Morgunblaðið - 14.03.2006, Síða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 14. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Veðurblíðan virðist hafa ruglað fleiri í ríminu en gróðurinn.
Íslensk löggjöf umskógrækt er orðinmeira en 50 ára gömul
og tekur ekki mið af nú-
tímaþjóðfélagi og þörfum
íbúa þess, að sögn Brynj-
ólfs Jónssonar, fram-
kvæmdastjóra Skógrækt-
arfélags Íslands. Hann
segir jákvætt að unnið hafi
verið að því að auka skóg-
lendi á Íslandi, en í dag sé
innan við 1% landsins
skógi vaxin. Nýjum tímum
fylgi hins vegar breyttar
áherslur og nauðsynlegt sé
að horfa ekki aðeins á skógrækt út
frá hugmyndum um nytjaskóga,
líkt og hér hafi verið gert í gegnum
tíðina, heldur líta einnig til gildis
þeirra sem útivistarsvæða. Þessi
mál voru rædd á ráðstefnu á laug-
ardag sem bar yfirskriftina Skóg-
ar og lýðheilsa, en að ráðstefnunni
stóðu Skógræktarfélag Íslands,
Rannsóknarstöð skógræktar á
Mógilsá og Skógræktarfélag
Reykjavíkur.
Brynjólfur segir að löggjöf um
skógrækt í nágrannalöndum Ís-
lands hafi verið endurskoðuð og
henni breytt á síðastliðnum 15–20
árum. Hafi hún breyst frá því að
leggja helst áherslu á nytjaskóg-
rækt yfir í að skógar þjóni útivist-
arhlutverki. Enn hafi íslenska lög-
gjöfin ekki verið endurskoðuð, en
hún er frá árinu 1955. „Íslensku
lögin taka mið af allt annarri þjóð,
sem var landbúnaðarþjóð og
byggði afkomu sína á sauðfjárbú-
skap og fiskveiðum. Það eru nán-
ast engin not af þessum lögum í
dag,“ segir Brynjólfur. Inntur eft-
ir skýringum á þessu segir hann að
hugsast geti að Íslendingar hafi
verið of uppteknir af því að líta á
skógræktina sem endurheimt á
skóglendum og ekki áttað sig á því
mikilvæga og fjölbreytta gildi sem
skógurinn geti haft fyrir allt úti-
vistarlíf.
Guðni Ágústsson, landbúnaðar-
ráðherra, getur tekið undir orð
Brynjólfs og segir ráðuneytið hafa
unnið að því að fara yfir málið á
undanförnum árum. „Það hefur
auðvitað verið hér á dagskrá og við
höfum lagt mikla vinnu í að færa
[löggjöfina] til nútímans. Sú vinna
hefur enn ekki klárast og kannski
dregist í ljósi annarrar umræðu,
eins og núna um skógrækt og
landgræðslu en báðar þessar
stofnanir þurfa á nýrri löggjöf að
halda,“ segir ráðherra en getur
ekki svarað hvenær áætlað er að
endurskoðun laganna ljúki, verk-
efnið sé brýnt en jafnframt stórt
og vinnan mun halda áfram.
Sáralítið fé til uppbyggingar
Brynjólfur segir að á síðustu ár-
um hafi sáralítið fjármagn runnið
til uppbyggingar skóglendissvæða
á höfuðborgarsvæðinu. Betri
göngustíga vanti en þeir séu víða
að verða útslitnir af umferð. Þá
þurfi að bæta merkingar og að-
stöðu, meðal annars með því að
koma upp hreinlætisaðstöðu.
Stóraukið fjárframlag þurfi að
renna til þessara mála og þurfi féð
bæði að koma frá ríkinu og frá
sveitarfélögunum. Í dag renni um
100 milljónir króna í verkefni
skógræktarfélaganna á ári. Þar af
leggi ríkið til um 29 milljónir króna
og sveitarfélögin um 60 milljónir,
en annað sé sjálfsaflafé sem komi
frá ýmsum styrktaraðilum. „Við
verðum vör við það vegna ýmissa
styrkja sem skógræktarfélögin
sækja í að það eru alltaf margfalt
hærri upphæðir sem sótt er um en
hægt er að úthluta. Þörfin er gríð-
arlega mikil allt í kringum landið,
en mest þar sem þéttbýli er mest.
Þar þarf að leggja til verulegt fé til
uppbyggingar, annars drabbast
þetta niður, “ segir Brynjólfur og
vísar til fyrirmyndar aðstöðu sem
komið hefur verið upp í Kjarna-
skógi sunnan Akureyrar. Þar séu
upplýstir göngustígar, sem ekki
séu fyrir hendi á höfuðborgar-
svæðinu og í raun besta aðstaða til
útivistar í skóglendi á landinu.
Umhverfið þarf
að vera styðjandi
Gígja Gunnarsdóttir, verkefnis-
stjóri hreyfingar hjá Lýðheilsu-
stöð, flutti framsögu á ráðstefn-
unni á laugardag, um skógrækt og
heilsurækt. Gígja bendir á að
heilsa sé afurð af samspili einstak-
lingsins og umhverfis hans. Mik-
ilvægt sé að hver og einn taki
ábyrgð á eigin heilsu, en umhverf-
ið þurfi einnig að vera styðjandi.
Samkvæmt Evrópuskýrslu WHO
séu um 77% sjúkdóma í Evrópu
langvinnir sjúkdómar, s.s. hjarta-
og æðasjúkdómar og geðraskanir,
en hreyfingarleysi sé nefnt sem
einn af sjö mikilvægustu áhrifa-
þáttum þessara sjúkdóma. Til þess
að hvetja og styðja fólk til aukinn-
ar hreyfingar sé mikilvægt að hafa
áhrif á viðhorf og ekki síst bæta
aðgengi að sem fjölbreyttustum
valkostum til hreyfingar. Skóg-
rækt stuðli þannig ekki aðeins að
bættri heilsu heldur skapi hún
einnig tækifæri fyrir t.d. fjölskyld-
ur og vini til að stunda ýmiss konar
útivist í fallegu umhverfi og fersku
lofti. „Enn frekari áhersla á skóg-
rækt í tengslum við þéttbýli með
þarfir íbúanna í huga er mikilvægt
forvarnarstarf sem mun án efa
hvetja fleiri til stunda útivist sér til
ánægju og heilsubótar.“
Fréttaskýring | Skógar eru mikilvæg
útivistarsvæði
Bæta þarf að-
stöðu í þéttbýli
Stóraukin fjárframlög þarf til skógrækt-
armála frá ríki og sveitarfélögum
Góð útivistaraðstaða er í Kjarnaskógi.
Grænn trefill – skóglend-
issvæði tengd saman
Helstu skóglendissvæði höf-
uðborgarsvæðisins eru í Hafn-
arfirði í kringum Hvaleyrarvatn,
í Heiðmörk, Elliðaárdalnum,
Fossvogsdal og í Öskjuhlíð. Þá er
mikið af vaxandi skóglendum á
Hólmsheiði, en þar er um að
ræða ungskóga. Þá eru skóg-
lendissvæði í Mosfellsbæ og í
Esjuhlíðum. Hugmyndir eru uppi
um að vinna að hinum svonefnda
græna trefli, sem felst í því að
tengja þessi skógræktarsvæði
saman með beinum hætti.
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
elva@mbl.is
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest
dóm Héraðsdóms Suðurlands sem
sýknaði Heilbrigðisstofnun Suður-
lands af bótakröfu fyrrverandi
læknis á Heilsugæslustöðinni í
Hveragerði. Lækninum var sagt
upp störfum árið 2003 eftir að hafa
verið áminntur áður, en læknirinn
taldi að uppsögnin hefði verið
ólögmæt og krafðist rúmlega 28
milljóna króna í skaðabætur.
Í dómi héraðsdóms segir að
staðið hafi verið lögformlega að
áminningu læknisins sem hann
fékk m.a. fyrir samskiptaörðug-
leika við sjúkraflutningsmenn og
sjúklinga en einnig vegna óstund-
vísi.
Hegðun læknisins hafi ekki
lagast við áminninguna og var
honum í kjölfarið sagt upp störf-
um. Komst héraðsdómur að þeirri
niðurstöðu að heilsugæslustöðinni
hafi verið rétt að segja lækninum
upp vegna fjarvista og óstundvísi
eftir að hafa veitt honum áminn-
ingu fyrir slíka hegðun og löglega
hafi verið staðið að ákvarðanatöku.
Í dómi Hæstaréttar segir að
læknirinn hafi ekki sýnt fram á að
hann ætti rétt á frekari greiðslum
en til loka uppsagnarfrests, sem
hann hafi þegar fengið.
Heilbrigðisstofnun
sýknuð af bótakröfu
GOETHE-Institut ætlar að endur-
skipuleggja starfsemi sína á Ís-
landi og gera þýska menningarvið-
veru á landinu sýnilegri.
Goethe-Zentrum, sem starfað hef-
ur á vegum hollvinafélags þess frá
árinu 1998, hættir starfsemi sinni
þann 30. apríl næstkomandi, en
samvinnu við hollvinafélagið verð-
ur haldið áfram með breyttu sniði.
Goethe-Institut sendir að nýju
menningarfulltrúa til Íslands sem
sinna mun rekstrinum í fullu starfi.
Menningarfulltrúinn, Stefanie
Hontscha, er send hingað á vegum
stofnunarinnar í Kaupmannahöfn
en hún hóf störf þann 1. janúar á
þessu ári. Hontscha mun vinna í
tvö ár sem starfsmaður stofnunar-
innar í Kaupmannahöfn en með að-
setur á Íslandi og meðal annars
byggja upp og þróa netvef.
Í stað þess að bjóða upp á tungu-
málanámskeið eins og Goethe-
Zentrum hefur gert, ætlar Goethe-
Institut að hafa samvinnu með
tungumálaskólum og sérfræðingar
stofnunarinnar í Kaupmannahöfn
ætla að efla faglega ráðgjöf fyrir
þýskukennara í íslenskum skólum.
Bókasafni Goethe-Zentrum verður
að öllum líkindum komið fyrir hjá
annarri stofnun.
Menningar-
fulltrúi Go-
ethe-Institut
á Íslandi