Morgunblaðið - 21.04.2006, Side 47
Smekkleysa Plötubúð – Humar eða
Frægð | Brynhildur Þorgeirsdóttir sýnir í
Gallerí Humar eða frægð í kjallara Kjör-
garðs, Laugavegi 59. Sýningin er haldin í
tilefni af útgáfu bókarinnar; 2005 – 1955
BRYNHILDUR, og ber sama titil. Þetta er
yfirgripsmikil myndlistabók og sýnir á
allsérstakan hátt lífshlaup einstaklings.
Suðsuðvestur | Eygló Harðardóttir með
sýningu á málverkum, ljósmyndum og
myndbandi. Til 30. apríl.
Þjóðminjasafn Íslands | Sýningin Huldu-
konur í íslenskri myndlist fjallar um ævi
og verk tíu kvenna sem voru nær allar
fæddar á síðari hluta 19. aldar. Þær nutu
þeirra forréttinda að nema myndlist er-
lendis á síðustu áratugum 19. aldar og
upp úr aldamótum. En engin þeirra gerði
myndlist að ævistarfi.
Þjóðminjasafn Íslands | Ljósmyndir hol-
lenska ljósmyndarans Rob Hornstra eru
afrakstur af ferðum hans um Ísland.
Söfn
Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Gljúfra-
steinn er opinn alla daga kl. 10–17, nema
mánudaga. Hljóðleiðsögn, margmiðl-
unarsýning, minjagripir og fallegar
gönguleiðir í næsta nágrenni. Sjá nánar
á www.gljufrasteinn.is
Hafnarborg | Í Hafnarborg stendur nú
yfir 25 ára afmælissýning á verkum fé-
lagsmanna Leirlistafélagsins. Sýningin er
opin alla daga nema þriðjudaga frá kl. 11
til 17, og frá 11 til 21 á fimmtudögum. Til
24. apríl
Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Sigríður
Bachmann í Skotinu, nýjum sýning-
arkosti hjá Ljósmyndasafni Reykjavíkur.
Myndunum er varpað á 150x190 cm
stóran vegg. Sýnir Sigríður myndir sem
hún hefur tekið af börnum. Til 7. júní.
Perlan | Sögusafnið er opið alla daga kl.
10–18. Hljóðleiðsögn leiðir gesti í gegnum
söguna frá landnámi til 1550. www.sa-
gamuseum.is
Veiðisafnið – Stokkseyri | Uppstoppuð
veiðidýr ásamt skotvopnum og veiði-
tengdum munum. Opið alla daga kl. 11–
18. Sjá nánar: www.hunting.is
Þjóðminjasafn Íslands | Í Þjóðminjasafni
Íslands er boðið upp á fjölbreytta
fræðslu og þjónustu fyrir safngesti. Þar
eru nýstárlegar og vandaðar sýningar
auk safnbúðar og kaffihúss. Hlutverk
safnsins er að auka og miðla þekkingu á
menningararfi Íslendinga frá landnámi til
nútíma. Opið alla daga nema mánudaga
kl. 11–17.
Leiklist
Loftkastalinn | Vegna mikillar aðsóknar
er Leikfélag MH með nokkrar aukasýn-
ingar á Íslenska fjölskyldusirkusnum í
VERINU. Spunasýning með hárbeittri
ádeilu sem fengið hefur frábæra dóma.
Leikstjóri er Sigrún Sól Ólafsdóttir. Pant-
ið miða á midasala@gmail.com eða í
síma 848 5448. Ath. takmarkaður
sætafjöldi!
Möguleikhúsið | Hugleikur sýnir Systur
eftir Þórunni Guðmundsdóttur. Nánari
upplýsingar á www.hugleikur.is.
Skemmtanir
Kringlukráin | Lúdó og Stefán um
helgina.
Fyrirlestrar og fundir
Askja – Náttúrufræðihús Háskóla Ís-
lands | Skógræktarfélag Reykjavíkur
heldur aðalfund sinn þann 24. apríl kl.
19.30. Fundurinn verður haldinn í Öskju,
Náttúrufræðihúsi HÍ. Eftir venjuleg aðal-
fundarstörf verður boðið upp á erindi
um hvernig hægt er að nýta Heiðmörk-
ina til heilsubótar. Allir velkomnir.
Krabbameinsfélagið | Frá foreldrum til
foreldra. Fræðslu og umræðufundur í
húsi Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8,
Reykjavík, 24. apríl kl. 20–22. Eva
Yngvadóttir, Anna Ingólfsdóttir og Mar-
grét Friðriksdóttir fjalla um hvaða áhrif
veikindi foreldris hafa á börnin á heim-
ilinu. Allir velkomnir
Verslun Yggdrasils | Arta byggir starfið
á mannspeki sem lýsir heildarsýn á
manneskjuna sem líkami-sál-andi. Tengsl
við náttúruna, lífrænt fæði, lífshrynjandi,
hugleiðsla og þerapískar lista- og líkams-
meðferðir eru í lækningarferlinu og
skapa möguleika á að móta líf sitt upp á
nýtt. Fred Beekers talar á ensku. Að-
gangur 500 kr.
Þjóðminjasafnið | Ólafur Ingi Ólafsson
kynnir BA-rannsókn sína á gælunöfnum
Guðrúna laugard. 22. apríl. Þetta er
fyrsta tölfræðilega rannsóknin sem gerð
hefur verið hérlendis á gælunöfnum.
Jafnframt fjallar Ólafur nokkuð um nafn-
forðann og breytingar á honum með
hliðsjón af gælunöfnum, tísku og mál-
pólitík. Nafnfræðifélagið.
Frístundir og námskeið
Heimilisiðnaðarskólinn | Útsaumshelgi
verður 5.–7.maí. Föstudagskvöldið 5. maí
verður fyrirlestur sem nefnist: Hann-
yrðakonur í Húnaþingi. Fyrirlesturinn
fjallar um þekktar konur í Húnavatns-
sýslu, lífshlaup þeirra og hannyrðir. Fyr-
irlesari er Jóhanna Erla Pálmadóttir.
Verð 1.000. 6.–7.maí: útsaumsnámskeið;
9–13 eða 14–18. Skráning hefst 18. apríl.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. APRÍL 2006 47
DAGBÓK
Nicorette nikótínlyf eru fáanleg án lyfseðils og eru notuð þegar reykingum er hætt eða þegar dregið er úr reykingum. Til að ná sem bestum árangri skal ávallt fylgja
leiðbeiningum í fylgiseðli. Skammtar eru einstaklingsbundnir eftir því hve mikið er reykt, hvort hætta á reykingum eða draga úr þeim. Því ber að kynna sér upplýsingar um
notkun í fylgiseðli. Í fylgiseðlinum eru upplýsingar um: verkun og notkun, varúðarreglur, mikilvægar upplýsingar sem nauðsynlegt er að lesa áður en lyfin eru notuð,
hugsanlegar aukaverkanir og aðrar upplýsingar. Leitið til læknis eða lyfjafræðings ef þörf er á frekari upplýsingum um lyfin. Þeir sem fengið hafa ofnæmi fyrir nikótíni eða
öðrum innihaldsefnum lyfsins, nýlegt hjartaáfall, óstöðuga versnandi hjartaöng, alvarleg hjartsláttarglöp eða nýlegt heilablóðfall eiga ekki að nota Nicorette nikótínlyf. Börn
yngri en 15 ára, þungaðar konur og konur með barn á brjósti eiga ekki að nota Nicorette nikótínlyf nema að ráði læknis.
Handhafi markaðsleyfis: Pfizer ApS. Umboð á Íslandi: Vistor hf., Hörgatúni 2, Garðabæ.
www.nicorette.is
Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er
að nota lyfið. Geymið fylgiseðilinn. Nauðsynlegt getur verið að lesa hann síðar.
20% afsláttur af
Nicorette Freshmint
Bragðsemendist lengur
*Tilboðið gildir til 30. apríl
Íslandsmótið.
Norður
♠ÁK7
♥9
♦ÁKG82
♣ÁD84
Vestur Austur
♠D962 ♠G853
♥653 ♥DG102
♦D10975 ♦43
♣7 ♣G65
Suður
♠104
♥ÁK874
♦6
♣K10932
Hvernig er best að spila sjö lauf í
suður með tígultíu út?
Alslemman er mjög góð var sögð á 8
borðum af 12 þegar spilið kom upp í
sjöttu umferð Íslandsmótsins. En að-
eins þrír sagnhafar náðu í þrettán
slagi. Þeir sem töpuðu slemmunni tóku
strax þrjá efstu í trompi og réðu svo
ekki við drottningu fimmtu í tígli.
Ýmsar leiðir liggja til vinnings, en
eðlilegasta spilamennskan er þessi:
Drepið á tígulás og ÁD í laufi spilað.
Síðan er tígulkóngur tekinn og tígull
trompaður. Þegar tígullegan kemur í
ljós verður að stinga hjarta tvisvar í
borði, sem gengur auðveldlega upp.
Eitt par endaði í sjö gröndum. Sú
slemma er auðvitað afleit, en vinnst þó
ef nákvæmt er spilað með tvöfaldri
þvingun í áföngum.
Segjum að út komi spaði. Sagnhafi
tekur fimm slagi á lauf, svínar tíg-
ulgosa og hendir tveimur hjörtum í
ÁK. Þá eru fjögur spil eftir og austur
hefur orðið að fara niður á einn spaða
til að geta haldið eftir DG10 í hjarta.
Þá tekur sagnhafi ÁK í hjarta og
þvingar vestur með hæsta tígul og
spaðavaldið.
Þessi leið fannst ekki við borðið.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
1. d4 d5 2. c4 dxc4 3. Rf3 a6 4. e3 b5 5.
a4 Bb7 6. axb5 axb5 7. Hxa8 Bxa8 8. b3
Rf6 9. bxc4 bxc4 10. Ba3 Rbd7 11. Bxc4
e6 12. Bxf8 Kxf8 13. O-O g6 14. Rbd2
Kg7 15. Da1 c5 16. dxc5 Rxc5 17. Hc1
Dd6 18. Be2 Bxf3 19. Bxf3 Dxd2 20.
Hxc5 Hb8 21. g4 Hb2 22. Df1 Rd7 23.
Hb5 Hc2 24. Hb1 Re5 25. Bd1 Ha2 26.
Bb3 Ha5 27. Dd1
Staðan kom upp á KB-móti Tafl-
félagsins Hellis sem lauk fyrir skömmu
í félagsheimili þess í Mjódd. Björn Þor-
finnsson (2311) hóf mótið af miklum
krafti og tefldi þá afar vel.
Í fyrstu umferð mætti hann enska
alþjóðlega meistaranum Graeme
Buckley (2398) með svörtu og sneri nú
laglega á Tjallann.
27... Hb5! leppun biskupsins verður
hvítum nú verulega óþægilegur ljár í
þúfu en drottning svarts er friðhelg
þar eð eftir 28. Dxd2 Rf3+ 29. Kg2
Rxd2 tapar hvítum maður manni. 28.
Ha1 Db4! hvítur tapar nú óumflýj-
anlega peði og nokkru síðar einnig
skákinni. 29. Ba4 Hd5 30. Df1 Dxg4+
31. Kh1 De4+ 32. Dg2 Rd3 33. Kg1
Dxg2+ 34. Kxg2 Ha5 35. Hd1 Rb2 36.
Hd2 Rxa4 37. Ha2 Ha6 og hvítur gafst
upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Svartur á leik.
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Bingó kl. 14, söngur
við píanóið í kaffinu kl. 15. Hár-
greiðslustofan og fótaaðgerða-
stofan er opin kl. 9–16 alla virka
daga. Söguslóðir, seinni gangan frá
Landakotskirkju 22. apríl kl. 10.30,
gengið um söguslóðir norðan Hring-
brautar, endað á Vestugötu 7 fé-
lagsmiðstöð. Súpa, brauð og kaffi kr.
650, skráning í dag í síma 411 2700.
Árskógar 4 | Bað kl. 8–16. Handa-
vinna kl. 9–12. Smíði/útskurður kl.
9–16.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, hárgreiðsla, böðun, fótaað-
gerð, frjálst að spila í sal.
Dalbraut 18–20 | Allir eru velkomn-
ir á Dalbrautina, hitta gott fólk, kíkja
í blöðin, skoða dagskrána og fá sér
heitan kaffisopa í leiðinni. Tungu-
brjótar Dalbrautar æfa af fullu kappi
fyrir menningarferðina í Skálholt.
Uppl: 588 9533 asdis.skuladott-
ir@reykjavik.is. Listasmiðja Dal-
brautar er opin kl. 8–16 virka daga.
Félag eldri borgara í Kópavogi |
Brids í Gjábakka í dag kl. 13.15. Al-
mennur félagsfundur verður í Gull-
smára laugardaginn 22. apríl kl. 14.
Félagsmálastjóri segir frá fyrirhug-
uðum framkvæmdum við Boðaþing
og forstöðumaður Sunnuhlíðar segir
frá Sunnuhlíð og framkvæmdum þar.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Fé-
lagsvist kl. 20.30 í félagsheimilinu
Gjábakka. Leikfélagið Snúður og
Snælda sýnir leikritið Glæpi og góð-
verk í Iðnó föstudaginn 21. apríl og
sunnudaginn 23. apríl kl. 14. Miða-
sala í Iðnó í síma 562 9700 og við
innganginn. Eigum laus sæti í 6
daga Færeyjaferð 31. maí, uppl. og
skráning í síma 588 2111.
Félagsheimilið Gjábakki | Boccía kl.
9.30. Gler- og postulínsmálun kl. 13.
Brids kl. 13.15. Félagsvist kl. 20.30.
Opnun myndlistarsýningar kl. 16.30.
Þar munu 6 konur í myndlistarhópi
Gjábakka sýna verk sín sem unnin
hafa verið í vetur.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Eldri
borgarar hittast í félagsheimilinu
Gullsmára 13, Kópavogi, annan
hvern föstudag og syngja saman.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 |
Gleðigjafarnir í Gullsmára. Eldri
borgarar safnast saman í félags-
heimilinu Gullsmára 13 föstudagana
21. apríl og 5. maí kl. 14 og syngja
saman gömlu og góðu lögin. Þetta
eru síðustu söngdagarnir á þessum
starfsvetri. Allir eldri borgarar hjart-
anlega velkomnir. Gleðigjafarnir.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Opið í Garðabergi kl. 12.30–16.30.
Spiluð félagsvist kl. 13 í Garðabergi
á vegum FAG og Kristínar.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9–
16.30 vinnustofur opnar. Kl. 10.30
létt ganga um nágrennið. Frá hádegi
spilasalur opinn. Veitingar í hádegi
og kaffitíma í Kaffi Berg. Áður aug-
lýst ferð í Hlégarð 25. apríl fellur
niður af óviðráðanlegum aðstæðum.
Miðvikud. 3. maí verður farið í heim-
sókn til eldri borgara í Þorlákshöfn,
skráning hafin.
Furugerði 1, félagsstarf | Starfsfólk
Furugerðis 1 óskar öllum íbúum og
gestum hússins gleðilegs sumars.
Messa í dag kl. 14, prestur sr. Ólafur
Jóhannsson, Furugerðiskórinn syng-
ur undir stjórn Ingunnar Guðmunds-
dóttur. Kaffiveitingar eftir messu.
Allir velkomnir.
Hraunbær 105 | Kl. 9 kaffi, spjall,
dagblöðin, handavinna, útskurður,
baðþjónusta, fótaaðgerð (annan
hvern föstudag), hárgreiðsla. Kl. 11
Spurt og spjallað. Kl. 12 hádeg-
ismatur. Kl. 14.45 Bókabíll. Kl. 15
kaffi. Kl. 14 Bingó.
Hvassaleiti 56–58 | Frjáls aðgang-
ur að opinni vinnustofu, postulíns-
málun kl. 9–12. Jóga kl. 10–12. Böðun
fyrir hádegi. Fótaaðgerðir, hársnyrt-
ing. Sími 535 2720.
Norðurbrún 1, | Kl. 9–12 myndlist, kl.
10 ganga, smíði, opin hárgreiðslu-
stofa, sími 588 1288.
SÁÁ félagsstarf | Félagsvist og
dans verður í Ásgarði, Stangarhyl 4,
laugardaginn 22. apríl, spila-
mennskan hefst kl. 20 og dans að
henni lokinni um kl. 22.30. Kiddi
Bjarna leikur fyrir dansi, dans við
allra hæfi.
Vesturgata 7 | Hárgreiðsla og fóta-
aðgerðir kl. 9–16, hannyrðir kl. 9.15–
14.30, hádegisverður kl. 11.45–12.45.
Kl. 13.30 sungið við flygilinn við und-
irleik Sigurgeirs. Kl. 14.30–16 dans-
að við lagaval Sigurgeirs. Marengs-
rjómaterta í kaffitímanum. Allir eru
velkomnir.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
9. Leirmótun kl. 9. Morgunstund kl.
9.30. Bingó fellur niður í dag af
óviðráðanlegum ástæðum.
Kirkjustarf
Boðunarkirkjan | Séra Þröstur
Steinþórsson, prestur í Indíana-fylki
í Bandaríkjunum, mun flytja 5 erindi
undir samheitinu Fangar frelsisins í
Boðunarkirkjunni. Erindi dagsins
heitir Bölvuð þrenning. Frekari upp-
lýsingar eru á www.bodunarkirkj-
an.is eða í síma 555 7676,
Hallgrímskirkja | Starf með öldr-
uðum kl. 11–14. Leikfimi, súpa, kaffi
og spjall.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos