Morgunblaðið - 13.03.2006, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 13.03.2006, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. MARS 2006 33 LAU. 18. MAR. KL. 20 LAU. 25. MAR. KL. 20 FÖS. 31. MAR. KL. 20 - SÍÐASTA SÝNING! VIÐTALIÐ eftir Lailu Margréti Arnþórsdóttur LAU. 11. MARS KL. 20 SUN. 12. MARS KL. 20 FÖS. 17. MARS KL. 20 SUN. 19. MARS KL. 20 FÖS. 24. MARS KL. 20 SUN. 26. MARS KL. 20 Stóra svið RONJA RÆNINGJADÓTTIR Lau 18/3 kl 14 UPPS. Su 19/3 kl. 14 UPPS. Lau 25/3 kl. 14 UPPS. Su 26/3 kl. 14 UPPS Lau 1/4 kl. 14 UPPS. Su 2/4 kl. 14 Lau 8/4 kl. 14 Su 9/4 kl. 14 CARMEN Lau 18/3 kl. 20 Lau 25/3 kl. 20 SÍÐUSTU SÝNINGAR! TALAÐU VIÐ MIG -ÍD- Su 19/3 kl. 20 Græn kort Su 26/3 kl. 20 Blá kort Fö 31/3 kl. 20 WOYZECK Fi 23/3 kl. 20 Á LEIÐ TIL LONDON KALLI Á ÞAKINU Fi 13/4 kl. 14 skírdagur Lau 15/4 kl. 14 Má 17/4 kl. 14 2. í páskum Fi 20/4 kl. 14 FULLKOMIÐ BRÚÐKAUP Su 30/4 kl. 20 UPPS. Má 1/5 kl. 20 UPPS. Þri 2/5 kl. 20 UPPS. Mi 3/5 kl. 20 UPPS. Nýja svið / Litla svið BELGÍSKA KONGÓ Lau 18/3 kl. 20 UPPS. Fi 23/3 kl. 20 Fi 6/4 kl. 20 ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR Fi 16/3 kl. 20 Fö 24/3 kl. 20 Lau 25/3 kl. 20 UPPSELT Fi 30/3 kl. 20 Fö 31/4 kl. 20 100. SÝNING Lau 1/4 kl. 20 ALLRA SÍÐUSTU SÝNINGAR Í REYKJAVÍK HUNGUR Fi 16/3 kl. 20 UPPSELT Fö 17/3 kl. 20 Fi 23/3 kl. 20 Fö 24/3 kl. 20 ATH TAKMARKAÐUR SÝNINGARFJÖLDI NAGLINN Lau 18/3 kl. 20 UPPSELT Su 19/3 kl. 20 UPPSELT. GLÆPUR GEGN DISKÓINU Fö 17/3 kl. 20 Su 26/3 kl. 20 MIÐASALA Í SÍMA 4 600 200 MIÐASALA LA ER OPIN FRÁ KL. 13-17 W.LEIKFELAWW G.IS ALA@LEIKFELAGMIDAS .IS Miðasala opin allan sólarhringinn á netinu. Maríubjallan - sýnd í Rýminu Fim. 16. mars kl. 20 AUKASÝNING - UPPSELT Fös. 17. mars kl. 19 UPPSELT Lau. 18. mars kl. 19 Örfá sæti Mið. 29. mars kl. 20 AUKASÝNING - Laus sæti Litla hryllingsbúðin - Forsala hafin Forsýn 23. mars kl. 20 UPPSELT Frums 24. mars kl. 20 UPPSELT Lau 25. mars kl. 19 UPPSELT Lau 25. mars kl. 22 UPPSELT Sun 26. mars kl. 20 UPPSELT Fim 30. mars kl. 20 örfá sæti laus Fös 31. mars kl. 19 örfá sæti laus Næstu sýningar: 1/4, 2/4, 6/4, 7/4, 8/4, 9/4, 12/4, 13/4, 15/4. Forsölutilboð: Geisladiskur fylgir með meðan birgðir endast! Fullkomið brúðkaup - loksins í Reykjavík! Sýnt í Borgarleikhúsinu, s: 568 8000 Í ÖRSKAMMRI listmúsíksögu landsmanna, þar sem aðstæður til flutnings á viðamiklum hljómsveit- arverkum voru nákvæmlega engar fram að seinni helmingi nýliðinnar aldar, þarf varla að fara nema 30 ár aftur í tíma til að nánast hefði þótt óhugsandi að taka jafnstórt upp í sig og Árni Heimir Ingólfsson gerði í tónleikaskránni að fjölsóttum stór- afmælistónleikum Jóns Nordal sl. fimmtudag – að Jón sé „eitt mesta tónskáld sem Ísland hefur átt“. En það átti líka margt eftir að skýrast 1975 þegar íslenzki módern- isminn átti aðeins tuttugu ár að baki, og sá alþjóðlegi var enn á miðju bull- andi tilraunaskeiði sem enginn gat séð fyrir hvert myndi stefna. Í dag blasa hlutirnir hins vegar tærar við. Skilningur hlustenda hefur jafn- framt breikkað og – kannski ekki sízt – spilfærni SÍ hefur aukizt í þeim mæli að elztu upptökur á ís- lenzkum samtímaverkum eru vart lengur marktækar. Í því ljósi er ekki nema eðlilegt þó að hismi fyrri ára hafi flosnað vendi- lega frá kjarnanum. Enda held ég að fáir viðstaddra umrætt fimmtudags- kvöld myndu vefengja að veiga- mestu verk Jóns Nordal tilheyri meginkjarna íslenzkrar tónsköp- unar okkar tíma. Einhverjum þætti kannski fulllangt til seilzt að kalla hrifmátt þeirra það næsta sem við komumst heiðlist Vínarklassisism- ans í anda, en þó gat ég ekki varizt þeirri tilhugsun. Það voru engin elli- mörk á þessum verkum, né heldur minnsti vottur af tilraunum tilraun- anna vegna. Þau virtust sífersk og tímalaus. Alþjóðleg og þjóðleg í senn líkt og höfuðrit Halldórs Laxness. Maður hugsaði ósjálfrátt með hlýju stolti: þetta er mín samtímamúsík, og okkar allra. Músík landsins! Það væri í samræmi við fyrr- greinda athugasemd um spilfærni að nefna strax, að fátt ef nokkuð varð til að gryggja gleði kvöldsins hvað flutning varðar. Yfirveguð og hvetj- andi stjórn Petri Sakaris, ásamt ein- beittri frammistöðu hljómsveitar og sólista, skilaði verkunum í bezt fáan- legu ásigkomulagi, og í sumum til- vikum jafnvel betra en nokkru sinni fyrr. Galdur úrvalstúlkunar gerði manni því erfiðara fyrir að meta hvað stæði upp úr. Fyrsta verkið, Choralis (1982) var þó ugglaust með þeim efstu. Per- sónulega og veigaminnst þegar dóm- ari Kontrapunktskeppninnar 1990 nefndi að ekkert fyndist þar sér- íslenzkt frekar en í öðrum þarlend- um nútímaverkum (jafnvel þótt Liljulagið gangi ljósum logum). Öllu sterkar verkaði á mann mögnuð til- finningin af göldróttum aldaspegli þjóðarinnar, sem í mínum huga vakti hvað eftir annað upp enduróm af Áföngum Jóns Helgasonar. Hinn hlutfallslega munúðarfyllri Tvísöngur (1979) fyrir fiðlu, víólu og hljómsveit manaði reyndar líka fram skuggabrot af Liljulaginu þótt á stangli væri. Verkið angaði af ex- ótískri hljómfegurð í kliðmjúkri túlkun einleikaranna, og kom nánast út eins og dulbúin kveðja til ung- verska meistarans þegar 5/8 mið- kaflanum lauk með hvössum „Bar- tók-pizzicato“ smelli. Hitt stóð dulítið í mér hvernig tilvitnanir verksins í Vatnsdælingastemmu gátu endað á blániðurlagi Ljósið kemur langt og mjótt. En kannski hafði höfundur aðra útgáfu þjóðlags- ins fyrir sér. Síðast fyrir hlé var Píanókonsert Jóns frá 1956, sá fyrsti slíki hér- lendis. Þó ekki gæti ég státað af því að hafa heyrt hann oft áður, þá var konsertinn greinilega ólíkastur öðr- um viðfangsefnum kvöldsins, eink- anlega í því hvað tjábrigðin voru „ut- arlega á skyrtunni“ eins og sagt er. Í miðjum hópi tiltölulega innhverfari verka fannst mér það þó ekki til vanza, og víst er að í eitilsnarpri ein- leikstúlkun Víkings Heiðars leiddist fáum er á hlýddu, jafnvel þótt heild- arsvipur verksins virtist frekar leit- andi miðað við fyrri og seinni atriði kvöldsins. Kannski heiðríkasta verk Jóns á þessu eftirminnilega kvöldi kom fyrst eftir hlé. Það var jafnframt hið yngsta, klarínettkonsertinn Haust- vísa (2000), og bauð upp á vægast sagt frábæra túlkun frumflutnings- sólistans forðum, Einars Jóhann- essonar. Líkt og í síðasta atriðinu, Sellókonsertnum, voru einleiks- kaflar án undirleiks hér talsvert fleiri en í fyrri konsertunum og dró það enn betur fram sparneytt gegnsæið. Ekki þó þar með sagt að undirtónninn væri laus við ang- urværð og jafnvel ógn; einna dul- úðarfyllst í byrjun og enda þar sem einmana smali á hjara veraldar blés sitt læktæra hjarðljóð við blikur á lofti úr vart heyranlegu þyrli stór- bumbunnar. Hinn norræna nestor knéfiðl- unnar, Erling Blöndal Bengtsson, heyrði undirritaður síðast leika hér í október 2003 er hann lands- frumflutti sellókonsert Khatsatúrj- ans. Ólíkt armenska verkinu gaf Sellókonsert Jóns frá 1983 einleiks- hljóðfærinu kjörnæði í samspili við hljómsveitina (e.t.v. með hliðsjón af akústíkinni vestur á Melum), og fékk það auk þess fjölda tækifæra til að syngja í einrúmi. Þó að verkið væri kannski einkum borið uppi af ljúf- sárri þáþrá og afkláraðri sjálfssátt, þá bauð það jafnframt upp á eina alvöruscherzó kvöldsins – að vísu hálf þungstígan en því kostulegri spæjaramars, er sómt hefði in- spektor Clouseau fram í fing- urgóma. Safarík en ávallt heilsteypt hljómanotkun höfundar náði hér jafnvel nýjum hæðum, og setti ásamt óviðjafnanlegri mýkt sólist- ans og skínandi leik hljómsveitar undir eldhugastjórn Petris enda- punkt við hæfi á þessum glæsilegu afmælistónleikum. Var tónskáldi, einleikurum og stjórnanda að vonum ákaft fagnað þegar áheyrendur risu á fætur að leikslokum. Músík landsins TÓNLIST Háskólabíó Jón Nordal: Choralis, Tvísöngur, Píanó- konsert, Haustvísa og Sellókonsert. Guðný Guðmundsdóttir, fiðla, Ásdís Valdi- marsdóttir, víóla, Víkingur Heiðar Ólafs- son, píanó, Einar Jóhannesson, klarínett og Erling Blöndal Bengtsson, selló, ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands. Stjórn- andi: Petri Sakari. Fimmtudaginn 9. marz kl. 19.30. Sinfóníutónleikar Ríkarður Ö. Pálsson Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Félagsstarf Aflagrandi 40 | Viðtalstími hjúkr- unarfræðings er alla mánudaga kl. 9– 11, leikfimi kl. 9, boccia kl. 10, fé- lagsvist kl. 14. Árskógar 4 | Bað kl. 8–16, handa- vinna kl. 9–16.30, smíði/útskurður kl. 9–16.30, söngstund kl. 10.30, fé- lagsvist kl. 13.30, myndlist kl. 16. Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa- vinna, bútasaumur, samverustund og fótaaðgerðir. Félag eldri borgara í Kópavogi | Skrifstofan í Gullsmára 9 er opin í dag kl. 10–11.30. Félagsvist er spiluð í félagsheimilinu kl. 20.30. Félag eldri borgara, Reykjavík | Bridds kl. 13, afmælismót. Kaffitár kl. 13.30, línudanskennsla kl. 18, sam- kvæmisdans framh. kl. 19 og byrj- endur kl. 20. Leikfélagið Snúður og Snælda sýnir leikritið „Glæpir og góð- verk“ á miðvikudag kl. 14. Miðapant- anir í Iðnó, s. 562 9700. Einnig eru miðar seldir við innganginn. Félagsheimilið Gjábakki | Handa- vinna kl. 9-12, bossía kl. 9.30, gler- og postulínsmálun kl. 9.30, lomber kl. 13.15 og kóræfing kl. 17. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Fé- lagsvist kl. 20.30 í félagsheimilinu. Briddsdeild FEBK í Gullsmára spilar tvímenning alla mánu- og fimmtu- daga. Skráning kl. 12.45. Spil hefst kl. 13. Kaffi og meðlæti fáanlegt í spila- hléi. Skrifstofa félagsins í Gullsmára er opin kl. 10–11.30. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Kvennaleikfimi 9, 9.50 og 10.45 í Kirkjuhvoli. Þar er einnig Bókband kl. 10 og glerskurður kl. 13. Garðaberg er opið kl. 12.30–16.30 og þar er bíósýn- ing kl. 13, sýnd verður myndin Choco- lat. Í Mýri er vatnsleikfimi (auka) kl. 9.45. Tölvunámskeið í Garðaskóla kl. 17–19. Síðasti skráningardagur á Eld- hús með máli. Félagsstarf Gerðubergs | Listsýn- ingar Sigrúnar Björgvins og Judithar Júlíusd. Opið kl. 13–16. Strætó S4, 12 og 17 stansa við Gerðuberg. Alla virka daga er dagskrá kl. 9–16.30 fyrir fólk á öllum aldri. Furugerði 1, félagsstarf | Aðstoð við böðun, bókband og alm. handavinna kl. 9. Farið verður að sjá „Glæpir og góðverk“ 15. mars. Miðapantanir í s. 553 6040. Hraunbær 105 | Kl. 9 perlusaumur, handavinna, kaffi, spjall og dagblöðin, kl. 10 bænastund, kl. 12 hádegismatur, kl. 13 hárgreiðsla, kl. 15 kaffi. Hvassaleiti 56-58 | Opin vinnustofa kl. 9–16 hjá Sigrúnu, mósaík, ull- arþæfing og íkonagerð. Jóga kl. 9–11. Frjáls spilamennska kl. 13–16. Böðun fyrir hádegi. Fótaaðgerðir s. 588 2320. Korpúlfar Grafarvogi | Sundleikfimi í Grafarvogssundlaug á morgun kl. 9.30. Norðurbrún 1, | Smíði kl. 9, upplestur kl. 10.30, opin vinnustofa kl. 13–16.30. Safnaðarheimili Fella- og Hólakirkju | Kvenfélagið Fjallkonurnar heldur að- alfund 14. mars kl. 20 í safnaðarheim- ilinu. Á eftir verður spiluð félagsvist. Samtök lungnasjúklinga | Fé- lagsmenn hittast alla mánudaga kl. 16–18 í Síðumúla 6 (gengið inn á bak við). Farið í smá göngu, spjallað, létt- ar kaffiveitingar o.fl. Athygli er vakin á því að allar deildir innan SÍBS eru velkomnar. Sjálfsbjörg, félag fatlaðra á höf- uðborgarsvæðinu | Bridds í kvöld kl. 19 í félagsheimilinu í Hátúni 12. Vesturgata 7 | Framtalsaðstoð frá Skattstjóranum í Reykjavík verður kl. 9–14. Skráning og upplýsingar í síma 535 2740. Kl. 9–16 hárgreiðsla og fótaaðgerðir, kl. 9.15–15.30 handa- vinna, kl. 9–10 boccia, kl. 11–12 leik- fimi, kl. 11.45–12.45 hádegisverður, kl. 13–16 kóræfing, kl. 13.30–14.30 les- hópur, kl. 14.30–15.45 kaffiveitingar. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 9–12, bókband kl. 9, hárgreiðsla kl. 9, morgunstund kl. 9.30, fótaaðgerðir kl. 9.30, boccia kl. 10, handmennt alm. kl. 9–16.30, glerbræðsla kl. 13, frjáls spilamennska kl. 13–16. Kirkjustarf Akureyrarkirkja | Vímulaus æska kl. 20. Stuðningshópur fyrir foreldra. Grafarvogskirkja | Helgistundir alla virka daga föstunnar kl. 18–18.15. Í dag les Einar Már Sigurðsson alþing- ismaður. Grensáskirkja | Foreldrastund alla mánudagsmorgna. Hjallakirkja | Æskulýðsfélag fyrir 8. bekk kl. 20–21.30. Hjálpræðisherinn á Akureyri | Heim- ilissambandið fyrir allar konur kl. 15. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Alfa 2 kl. 19. www.gospel.is – www.alfa.is. KFUM og KFUK | Fundur í AD KFUK 14. mars kl. 20. Svanhvít Hallgríms- dóttir tónlistarkennari fjallar um uppáhaldssöngvana sína. Kaffi. Allar konur velkomnar. Kristniboðssalurinn | Samkoma í Kristniboðssalnum Háaleitisbraut 58–60 þann 15. mars kl. 20. Karl Jónas Gíslason talar. Bænastund. Kaffi. Fréttasíminn 904 1100

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.