Morgunblaðið - 04.03.2006, Síða 46
46 LAUGARDAGUR 4. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJUSTARF
ÞAÐ er sígilt viðhorf að gæðamál-
tíð skuli vera þriggja rétta. Fyrst á að
bragða á forrétti sem kitlar bragð-
laukana og eykur matarlystina fyrir
aðalréttinn. Aðalrétturinn er uppi-
staða máltíðarinnar sem mikilvægt er
að neyta með fínum drykkjum. Yf-
irleitt er gott að jafna sig eftir aðal-
réttinn og bíða þess að eftirrétturinn
sé reiddur fram af fagmennsku sæl-
kerakokksins. Vellíðanin að þessari
veislu lokinni getur oft orðið ólýsan-
leg.
Skákunnendur fá á næstu tveim
vikum að njóta veislu sem slær flest-
um dýrindis máltíðum ref fyrir rass.
Forrétturinn verður borinn fram í
Menntaskólanum í Hamrahlíð dag-
ana 3. og 4. mars þar sem yfir 300
skákmenn koma saman til að tefla í
seinni hluta Íslandsmóts skákfélaga.
Mikið verður um dýrðir og laugar-
dagskvöldið verður haldin vegleg
verðlaunaafhending í Kringlukránni.
Tveim dögum síðar verður aðalrétt-
urinn framreiddur þar sem hið geysi-
öfluga Reykjavíkurskákmót fer fram
í skákhöllinni í Faxafeni 12. Vænta
má að rétturinn hafi yfir sér fjölþjóð-
legt yfirbragð þar sem ægir og grúir
af skákmönnum frá öllum heimshorn-
um. Þegar níu daga mótið rennur sitt
skeið á enda verður skundað í Ráðhús
Reykjavíkur þar sem glæsilegur eft-
irréttur verður á boðstólum. Búast
má við mikilli þátttöku í þessu móti en
það verður opið fyrri daginn, 15. mars
en lokað seinni daginn, 16. mars.
En snúum okkur nánar að forrétt-
inum, Íslandsmóti skákfélaga, en þar
má gera ráð fyrir að keppnin í efstu
deild verði afar hörð. A-sveit Tafl-
félags Reykjavíkur hefur 24½ vinn-
ing og trónir á toppnum á meðan a-
sveit Taflfélags Vestmannaeyja er
ekki langt undan með 22½ vinning.
Þessar tvær sveitir etja kappi saman
að morgni laugardagsins 4. mars og
hugsanlega verða úrslitin á þá lund að
línur verði nokkuð skýrar þegar síð-
asta umferðin hefst kl. 16.00. Fallbar-
áttan í efstu deild verður einnig í
brennidepli en þar munu sveit a-
Garðbæinga, b-sveit Hellis og lið Sel-
foss berjast á banaspjótum. Í öðrum
deildum er einnig mikil spenna og eru
allir skákáhugamenn hvattir til að
fjölmenna í MH til að fylgjast með
skemmtilegri keppni. Nánari upplýs-
ingar um hana er að finna á
www.skak.is.
Skákþing Vestmannaeyja
8. janúar sl. hófst Skákþing Vest-
mannaeyja og var um maraþonmót
að ræða þar sem því lauk ekki fyrr en
26. febrúar sl. en alls tóku 16 skák-
menn þátt. Allir tefldu við alla og var
umhugsunartíminn 1 klst. á 30 leiki
og 30 mínútur til að klára. Á meðal
keppenda voru þrír fyrrum skák-
meistarar Vestmannaeyja, Einar
Guðlaugsson (1860) sem vann titilinn
síðast árið 1968, Sverrir Unnarsson
(1855) sem hafði titil að verja og tí-
faldur skákmeistari Vestmannaeyja,
Sigurjón Þorkelsson (1825).
Búast mátti við því fyrirfram að
baráttan um titilinn myndi standa á
milli þeirra en aðrir keppendur voru
ekki á þeim buxunum að láta í minni
pokann baráttulaust og strax í ann-
arri umferð urðu óvænt úrslit þegar
Nökkvi Sverrisson, fyrrverandi Ís-
landsmeistari barna, lagði Einar að
velli. Einar beit þá í skjaldarrendur
og lýsti því yfir að hann myndi bera
sigur úr býtum í viðureign sinni við
föður Nökkva, Sverri Unnarsson.
Það og gerðist og Einar missti síðan
til viðbótar eingöngu einn vinning á
mótinu og það dugði til að verða jafn
og efstur Sigurjóni Þorkelssyni á
mótinu. Þeir munu síðar heyja einvígi
um meistaratitilinn en lokastaða
efstu manna varð annars þessi:
1.–2. Einar Guðlaugsson og Sigurjón Þorkels-
son 13 vinninga af 15 mögulegum.
3. Magnús Matthíasson (1595) 12 v.
4. Sverrir Unnarsson (1855) 11½ v.
5. Þórarinn Ingi Ólafsson (1690) 9½ v.
6. Ólafur Týr Guðjónsson (1590) 9 v.
7. Nökkvi Sverrisson (1600) 8½ v.
Það vakti athygli að árangur ungu
keppendanna var góður en þeir náðu
allir að hirða vinninga af þeim eldri og
reynslumeiri. Þeir munu sjálfsagt
hækka á stigum fyrir frammistöðuna
og mæta sterkir til leiks fyrir d-sveit
TV á Íslandsmóti skákfélaga.
Kazimierz Olszynski sigrar
á Skákþingi Akureyrar
Pólski skákmaðurinn Kazimierz
Olszynski (2282) vann öruggan sigur
á Skákþingi Akureyrar sem lauk fyr-
ir skömmu. Þar sem hann býr á Ak-
ureyri öðlaðist hann titilinn Skák-
meistari Akureyrar 2006 en þetta er
væntanlega í fyrsta skipti sem er-
lendur ríkisborgari verður meistari í
íslensku bæjarfélagi. Kazimierz tefldi
af miklu öryggi á mótinu en alls fékk
hann tíu vinninga af ellefu mögu-
legum. Lokastaða mótsins varð ann-
ars þessi:
1. Kazimier Olszynski (2281) 10 vinninga af 11
mögulegum.
2. Þór Valtýsson (2162) 8½ v.
3. Gylfi Þórhallsson (2187) 8 v.
4. Smári Ólafsson (1875) 7½ v.
5. Tómas Veigar Sigurðarson (1810) 7 v.
6. Hjörleifur Halldórsson (1925) 6½ v.
7. Sigurður Eiríksson (1953) 6 v.
8. Ágúst Bragi Björnsson (1745) 4½ v.
9. Haukur Jónsson (1515) 4 v.
10. Ólafur Evert Úlfsson (1395) 2½ v.
11. Davíð Arnarson (1380) 1 v.
12. Alexander Arnar Þórisson (1355) ½ v.
Ari Friðfinnsson var skákstjóri á mótinu.
Leko efstur í hálfleik
Hið sígilda ofurmót í Linares á
Spáni fer fram á tveim stöðum í ár,
annars vegar í Moreliu í Mexíkó og
hinsvegar í Linares. Fyrri hlutinn fór
fram í Mexíkó og það fór vel í ung-
verska ofurstórmeistarann Peter
Leko (2740) en að loknum sjö umferð-
um hefur hann 5 vinninga. Heims-
meistarinn búlgarski, Veselin Topa-
lov (2801) náði sér ekki á strik í fyrri
hlutanum og hefur 2½ vinning. Stað-
an á mótinu er annars þessi:
1. Peter Leko (2740) 5 vinninga af 7 mögu-
legum.
2. Levon Aronjan (2752) 4½ v.
3. Peter Svidler (2765) 4 v.
4.–5. Vassily Ivansjúk (2729) og Teimour
Radjabov (2700) 3½ v.
6. Francisco Pons Vallejo (2650) 3 v.
7. Veselin Topalov (2801) 2½ v.
8. Etienne Bacrot (2717) 2 v.
Hægt er að fylgjast með skákum
meistaranna í beinni útsendingu á
netinu, t.d. á skákþjóninum ICC.
Einnig er að hægt að fá nánari upp-
lýsingar um mótið á heimasíðu þess,
http://linares.soloajedrez.com/.
Munu Þröstur Þórhallsson, t.v., og Stefán Kristjánsson leiða sveit TR
til sigurs á Íslandsmóti skákfélaga?
Forréttur að skákveislu
HELGI ÁSS GRÉTARSSON
daggi@internet.is
SKÁK
Menntaskólinn í Hamrahlíð
ÍSLANDSMÓT SKÁKFÉLAGA
3.–4. mars 2006
KSS í Grensáskirkju
Á MORGUN, sunnudaginn 5. mars,
er æskulýðsdagur þjóðkirkjunnar. Í
tilefni dagsins verður sérlega
hressileg guðsþjónusta í Grens-
áskirkju kl. 11. Félagar úr Kristi-
legum skólasamtökum (KSS) og
kristilegu stúdentafélagi (KSF) ann-
ast tónlist o.fl. en Guðni Már Harð-
arson prédikar. Hann starfar sem
framkvæmdastjóri Kristilegrar
skólahreyfingar (KSH) og er að
ljúka námi í guðfræði frá HÍ. KSS
og KSF hafa þónokkur tengsl við
Grensáskirkju. KSS hefur und-
anfarið haft þar bænastundir og
KSF stundum fengið inni fyrir fundi
félagsins. Þá má geta þess að núver-
andi sóknarprestur Grensássafn-
aðar er fyrrverandi skólaprestur á
vegum KSS og KSF.
Barna- og fjöl-
skyldumessur í
Stóra-Núpsprestakalli
BARNA- og fjölskyldumessur verða
í Stóra-Núpsprestakalli alla sunnu-
daga í mars til skiptis á kirkjunum.
Hinn 5. mars kl. 14 í Ólafsvalla-
kirkju og 12. mars í Stóra-
Núpskirkju. Ég bið foreldra að
koma með börnum sínum til kirkn-
anna í þessi fáu skipti. Sókn-
arprestur.
Æskulýðsdagurinn
í Árbæjarkirkju
DAGURINN verður meira og minna
í höndunum á ungu kynslóðinni. Í
guðsþjónustunni kl. 11.00 munu
börn úr TTT-starfi kirkjunnar sýna
leikritið „Davíð og Golíat“ Börn í
STN starfinu leiða safnaðarsöng
ásamt því að syngja nokkur lög fyr-
ir kirkjugesti. Börn í tónlistarnámi
flytja nokkur dægur og klassísk lög.
Gamlir góðir vinir mæta auðvitað
líka. Um kvöldið er léttmessa í anda
æskulýðsdagsins þar sem ungmenni
munu sjá um flest það sem snýr að
messunni. Hljómsveit sem skipuð er
ungmennum úr starfi kirkjunnar og
hverfisins spila. Unglingar sem
komust með Skrekkatriði sitt alla
leið í sex liða úrslit í Borgarleikhús-
inu í vetur setja upp söngleikinn í
kirkjunni í tilefni æskulýðsdagsins.
Er óhætt að mæla með þeirri sýn-
ingu. Þau voru ekki aðeins sjálfum
sér til sóma heldur og skólanum sín-
um og hverfinu. Ógleymanleg sýn-
ing hverjum þeim sem séð hafa.
Vertu ung/ur í anda og láttu sjá þið
á æskulýðsdaginn.
Guðsþjónusta
Sólheimakirkju
GUÐSÞJÓNUSTA verður í Sól-
heimakirkju í Grímsnesi sunnudag-
inn 5. mars, æskulýðsdaginn, kl. 14.
Sr. Birgir Thomsen þjónar fyrir alt-
ari og prédikar. Álftaneskórinn
kemur í heimsókn og leiðir sönginn
undir stjórn Bjarts Loga Guðnason-
ar organista og kórstjóra. Valgeir
F. Backman les ritningarlestra.
Kaffihúsið Græna kannan er opið
eftir guðsþjónustuna. Verið öll
hjartanlega velkomin að Sól-
heimum.
Kristniboðsvika
hefst á sunnudag
ÁRLEG kristniboðsvika Sambands
íslenskra kristniboðsfélaga hefst á
sunnudag kl. 16 í húsi KFUM og K
við Holtaveg og verða samverur og
samkomur þar alla vikuna nema á
mánudagskvöld. Yfirskrift sam-
komanna er úr Matteusarguðspjalli
11. kafla: „Komið til mín!“
Kristniboðsvikan er til uppörv-
unar og hvatningar en einnig kynn-
ingar á því starfi sem unnið er að á
hverjum tíma. Því verður á hverri
samkomu kastljósinu beint að ein-
hverjum einum þætti kristniboðsins
en áherslan einnig sterk á prédikun
Guðs orðs og það hvernig trúin á
Guð hefur áhrif á einstaklingana.
Margir frábærir tónlistar- og söng-
kraftar munu hefja upp raust sína
s.s. Gospelkór KFUM og K og Keith
Reed, Miriam Óskarsdóttir, Helga
Magnúsdóttir, Kanga-tríóið og
hljómsveit ungmenna úr Kristi-
legum skólasamtökum o.fl.
Samband íslenskra kristniboðs-
félaga eða Kristniboðssambandið er
nú á sínu 77 starfsári og hefur alla
tíð lagt áherslu á að senda fólk til
starfa á meðal afskiptra þjóðflokka,
byggja upp hjúkrunar- og skóla-
starf og veitt neyðarhjálp og unnið
að þróunarverkefnum auk þess að
veita fræðslu um kristna trú.
Kristniboðar frá Íslandi hafa byggt
upp skóla, heilsugæslustöðvar og
kirkjur, menntað leiðtoga, unnið að
þýðingum og margt, margt fleira.
Um þessar mundir eru þrír
kristniboðar í Kenýa og tvær fjöl-
skyldur í Eþíópíu, önnur í höf-
uðborginni, Addis Abeba, og hin á
hinu þurra og heita Ómo Rate svæði
í suðvesturhluta landsins. Þessu til
viðbótar styrkir Kristniboðs-
sambandið framleiðslu útvarps-
þátta sem sendir eru til Kína og
gerð sjónvarpsefnis á arabísku.
Á fyrstu samkomunni á sunnudag
5. mars verður sýnd kvikmynd frá
Ómo Rate kl. 16 og mun Bjarni
Gíslason kristniboði sitja fyrir svör-
um eftir sýninguna en hann starfaði
þar í þrjú ár. Klukkan 17 hefst svo
hin eiginlega samkoma þar sem
Guðlaugur Gunnarsson, kerfisfræð-
ingur og kristniboði, mun prédika.
Sólrún Ásta Haraldsdóttir segir frá
reynslu sinni, Kanga-tríóið syngur
og fleira verður á dagskrá.
Samkomur vikunnar frá þriðju-
degi til laugardags hefjast klukkan
20 og eru öllum opnar. Nánari dag-
skrá má sjá á heimasíðu SÍK: sik.is.
Dagur unga
fólksins í Seljakirkju
ÆSKULÝÐSDAGURINN svokall-
aði verður í kirkjunni sunnudaginn
5. mars. Dagskrá Seljakirkju verður
á þessa leið. Kl. 11.00 verður sunnu-
dagaskólinn á sínum stað. Barnakór
Seljakirkju syngur undir stjórn
Láru Hrannar Pétursdóttur. Kl.
14.00 verður almenn guðsþjónusta
þar sem ritningarlestur og bænir
verða í höndum ungs fólks auk þess
sem æskulýðssöngvar verða sungn-
ir. Mæðginin Jóna og Elí flytja pré-
dikun. Kl. 20.00 verður kvöldvaka á
vegum æskulýðsfélagsins SELA þar
sem hljómsveitin Baul kemur fram
auk Gauta rappara. Félagar úr
æskulýðsfélaginu flytja leikþátt og
Jón Gnarr flytur hugleiðingarorð.
Verið velkomin og njótum æsku-
lýðsdagsins saman.
Æskulýðsdagurinn
í Hjallakirkju
Á ÆSKULÝÐSDEGI þjóðkirkj-
unnar, 5. mars, verður æskulýðs-
guðsþjónusta í Hjallakirkju kl. 11.
Barnakór úr Snælandsskóla leiðir
sönginn undir stjórn Heiðrúnar Há-
konardóttur, og Lóa Björk Jóels-
dóttir leikur undir á píanó. Krakkar
úr barna- og unglingastarfinu sjá
um lestra og bænir. Eftir hádegi, kl.
13 verður að venju sunnudagaskóli
og þá fáum við heimsókn frá Leik-
brúðulandi. Sýnt verður leikritið
Selurinn Snorri, en sú saga segir frá
ævintýrum litla selsins hans Snorra
á ísbreiðunni langt norður í Íshaf-
inu.
Verið öll hjartanlega velkomin í
Hjallakirkju á æskulýðsdaginn.
Kvöldmessa,
lofgjörð og bílabæn
Í TILEFNI æskulýðsdagsins, 5.
mars, verður helgihald með nokkuð
öðru sniði en aðra sunnudaga og er
m.a. annar messutími. Tónlistar-
guðsþjónusta með frábæru tónlist-
arfólki Hippabandsins verður í
kirkjunni kl. 20 um kvöldið, en það
verður ekki guðsþjónusta á hefð-
bundnum tíma kl. 14. Í þessari
kvöldmessu prédikar æskulýðs-
leiðtogi okkar Hulda Líney Magn-
úsdóttir og unglingar lesa úr Ritn-
ingunni. Æskufólk og ungt fólk á
öllum aldri er hjartanlega velkomið
og það verður vonandi þétt setinn
bekkurinn. Ungu fólki, sem fætt er
1989, og komið á bílprófsaldur er
boðið sérstaklega til guðsþjónust-
unnar til að minnast þess að þrjú ár
eru liðin frá fermingunni og til að
þiggja bílabæn, sem kirkjan vill fá
að gefa þeim. Sr. Kristján Björns-
son þjónar fyrir altari með bæn og
blessun og sýslumaðurinn okkar,
Karl Gauti Hjaltason, les útgöngu-
bæn. Barnaguðsþjónusta verður á
sínum stað kl. 11 árdegis með
barnakórnum Litlum lærisveinum,
kórstjórum sínum og barnafræð-
urum kirkjunnar. Þessi dagur er
jafnframt kirkjudagur leikskólans
Kirkjugerðis. Börnin á Kirkjugerði
munu fjölmenna og m.a. syngja
undir leiðsögn leikskólakennara.
Kirkjuprakkarar (6–8 ára krakka)
byrja samverustundina í barna-
guðsþjónustunni og færa sig síðan
yfir í starfið sitt í fræðslustofunni.
TTT-kirkjustarf 9–12 ára krakka
verður í fræðslustofunni kl. 12.30.
Prestar Landakirkju.
Leikrit sýnt við
fjölskyldumessu
í Langholtskirkju
Á ÆSKULÝÐSDAGINN, 5. mars,
verður stund kl. 11 í Langholts-
kirkju fyrir alla fjölskylduna. Stopp
leikhópurinn sýnir leikrit, Graduale
futuri syngur, börn leika á hljóðfæri
og lesa ritningartexta og bænir.
Foreldrar sem og afar og ömmur
eru hvattir til að koma með börnum
sínum.
Æskulýðsdagur
þjóðkirkjunnar
í Hafnarfjarðarkirkju
SUNNUDAGURINN 5. mars er
æskulýðsdagur þjóðkirkjunnar. Af
því tilefni er samkvæmt venju mikið
um að vera í Hafnarfjarðarkirkju
enda blómlegt barna- og æskulýðs-
starf við kirkjuna. Dagurinn hefst
með fjölskylduhátíð kl. 11. Þar
koma saman báðir sunnudagaskólar
kirkjunnar. Hljómsveitin Gleðigjaf-
arnir leikur undir söng, en hún sam-
anstendur af leiðtogum í barna-
starfinu. Barnakór Hafnar-
fjarðarkirkju kemur líka í heimsókn
og syngur. Báðir prestar kirkj-
unnar þjóna. Eftir stundina er boðið
upp á hressingu í safnaðarheim-
ilinu.
Kl. 18 hefst síðan poppguðsþjón-
usta í umsjón æskulýðsstarfs Hafn-
arfjarðarkirkju. Hinn eini sanni
Jónsi kemur í þyrlu til guðsþjónust-
unnar og lendir 17.45. nálægt kirkj-
unni. Flytur hann síðan nokkur lög í
poppguðsþjónustunni ásamt Gleði-
gjöfunum. Unglingakór kirkjunnar
syngur með honum, en mikill fjöldi
barna og unglinga sækir reglulega
kórastarf kirkjunnar. Guðlaug
Helga, guðfræðinemi og leiðtogi í
æskulýðsstarfinu, predikar við
guðsþjónustuna. Eftir guðsþjón-
ustuna bjóða fermingarbörn öllum
kirkjugestum til veislu í safn-
aðarheimilinu, en þær veislur eru
víðfrægar í Hafnarfirði fyrir rausn-
arskap.
Basar í Fríkirkjunni
í Hafnarfirði
Á MORGUN, sunnudaginn 5. mars,
verður guðsþjónusta í Fríkirkjunni í
Hafnarfirði kl. 13.
Að lokinni guðsþjónustu hefst svo
hinn árlegi basar Kvenfélagsins og
verður hann í safnaðarheimilinu.
Að venju verður þar margt
skemmtilegt á boðstólum, kökur og
hvers kyns handavinna.
Allur ágóði af basarnum rennur
til safnaðarstarfsins en Kvenfélagið
hefur fært kirkjunni margar góðar
gjafir og stutt allt safnaðarstarf
með framlögum sínum. Þess er því
vænt að safnaðarfólk og velunnarar
Fríkirkjunnar fjölmenni til kirkju
og síðan á basar og styrki gott mál-
efni.
Æskulýðsdagurinn
í Grafarvogskirkju
ÆSKULÝÐSDAGURINN verður
haldinn hátíðlegur eins og venju-
lega. Hefst hann með sameiginlegri
barna- og æskulýðsguðsþjónustu kl.
11.
Munu börnin úr barnamessunum
bæði í Grafarvogskirkju og Borg-
arholtsskóla sameinast á efri hæð
kirkjunnar. Rútuferð verður frá
Borgarholtsskóla kl. 10.45. Umsjón
hafa þau: Hjörtur, Rúna, Ingólfur,
Gummi og Tinna. Séra Lena Rós