið muni teygja anga sína á
svæðið og hafa góð áhrif á upp-
byggingu Kópaskers – sem er að-
alþjónustukjarni héraðsins. Rétt
undir klukkutímaakstur er frá
Kópaskeri á Bakka og Elvar Árni
segir vel ljóst að menn geti búið á
Kópaskeri og unnið þar.
Fréttaskýring | Álver á Bakka innspýting í
atvinnulíf og samgöngur
Mörg tækifæri
með álveri
Efla þarf samgöngur á Norðurlandi ef til
framkvæmda við álver á Bakka kemur
!"
!
"
#
$%&
'
#
(
)
(
%
.
/
'
(
! "
#
$
%
0 1
0 2
( 1
0 $%&
1
,
3 ,
4 ,
Helstu vegalengdir frá Bakka.
Álver á Bakka hefði ýmsa
möguleika í för með sér
Komi til þess að Alcoa reisi ál-
ver á Bakka við Húsavík hefur
það gríðarleg áhrif á atvinnulíf á
svæðinu og fyrirtæki ættu að sjá
sér tækifæri í þjónustu við álver-
ið. Leggja þarf áherslu á að flýta
gerð Vaðlaheiðarganga til að
tryggja öryggi á leiðinni frá Ak-
ureyri til Húsavíkur, ásamt því
að stytta leiðina, og nauðsynlegt
er að byggja nýja brú yfir Skjálf-
andafljót vegna aukinna þunga-
flutninga.
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is