Morgunblaðið - 04.03.2006, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 04.03.2006, Blaðsíða 20
Dublin. AFP. | Forstjórar og framkvæmdastjórar fjöl- þjóðlegra fyrirtækja á Írlandi þjást af svo mikilli streitu að lífsgæði sumra þeirra eru minni en fólks sem haldið er banvænum sjúkdómi, ef marka má nýja rannsókn. Írski sálfræðiprófessorinn Ciaran O’Boyle, sem stjórnaði rannsókninni, sagði að hann og samstarfsmenn hans hefðu endurtekið rannsóknina nokkrum sinnum vegna þess að þeir hefðu orðið svo undr- andi á niðurstöðunni. O’Boyle rakti þetta meðal annars til framfara í upplýs- ingatækni – svo sem tölvu- pósta, farsíma og nettengdra vasatölva – sem hann sagði hafa orðið til þess að stjór- arnir væru í vinnunni eða með hugann við hana nær allan sól- arhringinn og alla daga vik- unnar. Rannsóknin náði til 14 for- stjóra og 107 framkvæmda- stjóra. Meðalaldur þeirra var 34 ár og þeir höfðu starfað sem stjórnendur í tvö ár að meðaltali. Þeir gengust undir sálfræðilegt próf sem miðaði að því að meta lífsgæði þeirra. Þjakaðir forstjórar 20 LAUGARDAGUR 4. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT KHALED Meshaal, leiðtogi Ham- as-samtaka Palestínumanna, kom í gær í þriggja daga heimsókn til Moskvu í boði Vladímirs Pútíns, forseta Rússlands. Vegna utanað- komandi þrýstings ákvað Pútín að falla frá fyrirhuguðum fundi með Meshaal, sem m.a. ræddi við Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rúss- lands. Lagði Lavrov áherslu á að Pal- estínumenn virtu fyrri friðarsamn- inga við Ísrael. „Við treystum á að Hamas sem leiðandi stjórnmálaafl í þinginu og framtíðarríkisstjórn leggi sitt af mörkum til að virða ákvæði fyrri samninga að fullu,“ sagði Lavrov. Er heimsóknin talin fyrsta sprungan í alþjóðlegri samstöðu gegn Hamas, sem Evrópusamband- ið, Bandaríkin og Ísrael hafa skil- greint sem hryðjuverkasamtök. Eftir fund þeirra Lavrovs sagði Meshaal að Hamas myndi ekki gera gangskör að friðarsamningum við Ísraelsmenn fyrr en her þeirra væri farinn frá öllum þeim svæðum sem hertekin voru í Sex daga stríð- inu svonefnda árið 1967. Þá sagðist Meshaal vona að heimsóknin gæti orðið að stökkpalli fyrir frekari við- ræður við aðrar þjóðir. „Samstarf við alþjóðasamfélagið er mikilvægt fyrir okkur og við telj- um heimsókn okkar til Moskvu, höfuðborgar stórveldis, upphafið að slíkum viðræðum,“ sagði Meshaal, sem bætti við að Ísraelar hefðu með aðgerðum sínum spillt fyrir friðarferlinu. Heimsókn veldur reiði Ísraela Hefur heimsóknin valdið reiði Ísraela, og lýsti Meir Shitrit, ráð- herra í stjórn Ísraels, heimboði Pútíns sem „hnífstungu í bakið“. „Ég velti því fyrir mér hvað Pútín myndi segja ef við byðum Tsjetsj- enum hingað og ræddum við þá,“ sagði Shitrit í samtali við ísraelska útvarpið. Ismail Haniyeh, verðandi for- sætisráðherra Hamas, var á önd- verðum meiði og sagði að leiðtogar samtakanna biðu eftir því að Rúss- ar tækju að fullu við pólitísku hlut- verki sínu í Mið-Austurlöndum. Samkvæmt The Moscow Times lýsti Bakir Abdel Munem, sendi- maður Palestínu, því hins vegar yfir á fimmtudag að Hamas gæti mildað afstöðu sína til Ísraels ef það kynni að bæta hag þjóðarinnar. Er Rússland fyrsta ríkið í svo- nefndum kvartett sáttasemjara í Mið-Austurlöndum sem virðir kosn- ingu Hamas, en samkvæmt frétta- vef BBC skiptir heimsóknin miklu máli fyrir baráttu samtakanna fyrir viðurkenningu alþjóðasamfélagsins. Bandarísk yfirvöld hafa allt aðra afstöðu og lýstu því yfir á fimmtu- dag að markmið þeirra væri að ein- angra Hamas fjárhagslega og reyna að gera starf samtakanna „gríð- arlega erfitt“, á sama tíma og Ír- anar hafa boðist til að veita þeim fjárhagsaðstoð. Skora á Hamas að virða samninga Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is Reuters Khaled Meshaal, leiðtogi Hamas-samtakanna, og Sergei Lavrov, utanrík- isráðherra Rússlands, eftir fund þeirra í Moskvu í gær. ÍBÚAR í Benin, litlu ríki í Vestur-Afríku, munu kjósa sér nýjan forseta á morgun, sunnudag. Raunar er sá hængur á, að kjör- kassarnir eru ekki nógu margir, aðeins 14.000 fyrir 17.480 kjörstaði, og þar fyrir ut- an telja sumir að allt of margir kjósendur séu á skrá. Þessi kona, sem er með barn í fangi fyrir utan heimili sitt, bárujárnskumbalda í þorpinu Ouidah, var ekki í neinum vafa um hvað hún ætlaði að kjósa eins og sjá má. Hennar maður heitir Bruno Amoussou, einn af alls 26 frambjóðendum. Reuters Ákveðinn stuðningsmaður Vín. AFP. | Enginn árangur varð af fundi fulltrúa Evrópusambandsins og Írans í gær um kjarnorkumál og bendir nú flest til að á fundi í Alþjóðakjarnorkumálastofnuninni, IAEA, á mánudag verði deilunni vísað til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. „Tíminn er að renna út,“ sagði Frank-Walter Steinmeier, utanrík- isráðherra Þýskalands, eftir fund með Ali Larijani, samningamanni Íransstjórnar, í Vín. Sagði hann að viðræðurnar hefðu verið kurteis- legar en árangurinn af þeim eng- inn. Evrópuríkin og Bandaríkin vilja fá Írani ofan af því að auðga úran en það er ekki aðeins notað í kjarnaofnum, heldur einnig í kjarnavopn. Fyrr í vikunni vöruðu Bretland, Þýskaland og Frakkland Íransstjórn við og sögðu að héldi hún til streitu kröfu sinni um að fá að auðga úran, væri einskis sam- komulags að vænta. Misvísandi yfirlýsingar Larijani, samningamaður Írans- stjórnar, kom til fundarins í Vín frá Moskvu en fundur hans með Rússum, sem bjóðast til að auðga úranið fyrir Írani, bar heldur eng- an árangur. Íranskur embættis- maður, sem ekki vildi láta nafns síns getið, sagði raunar í Vín í gær, að náðst hefði samkomulag við Rússa en Sergei Lavrov, utan- ríkisráðherra Rússlands, sagði hins vegar, að skilyrðið fyrir sam- komulagi væri, að Íransstjórn hætti allri vinnu við að auðga úr- an. Á það hefði hún ekki viljað fall- ast. Verði deilunni við Írana vísað til öryggisráðsins er líklegt, að það gefi Íransstjórn einhvern frest. Að honum loknum munu hugsanlegar refsiaðgerðir verða ræddar. „Tíminn að renna út“ Enginn árangur af fundi ESB og Írana London. AFP. | Breska lög- reglan fann mikið fé, sem tengist stórráninu í síðustu viku, er hún réðst inn í vöru- skemmu í Suðaustur-London í gærmorgun. Enn er þó lang- mestur hluti þýfisins, rúmlega sex milljarða kr., ófundinn. Lögreglan í Kent sagði í gær að nokkrar milljónir punda hefðu fundist við hús- rannsóknina en áður hafði nokkurt fé fundist í yfirgefn- um sendibíl og á búgarði eins þeirra, sem þegar hafa verið ákærð í málinu. Var einn mað- ur handtekinn í vöruskemm- unni. Á fimmtudag voru tveir karlmenn og ein kona ákærð og í fyrrakvöld var fjórði mað- urinn ákærður. Heitir hann Jetmir Bucpapa, 24 ára að aldri og atvinnulaus. Í gær- morgun var síðan fimmti mað- urinn ákærður, Lea John Rusha, 33 ára. Þá var lög- reglan að yfirheyra þann, sem var handtekinn í vöruskemm- unni, og mann, sem handtek- inn var á mánudag. Enn finnst mikið fé LESENDUR bóka vilja flestir að skáldsögur endi vel og hamingjusamlega, ef marka má könnun sem breska dag- blaðið The Daily Telegraph hefur birt. Könnunin bendir einnig til þess að lesendur í Bretlandi séu ánægðastir með farsælan endi skáldsögunnar Hroki og hleypidómar eftir Jane Aust- en. Nær helmingur allra lesend- anna, eða um 41%, vildi að sögurnar enduðu hamingju- samlega. Aðeins 2,2% vildu dapurlegt niðurlag. Konur voru 13% líklegri en karlar til að vilja hamingjurík sögulok. Ungu lesendurnir voru á hinn bóginn líklegastir til að vilja hryggilegan loka- kafla. Aðeins 1,1% lesenda á aldrinum 41–65 ára vildi þann- ig bókarlok en 8,6% lesenda undir sextán ára aldri. Tæpur fimmtungur karl- mannanna vildi frekar bækur með tvíræðan endi. Góð bók endar vel
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.