Morgunblaðið - 21.04.2006, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 21.04.2006, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. APRÍL 2006 15 ERLENT MISSTIRÐU EITTHVAÐ ÚT ÚR ÞÉR? Mörgum kílóum af tyggjói er spýtt á götur og gangstéttir borgarinnar á hverju ári. Hreinsun sorps af götunum kostar um 23 milljónir króna árlega. Þetta samsvarar meðalútsvari rúmlega 100 Reykvíkinga. ÞAÐ MUNAR ENGU FYRIR ÞIG AÐ SETJA TYGGJÓIÐ Í FÖTUNA ÞAÐ MUNAR ÖLLU FYRIR UMHVERFIÐ Reykjavíkurborg H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA Bagdad. AFP. | Íraska þingið átti að koma saman í gær en því var frestað um tvo daga er fréttist, að Ibrahim Jaafari, fráfarandi forsætisráðherra, krefðist þess ekki lengur að halda því embætti. Mun það líklega verða til að greiða fyrir stjórnarmyndun í landinu. Krafa Jaafaris um forsætisráð- herraembættið hefur hingað til staðið í vegi fyrir myndun sam- steypustjórnar í Írak en Kúrdar jafnt sem súnnítar hafa hafnað honum algerlega. Þá hafa sjítar og hans eigin flokksmenn reynt að fá hann ofan af kröfunni um forsætisráðherraembættið og það virðist nú hafa tekist. Hefur Jaafari fallist á, að helsta kosningabandalag sjíta ákveði hver verði næsti for- sætisráðherra. Í sjónvarpsávarpi til þjóðar sinnar í gær sagðist Jaafari ekki vilja verða hindrun fyrir lýðræðisferlinu í Írak, en gaf hins vegar ekki til kynna hve- nær hann myndi láta af embætti. Óöld og upplognar fréttir Að minnsta kosti 12 manns féllu í Írak í gær í sprengjutilræðum og öðrum árásum en yfirvöld bera hins vegar til baka fréttir frá í fyrradag um að tveir kennarar hafi verið skornir á háls að nemendum sínum ásjáandi. Sagði í yfirlýsingu frá menntamálaráðuneytinu, að frétt- inni hefði augljóslega verið komið á kreik til að valda skelfingu meðal barna og foreldra þeirra. Jaafari gefur eftir Jaafari Moskvu. AFP. | Nýjar styttur af Jósef Stalín hafa verið að skjóta upp kollinum víða um Rússland að undanförnu en ástæðan er þó ekki sérstök rækt við minningu einræðis- herrans. Tilgangurinn er ein- göngu sá að laða að ferðamenn. „Það voru ferðamálastarfs- menn, sem áttu hugmyndina,“ sagði Jevgení Pashenko, að- stoðarríkisstjóri í Krasnojarsk í sunnanverðri Síberíu, en þar er nú verið að enduropna 400 fermetra byggingu, sem á sín- um tíma var reist í minningu Stalíns en lokað árið 1961. Þar er að sjálfsögðu stór stytta af honum. Í desember síðastliðnum var opnað Stalínsafn í borginni Volgograd og styttur af honum hafa risið víða en þó ekki alls staðar hávaðalaust. Finnst mörgum ekki við hæfi að gera Stalín, sem bar ábyrgð á dauða milljóna manna, að söluvarn- ingi. Vona að Stalín laði að ferðamenn Katmandu. AFP. | Að minnsta kosti þrír létust og tugir særðust þegar lögregluyfirvöld í Nepal hófu í gær skothríð á mótmælendur í höfuð- borginni Katmandu. Að sögn lækna á Model-sjúkrahúsinu í Katmandu voru flestir hinna særðu með skot- sár, en a.m.k. tólf liggja alvarlega slasaðir eftir árásina í gær. Aðgerðin kom í kjölfar þess að tugir þúsunda mótmælenda virtu að vettugi útgöngubann í borginni, en þeir hafa á síðustu vikum staðið fyrir verkföllum og götumótmælum gegn Gyanendra konungi, sem tók sér ein- ræðisvald þegar hann rak ríkis- stjórnina fyrir 14 mánuðum. Krefjast lýðræðis Krafa mótmælenda er að lýðræð- isleg stjórnskipan verði tekin upp í landinu á nýjan leik. „Við erum tilbú- in að fórna lífi okkar fyrir lýðræðið,“ sagði Sanyam Poudel, 22 ára Nepali, í gær. „Við óttumst þá ekki.“ Alls hefur á annan tug fallið og tugir slasast í mótmælunum sem hófust fyrr í mánuðinum. Mikil samstaða einkenndi mót- mælin í gær og sprautuðu íbúar borgarinnar vatni af húsþökum sín- um til að hjálpa mótmælendum sem höfðu blindast tímabundið af tára- gasi lögreglu. Að sögn yfirvalda er líklegt að konungurinn muni líta til fyrrver- andi valdahafa þegar hann íhugar myndun nýrrar stjórnar. Mótmæl- endur hafa hins vegar hafnað slíkum hugmyndum og sagt að tími um- ræddra leiðtoga sé á enda. Hafa þeir boðað frekari mótmæli í dag. Skutu þrjá mótmælendur til bana í Katmandu AP Ungur mótmælandi liggur í valnum eftir skothríð lögreglunnar í Katmandu, höfuðborg Nepals, í gær. Mótmælin munu halda áfram í dag.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.