Morgunblaðið - 04.03.2006, Page 14

Morgunblaðið - 04.03.2006, Page 14
14 LAUGARDAGUR 4. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Baráttan gegn bullinu á morgun ÚR VERINU KÍINVERSKUR nemandi Sjávarútvegsskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna vann stofn- stærðarmælingu fyrir kola hér við land. Staðfestu athuganir hans að rétt hafi verið staðið að veiðiráðgjöf vegna þess stofns. Skólanum var nýlega slitið í áttunda sinn. Að þessu sinni voru 23 nemendur frá fjórtán þjóðlöndum í þessu sex mánaða námi, fleiri en nokkru sinni áður. Í hópnum sem hefur stundað nám við skólann eru nú 126 manns, að sögn Tuma Tómassonar for- stöðumanns. Að þessu sinni komu nokkrir nemendur frá fjarlægum löndum sem ekki hafa áður sent nemendur hingað, meðal annars Fijieyjum, Norður-Kóreu og Angóla, auk nemenda frá löndum í Asíu, Afríku og Evrópu sem áður hafa átt fulltrúa í skól- anum. Nemendurnir skiptu sér á fjórar brautir. Flestir voru í gæðastjórnun sem fjallar um meðferð og vinnslu á sjávarfangi. Aðrir voru við stofnmælingar, í umhverfisfræðum og veiðitækni. „Þetta er allt fagfólk sem tekur með sér raunveruleg verkefni frá heimahögum sínum,“ segir Tumi. Síðasti hluti námsins felst einmitt í slíkum verk- efnum. „Þessi verkefni eiga að nýtast þeim beint í starfi þegar heim er komið og sum nýtast jafnvel okkur,“ segir Tumi. Rétt að minnka veiðiálag á kola Spurður um dæmi um slíkt nefnir hann að Li Jiuqi, kínverskur nemandi skólans, hafi gert stofnmat á kolastofninum hér við land. Fengið gögn hjá Hafrannsóknastofnun og rennt þeim í gegn um fjögur mismun- andi líkön. Tumi sagði að niðurstaða athug- ana nemandans hafi sýnt, með öllum fyr- irvörum þó, að veiðiráðgjöfin hafi staðist nokkuð vel. Rétt hafi verið að minnka aflann niður í 4.000 tonn og með því muni kolastofninn smám saman aukast þar til jafnstöðu verði náð í 7.500 til 8.000 tonnum. „Þetta á að veita þeim mönnum sem veita veiðiráðgjöf væntanlega eitthvað meira ör- yggi með þá nálgun sem þeir hafa viðhaft,“ segir Tumi. Margir nemendur sjávarútvegsskólans fara í áframhaldandi nám, meðal annars við Háskóla Íslands. Þannig hefur um fjórð- ungur þeirra nemenda sem áður hefur út- skrifast lokið masters- eða doktorsprófi. Þeir aðilar sem standa að þessu verkefni munu styðja þrjá nemendur til viðbótar til meistaranáms við Háskóla Íslands. Tumi segir reynt að halda sambandi við fyrrverandi nemendur skólans. Nefnir hann sem dæmi að þeir kenni gjarnan á nám- skeiðum sem sjávarútvegsskólinn stendur þessi árin fyrir víða í samstarfslöndunum. Nú er verið að undirbúa þrjú slík námskeið, á Kúbu, Sri Lanka og jafnvel í Tansaníu. Kínverskur nemandi staðfesti veiðiráðgjöf í kola Ljósmynd/Sjávarútvegsskólinn Kynning Ravi Deendayalsing Chooreshwar Mohit frá Mauritius, nemandi við Sjávarútvegs- skóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna, kynnir lokaverkefni sitt. SJÁVARÚTVEGSRÁÐUNEYTIÐ hefur innkallað alls um 156 tonn af ónýttum eldiskvóta af óslægðum þorski frá fyrirtækjum í fiskeldi sem hætt eru rekstri eða hafa ekki upp- fyllt sett skilyrði. Hefur umræddum aflaheimildum jafnframt verið endurúthlutað til eft- irfarandi fyrirtækja: Álfsfell ehf., Hnífsdal: 17,137 tonn, Glaður ehf., Bolungarvík: 19,992 tonn, Guðmund- ur Runólfsson hf., Grundarfirði: 17,137 tonn, Hraðfrystihúsið Gunn- vör hf., Hnífsdal: 76,162 tonn, og Þorskeldi ehf., Djúpavogi: 25,706 tonn. Árlega hefur verið úthlutað 500 tonna aflaheimildum til fyrirtækja í fiskeldi sem nýta skal til áframeldis. Í frétt frá ráðuneytinu kemur fram að tilflutningur á eftirstöðvum af út- hlutuðum heimildum hefur verið leyfður á milli fiskveiðiára en reglur hafa verið settar um að ekki beri að flytja vannýttar heimildir yfir fleiri en eitt fiskveiðiár. Úthluta ónýttum eldiskvóta þorsks VALNEFND í Hallgríms- prestakalli ákvað á fundi sínum 1. mars sl. að leggja til að sr. Birgi Ás- geirssyni, verði veitt embætti prests í Hallgríms- prestakalli í Reykjavíkurprófasts- dæmi vestra. Umsóknarfrestur rann út hinn 17. febrúar sl. og embættið veitist frá 1. apríl nk. Tíu umsækjendur voru um emb- ættið. Biskup Íslands skipar í embættið til fimm ára að fenginni niðurstöðu valnefndar. Valnefnd skipuðu fimm fulltrúar úr prestakallinu auk vígslubiskupsins í Skálholti. SJÓMAÐUR á þrítugsaldri slas- aðist þegar hann féll niður í lest fiskveiðiskips við höfnina í Þor- lákshöfn í fyrrakvöld. Að sögn skipsfélaga rann maðurinn þegar verið var að landa afla dagsins og féll niður í lestina sem er 5-6 metra djúp. Skipsfélagarnir sögðu enn- fremur að miðað við hversu hátt fallið hefði verið, þá hefði mað- urinn sloppið ótrúlega vel. Hann var fluttur með sjúkrabíl á slysa- deild Landspítala – háskólasjúkra- húss í Reykjavík til aðhlynningar. Féll 5–6 metra niður í lest skips SEGJA má að meistarinn hafi lagt stórmeistarann þegar stúdentar og landsþekktir einstaklingar tefldu fjöltefli gegn Henrik Danielsen, stórmeistara Hróksins, í gær, en sá eini sem sigraði stórmeistarann var Logi Bergmann Eiðsson, sem er stjórnandi sjónvarpsþáttarins Meistarans á Stöð tvö. Það var Skákíþróttafélag stúd- enta við Háskólann í Reykjavík sem stóð fyrir fjölteflinu. Tilgangurinn var að safna fé til að flytja græn- lensk börn og unglinga hingað til lands til að kenna þeim sund, en skortur á sundlaugum á Grænlandi hamlar sundkennslu þar. Gunnar Egilsson, formaður Skák- íþróttafélagsins, segir að bæði hafi fyrirtæki veitt beina styrki og einnig hafi verið heitið á skákmennina sem öttu kappi við Henrik, m.a. hafi ein- hverjir heitið hærri upphæðum ef tækist að leggja stórmeistarann. Það hafi Logi Bergmann gert, einn skákmannanna, en fimm hafi gert jafntefli. Alls tefldu tuttugu manns við Henrik, tíu stúdentar og tíu landsþekktir einstaklingar. Auk Loga Bergmanns voru þar t.d. Ragnheiður Gröndal, Gísli Marteinn Baldursson, Helgi Hjörvar, Inga Lind Karlsdóttir o.fl. Ekki er ljóst hversu miklu fé tókst að safna. Morgunblaðið/RAXLogi Bergmann Eiðsson, stjórnandi sjónvarpsþáttarins Meistarinn, stóð undir nafni þegar hann lagði stórmeistarann Henrik Danielsen. „Meistarinn“ lagði stórmeistarann Birgir Ásgeirsson valinn í Hallgríms- prestakall

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.