Morgunblaðið - 21.04.2006, Page 12
12 FÖSTUDAGUR 21. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
PÓSTSENDUM
www.islandia.is/~heilsuhorn
Glerártorgi, Akureyri, sími 462 1889,
fæst m.a. í
Lífsins Lind í Hagkaupum,
Maður Lifandi Borgartúni 24,
Árnesapóteki Selfossi,
Yggdrasil Kárastíg 1, Fjarðarkaupum,
Lyfjaval Hæðasmára og Þönglabakka,
Lífslind Mosfellsbæ, Stúdíó Dan Ísafirði
Calsium eap
Kalk sem nýtist
metrar af steypu og 30 tonn stáls í
hverja undirstöðu fyrir sig.
Jarðvinna og undirbúningur á
vettvangi hófst sumarið 2004 en
meginþungi framkvæmda var í
fyrra og verður á þessu ári. Starfs-
menn við línulagnir verða um 90
þegar mest lætur.
Flutningsvirki kosta
9 milljarða
Raforka frá Kárahnjúkavirkjun
verður flutt að álveri Fjarðaáls við
Reyðarfjörð með Fljótsdalslínum 3
og 4, sem byggðar eru fyrir 420
kílóvolt en verða reknar á 220 kíló-
voltum. Þær verða lagðar samsíða
að mestu um þrjú sveitarfélög;
Fljótsdalshrepp, Fljótsdalshérað
og Fjarðabyggð.
Framkvæmdakostnaður við
sjálfar línulagnirnar er áætlaður
um 4,4 milljarðar króna á verðlagi
í byrjun árs 2004. Þar við bætast
um 3 milljarðar króna vegna tengi-
virkis í Fljótsdal og 1,2 milljarðar
vegna tengingar við byggðalínur
og styrkingu á hinu almenna raf-
orkuflutningskerfi á Austurlandi.
Flutningsvirki vegna Fjarðaáls
koma þar með til með að kosta alls
tæpa 9 milljarða króna.
Egilsstaðir | Framkvæmdir við
byggingu undirstaðna fyrir Fljóts-
dalslínu 3 og 4 ganga vel. Mal-
arvinnslan, undirverktaki Lands-
nets við verkið, hefur þegar steypt
þrjá fjórðu hluta staðsteyptra und-
irstaða, en nánast lokið steypu-
vinnu við forsteypta hluta verks-
ins.
Fljótsdalslína 3 verður 49,5 km
löng með 159 möstrum, Fljótsdals-
lína 4 53 km löng með 166 möstr-
um. Hæð mastranna verður á
bilinu 20–37 metrar með 26 metra
langri þverslá. Í undirstöður
staurastæðnanna fara um 300 rúm-
Bygging undirstöðu Fljótsdalslína gengur vel
30 tonn af stáli í
hverja undirstöðu
AUSTURLAND
Egilsstaðir | Nk. þriðjudag, 25. apríl
kl. 16.00 hefst á Hótel Héraði mál-
stofa um lífríki Lagarfljótsins. Er
hún haldin í tilefni dags umhverf-
isins.
Umhverfis- og náttúruvernd-
arnefnd Fljótsdalshéraðs stendur
fyrir málstofunni, sem einkum lýtur
að lífríki Fljótsins og þeim breyt-
ingum sem verða á því þegar Jöklu
verður veitt í farveg Lagarfljóts með
tilkomu Kárahnjúkavirkjunar.
Meðal framsögumanna eru Helgi
Hallgrímsson, Gunnar G. Tómasson,
Hákon Aðalsteinsson, Hilmar Malm-
quist og Guðni Guðbergsson.
Málstofa
um lífríki
Lagarfljóts
Egilsstaðir | 24% aukning er á far-
þegafjölda sem fer um Egilsstaða-
flugvöll ef bornar eru saman tölur
nú og á sama tíma í fyrra. 38.153
farþegar fóru um völlinn fyrstu
þrjá mánuði þessa árs og 585 flug-
vélar lentu á vellinum á tímabilinu.
Er það um 20% aukning milli ára og
jafnframt er mikil aukning á fragt-
flugi, eða um 28%. Alls fóru í fyrra
tæplega 127 þúsund farþegar um
Egilsstaðaflugvöll. Umferð um völl-
inn tvöfaldaðist milli áranna 2002
og 2005.
Enn aukn-
ing á flugi
Fáskrúðsfjörður | Nú styttist í sveitarstjórnarkosn-
ingar og ýmsar spekúlasjónir uppi um menn og
málefni framboðanna. Albert Kemp var að dorga á
bryggjunni á Fáskrúðsfirði á dögunum með afa-
barninu sínu, henni Tinnu, og spjallaði við karlana
hjá Loðnuvinnslunni svona í „forbifarten“ um inn-
ansveitarkróníkur. Virtust þeir ekki hatrammir
pólitískir andstæðingar svona úr fjarska, en
kannski hefur lognkyrran mýkt pólitískan skaphita
þeirra.
Ljósmynd/Óðinn Magnason
Fiskað eftir fréttum
Egilsstaðir | Sýningarrými Aust-
urlands á Ferðatorgi 2006 hlaut
verðlaun sem athyglisverðasta
rýmið á sýningunni. Markaðsstofa
Austurlands tók að sér verkefn-
isstjórn og umsjón með hug-
myndavinnu, hönnun og uppsetn-
ingu sviðsins og var leitast við að
fanga hluta af sérkennum Austur-
lands, t.d. jökulinn, skóginn, villt
dýralíf og vekja athygli á göngu-
leiðum á Austurlandi. Unnur
Sveinsdóttir listhönnuður vann
sýningarrýmið.
Ljósmynd/MA
Fjöll og firnindi Sýningarrými Austurlands vakti mikla athygli.
Sýningarrými Austur-
lands athyglisverðast
Egilsstaðir | Foreldrar barna
fæddra árið 2005 á Fljótsdals-
héraði skora á bæjarstjórn að
standa við gefin fyrirheit um eins
árs deild og tryggja öllum börn-
um, sem náð hafa eins árs aldri
eftir sumarlokanir árið 2006,
leikskólapláss óski foreldrar eftir
því.
Í áskorun, sem afhent var Ei-
ríki Bj. Björgvinssyni bæj-
arstjóra fyrir skömmu, ásamt
undirskriftum foreldranna, segir,
að einnig sé skorað á bæj-
arstjórn að tryggja þeim börn-
um, sem þegar hafi náð eins árs
aldri, pláss á leikskóla tafarlaust.
„Jafnframt skorum við á bæj-
arstjórn að stuðla að því að leik-
skólamál verði í góðu jafnvægi í
framtíðinni og börnum standi
ávallt til boða leikskólapláss frá
eins árs aldri. Með þessu getur
bæjarstjórnin haldið áfram því
góða starfi sem hafið var árið
2005, þegar tekin var í notkun ný
leikskólabygging og eins árs
deild opnuð um leið. Jafnframt
væri stuðlað að fjölskylduvænu
og eftirsóknarverðu sveitarfélagi
þar sem foreldrar hafa sama
möguleika og aðrir til að sinna
starfi utan heimilis. Að síðustu
væri um að ræða gott innlegg í
jafnréttisstefnu Fljótsdalshéraðs
þar sem bæjarstjórn hefur lagt
sitt af mörkum til að tryggja jafna
atvinnuþátttöku karla og kvenna.“
Vilja úrbætur fyrir yngstu börnin
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Pláss óskast Eygló Egilsdóttir afhenti Eiríki Bj. Björgvinssyni undirskriftalista f.h. foreldra barna fæddra 2005.
Höfn | Forsetahjónin, hr. Ólafur
Ragnar Grímsson og frú Dorrit
Mussaief fara í opinbera heimsókn
til Austur-Skaftafellssýslu 25. apríl
n.k. og heimsækja m.a. skóla, söfn,
fyrirtæki og stofnanir. Þá verður
efnt til fjölskylduhátíðar í tilefni
heimsóknarinnar, Almannaskarðs-
göng skoðuð og Seljavallabændur
sóttir heim. Ólafur Ragnar mun
jafnframt opna málþing um skap-
andi atvinnugreinar, sem haldið
verður í Nýhöfn seinni dag heim-
sóknar forsetahjónanna.
Ljósmynd/Sigurður Mar
Forsetahjónin
heimsækja A-
Skaftafellssýslu
♦♦♦