Morgunblaðið - 21.04.2006, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 21.04.2006, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 21. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Yf ir l i t Í dag Fréttaskýring 8 Myndasögur 44 Austurland 12 Dagbók 44/47 Viðskipti 13 Víkverji 44 Erlent 14/15 Staður og stund 46 Daglegt líf 16/17 Leikhús 48 Menning 18/19 Menning 49 Umræðan 20/26 Bíó 50/53 Bréf 24 Ljósvakamiðlar 54 Forystugrein 28 Veður 55 Minningar 30/41 Staksteinar 55 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is www.expressferdir.is Express Fer›ir, Grímsbæ, Efstalandi 26, sími 5 900 100 Nánar á www.expressferdir.is Fer›askrifstofa í eigu Iceland Express VERÐ 79.900 kr. INNIFALI‹: FERÐ ELDRI BORGARA Í SVARTASKÓG 12.–19. ÁGÚST Þetta er ferð sem enginn má missa af. Lilja Hilmarsdóttir sem er þaulkunnug á þessum slóðum leiðir hópinn í fjölbreyttri dagskrá um fallegt og áhugavert svæði. Skoðunarferðir um Elsass-héraðið í Frakklandi, ferð til Sviss, m.a. heilsdagsferð upp í Alpana, skoðunarferð um Svartaskóg, leiðangur til blómaeyjunnar Mainau, léttar gönguferðir, glens og grín. Flogið til Friedrichshafen í Suður-Þýskalandi og keyrt í u.þ.b. klukkustund til smábæjarins Titisee í Svartaskógi. Dvalið á hinu margrómaða Hotel Báren í sjö nætur. Flug, flugvallaskattar, íslensk fararstjórn, akstur til og frá flugvelli, gisting í sjö nætur, hálft fæði, þ.e.a.s. morgunverður og fjögurra rétta sælkerakvöldverður á hverju kvöldi. Allar nánari upplýsingar veitir Lilja Hilmarsdóttir hjá Express Ferðum í síma 5 900 100. Fyrirspurnir er líka hægt að senda á lilja@expressferdir.is ÓÁNÆGJA ríkir meðal margra bók- sala með framsetningu á afsláttar- ávísun sem landsmenn hafa fengið í tilefni af viku bókarinnar en hún felst í því að aftan á ávísuninni birt- ast merki bókaverslana Pennans, Eymundssonar, Máls og menningar og Hagkaupa en ekki annarra bóka- búða sem taka þátt í verkefninu. Að sögn Arndísar Sigurgeirsdóttur, bóksala í Iðu, er hún mjög óánægð með framsetningu, en hver bóksali greiðir jafnháa upphæð með hverri ávísun. Hún taldi þessa framsetn- ingu ekki geta staðist samkeppnis- lög, á þeim grundvelli að í átaki sem þessu, þar sem margir aðilar eru þátttakendur, er viðskiptum beint til útvalinna þátttakenda og bætti hún því við að tími væri til kominn að samkeppnisyfirvöld könnuðu þetta mál. Auk fyrrnefndra merkja er einnig merki þar sem stendur Bóka- búðirnar. Arndís kannaðist ekki við þetta merki og taldi þetta vera skír- skotun í þær bókabúðir sem nefndar eru á miðanum. Aðspurð hvort hún hefði leitað svara hjá umsjónar- mönnum verkefnisins sagði hún að forsvarsmenn Félags íslenskra bókaútgefenda hefðu talið þessa framsetningu vera mistök en lýsti engu að síður ánægju sinni með verkefnið að öðru leyti. Jafnræðis ekki gætt Sigurður Pálsson, rekstrarstjóri Bóksölu stúdenta, sagði að ekki hefði komið fram í kynningu á verkefninu að ákveðnum söluaðilum yrði hamp- að á miðanum. Hann taldi að jafn- ræðis væri ekki gætt með þessari framsetningu og gat ekki gefið skýr- ingu á því hvers vegna þessum að- ilum væri hampað fremur en öðrum. Hann hefði leitað svara hjá Félagi ís- lenskra bókaútgefenda og þar hefðu menn talið þetta vera óheppilegt mál en ekki skýrt það frekar. Sigurður hafði sömu sögu að segja og Arndís um Bókabúða-merkið, hann hafði aldrei séð það áður og sagði þetta merki ekki gefa neitt til kynna. Báru sig eftir björginni Kristján B. Jónasson, varaformað- ur Félags íslenskra bókaútgefenda, sagði að merki þessara aðila hefði verið birt vegna þess að þeir hefðu borið sig eftir björginni og sóst eftir því í byrjun en öllum hefði verið frjálst að hafa sitt merki þar. Að- spurður hvort þeir hefðu fengið merki sín birt í krafti stærðar sinnar sagði Kristján málið ekki snúast um það, heppilegast hefði verið að birta ekki nein merki. Um þá gagnrýni að merkið Bókabúðirnar hefði aldrei sést áður og væri neytendum algjör- lega ókunnugt sagði Kristján að það hefði verið búið til af auglýsingastof- unni og hönnunaraðilum miðans. Hann viðurkenndi að þetta merki hefði aldrei birst áður en sagði það minna á þá fjölmörgu aðila sem einn- ig væru þátttakendur í átakinu. Hann sagði að hugsunin á bakvið merkið væri sú að þetta væri regn- hlíf yfir alla bóksala á landinu og að koma í veg fyrir að miðinn yrði þak- inn merkjum. Kristján sagði að Fé- lag íslenskra bókaútgefenda og styrktaraðili átaksins hefðu greitt fyrir allt kynningarefni og öllum þátttakendum væri frjálst að nota það sér að kostnaðarlausu og bætti hann því við að merki bóksala kæmu hvergi fram í neinum auglýsingum átaksins. Kristján sagði að sér þætti leitt að þetta mál hefði komið upp, þetta hefðu verið mistök og varpað skugga á þetta skemmtilega þjóð- þrifaverkefni. Margir bóksalar óánægðir með framsetningu afsláttarávísunar Þjóðargjafar Stóru bókabúðunum hampað á kostnað þeirra minni Eftir Sigurð Pálma Sigurbjörnsson siggip@mbl.is SÝNINGIN Sumarið 2006 hefst í Laugardalshöll í dag kl. 12 en þar munu um 150 aðilar koma saman og kynna vörur og þjónustu tengda heimilinu, sumarhúsinu, garðinum og fleira. Þegar ljósmyndara Morg- unblaðsins bar að garði í gær voru sýningaraðilar í óðaönn að gera bása sína tilbúna og sagði Páll Pétursson, talsmaður sýningarinnar, að undir- búningur hefði gengið vel og mætti búast við skemmtilegri sýningu, en auk sýningaraðila mun m.a. Silvía Nótt koma fram. Sýningin Sumarið 2006 í dag Morgunblaðið/Árni Sæberg Á MILLI eitt og tvö prósent barna á aldrinum 9–18 ára höfðu ekki farið til tannlæknis undanfarin fimm ár, miðað við fjölda reikninga sem skil- að var inn til Tryggingastofnunar á tímabilinu 1999–2005, en stofnunin endurgreiðir þessum sjúklingum hluta kostnaðar. Þetta kemur fram í svari heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Ágústs Ólafs Ágústs- sonar þingmanns um ferðir barna til tannlækna. Auk þess kom fram í svarinu að 7% barna á aldrinum 6–8 ára höfðu ekki fengið slíkar endur- greiðslur, 2% barna á aldrinum 9–11 ára, 1,7% barna á aldrinum 12–14 ára, 2,2% barna á aldrinum 15–17 ára og 0,8% 18 ára unglinga. Ekki farið til tann- læknis í fimm ár EKKI vantar að hann sé tignarlegur, konungur fuglanna þar sem hann hefur sig til flugs í Vatnsfirð- inum, á vestanverðum Vestfjörðunum, í gær. Aðal- heimkynni hafarnarins eru einmitt á Vestfjörðunum, ekki síst við norðanverðan Breiðafjörðinn, en hafernir hafa sést víðar um land undanfarin ár en áður var. Þannig sást nýlega haförn í Mývatnssveitinni fyrir norðan sem er óvanalegt á þeim slóðum og í vetur sást haförn við Bæ í Lóni, en hafernir eru sjaldséðir á Suð- austur- og Austurlandi. Haförnum hefur hins vegar fjölgað nokkuð undanfarin ár og er talið að um eitt hundrað pör séu í landinu nú. Ljósmynd/Guðlaugur Albertsson Konungur fuglanna tekur flugið ELDSNEYTISVERÐ var í gær hækkað á stöðvum Atlantsolíu, Ork- unnar, Ego og ÓB eins og á stöðvum stóru olíufélaganna. Hjá Atlantsolíu kostar bensín 124,60 og dísilolía 119,80 krónur. Á ÓB-stöðvum er verðið 0,10 krónum lægra en á Ego- stöðvum kostar bensín 124,70 og dísilolía 119,80 krónur. Eldsneytið var ódýrast hjá Orkunni eftir hækk- anirnar en bensínlítrinn þar kostar 124,40 og olíulítrinn 119,50. Allir hafa hækkað LEITAR ÁRÁSARMANNS Lögreglan í Reykjavík leitar enn ungs karlmanns sem réðst á fimm- tán ára stúlku í Laugardalnum á miðvikudagskvöld. Stúlkan var ein á ferð er maðurinn, sem hún þekkti ekki, kom á móti henni. Hann sló hana í höfuðið með kylfu en stúlkan varðist. Maðurinn stal íþróttatösku hennar. Mótmæla lokun Sveitarstjórn Mýrdalshrepps mótmæltir áformum Umhverfis- stofnunar um lokun Dyrhólaeyjar fyrir allri almennri umferð á tíma- bilinu 1. maí til 25. júní í ár en eyjan var friðlýst árið 1978 og hefur árum saman verið lokað fyrir umferð um hana meðan fuglavarp stendur yfir. Telur sveitarstjórn svo víðtæka lok- un óþarfa og að hagsmunir ferða- mannaþjónustu á svæðinu séu fyrir borð bornir með þessari ákvörðun. Jaafari gefur eftir Íraska þingið átti að koma saman í gær en því var frestað um tvo daga er fréttist, að Ibrahim Jaafari, frá- farandi forsætisráðherra, krefðist þess ekki lengur að halda því emb- ætti. Mun það líklega verða til að greiða fyrir stjórnarmyndun í land- inu. Samdráttur framundan Danske bank sendi í gær frá sér nýja greinargerð um íslenskt efna- hagslíf sem bankinn segir yfirspennt og að svo virðist sem alvarlegur samdráttur sé framundan. Segir að þróunin í íslensku efnahagslífi hafi verið mun hraðari en þeir hafi gert ráð fyrir í fyrri greinargerð sinni. Skutu á mótmælendur Að minnsta kosti þrír létust og tugir særðust þegar lögregluyfir- völd í Nepal hófu í gær skothríð á mótmælendur í höfuðborginni Katmandu. Að sögn lækna á Model- sjúkrahúsinu í Katmandu voru flest- ir hinna særðu með skotsár. Birta listann í Guantanamo Bandaríska varnarmálaráðu- neytið birti í fyrsta sinn í fyrradag lista með nöfnum 558 manna, sem eru eða hafa verið í fangabúðunum í Guantanamo á Kúbu. Var það gert eftir að alríkisdómstóll hafði orðið við kröfu AP-fréttastofunnar um það.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.