Morgunblaðið - 21.04.2006, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 21.04.2006, Blaðsíða 29
ð á sjóðnum. „Án ðsins og ávarpaði gær. hér í dag á sum- kærara en þegar m árum og ég var sagði hún meðal ndair og 25 börn ásamt fjölskyldum halda á vit ævintýranna t í góðar þarfir Morgunblaðið/Árni Sæberg umarbyrjun með því að veita viðtöku styrkjum úr sjóði Vildarbarna Icelandair í gær. umeðlimum. Elvar Smári Einarsson brosti breitt enda ástæða til. Einar Benedikt Kristgeirsson tók stoltur við styrknum. Ari Páll Vignisson tók við styrknum með fjölskyldunni.ku. Friðrik Óli Höjgaard tók við sinni gjöf. Sigrún María Óskarsdóttir tók glöð við sinni gjöf. Hringur Úlfarsson gladdi viðstadda með brosmildi sinni. lefni dagsins. TENGLAR ........................................................................ www.vildarborn.is annars og beindi í lokin orðum sínum til barnanna: „Ég fagna því að þið eruð hér og ég veit að þið veljið ykkur þann stað í veröldinni sem ykkur langar allra mest til að fara á.“ Sigurður Helgason, fyrrverandi forstjóri Icelandair og formaður stjórnar Vildarbarna, og Peggy Helgason af- hentu börnunum gjafirnar. Ekki áttu allir styrkþegarnir heimangengt og auk þeirra sem mættu á afhendinguna fengu eftirfarandi börn úthlutað úr sjóðnum: Andri Þór Gunnarsson, Anna Jórunn Sigurgeirsdóttir, Davíð Aron Ægisson, Haukur Halldórsson, Jack Alexander, Máni Sigurbjörnsson, Oscar Nielsen, Sigrún Sól Eyjólfs- dóttir, Valgerður Jónsdóttir og Þórarinn Pálsson. MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. APRÍL 2006 29 ÞAÐ var stór dagur hjá hinni brosmildu Laufeyju Rut Ármannsdóttur, 14 ára, í gær. Hún samþykkti að spjalla við blaðamann eftir að hafa tekið við gjöf sinni frá Vild- arbörnum en síðan lá leið hennar í Fríkirkjuna í Hafn- arfirði þar sem hún átti að fara að fermast. Hún ætlar með foreldrum sínum og bróður til Flór- ída, en þangað hefur hún komið einu sinni áður. Hún man þó lítið eftir því enda var hún aðeins tveggja ára þá. „Ég hlakka mest til að fá gott veður og fara í sólina,“ sagði Laufey og sagði aðspurð að strendur og sólböð heilluðu jafnvel enn meira en Disneyland-skemmtigarð- urinn. Hún var mjög ánægð með ferðina en sagði hlæj- andi að það kæmi í ljós síðar um daginn hvort hún yrði besta fermingargjöfin. Viðburðaríkur fermingardagur KRISTÍN Guðmundsdóttir er móðir Ragnars Vilbergs Bragasonar, en hann var einn þeirra sem hlutu gjöf úr sjóði Vildarbarna í gær. Kristín sagði gjöfina hafa mikla þýðingu fyrir fjölskyld- una og að ekki væri mögulegt að komast í ferðalag ef ekki væri fyrir hana. „Við myndum ekki geta framkvæmt þetta öðruvísi,“ sagði hún. Kristín sagði ennþá óákveðið hvert yrði farið en Dan- mörk væri ofarlega á vinsældalistanum. Þar bjó fjöl- skyldan í þrettán ár. „Það væri gaman að heimsækja þann stað og að sjálf- sögðu fara í tívolíið,“ sagði hún brosandi. Hún sagði stefnt að því að ferðast í sumar og að sjálf- sögðu væri farið að bera á tilhlökkun. „Við höfum ekki farið neitt svo það verður bara gaman að komast í ferðalag.“ Gjöfin hefur mikla þýðingu SNÆDÍS Björt Ágústsdóttir var kotroskin og skemmtileg í samtali við blaðamann Morgunblaðsins eftir afhend- inguna í gær. Snædís er tólf ára og hefur aldrei farið til útlanda áður. Hún var fljót að svara því hvert hún stefndi á að fara. „Ég ætla til Flórída og í Disneyland,“ sagði hún en bætti við að það væri í það minnsta efst á óskalistanum. „Eða það er eiginlega bara pottþétt,“ bætti hún við, enda hefur hana lengi langað að fara þangað. Hún sagði flesta krakka dreyma um að komast til Disneylands en vissi ekki til þess að neinir vinir sínir hefðu farið þangað. Snædís mun ferðast með foreldrum sínum og stóra bróður og fer fjölskyldan líklega í draumaferðina í ágúst. Hún sagðist örugglega myndu eyða sumrinu í mikilli spennu. „Ég hlakka mest til að fara í Disneyland og í flugvél, það verður spennandi,“ sagði Snædís en hún hefur aldrei flogið áður. Það vottaði samt ekki fyrir hræðslu heldur sagði hún að það yrði ekkert mál. Snædís kvaddi síðan og hafði bara eitt að segja að lok- um. „Þetta verður frábært!“ Aldrei farið í flugvél áður
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.