Morgunblaðið - 21.04.2006, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 21.04.2006, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. APRÍL 2006 9 FRÉTTIR Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigi 5 • Sími 581 2141 Sumartilboð 15% afsláttur af öllum yfirhöfnum Bragðsem endist lengur Nicorette nikótínlyf eru fáanleg án lyfseðils og eru notuð þegar reykingum er hætt eða þegar dregið er úr reykingum. Til að ná sem bestum árangri skal ávallt fylgja leiðbeiningum í fylgiseðli. Skammtar eru einstaklingsbundnir eftir því hve mikið er reykt, hvort hætta á reykingum eða draga úr þeim. Því ber að kynna sér upplýsingar um notkun í fylgiseðli. Í fylgiseðlinum eru upplýsingar um: verkun og notkun, varúðarreglur, mikilvægar upplýsingar sem nauðsynlegt er að lesa áður en lyfin eru notuð, hugsanlegar aukaverkanir og aðrar upplýsingar. Leitið til læknis eða lyfjafræðings ef þörf er á frekari upplýsingum um lyfin. Þeir sem fengið hafa ofnæmi fyrir nikótíni eða öðrum innihaldsefnum lyfsins, nýlegt hjartaáfall, óstöðuga versnandi hjartaöng, alvarleg hjartsláttarglöp eða nýlegt heilablóðfall eiga ekki að nota Nicorette nikótínlyf. Börn yngri en 15 ára, þungaðar konur og konur með barn á brjósti eiga ekki að nota Nicorette nikótínlyf nema að ráði læknis. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Geymið fylgiseðilinn. Nauðsynlegt getur verið að lesa hann síðar. Handhafi markaðsleyfis: Pfizer ApS. Umboð á Íslandi: Vistor hf., Hörgatúni 2, Garðabæ. www.nicorette.is Nýkynslóð: Mýkraundirtönn! Prófaðu Nicorette Freshmint Nýkomnir Glæsilegir toppar Eddufelli 2 Bæjarlind 6 sími 557 1730 sími 554 7030 Opið mán.-fös. kl. 10-18, lau. kl. 10-16 Kjólar við buxur Mikið úrval Mörg mynstur Stærðir 36-48 Verð 3.990 Laugavegi 54 sími 552 5201 Innihaldið skiptir máli FÉLAGSFUNDUR Eflingar – stéttarfélags beinir því til samninga- nefndar hjúkrunarheimilanna og heilbrigðis- og fjármálaráðuneytis að ganga þegar í stað að kröfum launafólks á vinnustöðunum til að koma í veg fyrir fjöldauppsagnir starfsmanna. Allt frá vorinu 2005 hefur Efling reynt að ná fram breyt- ingum á samningi Eflingar og SFH, Samtaka fyrirtækja í heilbrigðis- þjónustu, þar sem til kæmu sam- svarandi leiðréttingar og í samningi ríkisins. Þessu hefur alfarið verið hafnað af stjórnendum hjúkrunar- heimila. Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var á fjölmennum fé- lagsfundi Eflingar á miðvikudag. „Undanfarið hafa starfsmenn hjúkrunarheimila á höfuðborgar- svæðinu efnt til aðgerða til að knýja á um leiðréttingu launakjara sinna,“ segir í ályktuninni. „Aðgerðir þeirra eru sjálfsprottnar og til þess gerðar að hafa áhrif á fjármála- og heil- brigðisráðuneyti, sem hingað til hafa ekki gefið nein fyrirheit um aukið fjármagn til hjúkrunarheimilanna til að hægt sé að lagfæra kjör þessa fólks. Með aðgerðunum hafa hátt í 1.000 starfsmenn viljað vekja athygli á því misrétti sem þeir búa nú við miðað við aðra hópa við umönnunar- störf sem hafa fengið launaleiðrétt- ingar að undanförnu. Það er skýlaus krafa þeirra að kjörin verði leiðrétt til jafns við kjarasamning Reykjavíkurborgar frá síðastliðnu hausti. Viðbrögð starfsmanna eru neyðarúrræði launafólks á þessum vinnustöðum til að knýja fram sömu laun fyrir sömu vinnu. Félagsfundur Eflingar – stéttar- félags tekur undir þessa réttmætu kröfu starfsmanna. Uppsagnir eru nú í gangi á þessum vinnustöðum þar sem gífurlegt álag ríkir vegna þess að of fátt fólk er eftir til að sinna mjög mikilvægum og vandasömum störfum við umönnun aldraðra.“ Ályktun um stöðuna á hjúkrunarheimilum Skýlaus krafa að launin verði leiðrétt SVIFRYK fór tíu sinnum yfir heilsuverndarmörk í mars sl. og hefur farið fjórum sinnum yfir mörkin nú í apríl. Í febrúar fór ryk- ið fjórum sinnum yfir heilsuvernd- armörk og einu sinni í janúar en þann mánuð var úrkoma alla daga. Samtals hefur svifrykið því farið 19 sinnum yfir mörkin á þessu ári en á síðasta ári gerðist það samtals 21 sinni. Sennilega þarf því að grípa til einhverra aðgerða ef halda á svif- ryksmengun af mannavöldum í skefjum, segir á vef umhverfissviðs Reykjavíkurborgar. Í Reykjavík eru 50-60% svifryks uppspænt malbik, 10-15% eru sót og afgangurinn eða 25% eru af náttúrulegum völdum. Frá 15. apríl ár hvert er óleyfilegt að nota nagla- dekk í Reykjavík og því er nauðsyn- legt að skipta yfir á sumardekkin, bæði slíta naglarnir malbikinu og orsaka svifryksmengun, segir á vef umhverfissviðs. Nítján sinnum of mikið svifryk ♦♦♦ Fréttir í tölvupósti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.