Morgunblaðið - 04.03.2006, Page 42

Morgunblaðið - 04.03.2006, Page 42
42 LAUGARDAGUR 4. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Þorbjörg Svein-bjarnardóttir fæddist í Reykjavík 18. ágúst 1946. Hún lést á krabbameins- deild Landspítalans við Hringbraut sunnudaginn 19. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Svein- björn Berentsson, f. 2. september 1920, d. 6. febrúar 1989, frá Krókskoti í Sandgerði, og Hólmfríður Þorbjörg Björnsdótt- ir, f. 5. september 1917, d. 24. nóvember 2000, frá Reynhólum í Miðfirði. Systkini Þorbjargar eru Sigríður, f. 1945, d. 1945, Bjarni, f. 1947, Aðalheiður, f. 1948, Be- rent, f. 1950, Sveinbjörn, f. 1952, d. 1960, Gunnlaugur, f. 1954, Kristín, f. 1956, og Ingibjörg, f. 1956. Systkini sammæðra eru Björn Ingibergur Benediktsson, f. 1937, d. 1999, og Kristín Rut Hafdís Benediktsdóttir, f. 1943. Þorbjörg ólst upp hjá foreldr- um sínum í Sandgerði þar til hún var á fjórða árinu. Þá fór hún í fóstur til frænku sinnar Ólafar Jónsdóttur, f. 1898, d. 1966, sem bjó í Huppahlíð ásamt systkinum sínum, þeim Guð- jóni, Jóhannesi, Guðrúnu, Sigurði og Magnúsi, en þau eru nú öll látin. Ár- ið 1968 taka Þor- björg og sambýlis- maður hennar Helgi Björnsson, f. 13. október 1947, við búskap í Huppa- hlíð. Börn þeirra eru Ólöf Guðrún, lyfjafræðingur, f. 17. maí 1976, Björn, tölvunarfræðingur, f. 19. maí 1978, Jóhanna Hólm- fríður, nemi við HÍ, f. 5. apríl 1981, Elínbjörg, nemi við HÍ, f. 16. mars 1984, og Hjalti Sigur- sveinn, nemi við MH, f. 1. desem- ber 1987. Þorbjörg ólst upp við venjuleg sveitastörf. Hún var í Reykja- skóla frá 1960 til 1963 og lauk þaðan landsprófi. Einnig var hún í Kvennaskólanum á Blönduósi veturinn 1964 til 1965. Eftir að fóstra hennar lést árið 1966 tók hún við húsmóðurstörfum í Huppahlíð og var það hennar starfsvettvangur upp frá því. Útför Þorbjargar verður gerð frá Staðarbakkakirkju í Miðfirði í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Þegar við göngum fram á smára- breiðu þá leitum við ósjálfrátt að fjög- urra laufa smára. Veturinn 1964–1965 var á herbergi 24 í Kvennaskólanum á Blönduósi fjögurra laufa smári, þær Björg, Hanna, Rúna og Þorbjörg. Sunnudaginn 19. febrúar slitnaði eitt blað af smáranum er Þorbjörg sofnaði í hinsta sinn. Hún hafði barist við þann sjúkdóm sem tekur svo stóran toll af mannfólkinu og er hún sú þriðja af okkur skólasystrunum 41 en hann var áður búinn að taka þær Halldóru Jónsdóttur og Ingibjörgu Skúladótt- ur og minnumst við þeirra einnig. Þegar ég kom í skólann pantaði ég hjá frú Huldu forstöðukonu herbergi með glugga út að sjó og var mér fylgt lengst upp á loft. Þar inni voru tvö rúm og tvær lokrekkjur. Ég valdi rúmið við gluggann, svo komu Rúna og Hanna með rútunni og um kvöldið birtist sú fjórða, það var Þorbjörg og fékk hún lokrekkjuna við minn höfða- gafl og neðstu hillu í skápnum milli rekkjanna. Þá vantaði skápinn til að hengja kjóla og kápur í, þeir voru bara þrír. Björg og Þorbjörg voru úr sveit og áttu því færri föt og deildu því skáp. Rúna og Hanna voru að sunnan og áttu meira af fínni fötum og höfðu því sinn skápinn hvor. Eitthvað var hent gaman að lokrekkjunum um kvöldið er við fórum í háttinn. Margt skemmtilegt dreif á daga okkar þennan vetur. Fyrir árshátíð- ina áttum við von á konu til að æfa skólakór. Þorbjörg, sem var góð eft- irherma og hafði verið á Reykjaskóla kynntist henni þar og var búin að ná rödd hennar og töktum og hafði lofað okkur að heyra. Þegar svo Björg frá Lóni mætti til kennslu fannst mér eins og ég hefði þekkt hana áður. Einnig hermdi hún eftir sumu fólki í hennar heimasveit og þá var oft hleg- ið. Hún lék í leikritinu Dollaraprins- inn á árshátíðinni og þurfti þar að gera hlut sem hún var ekki ánægð með en það var að reykja konuvindla. Hún þurfti að æfa þetta atriði og fór- um við út að haughúsdyrum, í hvarf við skólann, eitt fimmtudagskvöld og æfði hún sig þar þangað til hún taldi nóg komið. Þá dembdum við í okkur bláu ópali og drifum okkur inn áður en stelpurnar komu heim af bíói. Þeg- ar við komum upp á efri gang stóð Hulda skólastýra þar, ásamt smið, og voru þau að dýrka upp hurð sem skellst hafði í lás og var ein náms- meyjan þar fyrir innan. Við urðum skelkaðar en buðum gott kvöld og fór- um inn á herbergi. „Skyldi hún hafa fundið reykingalykt af mér?“ sagði Þorbjörg, en aldrei var minnst á það. Svo kom árshátíðin með söng og leiknum atriðum. Þegar búið var að farða Þorbjörgu og hún brosti var eins og vantaði í hana tvær til þrjár tennur. Á bóklega sviðinu hafði Þorbjörg góða námshæfileika og er við útskrif- uðumst var hún hæst í íslensku og fékk verðlaun fyrir. Hún hefði átt auðvelt með að ganga áfram mennta- veginn en hún kaus sína kæru sveit og skepnurnar sem henni þótti vænt um. Síðastliðið sumar, 4.–5. júní, kom- um við skólasystur saman á Blöndu- ósi og áttum skemmtilegar stundir saman og kom Þorbjörg þangað. Þótt hún væri ekki vel frísk skemmti hún sér eins og við hinar. Við fórum um í skólann og rifjuðum upp minningar. Hins vegar höfum við ekki séð hinar frægu lokrekkjur á númer 24 síðan við útskrifuðumst því lykillinn að her- berginu er víst týndur. Þorbjörg, við viljum þakka alla skemmtunina þennan vetur og ætíð síðan, einnig öll jólakortin og símtölin. Við munum minnast þín er við kom- um saman í framtíðinni og kannski ekki síst er við látum tertu á borðið. Fjölskyldan í Huppahlíð, Helgi, Ólöf Guðrún, Björn, Jóhanna Hólm- fríður, Elínbjörg og Hjalti Sigur- sveinn. Ykkar missir er mikill. Innilegustu samúðarkveðjur. Herbergisfélagarnir og aðrar úr skólasystraárganginum 1964–1965, Björg, Rúna, Hanna. Það verður önnur tilfinning að fara um Miðfjörðinn og vita að vökul augu Þorbjargar í Huppahlíð fylgja manni ekki lengur eftir. Þorbjörg fylgdist vel með öllu sem fram fór í hennar heimasveit og það var hægt að fletta upp í hennar snjalla huga og hún mundi alla hluti. Ár og dagar, atburð- ir og málefni voru eins og greypt í hennar huga og hún gleymdi engu. Mannlífið og taktur þess hefur alla tíð verið til umræðu í Huppahlíð og við þetta ólst hún upp. Virðing fyrir sérhverri manneskju í ólíkum að- stæðum lífsins og þessi einstaka rat- vísi að góðum þáttum í fari fólks ein- kenndi umræðuna í Hlíð. Samt var spurt ákveðinna innihaldsríkra spurninga og það var beðið um heið- virð og einlæg svör. Þorbjörg var hæglát kona og prúð í öllu dagfari. Með sinni eðlislægu hóg- værð tókst henni engu að síður að koma sinni skoðun á framfæri. Kímin og hnyttin tilsvör hennar höfðu alltaf merkingu. Henni lét það betur að vera heima við og taka þar á móti gestum og gangandi en að vera sjálf gestur. Og það var engum í kot vísað að koma á heimili Þorbjargar og Helga. Góðgerðir voru miklar og góð- ar en það sem meira var, hið andlega gleymdist aldrei. Þannig var umræð- an um gildi lífsins, ræktun lands og lýðs. Kirkjan og trúin voru einnig hugleidd sem og staða byggðar í land- inu. Börnin þeirra fóru öll með þennan heimamund suður í stórborgina til að stunda sitt nám. Þau voru hvött til dáða og þeim fylgdu góðar óskir og bænir. Samt var Reykjavík aldrei staður fyrir Þorbjörgu og í raun eini staðurinn í hennar lífi sem hún sýni- lega flýtti sér að sinna erindum og geta komist sem fyrst aftur í kyrrðina fyrir norðan. Hlíð var staðurinn henn- ar og Helga og þar féll þeim vel og á Staðarbakka er kirkjan þeirra. Allt hafði sína röð og reglu og fáum ef nokkrum tókst að breyta hennar skipan mála. Lífið var á sinn hátt svo frjálst og leikandi um leið og það var í sínum föstu skorðum. Inn í þennan frjálsa og leikandi heim fengum við að ganga þau ár sem við bjuggum í nágrenninu. Í Hlíð fengum við líka heiðarlega og einarða úttekt á störfum okkar sem við sinntum í héraðinu. Þetta mótaði okkur og gaf okkur farsæla stefnu til framtíðar. Orð Þorbjargar og góð leiðsögn hennar mun ávallt lifa með okkur. Við vitum líka að Helgi mun áfram eiga sína skoðun og það er gott að mega á stundum hugsa upphátt með slíkum öðlingi. Nú er hvíld frá erfiðum sjúkdómi og friður leggst í sporin hennar Þor- bjargar. Hugur okkar er hjá Helga og börnum hans og við biðjum þeim blessunar Guðs. Unnur og Pálmi. Mig langar til að minnast Þor- bjargar Sveinbjarnardóttur með nokkrum orðum. Hún hefur átt í harðri lífsbaráttu undanfarin ár en hún greindist fyrir rúmum ellefu ár- um með þann sjúkdóm sem varð henni að aldurtila. Undanfarna mán- uði hefur hún að mestu dvalið fjarri eiginmanni sínum og heimili en í ná- lægð og skjóli barna sinna. Missir þeirra er mikill. Það er um aldarfjórðungur síðan ég og fjölskylda mín fórum að leggja lykkju á leið okkar þegar við áttum leið um Norðurland til að heimsækja heimilisfólkið í Huppahlíð í Miðfirði. Ekki sýndum við borgarbörnin alltaf þá nærgætni að láta vita af ferðum okkar áður en við duttum inn í eldhús- ið hjá Þorbjörgu. Þar stóð hún vakt- ina iðulega fram yfir miðnætti þótt virkur dagur væri. Afurðirnar spruttu síðan fram sem dýrindis veisl- ur og þurfti þá ekki stóra tilefnið. Þau hjón voru höfðingjar heim að sækja og gestrisnin fáheyrð. Þau gáfu af sér í besta skilningi og hef ég oft haft á orði að það sé mannbætandi að fá að þekkja og eiga samskipti við eins miklar manneskjur. Þótt hluti Íslend- inga velti sér upp úr einhverri vel- megun sem maður veit ekki hvaðan kemur er líka stór hópur fólks sem hefur búið við önnur kjör, eins og vin- ir mínir sauðfjárbændurnir í Miðfirði. Þeirra merkja gætti þó hvorki í við- móti, viðhorfum né atlæti þeirra. Mannleg reisn byggir á öðrum gild- um. Hjónin Þorbjörg og Helgi hafa skil- að fimm mannvænum og efnilegum einstaklingum til samfélagins. Þau hafa öll hafa lagt rækt við nám sitt og störf eins og foreldrarnir hafa lagt rækt við þau í uppvextinum. Ég efast um að stærri systkinahópur hafi lokið sínum stúdentsprófum úr Mennta- skólanum við Hamrahlíð með betri ástundun og árangri en einmitt þau. Þorbjörg var afar hlý og greind kona með einstaklega góða nærveru. Hún var sérlega næm á fólk og sýndi því einlægan áhuga. Hún var glettin með góða kímnigáfu. Þorbjörg ólst upp hjá fullorðnum systkinum í Huppahlíð frá þriggja ára aldri. Sú lífsreynsla að missa samband við for- eldra sína og systkini svo ung hafði mjög djúptæk áhrif á líf hennar. Þeg- ar hún trúði okkur fyrir tilfinninga- legum áhrifum þessarar reynslu stað- festi hún á ljóslifandi hátt það sem við teljum okkur vita, nefnilega það að engin reynsla í lífinu orkar sterkar á einstaklinginn en sú að missa tengsl við sína nánustu á unga aldri, meðan engar forsendur eru til að vinna úr því áfalli. Það er varla ofsagt að þeim sem hún tengdist síðar hafi hún tengst sterkum böndum. Ég og fjölskylda mín vottum Helga, Ólöfu, Birni, Jóhönnu Hólm- fríði, Elínu og Hjalta okkar innileg- ustu samúð í þeirra miklu sorg. Bless- uð sé minning Þorbjargar. Valgerður. Núna þegar við kveðjum Þor- björgu Sveinbjarnardóttur, langar mig að minnast hennar með nokkrum orðum. Ég var svo heppinn að komast í sveit í Huppahlíð í Miðfirði árið 1959, þá átta ára gamall og dvaldi síðan næstu fjögur sumur. Þar kynntist ég heimasætunni Þorbjörgu, Helga kaupamanni og systkinunum Guð- jóni, Magga, Ólöfu, Sigga og Gunnu. Þetta er tími sem ég gleymi aldrei. Margt virkaði framandi á borgar- barnið s.s. rafmagnsleysi, rakstrarvél dregin af hesti, smalamennska o.fl. Eftirminnilegust og ánægjulegust voru þó kynnin af fólkinu og heim- ilisbragnum. Stundum var gripið í spil á kvöldin, lesið „Heima er best“, Úrval, ein- hverjir rómanar eða bara spjallað. Guttarnir úr Reykjavík, Ágúst, Gunn- ar og ég, fengum að vera með og taka þátt í flestu. Mér er minnisstætt hve gaman var að fá að vera með ungling- unum á bænum þeim Þorbjörgu, Helga og Margréti sem voru næstum fullorðin í mínum augum. Síðasta sumarið mitt í Huppahlíð þóttist ég líka taka eftir að þau Þorbjörg og Helgi væru farin að fella hug hvort til annars. Í gegnum árin hefur alltaf verið jafn gott að sækja fjölskylduna í Huppahlíð heim og sérstök upplifun að gista í gamla bænum. Þorbjörg rak heimili sitt af reisn og myndugleika, var gestrisnari en annað fólk, eign- aðist góða vini og nágranna en rækt- aði umfram allt innviði fjölskyldunn- ar. Það er nánast afrek af hálfu þeirra hjóna að hafa gefið börnum sínum það veganesti sem raun ber vitni. Þroski og samkennd hafa einkennt systkinin, sem öll hafa gengið menntaveginn. Það er mér heiður að hafa fengið að vera samferða Þorbjörgu um stund, kynnast henni glaðlegri og glettinni á góðri stund en sjá jafnframt æðru- leysi hennar þegar á reyndi. Kæra fjölskylda, Helgi og börn, megi góðar minningar um eiginkonu og móður veita ykkur styrk. Tryggvi. Kær vinkona og skólasystir er fall- in frá eftir mikla og langa baráttu við sjúkdóm sinn, langt um aldur fram, aðeins 59 ára gömul. Það er erfitt að sætta sig við þá staðreynd að þú sért farin í þína síðustu ferð. Margs er að minnast þegar litið er til baka. Kynni okkar hófust á Kvennaskólanum á Blönduósi veturinn 1964–1965. Á vin- áttu okkar bar aldrei skugga. Þor- björg var prúð kona og yfirlætislaus. Hún var jafnan glöð og oft með spaugsyrði á vörum. Hún var vinnu- söm, mikil húsmóðir og féll aldrei verk úr hendi. Eitt sinn vorum við hjónin í sunnudagsbíltúr með börnin okkar og foreldrar mínir á öðrum bíl. Ókum við um Miðfjörðinn og ákvað ég að fara heim að Huppahlíð og heilsa upp á Þorbjörgu. Gestagangur var þar mikill og var fólk að fara er við renndum í hlaðið. Ekki var við annað komandi en að við kæmum öll í kaffi. Það voru hlýjar móttökur sem við fengum hjá þeim hjónum og fullt borð af heimabakkelsi. Ætíð var gaman að tala við Þorbjörgu því hún var kona fróð og mjög vel lesin. Síðastliðið vor hittumst við kvennaskólasysturnar á Blönduósi til að halda upp á að fjöru- tíu ár væru liðin frá því við vorum saman á Kvennaskólanum. Þar mætt- ir þú þrátt fyrir þín miklu veikindi. Þú kvartaðir ekki, alltaf sama æðruleysið og sérstök hlýja, það voru þín ein- kenni. Ekki datt mér í hug þegar ég hringdi í þig 14. febrúar sl. að það yrði síðasta símtalið okkar, en svona er líf- ið. Ég votta Helga og börnum þeirra mína dýpstu samúð og bið góðan Guð að styrkja þau og halda verndarhendi sinni yfir þeim. Blessuð sé minning Þorbjargar. Hvíl í friði. Hrafnhildur Pálmadóttir. Mig langar að minnast Þorbjargar með fátæklegum orðum. Hún var skólasystir mín í tveimur skólum, bæði í Reykjaskóla í Hrútafirði og síð- ar í Kvennaskólanum á Blönduósi. Við deildum herbergi saman í Reykjaskóla og með okkur tókst prýðisvinskapur. Þegar hugsað er til baka hafa verið allt of lítil samskipti við skólasystkini (skólasystur), þar sem svo auðvelt er að mynda tengsl þegar maður er ung- ur. En lífið og vinnan gera menn upp- tekna af sínu eigin og tengslin slitna. Þorbjörg var heilsteypt, greind og glaðlynd og gott til hennar að leita. Þetta álit á ég sameiginlegt með skólasystrum úr Kvennaskólanum, öllum þótti mikið vænt um Þorbjörgu. Svo var hún duglegust að mæta á skólamót sem voru á fimm ára fresti en nú seinni ár með styttra millibili, það síðasta í júní sl. Þrátt fyrir langvarandi veikinda- stríð hennar fylgdist hún ótrúlega vel með okkur hverju og einu sem vorum henni samferða í gegnum árin. Af því ég veit að Þorbjörg las mikið og kunni heil ósköp af ljóðum læt ég fylgja hér með þessum kveðjuorðum ljóð eftir Davíð Stefánsson: Skáldsaga og ljóð skiptust á svofelldum skætingi á dögunum: Ljóðið kvað: Ég er leitt á sögunum. Skáldsagan mælti: Það er skömm að ljóðunum, reykur, reykur, sem rýkur úr hlóðunum. Ljóðið kvað: Það lifir í glæðunum. Þú ert aska, en eldur í kvæðunum. Enn tók sagan í sama strenginn: Þú ert ljómandi í skáp, en það les þig enginn. Ljóðið kvað: Þú ert lítils virði. Botninn er uppi í Borgarfirði. Burtu skundaði skáldsagan hreykin, var þungt fyrir brjósti, þoldi ekki reykinn. En ljóðið söng: Ég á síðasta leikinn. Ég votta fjölskyldu Þorbjargar mína dýpstu samúð. Ragnhildur Valgeirsdóttir. ÞORBJÖRG SVEIN- BJARNARDÓTTIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.