Morgunblaðið - 21.04.2006, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 21.04.2006, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 107. TBL. 94. ÁRG. FÖSTUDAGUR 21. APRÍL 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is Fá›u fimm stjörnur hjá kökugagnrýnendum! Ævintýri barnanna 25 börn og fjölskyldur þeirra fengu styrk úr Vildarbörnum Icelandair | Miðopna Bílar | Amerísk kvartmíla  Bílasýning í New York  Bíll heimsins  Focus-rallbíll  Saab biopower  Formúla 1 Íþróttir | Jón Arnór laðar konur að  Örn aftur í þræðingu  Chelsea æfir í Bandaríkjunum ÍSLENDINGAR fögnuðu sumri í gær og að venju tóku fjölmargir þátt í skrúðgöngum. Skátar fóru þar í broddi fylkingar líkt og hefð er fyrir. Milt veður var í höfuðborginni en á Akureyri voru enn leifar af snjó á stöku stað. Þeir létu það þó ekki aftra sér frá því að gleðjast saman. Sumri fagnað í glensi og gamni Morgunblaðið/Árni Sæberg ÉG sá bara að hann hélt hendinni fyrir aftan bak. Ég hélt að þetta væri í lagi en síðan fékk ég högg- ið í höfuðið,“ segir fimmtán ára stúlka um afar fólskulega árás eldri stráks á hana síðastliðið miðvikudagskvöld á Holtavegi rétt við Lang- holtsskóla. Telja má ótrúlega mildi að hún skyldi ekki slasast alvarlega eftir þessa árás og er árás- armannsins nú leitað af lögreglu. Þrátt fyrir að hafa ráðist aftan að henni með hafnaboltakylfu tókst honum ekki að skaða hana mjög illilega en kylfur af þessu tagi eru stórhættuleg vopn og hafa gríðarlegan slagkraft. Stúlkan varðist árás- inni af öllum mætti og hlaut við það varnaráverka á handleggjum auk höfuðáverka. Eftir ítrekaðar barsmíðar flúði árásarmaðurinn þó af hólmi en hafði þá tekist að stela íþróttatösku stúlkunnar. Lögreglan leitar piltsins og hefur lýst eftir honum. Stúlkan sagðist í samtali við Morg- unblaðið í gær mundu fara í áfallahjálp á Land- spítalanum í dag, föstudag, en hún fékk að fara heim af slysadeild samdægurs að lokinni skoðun á líkamlegum áverkum. Stúlkan hafði farið á djassballettæfingu í Laugardal þetta kvöld en komst að því að æfing- in hafði fallið niður. Gekk hún þá heim á leið en ákvað að koma við hjá vinkonu sinni og gekk Holtaveginn. Hún er ekki vön að fara þá leið en nú taldi hún það í lagi úr því að enn var bjart. „Ég mætti þá stráknum sem var með aðra hönd fyrir aftan bak,“ sagði hún. „Þegar ég var komin framhjá honum fékk ég allt í einu högg í höfuðið aftan frá. Hann hélt síðan áfram að lemja mig, aftur og aftur með kylfunni. Ég datt en náði að sparka í fæturna á honum og fella hann. Samt hélt hann áfram að lemja mig, þar af einu sinni í höfuðið. Síðan hljóp hann allt í einu í burtu og tók töskuna mína í leiðinni.“ Stúlkan þekkti ekkert til piltsins og hefur aldr- ei séð hann fyrr. Hún sagðist hafa verið orðin talsvert vönkuð í lok átakanna eins og nærri má geta. „Ég hefði ekki getað hlaupið í burtu nema hann hefði farið,“ sagði hún. „Hann sagði ekkert nema „bíddu“ og „vertu kyrr“ en ég skildi hann aldrei af því ég var svo hrædd.“ Stúlkan sagðist á leið sinni hafa mætt skokk- urum í Laugardalnum og því hefði verið fólk á ferli þarna, þótt enginn hefði verið nálægur ein- mitt á þeirri stund sem pilturinn réðst á hana á Holtaveginum. „Þegar ég mætti honum, þá leit hann dálítið grunsamlega út en ég var samt ekk- ert að spá í það. Ég sá bara að hann hélt hendinni fyrir aftan bak. Ég hélt að þetta væri í lagi en síð- an fékk ég höggið í höfuðið.“ „Ætla aldrei að ganga aftur þarna“ Stúlkan sagðist ákveðin í því hér eftir, í ljósi reynslunnar, að forðast þessa leið. „Ég ætla aldr- ei að ganga aftur þarna, að minnsta kosti ekki ein. Ég held að mamma eigi eftir að skutla mér allt núna. En ég er svo fegin að hafa náð að hrekja strákinn í burtu. Ég skil bara ekki hvern- ig fólk getur gert svona lagað, að ráðast á aðra með hafnaboltakylfu.“ Lögreglan í Reykjavík lýsir eftir árásarmann- inum og óskar eftir upplýsingum frá öllum þeim sem gætu vitað eitthvað um málið. Pilturinn mun hafa verið dökkklæddur með dökkt hár, 170–180 cm á hæð og um 18 ára gamall. 15 ára stúlka barin með kylfu á Holtaveginum en náði að fella árásarmanninn „Fékk allt í einu högg í höfuðið“ Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is Lögreglan lýsir eftir árásarmanninum og óskar upplýsinga GEORGE W. Bush, forseti Bandaríkjanna, bað í gær Hu Jintao Kínaforseta afsökunar á mótmælum miðaldra blaðakonu fyrir utan Hvíta húsið í gær. Konan, sem heitir Wang Wenyi, var með bráðabirgðablaðamanns- skírteini og komst í gegnum öryggishlið. „Þetta er óheppilegt, mér þykir leitt að þetta skyldi gerast,“ er Bush sagður hafa sagt hinum kínverska starfsbróður sínum. Þótti Bandaríkjaforseti vandræðalegur vegna atviksins, en ströng öryggisgæsla var á fundi leiðtoganna í gær. Þetta er í fyrsta skiptið sem Hu kemur í heimsókn í Hvíta húsið sem forseti, en hann hitti fyrr í vikunni frammámenn í banda- rísku atvinnulífi, þeirra á meðal Bill Gates, stofnanda Microsoft. Má segja að heimsóknin hafi fallið í skugga mótmæla víða um heim gegn stefnu stjórnarinnar í Peking í mannréttindamál- um, en hópur bandarískra þingmanna hef- ur skorað á kínversk yfirvöld að hætta að fjarlægja líffæri úr föngum. Bush bað Kínaforseta afsökunar  Leiðtogafundur | 14 Heimsókn fellur í skugga af mótmælum Kaupmannahöfn. AP. | Fulltrúar ríkisfjölmiðla Danmerkur, Svíþjóðar og Noregs hafa dregið til baka þátttöku sína í barnaútgáfu söngva- keppni evrópskra sjón- varpsstöðva vegna þess að þeir telja að mark- aðsvæðing keppninnar sé komin út í öfgar. Vilja þeir í staðinn halda eig- in keppni í Stokkhólmi í nóvember nk. og bjóða frændum sínum Finnum og Íslendingum til leiks. Keppnin sem um ræðir er söngvakeppni 8 til 15 ára gamalla barna sem sett var á laggirnar 2003 og ætlað er að líkja eftir hinni sívinsælu söngvakeppni fullorðinna. „Við viljum ekki að börn komi fram líkt og þau séu fullorðnar poppstjörnur,“ sagði Lars Grarup hjá danska ríkissjón- varpinu. „Við viljum ekki sjá mikið af beru holdi, stuttum pilsum, skartgripum og andlitsfarða.“ Deilt um Evróvisjón ♦♦♦ HRAÐAKSTUR í Reykjavík setti sinn svip á aðfaranótt sumardagsins fyrsta. Sautján ökumenn voru stöðv- aðir á of miklum hraða og var einn þeirra sviptur ökuréttindum á staðn- um. Þá eiga tveir til viðbótar von á að verða sviptir ökuréttindum í kjölfar næturinnar að sögn lögreglunnar. Þessi hraðakstur kemur í beinu framhaldi af miklum hraða um ný- liðna páskahelgi þegar 390 ökumenn voru kærðir, þar af 166 fyrir hrað- akstur innan borgarmarka. Einn Ekkert lát á hraðakstri ökumaður var tekinn á 144 km hraða þar sem leyfilegur hámarkshraði er 60 km. Í Hvalfjarðargöngum var hraðakstursmyndavél í gangi um páskana og þar fóru rúmlega 13 þús- und ökutæki í gegn. 224 ökumenn óku of hratt í göngunum og mega bú- ast við sektum. Þá stöðvaði lögreglan á Keflavík- urflugvelli ökumann fólksbifreiðar á Reykjanesbrautinni um níuleytið á miðvikudagskvöld. Ökumaðurinn ók á 166 kílómetra hraða þar sem há- markshraðinn er 90 km. Maðurinn var sviptur ökuleyfi til bráðabirgða á staðnum. Bílar, Íþróttir og Vorboðinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.