Morgunblaðið - 21.04.2006, Síða 11

Morgunblaðið - 21.04.2006, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. APRÍL 2006 11 FRÉTTIR SUMARLÍNAN FRÁ HISPANITAS Skóverslun – Kringlunni – Sími 553 2888 – www.skor.is er komin – mikið úrval Full búð af nýjum vörum Opið í dag frá kl. 10-19, laugardag frá kl. 10-18 og sunnudag frá kl. 13-17 Vönduð norsk timburhús byggð á staðnum eftir ströngustu stöðlum um heilsárs íveruhús Framúrskarandi handverk, kjörviður og frábær frágangur HÚSIN Í ÞORPINU VERÐA TIL SÝNIS LAUGARDAGINN 22. APRÍL KL. 12-16 Hellisvellir ehf. Uppl. í síma 893 6653 Nýtt þorp rís á Hellnum www.iceland.as Sími 555 3000 SELT SELT SELT SELT SELT SELT SELT Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, sími 562 2862 STÆRÐIR 40-52 STÆRÐIR 40-52 VOR- OG SUMAR 2006 DAGANA 21.-30. APRÍL Hlíðasmára 11 • Kópavogi • sími 517 6460 • fax 517 6565 Ný sending af yfirhöfnum SAMA ár og sápuóperan Dallas hóf göngu sína í sjónvarpinu og Bill Gates sagði að 640K ættu að nægja fyrir hvern sem er, kynnti IBM fyrstu einkatölvu fyrirtækisins. Fyrstu AS/400 netþjónar IBM komu svo á markað árið 1988. Ferðast var fram og aftur í tíma í Hafnarhúsinu síðasta dag vetrar en þar hafði Nýherji sett upp sýningu sem endurspeglaði þróun tölvu- tækninnar frá árinu 1980 til dags- ins í dag. Til sýnis voru m.a. gamlar Nin- tendo leikjatölvur sem eflaust vekja upp ljúfsárar minningar hjá mörgum en framtíðin birtist hins vegar í formi 160 fm færanlegs tölvuvers. Þar var á ferðinni IBM Systems Technology trukkurinn þar sem margar af snjöllustu lausn- um IBM voru til sýnis. Í trukknum eru t.d. netþjónar og gagna- geymslulausnir í gangi þannig að um er að ræða fullbúinn tölvusal á hjólum. Morgunblaðið/ÞÖK Ferðast um tímann í Hafnarhúsinu LAUNAVÍSITALAN mældist 285,4 stig í mars samkvæmt mælingu Hagstofunnar og hækkuðu laun um 0,3% að meðaltali frá því í febrúar. Síðastliðna tólf mánuði hafa laun, mæld með breytingu á launavísitölu, hækkað um 8,6%. Á sama tíma hækkaði verðlag um 4,5%. Kaup- máttur launa hefur því vaxið að með- altali um 3,9% síðustu tólf mánuði. Þetta kemur fram á vefsíðu ASÍ. Helstu skýringar á hækkun launa í marsmánuði eru launabreytingar hjá sveitarfélögum í kjölfar samn- inga Reykjavíkurborgar við ófag- lært starfsfólk, segir ASÍ. Aðrar hækkanir skýrast að mestu af launa- skriði á almennum vinnumarkaði, en laun í byggingariðnaði, verslun og öðrum greinum þar sem þensla er mest hafa hækkað nokkuð. Í frétt ASÍ kemur fram að gera megi ráð fyrir að launahækkunum sé nokkuð misskipt milli greina. Kaup- máttur þeirra sem notið hafa launa- skriðsins hefur aukist að undan- förnu. Kaupmáttur þeirra sem einungis hafa fengið almennar hækkanir kjarasamninga hefur verið að rýrna vegna mikillar verðbólgu. Launin hækkað um 0,3% frá því í febrúar HÁTÍÐAR- og útskriftarathöfn borgaralegrar fermingar fer fram sunnudaginn 23. apríl í Háskólabíói. Alls tóku 129 börn þátt í ár frá öllum landshornum, sem er um 40% aukn- ing frá því í fyrra og metþátttaka, segir í fréttatilkynningu. „Þetta er í 18. skipti sem borgara- leg ferming er haldin. Vegna auk- inna vinsælda var fermingarnám- skeiðum fjölgað á liðnum vetri auk þess sem í fyrsta skipti verða haldn- ar tvær athafnir, í stað einnar und- anfarin ár, í stærsta sal Háskólabíós. Í annað skipti í sögu borgaralegrar fermingar er haldin fermingarhátíð utan höfuðborgarsvæðisins en sér- stök athöfn verður haldin í Dýrafirði sumardaginn fyrsta fyrir tvö ung- menni frá Ísafirði sem sóttu nám- skeið vetrarins. Þessi lokaathöfn er einskonar útskriftarhátíð og sjá fermingarbörnin sjálf um að koma fram, sýna ýmiss konar listir eða tjá sig á aðra vegu, auk þess sem ein- staklingar flytja stuttar ræður. Í ár munu þau Tatjana Latinovic, for- maður Samtaka kvenna af erlendum uppruna, og Andri Snær Magnason, rithöfundur, ávarpa gesti. Fyrri athöfnin hefst kl 11:00 og seinni kl 13:00 og eru þær opnar öll- um. Hvetur Siðmennt alla sem vilja kynna sér borgaralega fermingu til þess að mæta og upplifa þessa út- skriftarathöfn fermingarbarnanna af eigin raun,“ segir í fréttatilkynn- ingu. Borgaraleg ferming fer fram í Háskólabíói

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.