Morgunblaðið - 04.03.2006, Qupperneq 57

Morgunblaðið - 04.03.2006, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. MARS 2006 57 DAGBÓK 15–18, fimmtudag, föstudag, laugardag, sunnudag. Textílkjallarinn | 13 listakonur sem áður ráku Listakot, sýna í Loka, Lokastíg 28 list- muni unna í tengslum við Hallgrímskirkju og Leif heppna. Munirnir munu síðan þróast áfram í minjagripi fyrir verslun Loka sem opnar í vor. Grafík, textíll, gler, leir og málun. Opið 14–17 dagana 4., 5., 11. og 12. mars. Thorvaldsen Bar | Sylvía Dröfn Björgvins- dóttir opnar málverkasýningu á Thorvald- sen 4. mars kl. 17 - 19. Sýningin ber titilinn „dreymir“ og stendur yfir til 31. mars. Söfn Duus hús | Sýning Poppminjasafnsins frá tímabilinu 1969–1979 í máli og myndum. Rifjuð upp tískan og tíðarandinn. Opið dag- lega kl. 13–18.30 til 1. apríl. Gerðubergssafn | Sýning á verkum Sigur- bjargar Júlíusdóttur stendur yfir í mars. Verkin á sýningunni eru hand- og vélsaum- uð, flest unnin á síðustu 15 árum. Lista- maðurinn vinnur mest með bómull og silki og nýtir hugmyndir úr sínu nánasta um- hverfi. Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Friðrik Örn sýnir ljósmyndir. Veiðisafnið – Stokkseyri | Skotveiðisafn með uppstoppuðum veiðidýrum ásamt skotvopnum og veiðitengdum munum. Opið alla daga kl. 11–18. Sjá nánar á hunt- ing.is Þjóðmenningarhúsið | Norðrið bjarta / dimma er samsýning 19 listamanna á verk- um sem tengjast ímynd norðursins. Aðrar sýningar eru Handritin, Þjóðminjasafnið – svona var það og Fyrirheitna landið. Þjóðminjasafn Íslands | Boðið er upp á fræðslu og þjónustu fyrir safngesti. Þar eru sýningar auk safnbúðar og kaffihúss. Hlutverk safnsins er að auka og miðla þekkingu á menningararfi Íslendinga frá landnámi til nútíma. Opið alla daga nema mánudaga kl. 11–17. Leiklist Akranes | Leikritið Vegas verður frumsýnt í Bíóhöllinni Akranesi 4. mars. Leikritið er eftir Ólaf Sk. Þorvaldz og leikstýrir hann einnig verkinu. Ásta Bærings sér um dans og í leikritinu eru margir gamlir slagarar. Má þar helst nefna Rolling Stones, Deep Purple, Queen og Creedence Clearwater. Leikfélag Mosfellsbæjar | Sýning á leikrit- inu Í beinni eftir Hrafnkel Stefánsson og Nóa Kristinsson. Leikstjóri er Guðný María Jónsdóttir. Sýningin hefst kl. 20, miðaverð er 1.800 kr. Dans Lionssalurinn | Línudans-ball verður í Auðbrekku 25 í Kópavogi kl. 21. Verðlaun fyrir besta búninginn. Aðgangseyrir 1.000 kr. Skemmtanir Cafe Catalina | Hörður G. Ólafsson spilar og syngur. Klúbburinn við Gullinbrú | Dansleikur með Geirmundi Valtýs. Pakkhúsið, Selfossi | Popphljómsveitin Ízafold leikur. Vélsmiðjan Akureyri | Hljómsveitin Dans Á Rósum frá Vestmannaeyjum. Húsið opn- ar kl. 22, frítt inn til miðnættis. Uppákomur Gerðubergssafn | Í tilefni af 20 ára afmæli Gerðubergssafns verður boðið til fjölskylduskemmtunar í safninu, kl. 14. Dagskráin hefst á afrískum trumbuslætti, nemendur frá Tónskóla Sigursveins koma í heimsókn og að lokum sýnir Leikhúsið 10 fingur Sólarsögu. Allir velkomnir – ókeypis aðgangur. Apótek bar grill | Apótekið tók í liðinni viku þátt í FOOD & FUN hátíðinni og ætlar að framlengja hátíðina og bjóða upp á FOOD & FUN matseðilinn til 5. mars. Safnaðarheimili Neskirkju | Kór Neskirkju stendur fyrir brauð- og kökuhlaðborði í safnaðarheimilinu að lokinni æskulýðs- messu 5. mars kl. 12.15. Mannfagnaður Breiðfirðingabúð | Árleg skemmtun og dansleikur Breiðfirðingakórsins verður haldinn í kvöld og hefst kl. 21. Söngur og happdrætti með vinningum. Einnig mun Þorrakórinn úr Dölum syngja nokkur lög. Hljómsveitin Hafrót leikur fyrir dansi. Hús- ið opnar kl. 20.30. Fyrirlestrar og fundir Askja- Nátturufræðihús HÍ | Raunvísindaþing Háskóla Íslands verður í Öskju, Náttúrufræðahúsi. Hvað er efst á baugi í rannsóknum á sviði raunvísinda í HÍ? Örtækni, náttúruverðmæti, gjóskulög, hnúkaþeyr, reiknilíkön ofl. o.fl. 50 erindi – 130 veggspjöld. Dagskrána er að finna á www.hi.is Vídalínskirkja Garðasókn | Félagsfundur verður 6. mars kl. 20, í safnaðarheimili Vídalínskirkju. Dagskrá Framboðslisti til bæjarstjórnarkosninga borinn upp, frestun aðalfundar 2006 til hausts o.fl. Fréttir og tilkynningar Ferðafélagið Útivist | Námskeið í GPS, rötun og ferðamennsku verður 8. mars kl. 19.30–22.30. Hámarksfjöldi þátttakenda er 20 manns. Skráning á skrifstofu Útivist- ar. Leiðbeinandi: Sigurður Jónsson hjálpar- sveitarmaður. Verð fyrir félagsmenn 1.200 kr. og almennt 2.000 kr. GA- fundir | Er spilafíkn að hrjá þig eða þína aðstandendur? Hægt er að hringja í GA-samtökin (Gamblers Anonymous) í síma: 698 3888. Heilsustofnun NLFI | Vikunámskeið hefst 12. mars, fyrir þá sem vilja hætta að reykja á NLFÍ. Á námskeiðinu er tekist á við tóbaksfíknina með skipulagðri dagskrá í hóp, auk þess sem einstaklingsbundin ráð- gjöf er veitt. Upplýsingar í síma 483 0300 og www.hnlfi.is. Stígamót | Stígamót halda upp á 16 ára af- mæli sitt 8. mars kl. 14–17, með opnu húsi. Boðið verður upp á vöfflur og heitt súkku- laði, einnig verða óvæntar uppákomur. Allir velkomir. Stígamót Hverfisgötu 115 (við lögreglustöðina). Ferðaklúbbur eldri borgara | Kynning á ferðum sumarsins 2006, verður 7. mars kl. 13.30 í Þróttarheimilinum í Laugardal. Frístundir og námskeið Lífeyrisþegadeild Landssambands lög- reglumanna | Fundur deildarinnar verður haldinn 5. mars kl. 10, Brautarholti 30. Útivist og íþróttir Ferðafélagið Útivist | Ganga: Reykjavegurinn, 1. áfangi Reykjanes - Stóra-Sandvík, 5. mars, brottför frá BSÍ kl. 10.30. Vegalengd 8–10 km., göngutími 4–5 klst. Upphaf þessarar raðgöngu er við Bæjarfell. Félag Snæfellinga og Hnappdæla í Reykjavík | Félagið efnir til klukkutíma gönguferðar fyrsta laugardag hvers mán- aðar. Næsta ganga verður kl 10.30 ,í dag og er mæting er við 1. hlið í Heiðmörk þeg- ar keyrt er frá Vífilsstöðum. Allir velkomn- ir. Félagsstarf Barðstrendingafélagið | Félagsvist í Konnakoti, Hverfisgötu 105, kl. 14. Dalbraut 18–20 | Fastir liðir eins og venjulega. Handverksstofa Dalbraut- ar 21–27, opin alla daga frá 8–16. Sími 588 9533. asdis.skuladottir@reykja- vik.is Félag eldri borgara, Reykjavík | Leikfélagið Snúður og Snælda sýna Glæpi og góðverk í Iðnó 5. mars kl. 14. Miðapantanir í Iðnó s. 562 9700, einnig eru miðar seldir við inngang- inn. Dansleikur sem vera átti á sunnudagskvöld fellur niður. Félagsheimilið Gjábakki | Krumma- kaffi kl. 9, Hana-nú ganga kl. 10. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Aðalfundur Félags eldri borgara í Garðabæ verður haldinn kl. 14 í Kirkjuhvoli. Einnig verður kynning á fyrirhuguðum ferðum. Félagsstarf Gerðubergs | Listsýning- ar verða opnar kl. 13–16: Judithar Júl- íusd. fjölbreytt handavinna o.fl. og Sigrúnar Björgvins. ,,Ort í ull", lista- konurnar eru á staðnum. Alla virka daga kl. 9–16.30 er fjölbreytt dagskrá m.a. opnar vinnustofur og spilasalur, létt ganga um nágrennið á þriðjud. Veitingar í hádegi og kaffitíma í Kaffi Berg. Hæðargarður 31 | Blöðin liggja frammi, myndlistarsýningar í betri stofu og salnum. Kaffiveitingar. Hægt er að fá dagskrána senda heim. Sími 568 3132. Netfang: asdis.skuladottir- @reykjavik. Kringlukráin | París, félag þeirra sem eru einar/einir heldur félagsfund á Kringlukránni kl. 11.30. Kirkjustarf Akureyrarkirkja | Bænabandið kl. 11– 15. Námskeið á vegum Eyjafjarðar- prófastsdæmis og Leikmannaskóla þjóðkirkjunnar. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Bænastund kl. 20. Allir velkomnir. Staðurogstund http://www.mbl.is/sos 90 ÁRA afmæli. Á mánudaginn, 6.mars, verður níræður Konráð Sæmundsson. Af því tilefni tekur hann á móti gestum á milli kl. 15 og 17 sunnudaginn 5. mars, í samkomusal Gullsmára 13, Kópavogi. 60 ÁRA afmæli. Sunnudaginn 5.mars verður sextugur Guðjón Jóhannsson pípulagningameistari. Hann og eiginkona hans Guðrún Bene- diktsdóttir taka á móti ættingjum og vinum á afmælisdaginn milli kl. 17og 20, að Skipholti 70, 2. hæð. Árnaðheilla dagbók@mbl.is Staður og stund á mbl.is. Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is Meira á mbl.is Til sölu nokkrar glæsilegar fullbúnar íbúðir í grónu hverfi 2ja, 4ra og 5 herbergja • Tveggja herbergja 80 m² • Fjögurra herbergja 135 m² • Fimm herbergja 143 m² Baðherbergi eru rúmgóð, 90 cm sturta, baðkar, eikarinnréttingar og fínar flísar. Svefnherbergi er 12 til 16 m² með fallegum eikarskápum. Eldhús eru rúmgóð með góðum borðkrók og eikarinnréttingum. Stofurnar eru 30-40 m². Á gólfum eru flísar og gott eikarparket. Stórar svalir á móti suðri og sérstaklega fallegt útsýni. Stutt í golfvöll. Hrauntún ehf. byggir Uppl. gefur Örn Ísebarn, byggingameistari, í símum 896 1606 og 557 7060. Dæmi um 2ja herbergja íbúð TVÆR sýningar verða opnaðar nú um helgina í Kling & Bang gall- eríi. Á jarðhæð gallerísins opnuðu Huginn Þór Arason og Jóhannes Atli Hinriksson sýninguna Glory hole. Huginn segir að verkið þeirra Jóhannesar séi einhvers konar búðir; – þjálfunarbúðir, eða kamp- ur. „Það hvílir ógn og kúgun yfir þessum búðum,“ segir Huginn og bætir því við að búðirnar gætu líka verið vísun í einhvers konar dýra- garð. „Þarna eru líka litlir kofar, og þar fyrir innan erum við búnir að koma fyrir ljósi og myndum af gæludýrahundum sem fólk er búið að klæða í föt, jafnvel trúðabún- inga og aðra grímubúninga. Mynd- irnar fengum við allar af netinu, og líka vídeó sem varpað er á einn kofann.“ Á myndbandinu sjást gæludýr; hundar og kettir, í þeirri sérkennilegu stöðu, að verið er að kenna þeim að tala, og segja orð og setningar á borð við ég elska þig og mamma. Nafn sýning- arinnar, Glory hole, þýðir náma, eða jafnvel uppspretta, en er líka notað um bræðsluofna glerblásara. „Við vildum stíla inn á það að verkið væri einhvers konar náma eða uppgötvun fyrir þann sem kemur inn og mætir innsetning- unni. Leiðirnar liggja út eða inn, eftir því hvernig á það er litið. Nafnið, Glory hole, hefur reyndar mun fleiri merkingar, en það er langbest að fólk komist að því sjálft hvernig lesa má þær út úr verkinu. Þó viljum við forðast kyn- ferðislegu tenginguna sem líka er augljós,“ segir Huginn, sem segir gott að láta áhorfandann fylla sjálfan í eyðurnar án þess að lista- maðurinn segi of mikið. Hreyfingarlausa vinnan Í kjallaranum opnar Sara Björnsdóttir sýninguna Hellinn bak við ennið og vefst varla fyrir lesendum hvaða helli Sara á við. „Ég nota allan kjallarann og þar eru alls konar skúmaskot og myrk- ur,“ segir Sara. „Það má segja að ég sé að fást við hreyfingarlausa vinnu myndlistarmannsins – ástandið þar sem mesta vinnan fer fram – vinnan sem enginn sér. Þannig er hugmyndavinnan. Mað- ur situr og glápir út í loftið, en kannski allt á fullu í huganum, – og það sér enginn. Það er kannski hávaði í höfðinu, en maður lítur ekki út fyrir að vera að gera neitt. Þegar svo er komið að eiginlegu vinnunni, – þá er maður kannski að hugsa um hvað maður ætlar að gera í sumarfríinu eða hafa í mat- inn. Það er framleiðslan, og á því stigi veit maður nákvæmlega hvað maður er að gera.“ Sara segir þetta eins og tvö tilvistarstig lista- mannsins. En hellirinn bak við ennið hefur fleiri snertifleti en þann sem snýr að myndlistarmanninum og vinnu hans, – allir hafa jú helli bak við ennið. „Það hugsar hver einn í sínum helli, það hugsar enginn í annars manns höfði. Ég sá líka fyrir mér, að þegar fólk kemur niður í rýmið, þá sé það eins og áhrifavaldarnir í lífi manns – verkið breytist við það að einhver kemur inn, – það koma skuggar og hreyfing. Þetta er eins og áhrifin sem maður verður fyrir af fólki sem maður talar við. Þegar tvær manneskjur ná sérstaklega vel hvor til annarrar er eins og þær heimsæki hella hvor annarrar. Hugmyndum er fleygt á milli, ákveðin efnaskipti eiga sér stað og tengsl skapast. Við eigum öll manneskjur í okkar lífi sem hafa haft þannig áhrif á okkur, þótt það gerist kannski sjaldan. Ég held að verkið hafi marga fleti þótt það sé einfalt að gerð.“ Kling & Bang gallerí er opið fimmtudaga til sunnudaga kl. 14– 18. Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir. Morgunblaðið/Árni Sæberg Huginn Þór Arason og Jóhannes Atli Hinriksson í verki sínu í Kling og Bang. Enginn hugsar í annars höfði Myndlist | Ógnarbúðir og ennishellir á tveimur sýningum í Kling og Bang Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.