Morgunblaðið - 21.04.2006, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 21.04.2006, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. APRÍL 2006 45 DAGBÓK Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræð-um boðar til umræðufundar um til-lögur kvennahreyfingarinnar tilstjórnarskrárnefndar vegna fyrirhug- aðra breytinga á stjórnarskrá íslenska lýðveld- isins. Fundurinn verður haldinn í dag klukkan 12.15 í stofu 132 í Öskju, Náttúrufræðahúsi Há- skóla Íslands. Þar munu Elsa B. Þorkelsdóttir, lögfræðingur og sérfræðingur Evrópuráðsins, og Drífa Snædal, fræðslu- og framkvæmdastýra Samtaka um kvennaathvarf, fjalla um tillögur kvennahreyfingarinnar og verður í kjölfarið opn- að fyrir umræður. Að tillögunum standa Femínistafélag Íslands, Kvenfélagasamband Íslands, Kvennaráðgjöfin, Kvenréttindafélag Íslands, Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum, Samtök kvenna af er- lendum uppruna á Íslandi, Samtök um kvenna- athvarf, Stígamót og UNIFEM á Íslandi. Innt eftir meginmarkmiðum fundarins segir Drífa að þau séu einkum tvíþætt. (1) Að leggja áherslu á að stjórnvöldum beri að setja lög til að jafna hlut- fall karla og kvenna á þingi. (2) Að fjalla um já- kvæða skyldu stjórnvalda til að afnema misrétti og tryggja jafnrétti kynjanna. Sjálf ætlar Drífa að ræða tillögur hreyfingarinnar sem varða kyn- bundið ofbeldi og stjórnarskrána. „Ég ætla að ræða tillögur okkar sem varða skyldu stjórnvalda til að vernda borgaranna gegn ofbeldi á opinberum vettvangi sem og í einkalífi,“ segir Drífa. „Þetta er í takt við þá þróun sem er að gerast í kringum okkur og byggist á sam- þykktum Sameinuðu þjóðanna og yfirlýsingum um afnám ofbeldis gegn konum. Þetta er einnig í takt við þá þekkingu og reynslu sem við höfum yfir að búa núna. Þegar litið er yfir tölur um of- beldisverk sést að reynsla kynjanna er ólík. Karl- menn eiga frekar á hættu að verða fyrir tilvilj- unakenndu ofbeldi á opinberum vettvangi, á meðan helsta ofbeldi sem konur verða fyrir er kynbundið og á sér stað í skjóli friðhelgi heimilis- ins.“ Spurð hvers vegna nauðsynlegt sé að breyta stjórnarskránni segir Drífa að hún eigi að end- urspegla það markmið að það eigi að vernda alla þegna landsins gegn ofbeldi en ekki bara karl- menn. „Stjórnarskráin er skrifuð af karlmönnum og á þeim tíma sem kynbundið ofbeldi var ekki þekkt fyrirbæri,“ segir Drífa. „Núna höfum við miklu betri þekkingu og 71. grein stjórnarskrár- innar verður að endurspegla það. Við leggjum því til að 1. málsgrein 71. greinar stjórnarskrárinnar orðist svo: Allir skulu njóta friðhelgi einkalífs, heimilis og fjölskyldu. Allir skulu njóta mann- helgi og verndar gegn ofbeldi á opinberum vett- vangi sem og í einkalífi.“ Aðgangur að fundinum er ókeypis og öllum heimill meðan húsrúm leyfir. Kvenréttindi | Halda umræðufund um konur og stjórnarskrána Vilja nýja hugsun í stjórnarskrá  Drífa Snædal fæddist árið 1973 í Reykjavík. Hún útskrifaðist sem tækniteiknari frá Iðn- skólanum í Reykjavík 1998 og sem viðskipta- fræðingur frá Háskóla Íslands árið 2003. Hún var formaður Iðnnema- sambands Íslands 1996 til 1998 og hefur gegnt embætti ritara Vinstri- hreyfingarinnar – græns framboðs frá árinu 2003. Hún tók við stöðu kynningarstýru Samtaka um kvennaathvarf árið 2003. Árið 2004 varð hún svo fræðslu- og fram- kvæmdastýra samtakanna. Árnaðheilla dagbók@mbl.is 70 ÁRA afmæli. 25. apríl nk. verð-ur sjötugur Friðrik Jensen, Sólvallagötu 42, Keflavík. Hann og eiginkona hans, Sigríður Þórólfs- dóttir, bjóða ættingjum og vinum til veislu laugardaginn 22. apríl í Safn- aðarheimilinu í Innri-Njarðvík, frá kl. 15.30–19. 60 ÁRA afmæli. 26. apríl næst-komandi verður Gestur Gísla- son, jarðfræðingur, 60 ára. Hann tek- ur á móti vinum og venslafólki laugardaginn 22. apríl, í félagsheimili Orkuveitu Reykjavíkur í Elliðaárdal, frá klukkan 15 til 18. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Er þetta við hæfi? UNDANFARNAR vikur hefur far- ið fram spurningakeppnin „Meist- arinn“ á vegum 365-fjölmiðla og eru glæsileg peningaverðlaun í boði til handa sigurvegaranum. Við þetta hef ég svo sem ekkert að athuga og skal einnig fúslega játa að ég hef endrum og sinnum fylgst með út- sendingu þáttarins og haft gaman af. Þetta varð til þess að ég horfði á síðasta þáttinn þar sem sá ágæti út- varpsmaður og rithöfundur Illugi Jökulsson bar sigur úr býtum með talsverðum yfirburðum. Raunar þurfti það ekki að koma á óvart. Ill- ugi er afar vel að sér um aðskilj- anleg efni, víðlesinn, stálminnugur og hefur þar að auki það fram yfir marga aðra keppendur að hafa ým- ist verið dómari í spurningaþáttum og höfundur spurninga. Þá rifjaðist það upp fyrir mér að Illugi er eins konar innanhúss- maður hjá 365-fjölmiðlum. Hann var útvarpsstjóri samsteypunnar og mun vera í hópi stjórnenda hennar. Því vaknar spurningin hvort við hæfi sé að þátttakandi í spurn- ingaþætti eins og þessum sé tengd- ur samsteypunni með þessu móti. Illugi Jökulsson hefur um langt skeið tjáð viðhorf sín til manna og málefna á opinberum vettvangi og iðulega fellt dóma um hvað við hæfi sé. Nú væri gaman að heyra hvort honum finnist þátttaka sín í fyrr- nefndum sjónvarpsþætti við hæfi eins og í pottinn er búið og þá ekki síður álit stjórnanda þáttarins, Loga Bergmanns Eiðssonar. Páll Heiðar Jónsson. Hugleiðing um páskana ÉG hef verið að fylgjast með frétt- um af prestsvalinu og mótstöðu safnaðarins í Keflavík. Söfnuðurinn vill hafa þann prest sem hefur kynnt sig vel á umliðnum árum í starfi prests í söfnuðinum. Nú má segja að þessi söfnuður hafi haft nóg af ósætti á síðustu árum þó biskup og aðrir „yfirdómarar“ bæti ekki þar ofan á orðinn hlut. Það er vitnað í lög sem í gildi eru, en hverra eru lögin? Þeirra sem vilja koma sínu fram hverju sinni. Að hverra undirlagi eru lögin sett? Þeirra sömu aftur. Nú spyr ég: Getur trúboði sem boðar frið og einingu meðal manna og afneitar ófriði og annarri óein- ingu, tekið við starfi sóknarprests í Keflavík við þessar aðstæður? Skrifað á föstudaginn langa 2006. Guðmundur Sigþórsson, Hvannalundi 11, Garðabæ. Um flugvöllinn Í SAMBANDI við flugvöllinn í Vatnsmýrinni finnst mér að ætti að taka meira mark á flugmálamönn- um sem hafa mest vit á þeim hlut- um. Það að ætla að færa flugvöllinn út í sjó eða upp á heiðar finnst mér bull og vitleysa. Björn Indriðason. Reiðhjól hvarf frá Hverfisgötu NÝLEGT reiðhjól, Trek 4100, rautt og svart að lit með stellnúmer C14AK647, hvarf frá Hverfisgötu við Regnbogabíó fyrir skemmstu. Þeir sem hafa uppl. um hjólið hafi samband í síma 699 8031 eða í tölvupósti: ghj@btnet.is HJÁ Disneyklúbbi Eddu útgáfu er að hefja göngu sína glænýtt mynda- sögublað, Ljós- álfar. Ljósálfarnir eiga heima í Ljósálfabóli í Hver- gilandi þar sem hver og einn hefur sitt hlutverk og hæfileika sem þarf að þroska. Aðalsöguhetjan okkar er Skellibjalla en það koma líka margir fleiri við sögu … Ljósálfar er mán- aðarlegt myndasögublað fullt af spennandi ævintýrum og tóm- stundaefni. Hvert tölublað er 44 blað- síður í lit, með blöndu af myndasög- um, þrautum og föndurverkefnum. Blaðið er eingöngu selt í áskrift. Myndasögur NÚ STANDA fyrir dyrum vortónleikar Kirkjukórs Akra- ness, undir stjórn Sveins Arn- ars Sæmundssonar, en þeir verða haldnir í kvöld í Safn- aðarheimilinu Vinaminni á Akranesi. Ákveðið hefur verið að bjóða upp á tvenna tón- leika; fyrri tónleikarnir hefjast kl. 19:30 og hinir síðari kl. 22:00. Á efnisskránni eru meðal annars íslensk ættjarðar- og þjóðlög, einsöngur, dúettar og óperukórar, m.a. úr Carmen, La Traviata og Sígauna- baróninum. Söngvararnir Sig- rún Hjálmtýsdóttir, Óskar Pétursson og Auður Guðjohn- sen ásamt píanóleikaranum Jónasi Þóri koma fram með kórnum, og lofar kórinn mikilli gleði og fagurri tónlist þetta kvöld, sem lýkur með fjölda- söng. Vortón- leikar Kirkjukórs Akraness
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.