Morgunblaðið - 04.03.2006, Page 61
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. MARS 2006 61
Breski tónlistarmaðurinn GaryGlitter var á föstudaginn
dæmdur í 3 ára fangelsi í Víetnam
fyrir að beita tvær stúlkur, 10 og
11 ára, kyn-
ferðislegu
ofbeldi. Var
Glitter, sem
er 61 árs,
fundinn sek-
ur um að
hafa hagað
sér með
ósiðlegum
hætti gagn-
vart stúlk-
unum á síð-
asta ári.
Dómarinn
sagði, að
Glitter yrði
vísað úr
landi til
Bretlands þegar hann væri búinn
að afplána dóminn. Glitter var
einnig dæmdur til að greiða fjöl-
skyldum hvorrar stúlku jafnvirði 22
þúsund króna í bætur og einnig að
greiða málskostnað.
Í dómnum var vitnað til fram-
burðar stúlknanna um að Glitter
hefði ítrekað þuklað á þeim og beitt
þær annars konar kynferðislegu of-
beldi, bæði í húsinu sem hann
leigði og á hótelherbergjum.
Hoang Thanh Tung dómari
gagnrýndi Glitter harðlega þegar
hann las upp dóminn og sagði hann
hafa misþyrmt börnum kynferð-
islega á viðbjóðslegan og sjúkan
hátt. Glitter var sviplaus þegar
dómurinn var kveðinn upp. Þegar
slíta átti réttarhaldinu hrópaði
hann upphátt: „Ég er saklaus.
Þetta er samsæri,“ og virtist vera
að vísa til þess að það voru bresk
slúðurblöð sem upplýstu að hann
væri staddur í Víetnam.
Glitter getur áfrýjað dómnum.
Lögmaður hans segir að hann
myndi væntanlega þurfa að afplána
eitt ár og ætti þá rétt á reynslu-
lausn.
Glitter var kunnur rokktónlist-
armaður á áttunda áratug síðustu
aldar og flutti þá vinsæl lög á borð
við „Leader of the Gang“ og „Rock
and Roll“ (Parts 1&2), sem enn
heyrast á íþróttaviðburðum.
Árið 1999 var Glitter dæmdur í
fjögurra ára fangelsi fyrir að hafa
barnaklám undir höndum. Hann fór
til Kambódíu eftir að hafa afplánað
hluta þess dóms en var vísað úr
landi þar.
Fólk folk@mbl.is
Það dreymir eflaust marga um aðkomast í mat til bresku sjón-
varpsgyðjunnar Nigellu Lawson.
Hún segir eiginmann sinn, Charles
Saatchi, hins vegar ekki kunna gott
að meta og fremur vilja morgunkorn
en þá „hræðilegu rétti“ sem hún beri
á borð. Þetta kemur fram á vef An-
anova.
„Charles kann bara alls ekki að
meta almennilegan mat. Í síðustu
viku eldaði ég rækjurétt, sem ég
elska, og hann borðaði hann allan en
sagði síðan að hann hefði verið
hræðilegur. Ég sagði: Af hverju
borðaðirðu hann allan, þú þurftir
ekki að gera það, og hann svaraði:
Ég vildi vera kurteis en svo fór ég á
taugum vegna tilhugsunarinnar um
að þú myndir útbúa hann aftur,“
segir hún.