Morgunblaðið - 04.03.2006, Síða 22

Morgunblaðið - 04.03.2006, Síða 22
Akureyri | FSA hafa verið færðar tölvuvogir að gjöf. Gef- endur eru vinir ungs manns sem fórst í bílslysi á Akureyri fyrir fimm árum, Magnúsar B. Guð- jónssonar. Gjöfin til minningar um hann en Magnús fæddist á FSA og nokkrir vina hans hafa eignast börn sem þar eru fædd. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Tölvuvogir til minningar um vin Höfðinglegt Akureyri | Árborg | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri sími 461-1601, Margrét Þóra Þórs- dóttir, maggath@mbl.is, 669-1117 og Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, 669-1114. Vesturland Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust- urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Gríðarlegar framkvæmdir eru í öllum bæjarfélögunum á Suðurnesjum. Ný bygg- ingarsvæði eru skipulögð út yfir hraun og móa. Sem dæmi má nefna að gert er ráð fyrir því að Reykjanesbær byggist áfram milli sjávar og Reykjanesbrautar, alveg upp á Vogastapa. Þar uppi er gert ráð fyrir háum blokkum með útsýni yfir Suðvest- urland! Síðan á byggðin að færast yfir Reykjanesbrautina og breiða úr sér milli Grindavíkurvegar og Keflavíkurflugvallar. Hvort eða hvenær að því kemur er ekki gott að vita en allur er varinn góður!    Fólkið kemur af höfuðborgarsvæðinu, landsbyggðinni og frá útlöndum. Það virð- ist henta landsbyggðarfólki sem er að flytja „suður“ að flytja til bæjanna í nágrenni höf- uðborgarsvæðisins, frekar en að fara alla leið. Þá er áberandi að ungt fjölskyldufólk af höfuðborgarsvæðinu sækir í stærra og betra húsnæði. Utan borgarinnar getur það stundum fengið sérbýli á verði fjölbýlis í höfuðborginni.    Ekki eru flutningarnir þó gallalausir. Hjón sem eru með börn í leikskóla og grunnskóla vilja kannski ekki bæði sækja vinnu til höfuðborgarinnar. Þá hafa stund- um orðið erfiðleikar með að fá vinnu við hæfi á staðnum.    Ekki þarf að vera mikill munur á tímanum sem fer í að aka til vinnu á höfuðborg- arsvæðinu, hvort sem viðkomandi er bú- settur í úthverfum Reykjavíkur, bæjunum á útjaðri svæðisins eða á Suðurnesjum. En akstursleiðin er lengri á Suðurnes og sjálf- sagt er kostnaðurinn við bensín og aðra notkun bifreiðarinnar oft vanmetinn, hvað þá lækkun á endursöluverði bílsins vegna kílómetramælisins.    Fjölgun húsa og þar með íbúa kallar á miklar framkvæmdir á vegum sveitarfélag- anna. Þau standa sig vel í því að sinna þörf- um íbúanna. Gróskan virðist auka sjálfs- traust sveitarstjórnarmanna og kemur það fram með ýmsum hætti. Nefna má að Sand- gerðingar hafa byggt sér ráðhús og Garð- menn eru að undirbúa sitt ráðhús með þátt- töku í verslunar- og þjónustubyggingu. Langstærsta bæjarfélagið, Reykjanesbær, hefur látið aðrar framkvæmdir ganga fyrir þótt ráðhús hafi komið til umræðu. Úr bæjarlífinu SUÐURNES EFTIR HELGA BJARNASON BLAÐAMANN Fyrsta ungmenna-félag landsins,Ungmennafélag Akureyrar, var stofnað fyrir 100 árum, 6. janúar árið 1905. Þess var minnst á aðalfundi félags- ins í vikunni, en það var líka eitt af sjö stofn- félögum í UMFÍ sem stofnað var ári síðar. Starfsemin var mjög blómleg fyrstu árin og einkenndist af kristilegu starfi og bindindismálum auk sjálfstæðisbaráttu og íþróttaiðkun. Fyrsta landsmót UMFÍ var hald- ið á Akureyri 17. júní 1909 í umsjón Ungmenna- félags Akureyrar. Starf- semi Ungmennafélags Akureyrar lagðist af í kringum 1930 og var end- urvakið í þeirri mynd sem menn nú þekkja 5. apríl 1988. Landsmót UMFÍ verður haldið hér á Ak- ureyri 2009 á ald- arafmæli Landsmótanna. Á aðalfundinum var UFA gert að svonefndu fyrirmyndarfélagi ÍSÍ, Viðar Sigurjónsson starfsmaður ÍSÍ á Ak- ureyri afhenti Gísla Páls- syni formanni skjal þess efnis af því tilefni. Ljósmynd/ Þórir Tryggvason Fyrirmyndarfélag Viðar Sigurjónsson frá ÍSÍ afhendir formanni UFA, Gísla Pálssyni, staðfestingu þess að fé- lagið sé fyrirmyndarfélag. UFA fyrirmyndarfélag Friðrik Stein-grímsson yrkirum álverið sem á að rísa á Bakka: Alcoa sem öllu ræður ekki hræðist Tjörnesið, harla kátir Bakka-bræður bera nú inn sólskinið. Davíð Hjálmar Har- aldsson yrkir á Akureyri: Feginsstraumur fer um sál, frómar óskir rætast. Hingað kemur ekki ál. Eyfirðingar kætast. Þá Hreiðar Karlsson: Skín á himni sólin senn svo að Húsvíkingar ætla að lifa eins og menn, eða Hafnfirðingar! Og Kristján Bersi Ólafsson: Af langri reynslu það ég þekki. Og þykir raunar talsverð synd, að Hafnfirðingar eru ekki í öllu hin besta fyrirmynd. Af álveri pebl@mbl.is Norðurland vestra| Tólf manna verkefn- isstjórn var skipuð síðastliðið haust til að hafa umsjón með undirbúningi fyrir gerð Vaxtarsamnings Norðurlands vestra. Hlutverk hennar er að undirbúa tillögur að stefnumörkun í atvinnu- og byggðamálum á Norðurlandi vestra og kanna hvaða kostir koma helst til greina til að efla vöxt og samkeppnishæfni svæðisins. Kynningarfundir á næstu vikum Ráðgert er að efna til kynningarfunda víða um Norðurlands vestra á næstu vikum og gefst fólki þá kostur á að fræð- ast um undirbúning starfsins og ræða við fulltrúa verkefnisstjórnar um fram- vindu verkefnisins, tillögugerð og önnur atriði sem snúa að undirbúningi og framkvæmd vaxtarsamnings Norður- lands vestra. Ennfremur gefst fólki kostur á að koma tillögum á framfæri við verkefnisstjórn ef áhugi er. Í starfi verkefnisstjórnar verður lögð mikil áhersla á samvinnu einstaklinga, atvinnulífs, sveitarfélaga og opinberra aðila og leitast verður við að nýta styrk- leika og tækifæri svæðisins í hefðbundn- um atvinnugreinum sem nýjum. Horft verður einnig sérstaklega til þess að efla vísinda- og háskólastarf og efla tengingu og samstarf þess við atvinnulífið sam- hliða auknu samstarfi almennt í atvinnu- lífi. Áhersla lögð á samvinnu Vaxtarsamningur Norðurlands vestra Eyjafjörður | Nafnanefnd er nú starfandi á vegum Ólafsfjarðarbæjar og Siglufjarð- arkaupstaðar og er hún nú að undirbúa skoðanakönnun um nafn á nýtt sveitarfé- lag, en íbúar bæjanna tveggja samþykktu sameiningu þeirra fyrr á árinu. Mun nefndin velja allt að fimm nöfn úr inn- sendum tillögum og senda til örnafna- nefndar til umsagnar. Skoðanakönnun verður gerð samhliða sveitarstjórnar- kosningum í vor um þau nöfn sem ör- nafnanefnd hefur samþykkt, en nafn verður svo endanlega ákveðið af nýrri sveitarstjórn. Tillögum á að skila á bæjarskrifstofur sveitarfélaganna. Tillögur að nýju nafni ♦♦♦ Fréttir á SMS Ferðast þú til Flórída? Hefur þú hugsað um að eiga þitt eigið sumarhús? Viltu vita meira? Umboðsaðilar frá Orlando Vacation Homes, USA, verða á Íslandi til að veita þér nánari upplýsingar eftirtalda daga: laugardag 4. mars frá kl. 9:00 til 18:00 sunnudag 5. mars frá kl. 13:00 til 18:00 á Hótel Loftleiðum, Reykjavík. Allir þátttakendur á kynningunni eiga kost á að vinna ókeypis gistingu í Orlandó! www.livinfl.com

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.