Morgunblaðið - 19.04.2006, Side 10

Morgunblaðið - 19.04.2006, Side 10
10 MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR SUMARDAGURINN fyrsti hefur lengi verið í hávegum hafður hjá skátum landsins og fagna þeir æv- inlega komu sumarsins af miklum móð. Engin undantekning verður á því þetta árið og munu skátarnir á höfuðborgarsvæðinu taka virkan þátt í hátíðarhöldum dagsins. Þannig verða skátamessa í Hall- grímskirkju og Kópavogskirkju kl. 11, í Víðistaðakirkju í Hafnarfirði kl. 12.30 og í Vídalínskirkju í Garðabæ kl. 13. Eftir messur munu skátafé- lögin halda utan um víðtæk hátíð- arhöld í samstarfi við sveitarfélögin. Eftir hádegið munu skátafélögin í Reykjavík standa að og taka þátt í hátíðarhöldum víða um Reykjavík í samstarfi við félagsmiðstöðvar Íþrótta- og tómstundaráðs Reykja- víkur, íþróttafélögin, kirkjur og skóla, nánari upplýsingar má finna á www.itr.is. Í Garðabæ heldur Skátafélagið Vífill í skrúðgöngu eftir skátamess- una, en þrammað verður að Hofs- staðaskóla þar sem verður margt skemmtilegt í boði kl. 14. Í Hafn- arfirði hreiðra Hraunbúar hins veg- ar um sig á Thorsplani kl. 13.30 með mikla fjölskylduskemmtun eftir skrúðgöngu frá Víðistaðakirkju kl. 13. Í Kópavogi sér skátafélagið Kópar um hátíðarhöld sem hefjast með skrúðgöngu frá Digraneskirkju í íþróttahúsið í Smára kl. 13.30, þar sem við tekur skemmtidagskrá. Þá verður bæaganga kringum Reykjavík kl. 9, en í boði verða tíu gönguleggir. Upphafsstaðir leggj- anna verða Eiðistorg, Listasafn Sig- urjóns, Geirsnef, Olísstöðin við Gull- inbrú, bílastæðið við Barðastaði, tankarnir á Grafarholtshæð, Fella- og Hólakirkja, Fríkirkjan Vegurinn Smiðjuvegi 5, Nauthólsvík og Esju- skálinn á Kjalarnesi. Ennfremur verður lífleg dagskrá í Þjóðminjasafninu, sem opið verður milli 11 og 17. Þar verður í boði rat- leikur og listasmiðja auk tónlistar- flutnings, en einnig verður þá opnuð ljósmyndasýning um börn og bernskuna. Viðamikil hátíðarhöld um allt höfuð- borgarsvæðið sumardaginn fyrsta Skátamessur, fjör og skrúðgöngur Morgunblaðið/Einar Falur Víða um land verður skemmtileg og litrík dagskrá sumardaginn fyrsta. „OKKAR skoðun hefur verið sú í langan tíma að það þurfi að fjölga eftirlitsmyndavélum í miðbænum,“ segir Karl Steinar Valsson aðstoð- aryfirlögregluþjónn, en á dögunum kynnti hóp- ur á vegum dómsmálaráðuneytisins hugmyndir um að fjölga vélunum. Sú hugmynd var hluti af fleiri tillögum sem hópurinn gerði um að efla löggæslu í Reykjavík. Karl Steinar segir þó að enn eigi eftir að ræða málin betur á samstarfsvettvangi lög- regluembættisins og borgaryfirvalda og ekkert hafi verið ákveðið um hversu mikið þurfi að fjölga myndavélum né heldur hvar eigi að koma nýjum vélum fyrir. „Við höfum talið það æski- legt að stækka svæðið aðeins sem myndavél- arnar ná til, færa okkur upp Laugaveg og hugsanlega Skólavörðustíg auk þess sem við höfum viljað skoða vélar sem settar eru á ákveðnar umferðaræðar.“ Alls eru nú átta eftirlitsmyndavélar í mið- bænum en þær voru settar upp árið 1998 og kom upp töluverð umræða á sínum tíma um réttmæti þess að nota slíkar vélar. Þannig hafi verið bent á að með vélunum væri friðhelgi einkalífs skert og sumir hafi velt því fyrir sér hvort „Stóri bróðir“ væri að hefja innreið sína til landsins. Öryggisatriði fyrir lögreglumenn Ómar Smári Ármannsson aðstoðaryfirlög- regluþjónn segir að lögreglan hafi ákveðið að koma strax til móts við þessi sjónarmið með því að setja skýrar reglur um hvernig myndefni úr vélunum yrði notað og samkvæmt þeim sé skýrt að efninu eigi að eyða 30 dögum eftir að það sé tekið upp. Þetta segir Ómar að hafi skipt máli til að auka tiltrú fólks á vélarnar og draga úr tortryggni og metur hann það sem svo að vel hafi til tekist. Karl Steinar segir að fyrst og fremst hafi verið horft til Bretlands með uppbyggingu á fyrirkomulagi eftirlitsmyndavéla en þeir standa afar framarlega í þeim efnum. Virðist þróunin um allan heim vera sú að fjölga myndavélum og nú nýverið var komið fyrir fjölmörgum mynda- vélum með aðdráttarlinsum á ljósastaurum í New York í Bandaríkjunum. Karl Steinar segir að almennt sé mjög góð reynsla af myndavélunum í miðbæ höfuðborg- arinnar og ávinningur hafi verið mikill. Þær hafi forvarnargildi auk þess sem þær nýtist beint við löggæslustörf, þannig að lögreglu- menn geti séð hvað er að gerast og áttað sig fyrr á aðstæðum en ella. Myndavélarnar eru auk þess stórt öryggisatriði fyrir lögreglumenn á vakt í miðbænum þar sem hægt er að fylgjast með störfum þeirra og senda aðstoð ef þeir lenda í vandræðum. Verður að gæta meðalhófs Þórður Sveinsson, lögfræðingur hjá Persónu- vernd, segir að lögregla hafi heimild til raf- rænnar vöktunar á almannafæri að því gefnu að viðvörun um slíka vöktun sé sett upp á því svæði sem vaktað er. Þó verði lögregla að gæta þess að ganga ekki lengra með slíkri vöktun en nauðsynlegt sé og gæta meðalhófs í eftirlitinu. Í því máli kunni staðsetning slíkra eftirlits- myndavéla að skipta máli og hvaða sjónarmið liggi að baki staðarvalinu. Þórður segir hæpnara að einkaaðilar hafi heimild til vöktunar á almannafæri og að til þess þyrfti leyfi. Aðspurður hvort mikið af kvörtunum hafi borist vegna eftirlitsmyndavéla í miðbænum segir hann ekki svo vera. Algengara sé að kvartanir berist vegna myndavéla sem einkaað- ilar setji upp, t.d. á vinnustöðum, og þá snúi kvörtunin að því að fjöldi myndavélanna sé of mikill eða tilgangur eftirlitsins ekki ljós. Aðspurður hvort Persónuvernd hafi haldið úti eftirliti með því að lögreglan eyði myndefni af vélunum eftir 30 daga eins og gert sé ráð fyrir segir hann að engin úttekt hafi verið gerð á því, enda ekki borist neinar vísbendingar um misnotkun á myndefninu. Hugmyndum um fleiri eftirlitsmyndavélar í miðbæ Reykjavíkur vel tekið af lögreglu Reynslan af vélunum góð Morgunblaðið/Golli Nú eru átta eftirlitsmyndavélar í miðborg Reykjavíkur en þær voru settar upp árið 1998. Eftir Árna Helgason og Andra Karl STURLA Böðv- arsson sam- gönguráðherra heimsækir Kan- ada dagana 19. til 23. apríl. Til- gangur ferðar- innar er þríþætt- ur: Samgönguráð- herra verður fulltrúi ríkisstjórnarinnar á þingi Þjóðræknisfélagsins í Kanada, hann kynnir markaðsátakið Ice- land Naturally í Bandaríkjunum og Kanada sem hófst vestra árið 2000 og í þriðja lagi hittir hann fulltrúa stjórnvalda Bresku-Kól- umbíu. Þing Þjóðræknisfélagsins Á laugardag tekur samgöngu- ráðherra þátt í árlegu þingi Þjóð- ræknisfélagsins í Kanada sem haldið verður í Victoria í Bresku- Kólumbíu. Þá á ráðherra fundi með landstjóra fylkisins, aðstoð- arráðherra ferðamála og ferða- málastjóra. Einnig mun samgöngu- ráðherra hitta Vestur-Íslendinga við ýmis tækifæri í heimsókninni. Með ráðherra verða Ragnhildur Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri, Bergþór Ólason, aðstoðarmaður ráðherra, og Unnur Gunnarsdóttir, skrifstofustjóri ráðherraskrifstofu. Einnig taka þátt í dagskrá ráð- herra þeir Magnús Oddsson ferða- málastjóri og Einar Gústavsson, framkvæmdastjóri ferðamálastofu í Norður-Ameríku. Sturla Böðvarsson í heimsókn í Kanada Sturla Böðvarsson                           !" # $  " % MANNRÆKTIN Atorka stendur sumardaginn fyrsta fyrir ferð frá Gljúfrasteini í Mosfellsbæ í gegn- um Reykjavík, að Gróttu á Sel- tjarnarnesi. Farið verður eftir göngustígum Mosfellsbæjar, Reykjavíkur og Seltjarnarness og getur hver og einn fagnað sumri með því að hjóla, hlaupa eða skauta þessa leið. Þá verður öllum frjálst að koma inn í hópinn hvar sem er á leiðinni. Ferðin hefst kl. 10.30 á Gljúfra- steini – Húsi Halldórs Laxness, en þar verður fyrst kynning á safninu og nágrenni þess. Ferðin verður farin í fimm tæplega klukkutíma löngum leggjum með stuttum án- ingarstoppum á nokkrum við- komustöðum. Gert er ráð fyrir að hópurinn komi á íþróttasvæðið á Varmá kl. 11.30, verði við Gufunes kl. 12.30, í Elliðaárdal kl. 13.30, í Nauthólsvík kl. 14.30 og að lokum verður komið að Gróttu upp úr kl. 15.30. Gróttuviti og Fræðasetrið verða opin, en þar verður hægt að kaupa léttar veitingar. Þeim sem hafa áhyggjur af því hvernig eigi að komast með reið- hjól upp að Gljúfrasteini má benda á að strætisvagnar ganga upp í Mos- fellsbæ, en þaðan er léttur leikur að hjóla upp í Mosfellsdal til móts við hópinn, eða að slást í förina á Varmá kl. 11.30. Vonandi skemmtileg hefð Gunnlaugur B. Ólafsson, fram- haldsskólakennari og útivist- armaður, er í forsvari fyrir ferðina. Segir hann hér um að ræða nokkuð hraða yfirferð. Farið verði á skokk- hraða og jafnvel hraðar. „Þetta er þó mikið til niður í móti,“ segir Gunnlaugur og bætir við að gaman væri, ef vel tekst til, að gera það að hefð að nýta þá frábæru göngu- stíga sem liggja gegnum höf- uðborgarsvæðið á þennan hátt. „Það er einmitt safnadagur á sum- ardaginn fyrsta og frítt í öll söfn. Þess vegna kemur það vel út varð- andi Gljúfrastein og Fræðasetrið. Það verður einmitt fjara þegar við komum að Gróttu og verður fram undir sjö, þannig að tímasetningin passar vel að koma þangað seinni part dags.“ Gunnlaugur er mikill áhugamað- ur um göngur og útivist ýmiss kon- ar. Hefur hann m.a. skipulagt hringleiðir um fellin kringum Mos- fellsbæ, en einnig skipuleggur hann langar gönguferðir austur í Lóni, þar sem hann hefur einnig unnið að uppbyggingu útivistarmöguleika. „Það er mikilvægt að ná sambandi við náttúruna og rækta tengslin við hana,“ segir Gunnlaugur. „Menn geta verið að fara sama göngustíg- inn aftur og aftur, en það er alltaf ný upplifun, því veðrið er svo breytilegt. Það er alltaf ný skyn- reynsla að fara út og njóta göngu- ferðar. Menn eiga ekki að hreyfa sig út af kvöð, heldur ánægjunnar vegna.“ Farið frá Gljúfrasteini að Gróttu sumardaginn fyrsta Hlaupið, hjólað og skautað frá sveit til sjávar Gunnlaugur B. Ólafsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.