Morgunblaðið - 21.04.2006, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 21.04.2006, Blaðsíða 28
25 BÖRN og fjölskyldur þeirra fengu í gær ferðastyrk úr sjóðnum Vildarbörn Icelandair, en aldrei hafa svo margir fengið úthlutað úr honum í einu áður. Tilgangur hans er að gefa langveikum börnum og börnum sem búa við sér- stakar aðstæður kost á að fara í draumaferð og byggist sjóðurinn á hugmyndum og starfi Peggy Helgason iðju- þjálfa, sem um árabil hefur unnið sem sjálfboðaliði á barnadeildum sjúkrahúsa í Reykjavík og stutt fjölskyldur fjölda veikra barna með ýmsum hætti. Sjóðurinn er fjár- magnaður með þrennum hætti; í fyrsta lagi með afgangs- mynt farþega Icelandair sem þeir gefa um borð, í öðru lagi gefst þeim kostur á að gefa vildarpunkta sína til sjóðsins og í þriðja lagi gefur Icelandair fasta fjárhæð á hverju ári. Vildarbörnin og fjölskyldur þeirra fá flug á einhvern yfir tuttugu áfangastaða Icelandair, gistingu, bílaleigubíl ef þess er óskað, dagpeninga og síðast en ekki síst miða á einhvern viðburð sem börnin kjósa að sækja. Á heimasíðu Vildarbarna, www.vildarborn.is, er meðal annars að finna umsóknareyðublað og skemmtilegar ferðasögur. Áslaug Thelma Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Vild- arbarna, segir ánægjulegt að sjá sjóðinn vaxa með hverju árinu. „Það er yndislegt að sjá hversu vel þetta gengur,“ segir hún, en samtals 80 fjölskyldur og á fjórða hundrað manns hafa nú fengið úthlutað úr sjóði Vildarbarna frá stofnun hans árið 2003. „Það er okkur mikið gleðiefni að þetta gengur svona vel og vonum að það haldi áfram.“ Áslaug segir Disneyworld-skemmtigarðinn í Orlando vinsælasta áfangastað barnanna en að margir hafi líka farið í Tívolí í Kaupmannahöfn eða á fótboltaleiki í Man- chester. Nú fengu í fyrsta skipti styrk úr sjóðnum tvær fjölskyldur utan landsteinanna og mun enskur drengur ferðast til Íslands vegna þess hve Latibær er í miklu uppáhaldi hjá honum. Á milli 80 og 90 umsóknir bárust að þessu sinni en úthlutað er tvisvar á ári; fyrsta vetrardag og á sumardaginn fyrsta. Sameiginlegt átak Áslaug segir verkefnið afar gefandi. „Það er virkilega gaman að fá að verða þess heiðurs að- njótandi að taka þátt í þessu verkefni og við hjá Ice- landair erum sérlega stolt af þessu,“ segir hún. „Þetta er sameiginlegt átak félagsins og viðskiptamanna og farþega þess.“ Áslaug segir stóran hluta fjármagnsins koma frá far- þegum sem skilji eftir íslenska og erlenda mynt um borð í flugvélum Icelandair. „Það er stærsti hlutinn og hefur gert sjóðnum kleift að vaxa og dafna,“ segir hún og kemur að lokum á framfæri þökkum til allra sem stutt hafa við baki þeirra væri þetta ekki hægt.“ Vigdís Finnbogadóttir er verndari sjó hún vildarbörnin og fjölskyldur þeirra í „Það er gaman að vera með ykkur h ardaginn fyrsta. Fátt hefur mér verið komið var að máli við mig fyrir nokkrum beðin að vera verndari Vildarbarna,“ Metúthlutun úr sjóði Vildarbarna Icelan Gjafamynt 25 börn og fjölskyldur þeirra fögnuðu su Þór Willemoes var ánægður með styrkinn sinn. Davíð Einar Davíðsson ásamt fjölskyldu Bjarki Jóhannsson var glaður enda ferðalag framundan. Eydís Ásgeirsdóttir var sumarleg í bleik Aron Einar tók við styrknum fyrir Jóhann Hólmgrímsson. Helena Ýr Jónsdóttir var í fínum kjól í ti Eftir Hrund Þórsdóttur hrund@mbl.is 28 FÖSTUDAGUR 21. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. BUSH Í VANDA Bush Bandaríkjaforseti ávið mikinn pólitískanvanda að stríða inn á við og út á við. Stuðningur við hann sjálfan, ríkisstjórn hans og stefnu hennar hefur stórminnk- að í Bandaríkjunum. Hernám Íraks hefur reynzt Bandaríkja- mönnum erfitt. Það var auðvelt fyrir þá að brjóta á bak aftur hersveitir Saddams á tiltölulega skömmum tíma en það hefur orðið þeim erfitt að halda and- stæðingunum í skefjum eftir að landið var hernumið. Nú standa Bandaríkjamenn frammi fyrir nýju vandamáli, sem er hugsanleg kjarnorkuvæð- ing Írans. Ef Íran kæmist upp með að koma sér upp kjarnorku- vopnum væri stríðið um kjarn- orkuvopnin tapað. Þá mundi hver þjóðin á fætur annarri koma sér upp kjarnorkuvopnum með hræðilegum afleiðingum. Þeir sem nú hafa hæst um að ná verði „samningum“ við Norður- Kóreumenn og Íran um að þess- ar þjóðir komi sér ekki upp kjarnorkuvopnum verða að svara því, hvað eigi að gera ef slíkir samningar nást ekki. Hvað þá? Á að gefa það eftir að hver þjóðin á fætur annarri verði búin kjarn- orkuvopnum? Hvers konar ver- öld yrði það? Auðvitað getur Bush sagt sem svo, að hann hirði ekkert um vin- sældir og geri það, sem hann telji nauðsynlegt að gera, þar sem hann geti hvort sem er ekki leitað endurkjörs. En þá er hann að stofna framtíðarvöldum repúblikana í Bandaríkjunum í hættu. Þess vegna verður hann að halda uppi stefnu í innan- landsmálum og utanríkismálum, sem nýtur viðunandi fylgis með- al bandarísku þjóðarinnar. Bandaríkjamenn geta ekki horfið frá Írak nema þar verði komið á sæmilega öruggt stjórn- arfar. En þeir gætu hafið brott- flutning bandarískra hermanna smátt og smátt, sem mundi róa öldurnar heima fyrir og skapa jákvæðara andrúmsloft í Mið- Austurlöndum í þeirra garð. Þeir verða að gæta þess að fara ekki of langt fram úr al- menningsálitinu í heiminum varðandi Íran og Norður-Kóreu en þó verða þeir að vera tilbúnir til að grípa til nauðsynlegra að- gerða ef allt um þrýtur. Í kalda stríðinu voru Banda- ríkjamenn sérfræðingar í því að skapa sér stuðning um allan heim í baráttunni við kommúnis- mann. Hvers vegna skyldu þeir ekki notfæra sér þá reynslu til að safna stuðningsmönnum við þá grundvallarstefnu, að það sé heimsbyggðinni allri fyrir beztu, að fleiri þjóðir en nú ráða yfir kjarnorkuvopnum komist ekki yfir slík vopn? Í stað þess að ögra umheiminum eiga þeir að leita stuðnings við stefnu, sem fólk um allan heim ætti að vera tilbúið til að styðja. Mannabreytingar í ríkisstjórn Bush eða starfsliði hans í Hvíta húsinu munu ekki skipta sköpum heldur sú tilfinning meðal fólks um víða veröld, að Bandaríkja- menn séu að berjast fyrir góðum málstað. Sú tilfinning var sterk á dögum kalda stríðsins. Að berjast gegn útbreiðslu kjarnorkuvopna er góður mál- staður. Það er málstaður, sem flest fólk í veröldinni ætti að vera tilbúið til að styðja. MIKILL ÞRÝSTINGUR Íslenzka bankakerfið liggur und-ir miklum þrýstingi erlendis frá um þessar mundir og raunar þjóðarbúskapur okkar Íslendinga í heild. Það virðist ekkert lát ætla að verða á umfjöllun erlendra fjár- málafyrirtækja um íslenzku bank- ana og stöðu þeirra með almennu ívafi um efnahagslíf okkar. Í gær sendi Den Danske Bank frá sér einna eina skýrsluna, sem þó getur varla talizt skýrsla í merkingu þess orðs, heldur stutt umsögn en neikvæð. Í nýju tölu- blaði af tímaritinu Euromoney er umfjöllun um íslenzku bankana. Þessi umfjöllun er að langmestu leyti neikvæð og nú orðið er sjaldnast nokkuð nýtt í því, sem sagt er. Samanlögð áhrif allra þessara skýrslna, umsagna og álitsgerða eru hins vegar þau, að bankakerfið liggur undir miklum þrýstingi og ekki má mikið út af bera án þess að eitthvað láti und- an. Gengislækkun íslenzku krón- unnar, sem vissulega hefur ákveð- in jákvæð áhrif í efnahagslífi okk- ar, og umtalsverð lækkun á verði hlutabréfa á Kauphöll Íslands eru beinar afleiðingar þessara um- ræðna. Alvarlegast er þó að aftur og aft- ur er spurt hvort bankarnir geti endurfjármagnað sig á næsta ári. Það er kominn tími til að íslenzk stjórnvöld taki þessi mál mjög al- varlega og hugi að víðtækum að- gerðum til þess að stöðva þessa neikvæðu þróun. Þær aðgerðir hljóta að snúa að íslenzku efnahagslífi almennt og að því sérstaklega að efla traust til íslenzku bankanna á alþjóðlegum fjármálamörkuðum. Það er alveg ljóst, að það er ekki hægt að láta sem ekkert hafi gerzt og að ekkert þurfi að gera.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.