Morgunblaðið - 21.04.2006, Side 50

Morgunblaðið - 21.04.2006, Side 50
50 FÖSTUDAGUR 21. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ Óhugnanlegasta mynd ársins !!! Fór beint á toppinn í USA Hvað sem þú gerir ekki svara í símann The Hills Have Eyes kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 16 ára The Hills Have Eyes Lúxus kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 16 ára When a Stranger Calls kl. 8 og 10 B.i. 16 ára Ice Age 2 m/ensku tali kl. 4, 6, 8 og 10 Ísöld 2 m/íslensku tali kl. 4 og 6 Date Movie kl. 4, 6, 8 og 10 B.i. 14 ára The Hills Have Eyes kl. 8 og 10.10 B.i. 16 ára Ice Age 2 m/ensku tali kl. 6 og 8 Ísöld 2 m/íslensku tali kl. 6 When a Stranger Calls kl.10 N ý t t í b í ó „mannskemmandi hryllingsmynd” Mögnuð endurgerð af Wes Craven klassíkinni frá 1977 Þeir heppnu deyja fyrstir... HROTTALEGASTA MYND ÁRSINS „hreinn viðbjóður” H.Þ.A. - bio.is Stranglega b ö n n u ð innan 16 ára - dyraverðir við salinn! RANGUR TÍMI, RANGUR STAÐUR, RANGUR MAÐUR eee LIB, Topp5.is eee DÖJ kvikmyndir.com eeee DÓRI DNA dv „FRÁBÆR, FLOTT OG FYNDIN... OFURSVALUR SPENNUTRYLLIR“ FHM K.M. - bio.is NÚ á laugardaginn verður tónlist- arhátíðin Atlantic Music Event (AME) haldin á NASA. Um er að ræða kynningu á því helsta sem í gangi er í færeyskri rokk- og popptónlist í dag og munu sex hljómsveitir/listamenn þaðan koma fram. Einnig mun íslenska sveitin Dikta leika, en hún mun troða upp í Færeyjum síðar á árinu. Dikta gaf út hina lofuðu Hunting for Happiness í fyrra og er allrar at- hygli verð nú um stundir. Færeysku listamennirnir eru Högni Lisberg, Gestir, Deja Vu, Makrel, Marius og Lena og voru kynntir nokkuð rækilega fyrr í mánuðinum hér á þessum síðum (miðvikudaginn 5. apríl). Allt síðan færeyska bylgjan brast á með þungarokkurunum í Tý um 2001 hafa augu Íslendinga opnast nokk- uð fyrir því sem er að gerast í færeyskri dægurlagatónlist. Heim- sóknir færeyskra listamanna hing- að og öfugt hafa þó verið æði brokkgengar og má því fullyrða að þessi atburður sé sá veglegasti til þessa. Menningarstova Færeyja, opinber stofnun sem stuðla á að kynningu færeysks menningarlífs m.a., Norðurlandahúsið þar og Tutl, stærsta plötuútgáfa Fær- eyja, standa þétt að baki þessum umsvifum og því ekki ráðist í þetta af neinum vanefnum. AME tónleikar hafa verið haldnir í Dan- mörku og Færeyjum og stefnt er að því að halda þá árlega hér á landi. Plata ársins Högni Lisberg er einn þeirra sem þátt taka í AME í þetta sinn- ið. Högni vakti fyrst athygli sem trymbillinn í Clickhaze, en sveitin sú hýsti margt hæfileikafólkið, þ.á m. Eivöru Pálsdóttur. Árið 2003 gaf Högni svo út sólóplötu, Most Beautiful Things, þar sem hann lék á flestöll hljóðfærin sjálf- ur. Í kjölfarið hóf hann að vinna gagngert að því að koma ár sinni fyrir borð í tónlistinni, bæði í Færeyjum og utan þeirra og hefur hann náð talsverðum árangri. Önnur platan, Morning Dew, kom út síðasta haust og hefur treyst hann í sessi í heimalandinu. Hún var valin plata ársins þar og er Högni nú komin með dreifing- arsamning við belgíska fyrirtækið PIAS, eitt þekktasta fyrirtækið á því sviði í Evrópu. Högni býr sem stendur í Dan- mörku og er að bisa við að hella upp á kaffi og vefja sér sígarettu er blaðamaður hringir. „Það er auðvitað mjög jákvætt að vera kominn á samning hjá PIAS,“ segir Högni aðspurður. „En það er algert lykilatriði að vinna að því, statt og stöðugt, að koma sér á framfæri með tón- leikum, koma lögum í útvarpið o.s.frv. Fólk þarf að vita af þér og vilja tónlistina þína. Dreifingarfyr- irtæki hjálpa þér lítið með slíkt.“ Högni rifjar upp að fyrsta plata sín hafi verið gerð með litlum til- kostnaði og hann hafi þyrst í að gera aðra plötu eins fljótt og hægt væri. „Í upphafi árs 2005 fórum við í Lundgaard-hljóðverið í Danmörku og ákváðum að eyða ögn meiri peningum í þetta skiptið. Mun- urinn á plötunum liggur meðal annars í því að nú notaði ég fleiri hljóðfæraleikara.“ Platan nýja er auk þess til muna fjölbreyttari en sú síðasta sem hélt sig að mestu við lág- stemmda söngvaskáldastemningu. Högni vill þó ekki meina að mun- urinn á lagasmíðunum sé það mik- ill, lögin hljómi öðruvísi vegna ábúðarfyllri hljóms og fjölskrúð- ugri áferðar en áður. Er kom að því að hljóðblanda plötuna lenti Högni hins vegar í vandræðum. „Ég fór til Belgíu í þeim til- gangi en gaurinn sem átti að sjá um það var yfirbókaður. Þannig að ég fór aftur til Danmerkur og það var Óli Poulsen sem reddaði mér fyrir horn í þetta skiptið. Upprunalega hugmyndin var sú að reyna eitthvað nýtt, þar sem Óli hefur séð um að hljóðblanda grú- ann allan af færeyskri tónlist. Engu að síður er ég mjög sáttur við lokaútkomuna, Óli kann sitt fag upp á tíu.“ Jafnvægi Tónlist Högna er undir áhrifum frá amerískri þjóðlagatónlist, rokkinu þaðan einnig og tekur í raun ekkert frá færeyskri tónlist- ararfleifð, leið sem hefur verið nokk vinsæl undanfarin ár. Fær- eyska þátt plötunnar má helst nema af silkimjúkum hljómnum og spilamennskunni og söngnum sem býr yfir ástríðu og hlýju. Högni hefur fullan hug á að ná sem lengst með tónlist sína og segist viljandi hafa gert lögin út- varpsvænni. „Ég lærði af fyrstu plötunni að ef þig langar til að komast í út- varpið, þarftu einfaldlega að sníða lögin og hljóm þeirra að því.“ Blaðamaður segir þá að bragði: „En svona hluti þarf eðlilega að gera án þess að varpa listrænum heilindum fyrir róða?“ Högni jánkar því. „Auðvitað. Það er snúni parturinn. Og mér finnst við hafa náð góðu jafnvægi að þessu leytinu til á nýju plöt- unni. Það væri auðvitað frábært að ná til íslenskra eyrna því að fyrir færeyskan tónlistarmann þýðir það mikla stækkun á mark- aði. Þú selur ekki svo mikið í Fær- eyjum. Sem er erfitt, því að metn- aðurinn er alltaf að verða meiri og meiri, fólk er farið að leggja meira í plöturnar og að ná til fleira fólks er í raun að verða nauðsynlegt miðað við þróunina heima.“ Högni kemur til Íslands með fjögurra manna sveit með sér en fram undan er meðal annars SPOT-hátíðin í Danmörku þar sem hann verður aleinn með kassagítarinn. Hann segist hlakka mikið til að koma hingað til lands, síðast hafi hann komið hingað með Clickhaze en í þetta skiptið horfi málin allt öðruvísi við. Tónlist | Högni Lisberg spilar á Færeysku tónlistarhátíðinni næsta laugardag Meiri metnaður Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Tónlistarhátíðin AME er á NASA á laugardagskvöld. Miðaverð á há- tíðina er 1.500 kr. og forsala að- göngumiða fer fram í verslunum Skífunnar og á midi.is. Til viðbótar spilar Högni Lisberg í kvöld á Grand Rokki ásamt Mar- iusi, Deja Vu og Makrel. Aðgangs- eyrir er 500 kr. og húsið verður opnað kl. 21. www.hogni.com www.myspace.com/hognilisberg Högni kemur til Íslands með fjögurra manna sveit með sér.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.