Morgunblaðið - 06.05.2006, Síða 2
2 LAUGARDAGUR 6. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÁLVERÐ HÁTT
Álverð fór upp í 2.908 dollara
tonnið á heimsmarkaði í gær, sem er
hæsta verð sem fengist hefur frá
árinu 1998, í 18 ár. Eftirspurnin eftir
áli er mjög mikil, sem skýrir hátt
verð. Fyrir þremur árum kostaði
tonnið af áli um 1.300 dollara.
Situr líklega áfram
Stjórnmálaskýrendur í Bretlandi
telja margir, að Tony Blair forsætis-
ráðherra muni ekki segja af sér í
bráð þrátt fyrir ósigurinn í sveitar-
stjórnarkosningunum á fimmtudag.
Segja þeir, að uppstokkunin á
stjórninni, sú mesta, sem Blair hefur
gert, sé til marks um það. David
Cameron, hinn nýi leiðtogi Íhalds-
flokksins, fagnaði í gær góðu gengi
síns flokks og sagði augljóst, að
hann höfðaði nú til fleiri en áður.
Piltar ánetjast klámi
Ný rannsókn á kynhegðun ungs
fólks hefur leitt í ljós að piltar í
framhaldsskólum, á aldrinum 16–19
ára, virðast margir ánetjast klámi,
en 57% pilta á þessum aldri sögðust
skoða klám einu sinni í viku, og 37%
þrisvar í viku eða oftar.
Friður í Darfur?
Fulltrúar Súdanstjórnar og helstu
fylkingar skæruliða í Darfur undir-
rituðu í gær samkomulag um frið og
er vonast til, að það bindi enda á
ófriðinn í héraðinu. Það skyggði á,
að tvær smáar skæruliðahreyfingar
voru andvígar samkomulaginu.
Zimsenhúsið híft á braut
Zimsenhúsið við Hafnarstræti var
híft af lóðinni þar sem það hefur
staðið í rösklega 120 ár í gærkvöldi,
og stendur til að flytja það út á
Granda í dag. Ekki hefur verið
ákveðið hvað verður um húsið.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Umræðan 34/36
Fréttaskýring 8 Bréf 46
Úr verinu 18 Kirkjustarf 55/56
Viðskipti 20/21 Minningar 48/54
Erlent 22/23 Myndasögur 62
Minn staður 24 Dagbók 62/65
Akureyri 26/27 Víkverji 62
Suðurnes 28 Staður og stund 63
Landið 28 Velvakandi 63
Árborg 28 Bíó 70/73
Daglegt líf 32/35 Ljósvakamiðlar 74
Menning 30 Staksteinar 75
Forystugrein38/39 Veður 75
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson,
fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is
Umræðan | Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H.
Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
1
MARGT var um manninn á opnun
sýningarinnar Perlan Vestfirðir í
gærdag en hún er haldin í Perlunni
og mun standa yfir um helgina.
Markmið sýningarinnar er að
kynna Vestfirði, ekki eingöngu sem
viðkomustað fyrir ferðamenn held-
ur líka sem athyglisverðan búsetu-
og fjárfestingakost. Yfir 130 aðilar
taka þátt í sýningunni og kennir
þar ýmissa grasa. Meðal annars
verða þar vestfirskir listamenn,
ferðafrömuðir og víkingar en einn-
ig gefst gestum og gangandi kostur
á að taka þátt í sérstæðu happ-
drætti þar sem vinningurinn er
byggingarlóð í Vesturbyggð eða á
Tálknafirði.
Guðmundur Guðlaugsson, bæj-
arstjóri Vesturbyggðar, segir
happdrættið vera samvinnuverk-
efni Vesturbyggðar og Tálkna-
fjarðar og til þess fallið að vekja at-
hygli á að það séu möguleikar á
lóðum annars staðar en á suðvest-
urhorni landsins. Hann segir fram-
boð á lóðum á svæðinu vera gott og
vinningshafinn hafi m.a. þann
möguleika að velja sér þá lóð sem
honum líst best á. Happdrættið er
öllum opið og ekki kostar að taka
þátt, aðeins þarf að rita nafn sitt
niður á blað og láta í tunnu sem
staðsett er á sýningarsvæðinu.
Guðmundur segir lóðina vera
hefðbundna einbýlishúsalóð og
byggingaleyfisgjöld innifalin. Hins
vegar eru á henni þær kvaðir að
ekki er hægt að framselja hana fyrr
en búið er að koma upp grunni.
Happdrættið stendur yfir sýning-
arhelgina og dregið verður 17. júní.
Aðspurður um þátttökuna á fyrsta
degi segir Guðmundur að happ-
drættið hafi vakið mikla athygli og
margir hafi tekið þátt.
Happdrætti í tengslum við sýninguna Perlan Vestfirðir sem fram fer í Perlunni
Einbýlishúsalóð er í vinning
Morgunblaðið/ÞÖK
Fjölmargir gestir voru viðstaddir þegar sýningin Perlan Vestfirðir var formlega opnuð í Perlunni í gær.
„VIÐ erum eiginlega búnir að samþykkja umgjörð-
ina, svo verður farið í að semja um smáatriðin og
það ferli hefst á næstu dögum,“ segir Gunnar Þór
Gíslason, stjórnarformaður Stoke Holding, hluta-
félagsins sem á 60 prósenta hlut í enska knatt-
spyrnufélaginu Stoke City. Yfirtökutilboðið sem
var tekið er frá Petur Coates, stjórnarmanni Stoke
City, sem að öllu óbreyttu mun sitja við stjórnvölinn
eftir tvær vikur.
Stoke Holding hefur átt meirihluta í félaginu frá
því í nóvember árið 1999 og segir Gunnar að staðan
hafi verið metin sem svo að sala á þessum tíma-
punkti væri hagstæð fyrir hluthafa Stoke Holding.
„Við erum búnir að vera þarna í sjö tímabil og búnir
að bæta klúbbinn á hverju ári, bæði fjárhagslega og
knattspyrnulega. Við vildum hætta áður en við fær-
um að missa getuna til að bæta félagið.“
Gunnar segir kaupverðið ekki uppgefið á þessu
stigi málsins og verði kynnt hluthöfum áður en það
verður gert opinbert. Hann lætur þó í ljósi að verðið
sé lægra en hann hefði kosið. „Ytri aðstæður hafa
ekki verið okkur nógu hagstæðar þannig að sem
fjárfestar komum við ekki til með að ganga sér-
staklega glaðir frá borði,“ segir Gunnar og ítrekar
að mönnum hafi fundist þetta rétti tíminn fyrir nýja
menn að taka við, bæði fyrir félagið og hluthafa.
Nokkuð hefur verið fjallað um málefni Stoke
Holding í fjölmiðlum að undanförnu og þá hafa
menn velt fyrir sér hugsanlegum áhuga norskra
fjárfesta í félaginu. Gunnar segist hafa heyrt af
þeim en engar hugmyndir hafi hins vegar verið
lagðar fram. Fjárfestarnir geti hins vegar enn kom-
ið fram og gert tilboð. „Þetta er svo skrítið hvernig
þetta gengur fyrir sig í Bretlandi, að hlutirnir eru
ekki frágengnir fyrr en þeir eru alveg frágengnir,“
segir Gunnar.
Skjót afgreiðsla á breskan mælikvarða
Stefnt er að því að ljúka pappírsvinnunni á næstu
tveimur vikum og munu íslensku stjórnarmennirnir
þá láta af störfum. Gunnar segir það teljast nokkuð
skjóta afgreiðslu á breskan mælikvarða. „Miðað við
breska staðla þá verður þetta mjög rösklega að
verki staðið en þegar við erum búnir að taka
ákvörðun viljum við klára málin, á Íslandi hefðum
við klárað þetta um helgina.“
Aðspurður um hvort að fjárfestingar í öðrum
knattspyrnuliðum liggi fyrir segir Gunnar svo ekki
vera, stærstu fjárfestarnir muni snúa sér að öðrum
málum, enda nóg annað til að sýsla með.
Yfirtökutilboði í meirihlutaeign hlutafélagsins Stoke Holding í Stoke City tekið
Göngum ekki glaðir frá borði
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
Íslenskum fánum var veifað þegar Íslending-
arnir eignuðust meirihluta í Stoke City.
OLÍUFÉLÖGIN þrjú, Olíufélagið,
Skeljungur og Olís, lækkuðu öll
verð á eldsneyti í fyrradag.
Í umfjöllun um verðþróunina á
heimasíðu Olíufélagsns í gær kem-
ur fram að heimsmarkaðsverð á
eldsneyti gæti verið svipað næstu
vikur og verið hefur að undan-
förnu, en ef spár gangi eftir gæti
verðið lækkað þegar líða tekur á
sumarið.
Félögin þrjú höfðu hækkað verð-
ið sl. þriðjudag og miðvikudag en
verðið breyttist ekki hjá Atlants-
olíu, Orkunni og ÓB.
Skv. nýjustu upplýsingum á vef-
síðum olíufélaganna í gærkvöldi
var algengt sjálfsafgreiðsluverð, á
95 oktana bensíni á stöðvum Olís,
Esso og Skeljungs á höfuðborgar-
svæðinu rúmar 125 kr. lítrinn og
rúmar 120 kr. lítrinn af dísilolíu.
Hjá ÓB var bensínverð í sjálfsaf-
greiðslu tæpar 124 kr. lítrinn og
119,30 kr. dísilolían.
Hjá Atlantsolíu var bensínverðið
rúmar 124 kr. og dísilolían á 119,30
kr. Hjá Orkunni var bensínlítrinn
123,80 kr. og verð á dísilolíu 119,20
kr.
Eldsneytisverð gæti
lækkað er líður á sumarið