Morgunblaðið - 14.03.2006, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 14.03.2006, Qupperneq 40
Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn GEISP! ÉG GLEYPTI FLUGU HVAR ER EFTIRRÉTTURINN! ÉG ÞEKKI GREINILEGA EKKI MUNINN Á LEIRNUM MÍNUM OG TYGGJÓI ÞÁ ER ÉG KOMINN ÆÐSTI HUNDUR HERRA DÓMARI AL- FAÐIR AF HVERJU FÆ ÉG ÞAÐ Á TILFINNINGUNA AÐ VERIÐ SÉ AÐ STRÍÐA MÉR LÍTTU Á BJÖRTU HLIÐARNAR... ...VIÐ GETUM BÆTT VIÐ AUKA GESTAHERBERGI HVAÐ ÆTLI VIÐ GETUM GERT SKEMMTILEGT FYRIR ÞIG Í DAG? DENNI, HINN DÆMALAUSI TANNLÆKNIR ÉG ÆTLA AÐ SKELLA MÉR Á HLAUPABRETTIÐ ÁÐUR EN ÉG KEM HEIM HVAÐ VERÐ ÉG LENGI? EKKERT MJÖG LENGI BARA ÞANGAÐ TIL SPÓLAN Í TÆKINNU FER ANNAN HRING ENN EINN DAGURINN Á MANHATTAN... ÞAÐ MUN EKKI ENDAST LENGI... ÞÁ ER AÐ KOMA SÉR Í VINNUNA HVAÐ GERIRÐU Í DAG? SAMA OG VENJULEGA KANNAST VIÐ ÞAÐ. ENN EINN DAGURINN Í TÖLVUBÚÐINNI BÍÐUR MÍN EN NÚNA ÞEGAR TARANTÚLAN ER FARIN... ...ÞÁ GET ÉG HAFT PETER ALVEG ÚT AF FYRIR MIG Dagbók Í dag er þriðjudagur 14. mars, 73. dagur ársins 2006 Það verður tilfinn-ingaþrungið kvöld, 28. mars næst- komandi, þegar Pat- rick Vieira, fyrrver- andi fyrirliði Arsenal, snýr aftur á Highbury með sínu nýja liði, Ju- ventus, í átta liða úr- slitum Meistara- deildar Evrópu. Vieira yfirgaf Arsenal nokk- uð óvænt síðastliðið sumar. Í endurminn- ingum sínum, sem út komu í vetur, lætur hann að því liggja að David Dein, varafor- maður stjórnar Arsenal og hæstráð- andi þar á bæ, hafi hreinlega viljað losna við hann. Þess vegna hafi hann farið. Hin skýringin er þó sennilegri að Vieira hafi viljað ganga til liðs við Juventus þar sem ítalska liðið ætti meiri möguleika en Arsenal á því að vinna eina titilinn sem hann á eftir, Meistaradeildina. Ef til vill hefur hann rétt fyrir sér. Úr því verður al- tént skorið í átta liða úrslitunum. x x x Örlögin eru skrýtin skepna,“ sagðiVieira eftir dráttinn og ljóst er að hann fær nú gullið tækifæri til að kveðja Highbury, sem heyra mun sögunni til í vor, og stuðningsmenn Arsen- al, sem báru hann á höndum sér í níu ár. Téður Dein og Arsène Wenger, knatt- spyrnustjóri Arsenal og faglegur faðir Vieira, hafa greinilega örlitlar áhyggjur af því að kappanum verði ekki vel tekið á High- bury og hafa hvatt stuðningsmennina til að hylla hann. Víkverji telur þessar áhyggjur ástæðulausar. Hvers vegna í ósköpunum ættu áhangendur Arsenal ekki að fagna Vieira sem höfðingja? Enda þótt liðið hafi saknað hans sárt á þessari sparktíð gaf hann því níu stórkostleg ár og færa má fyrir því gild rök að í gjörvallri sögu Arsenal standi aðeins tveir leikmenn honum framar – Tony Adams og Thierry Henry. Í það minnsta mun Víkverji ekki hafa horn í síðu Vieiras og á allt eins von á því að vatna músum þegar kappinn gengur í hinsta sinn inn á Highbury. Og þá mun Víkverji syngja brostinni röddu: „Vieira vo- oh-ó, Vieira vo-oh-ó. Hann er frá Senegal og spilaði með Arsenal.“ Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is     Reykjavík | Fyrsti samlestur á Fagnaði eftir nóbelsskáldið Harold Pinter var í Þjóðleikhúsinu í gær, en verkið verður frumsýnt á Stóra sviðinu 14. maí í leikstjórn Stefáns Jónssonar. Harold Pinter er eitt frægasta leikskáld sam- tímans og hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum í fyrra. Morgunblaðið/ÞÖK Fagnaðarstund MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Orð dagsins: Aflið yður eigi þeirrar fæðu, sem eyðist, heldur þeirrar fæðu, sem varir til eilífs lífs og Mannssonurinn mun gefa yður. Því á hann hefur faðirinn, Guð sjálfur, sett innsigli sitt. (Jóh. 6, 27.)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.