Morgunblaðið - 04.03.2006, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. MARS 2006 55
DAGBÓK
Stuðdobl.
Norður
♠KD3
♥ÁK852 N/AV
♦104
♣K87
Vestur Austur
♠Á97542 ♠6
♥D3 ♥G10764
♦KG ♦D9876
♣Á109 ♣64
Suður
♠G108
♥9
♦Á532
♣DG532
Í tvímenningi þarf stundum að
taka áhættu þegar maður óttast að
andstæðingarnir séu komnir á góðan
áfangastað. Þorlákur Jónsson hitti á
réttu stundina til að hræða mótherj-
ana úr góðu spili í vont með hörðu
dobli í viðkvæmri stöðu.
Spilið er frá tvímenningi Bridshá-
tíðar og Þorlákur og Jón Baldursson
voru í AV gegn Svíunum Johan Sylv-
an og Maarten Gustawsson:
Vestur Norður Austur Suður
Jón Gustawsson Þorlákur Sylvan
-- 1 grand Pass Pass
2 tíglar * 2 hjörtu Pass 2 grönd
Pass Pass Dobl ! 3 lauf
Dobl Allir pass
Ekki hefðu allir valið að vekja á
grandi með fimmlit í hjarta, en Gust-
awsson fékk tækifæri til að sýna lit-
inn í næsta hring eftir innákomu
Jóns á tveimur tíglum, sem lofaði
öðrum hálitnum (multi). Sylvan hafði
skiljanlega ekki áhuga á hjartasamn-
ingi og breytti í tvö grönd.
Þegar horft er á allar hendur, sést
að tvö grönd er algerlega skotheldur
samningur. Þorláki leist illa á þessa
þróun. Frá hans bæjardyrum gat
verið rétt að berjast í þrjá tígla, en
dobl er sveigjanlegri sögn og hann
ákvað að láta á það reyna. Sylvan
rann þá af hólmi í þrjú lauf og Jón
doblaði.
Jón hitti á besta útspil – spaðaás
og meiri spaða. Þorlákur trompaði og
spilaði tígli. Sylvan drap með ás, spil-
aði hjarta á ás og henti spaða í
hjartakóng. Spilaði svo tígli. Jón átti
þann slag og prófaði lítið lauf undan
ásnum. Sylvan drap heima og stakk
tígul. Reyndi svo að stinga hjarta
smátt, en Jón gat yfirtrompað og
tekið laufás: tveir niður, 300 og 99%
skor.
Sylvan gat sloppið einn niður, en
það hefði ekki skilað miklu, því 100-
niður gaf NS 93%.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4 4. Rxd4
Rf6 5. Rc3 e5 6. Rdb5 d6 7. Bg5 a6 8.
Ra3 b5 9. Rd5 Be7 10. Rxe7 Rxe7 11.
Bxf6 gxf6 12. Dd2 d5 13. exd5 Dxd5 14.
Dxd5 Rxd5 15. g3 Bb7 16. Bg2 O-O-O
17. O-O Rb4 18. c4 Bxg2 19. Kxg2 Hd2
20. cxb5 axb5 21. Rxb5 Hhd8 22. a3
Rd3 23. b4 Hc2 24. Hab1 e4 25. Kg1 h5
26. a4 h4 27. Hb3 Kb8 28. a5 Re5 29.
He3 Rf3+ 30. Kg2
Staðan kom upp á Meistaramóti
Taflfélagsins Hellis sem lauk fyrir
skömmu. Stefán Freyr Guðmundsson
(2026) hafði svart gegn Hallgerði
Helgu Þorsteinsdóttur (1795). 30...
h3+! 31. Kh1 hvítur hefði tapað hrók
eftir 31. Kxh3 Hh8+ 32. Kg4 Rxh2+.
31... Hxf2! 32. Hxf3 hrókurinn var frið-
helgur vegna mátsins upp í borði. 32...
Hxf3 33. Ha1 Hd5 34. Ra3 Hxa3! og
hvítur gafst upp enda yrði hann mát
eftir 35. Hxa3 Hd1#. Íslandsmóti
skákfélaga lýkur í dag í Mennta-
skólanum v/ Hamrahlíð. Nánari upp-
lýsingar um keppnina er að finna á
www.skak.is.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Svartur á leik.
Þriðjudaginn 7. mars hefst námskeið ávegum Leikmannaskóla Þjóðkirkjunnarum Passíusálmana. Kennt er fimmþriðjudaga, tvo tíma í senn, og hópur
valinkunnra fræðimanna af ólíkum sviðum sem
fjalla á námskeiðinu um ólíkar hliðar sálmanna.
„Þetta er tilraun til að leiða saman mörg sjónar-
horn á Passíusálmana. Sálmarnir hafa verið sam-
ofnir þjóðinni í öll þessi ár og námskeiðinu ætlum
við að skoða hvaða erindi Passíusálmarnir eiga við
samtímann,“ segir Irma Sjöfn Óskarsdóttir, verk-
efnisstjóri Leikmannaskólans.
Kennarar á námskeiðinu verða dr. Margrét
Eggertsdóttir, dr. Sigurður Árni Þórðarson, Árni
Svanur Daníelsson, Smári Ólason og Grétar
Einarsson.
„Dr. Margrét Eggertsdóttir, bókmenntafræð-
ingur og sérfræðingur við Árnastofnun, mun nálg-
ast kveðskap Hallgríms frá sjónarhorni bók-
menntafræðinnar, fjalla um skáldið Hallgrím og
þær trúarhugmyndir og bókmenntabakgrunn
sem sálmarnir spretta úr,“ segir Irma. „Dr. Sig-
urður Árni Þórðarson prestur mun nálgast pass-
íusálmana frá sjónarhorni nútímans; hvað sálm-
arnir segja okkur í dag og hvernig þeir falla að
lífið þjóðarinnar árið 2006 og hvernig nútíma-
maðurinn mætir passíusálmunum.
Árni Svanur Daníelsson guðfræðingur ætlar að
leiða saman Hallgrím og kvikmyndirnar. Hann
ætlar að kynna og sýna á námskeiðinu passíu-
kvikmyndir, og tengja þær þeim hugmyndum sem
finna má í Passíusálmunum,“ segir Irma.
„Smári Ólason kennari, tónfræðingur og tón-
listarmaður hefur safnað saman mörgum af þeim
lögum sem sungin hafa verið við Passíusálmana.
Hann ætlar að sjá um tónlistarþátt námskeiðsins
og leyfa okkur að heyra dæmi úr sínu stóra safni
og bera saman við hvernig sálmarnir eru fluttir í
dag.
Þá mun Grétar Einarsson verslunarmaður,
áhugamaðurinn í kennarahópnum, lesa á hverju
kvöldi námskeiðsins úr Passíusálmunum og fara
yfir útgáfusögu sálmanna,“ bætir Irma við.
Nánari upplýsingar um námskeiðið má fá hjá
Biskupsstofu, í síma 535 1500, þar sem skráning
fer fram. Einnig má finna upplýsingar á vef Leik-
mannaskólans, www.kirkja.is/leikmannaskoli.
Helmingsafsláttur er veittur af námskeiðsgjaldi
fyrir eldri borgara, sem og fyrir hjón.
Námskeið | Leikmannaskólinn heldur námskeið um Passíusálma Hallgríms Péturssonar
Passíusálmarnir í nútímanum
Irma Sjöfn Óskars-
dóttir fæddist á Akra-
nesi árið 1961. Hún lauk
stúdentsprófi frá Fjöl-
brautaskóla Akraness
1981, guðfræðiprófi frá
Háskóla Íslands 1988
og masterspróf frá
Edinborgarháskóla
1993. Irma var vígð
prestur 1988 og starf-
aði í Seljakirkju, Breið-
holti, til 2001, er hún hóf störf sem verkefnis-
stjóri á Biskupsstofu.
Eiginmaður Irmu er Hrólfur Ölvisson fjár-
málastjóri, og eiga þau tvær dætur.
Eftirsjá að Þórhalli
MÉR brá í brún þegar miðillinn
góðkunni, Þórhallur Guðmunds-
son, tilkynnti í þætti sínum á
Bylgjunni að hann væri að hætta
með þáttinn. Ég vil bara segja að
það er mikil eftirsjá að Þórhalli.
Þessi þættir höfða til fólks, sem er
andlega sinnað og hefur ákveðna
sýn á lífið eftir dauðann. Þetta er
fólk á öllum á öllum aldri, og ég
segi fyrir mig að ég læt mig sjald-
an vanta við útvarpstækið þegar
þátturinn er fluttur, enda er Þór-
hallur mikill hæfileikamaður á
sínu sviði og frábær útvarps-
maður. Vonandi sjá forsvarsmenn
Bylgjunnar að sér og hætta við að
taka þáttinn af dagskrá, eða þá að
aðrar útvarpsstöðvar grípi tæki-
færið og taki þáttinn á dagskrá.
Tryggur útvarpshlustandi.
Þjóðarskömm!
NÚ kom að því að engin íslensk
þyrilvængja var tiltæk við það
hörmulega slys sem varð á Hofs-
jökli. Við Íslendingar þurftum að
safna í þjóðarátaki til að kaupa
eina þyrilvængju vegna þess að
það voru ekki til peningar hjá okk-
ar ríki! En því miður gengu önnur
mál framar en heill og öryggi
þjóðarinnar að láta peningana í
eitthvað annað en að setja ein-
hverjar millur í að kaupa þyril-
vængju, nei burgeisarnir í ríkis-
stjórninni borga fremur starfs-
lokasamninga upp á fleiri tugi
milljóna til vina og vandamanna,
skítt með hitt pakkið (sem er með
nokkur hundruð þúsund, jafnvel
milljónir á mánuði) en ekki hækka
launin hjá þeim minna settu, það
gæti velt þjóðarskútunni! En hafið
skömm, þið sem kusuð aftur og
aftur þessa ríkisstjórn og sjáið
hvað varð úr því, ekkert nema ves-
en, ekki mátti birta mínar greinar
fyrir undanfarnar 3 alþingiskosn-
ingar vegna þess að ég benti á það
að svokallaður Kjaradómur myndi
ákvarða launin hjá þeim hærra
settu á kosningadag; og hvað hef-
ur verið að gerast? Sama, ekki til
peningar til neins og allra síst til
heilbrigðismála en það má spreða
peningum Í ÓÞARFA en ekki
hækka lægstu launin, þá sekkur
skútan!
Nú þurfum við Íslendingar að
rísa upp og hrista upp í okkar
stjórnmálamönnum um öryggi
okkar allra og ég sé ekki að Björn
Bjarnason ráðherra og aðrir ráð-
herrar geti sett upp hinn íslenska
her nema að taka til í sínum ranni
og gera allt til þess að hafa herinn
hérna vegna þess að við höfum
ekki EFNI á því að halda uppi 2–4
þyrilvængjum, ef ekki er hægt að
brauðfæða þjóðina á þessum svo-
kölluðu skattalækkunum (hækk-
unum fyrir þá sem eiga lítið sem
ekki neitt og ekki eru burgeisarnir
látnir borga hátekjuskatt eins og
allur almenningur á Íslandi (lág-
tekjufólk) greiðir í dag! Skammist
ykkar, þið sem KUSUÐ þessa
RÍKISSTJÓRN!
Örn Ingólfsson,
Granaskjóli 34, 107 Reykjavík.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
KVIKMYND um götuleikhópinn
Svart og sykurlaust verður sýnd í
Galleríi Humri eða frægð í þrjú-
bíói í dag. Myndin er eftir Lutz
Konermann og er frá árinu 1985 –
einskonar „vegamynd“ sem tekin
er á Ítalíu.
Á undan sýningunni munu
nokkrir forsvarsmenn leikhópsins
segja frá tilurð kvikmyndarinnar
og gerð hennar.
Laugardaginn 25. mars, á af-
mælisdegi Svarts og sykurlauss,
munu þau vera með myndasýn-
ingu og segja nánar frá sýningum
hópsins, en sýning sem tileinkuð
er þessum skemmtilega leikhópi
stendur nú yfir í galleríinu.
Kvikmyndir | Bíó í Humri eða frægð
Sagt frá Svörtu
og sykurlausu
Einbýlishús í Þingholtunum óskast
- Staðgreiðsla
Traustur kaupandi óskar eftir 250-400 fm einbýlis-
húsi í Þingholtunum. Gott einbýli á öðrum stað
kemur til greina t.d. hús með sjávarútsýni. Húsið
má kosta allt að 120 milljónir.
Nánari uppl. veitir Sverrir Kristinsson.
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
Opið í
Rauðagerði 26
frá kl. 10-18
í dag
laugardag
Komið og fáið
frían bækling
Glæsilegur
dömufatnaður
í stærðum
36-48
Rauðagerði 26, sími 588 1259
Nýtt Nýtt
Vor - Sumar 2006
Eldri vörur seldar með miklum afslætti
Verið velkomin
Omega 3-6-9
FRÁ
H
á
g
æ
ð
a
fra
m
le
ið
sla
A
ll
ta
f
ó
d
ýr
ir
GÓÐ HEILSA
GULLI BETRI
Fjölómettaðar
fitusýrur
APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR