Morgunblaðið - 21.04.2006, Síða 4
4 FÖSTUDAGUR 21. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Nýjung!
Sykurskerta Kókómjólkin inniheldur
helmingi minni viðbættan sykur og fitu
en hefðbundin Kókómjólk og orkuinni-
haldið er fjórðungi lægra.
Yfir 80% af mjólkursykrinum hafa verið
klofin og hentar drykkurinn því flestum
þeim sem hafa mjólkursykursóþol.
helmingi
léttari!
Lækkunin virðist halda áfram og líklegt sé að
hún verði meiri en efni standa til vegna ójafnvæg-
isins og skýrra vísbendinga um að miklir erf-
iðleikar séu framundan í íslensku efnahagslífi.
Miklu skipti hins vegar í þessu sambandi hvernig
íslenskir bankar og stórfyrirtæki bregðist við
ástandinu og sama gildi um stjórnvöld og Seðla-
bankann.
Jafnframt er bent á að Seðlabankinn geri sér
vel grein fyrir alvöru málsins og sé greinilega
ákveðinn í að reyna að koma á jafnvægi með því
að herða á peningastefnunni. Fram hafi komið að
bankinn sé tilbúinn til þess að fara með stýrivext-
ÍSLENSKT efnahagslíf er yfirspennt og svo
virðist sem alvarlegur samdráttur sé framundan,
að því er fram kemur í endurskoðaðri grein-
argerð Danske Bank um íslenskt efnahagslíf, sem
birt var í gær.
Í greinargerðinni segir bankinn að þróunin í ís-
lensku efnahagslífi hafi verið muni hraðari en
þeir hafi gert ráð fyrir í fyrri greinargerð sinni
um það og lækkun gengis krónunnar verið mun
meiri og örari en þeir hafi gert ráð fyrir í fyrri
spá sinni sem þó hafi verið svartsýn. Nú sé gengi
krónunnar gagnvart evru að nálgast 100 kr. sem
þeir hafi áður spáð að yrði eftir sex mánuði.
ina upp í 16% en það kunni að mati þeirra ekki að
duga til til að koma á jafnvægi vegna ástandsins
og þeirra erfiðleika sem við blasi í íslensku efna-
hagslífi. Að lokum hljóti þó að koma að því að
jafnvægi náist og þá muni krónan aftur verða eft-
irsóknarverð. Sá tímapunktur sé hins vegar ekki
kominn og ekki líklegt að hann komi næsta árið.
Spáir Danske bank því nú að gengi krónu gagn-
vart evru verði 100 kr. eftir þrjá mánuði, 105 kr.
eftir sex mánuði og 110 kr. eftir tólf mánuði, en
þessi spá sé háð því að Seðlabankinn herði tök
peningastefnunar á þessu tímabili. Geri hann það
ekki muni gengi krónunnar lækka meira en þetta.
Ný greinargerð Danske bank um íslenskt efnahagslíf
Frekari gengislækkun
krónunnar spáð
NÚ NÝLEGA bættist rússnesk
flugvél af gerðinni YAK-18 við
flugflota Íslendinga, en þetta mun
vera fyrsta vél þessarar tegundar
á Íslandi. Að sögn Páls Indriða
Pálssonar, eins eiganda vél-
arinnar, höfðu hann og 12 aðrir
flugáhugamenn stofnað klúbb ut-
an um rekstur annarrar rúss-
neskrar flugvélar, YAK-52, en það
er tveggja sæta flugvél frá sama
framleiðanda. Þá hefði langað í
fjögurra sæta vél og því hefðu
þeir hafið leit á Netinu að slíkri
vél og fundið þrjár. Á endanum
hefðu þeir keypt eina sem staðsett
var í Litháen og fluttu hana heim
nú fyrir skömmu. Aðspurður um
ástand vélarinnar sagði Páll það
vera gott, fyrri eigandi hefði verið
flugvirki og hugsað vel um hana,
en hún er framleidd árið 1972.
YAK merkið er þekkt merki innan
flugheimsins. Sovétmenn notuðu
vélar þessara verksmiðja í seinni
heimsstyrjöldinni en síðar voru
þær notaðar sem æfingavélar fyr-
ir væntanlega MiG flugmenn.
Aðspurður um flugeiginleika
vélarinnar sagði Páll þá vera
mjög mikla og skemmtilega og að
hún eltist vel. Hann taldi að ekki
væri hægt að bera saman gæði
flugvéla frá gömlu austantjalds-
löndunum og gæði bíla frá sama
svæði og bætti því við að YAK
flugvélar hefðu hækkað í verði að
undanförnu. Því mætti jafnvel
halda því fram að loksins væri
komin fasteign á hjólum – og
vængjum.
Morgunblaðið/RAX
Rússnesk flugvél bætist í flugflotann
Sigmund tekur þátt
í samnorrænni
sýningu í Færeyjum
TEIKNARINN Sigmund
Jóhannsson í Vest-
mannaeyjum tekur þátt í
samnorrænni sýningu
blaðateiknara, sem verð-
ur opnuð á morgun, laug-
ardag, í Norræna húsinu í
Færeyjum. Sýningin er
haldin í tilefni af sjötugs-
afmæli færeyska teikn-
arans Ole Petersen á
þessu ári, en hann teiknar
í færeyska blaðið Sosial-
urin.
Sigmund sagði í samtali
við Morgunblaðið að hann
sýndi 25–30 teikningar á
sýningunni, allar frá
þessu ári. Blaðateikn-
urum hvaðanæva af Norð-
urlöndunum hefði verið
boðið að taka þátt í sýn-
ingunni, en í tengslum við
hana væru einnig nám-
skeið og vinnustofur þar
sem almenningur gæti
meðal annars fylgst með vinnubrögðum teiknaranna.
Lögmaður Færeyja opnar sýninguna á morgun, laugardag,
klukkan þrjú. Sýningin verður í Norræna húsinu í Færeyjum
næstu þrjár vikurnar en verður síðan opnuð í Norrænu húsunum
hjá hinum Norðurlandaþjóðunum.
AÐALFUNDUR Blaðamannafélags
Íslands mótmælti harðlega fyrirætl-
unum um að þrengja starfssvið blaða-
manna í frum-
varpi til laga um
breytingar á lög-
um um dómstóla.
Aðalfundurinn
var haldinn að
kvöldi síðasta
vetrardags og er
ályktunin svo-
hljóðandi: „Aðal-
fundur Blaða-
mannafélags
Íslands, haldinn 19. apríl 2006, mót-
mælir harðlega fyrirætlunum um að
þrengja starfsskilyrði blaðamanna
sem fram koma í frumvarpi til laga
um breytingar á lögum til dómstóla.
Fundurinn varar alvarlega við þróun í
þá átt að takmarka upplýsingar til al-
mennings um opinber mál.“
Á fundinum var Arna Schram,
blaðamaður á Morgunblaðinu, kjörin
formaður BÍ næsta starfsár, en hún
tók við formennsku í félaginu á síðasta
ári þegar Róbert Marshall sagði af sér
formennsku. Hún er fyrsta konan
sem kjörin er formaður Blaðamanna-
félags Íslands í nærfellt 110 ára sögu
félagsins. Þá bar það einnig til tíðinda
að konum fjölgaði í stjórn félagsins og
eru nú í meirihluta í fyrsta skipti. Af
tíu stjórnarmönnum í aðal- og vara-
stjórn eru sex konur og fjórir karlar.
Kona í fyrsta skipti
kjörin formaður BÍ
Ákvæðum
í dómstóla-
frumvarpi
mótmælt
Arna Schram
♦♦♦
HÁTÍÐAHÖLD fóru vel fram um
allt land í gær í tilefni af sumardeg-
inum fyrsta að sögn lögreglu. Víða
var margt um manninn úti við í til-
efni dagsins en allt fór þó sérlega
vel fram. Í Hafnarfirði var maður
fluttur á slysadeild eftir að hann
missti stjórn á bíl sínum á Flata-
hrauni og hafnaði á ljósastaur.
Hann reyndist þó ekki mikið slas-
aður.
Ók á ljósastaur