Morgunblaðið - 06.05.2006, Side 10

Morgunblaðið - 06.05.2006, Side 10
10 LAUGARDAGUR 6. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR MEIRA en helmingur íslenskra 16– 19 ára pilta skoðar klámefni einu sinni í viku eða oftar og íslensk ung- menni virðast hefja kynlíf síðar en oft hefur verið haldið fram. Þetta er meðal niðurstaðna nýrrar könnunar um kynhegðun ungs fólks og kyn- ferðislega misnotkun sem Barna- verndarstofa og Rannsóknir & grein- ing/Háskólinn í Reykjavík kynntu í gær. Könnunin byggist á 10.472 svörum nemenda í öllum framhaldsskólum landsins. Hún var lögð fyrir alla nem- endur í framhaldsskólum á Íslandi sem mættu í skólann daginn sem könnunin var gerð. Um 80% virkra framhaldsskólanema hér á landi svöruðu spurningunum. Kynjahlut- föll svarenda voru nokkuð jöfn eða 49,2% karlar og 50,8% konur. Ekki hefur áður verið gerð jafnumfangs- mikil könnun á þessu viðfangsefni með svo stóru úrtaki hér á landi. Könnunin var gerð í samvinnu við norrænu samtökin Children at Risk og að hluta til byggð á könnunum sem framkvæmdar voru í nokkrum Norðurlandanna og Eystrasaltsland- anna árið 2004. Bryndís Björk Ásgeirsdóttir, fé- lagsfræðingur og kennari við kennslufræði- og lýðheilsudeild HR, gerði grein fyrir nokkrum niðurstöð- um könnunarinnar á blaðamanna- fundi í Barnaverndarstofu í gær. Hún sagði að markmið könnunarinn- ar hafi verið tvíþætt: Að rannsaka líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi gegn börnum á Íslandi og að rann- saka kynlífshegðun íslenskra ung- menna. Næstu skref rannsóknarinn- ar verða að kanna félagslegan bakgrunn, líðan og hegðun barna og ungmenna sem hafa orðið fyrir kyn- ferðislegu og/eða líkamlegu ofbeldi í æsku. Fyrsta kynlífsreynslan Ungmennin, 16–19 ára, voru spurð hve gömul þau voru þegar þau höfðu kynmök í fyrsta sinn. Tekið var fram að það hafi verið með samþykki beggja aðila, svo ekki var um mis- notkun að ræða. Þau sem áttu fyrstu kynlífsreynsluna 13 ára eða yngri, það er undir 14 ára lögaldri kynlífs, voru 4% drengja og sama hlutfall stúlkna. Á aldrinum 14 ára, 15 ára og 16–19 ára voru fleiri stúlkur í hverj- um árgangi sem höfðu haft kynmök. Þriðjungur 16–19 ára stúlkna og 44% pilta höfðu aldrei haft kynmök. Kynferðislegur lögaldur er nú 14 ár. Ungmennin voru spurð hvort sá aldur ætti að vera 14 ára eða yngri, 15 ára eða 16 ára eða eldri. Athygli vakti að afstaða svarenda breyttist með hækkandi aldri þeirra og 56% stúlkna töldu að hækka ætti aldurinn í 15 ára eða eldri. Þá benda niður- stöður til að stúlkur virðist líklegri en piltar til að sjá eftir að hafa stundað kynlíf. Klám virðist mjög útbreitt meðal íslenskra ungmenna, einkum meðal pilta en 57% þeirra skoða klám meira en vikulega og 37% meira en þrisvar í viku. Þá benda niðurstöður til að stúlkur sem oft skoða klám séu lík- legri til að hafa oftar kynmök og hefja kynlíf yngri en þær sem sjaldan sjá klám. Mikill meirihluti svarenda (94% stúlkna og 81% pilta) kvaðst vera ósammála því að ekkert sé athuga- vert við að gera einhverjum kynferð- islegan greiða fyrir inngöngu í sam- kvæmi. Þá voru 61% stúlkna og 38% drengja, 16–19 ára, ósammála því að ekkert sé athugavert við að hafa kyn- mök sér til skemmtunar, þótt engar tilfinningar séu í spilinu. Hins vegar var fjórðungur stúlkna og 46% drengja sammála því. Þegar spurt var hvort svarendur væru sammála eða ósammála því að ekkert væri at- hugavert við að hafa kynmök við marga einstaklinga á einu kvöldi kváðust 89% stúlkna og 64% pilta vera því ósammála en 8% stúlkna og 22% stráka vera því sammála. Niðurstöður könnunarinnar benda til þess að klámnotkun tengist mörgu í kynhegðun og viðhorfum unga fólksins. Þau sem skoða oft klám hafa frjálslyndari viðhorf til þess sem flestir telja ranga hegðun. Spurt var hvort 16–19 ára fram- haldsskólanemarnir hefðu þegið greiða eða greiðslu í skiptum fyrir kynmök og kváðust 1,7% stúlkna og 3,7% pilta hafa gert það. Þetta eru svipaðar tölur og komið hafa fram í könnunum í Bandaríkjunum og á Norðurlöndum. Talið er að í ein- hverjum tilvikum sé um vændi að ræða. Fleiri stúlkur misnotaðar Þá var spurt um kynferðislega misnotkun og 16–24 ára stúlkur og piltar í framhaldsskólum beðin að svara því hvort þau hefðu verið sann- færð, þvinguð eða neydd til kynferð- islegra athafna gegn vilja sínum fyrir 18 ára aldur. Hlutfall stúlkna sem svaraði þessu játandi var mun hærra en pilta, 4,8% stúlkna höfðu lent í þessu 13 ára eða yngri en 1% drengja, 7,7% stúlkna og 1,4% pilta á aldrinum 14–17 ára eða samanlagt 12,5% stúlkna og 2,4% pilta. Þau sem lentu í þessari óskemmtilegu reynslu voru spurð hvort þau hafi sagt ein- hverjum frá þeim. Piltarnir virtust fremur þegja, en 82% stúlkna 13 ára og yngri höfðu sagt frá og 56% drengja á sama aldri. 74% stúlkna 14–17 ára og 55% drengja höfðu sagt frá. Flestir trúðu vini fyrir þessu, eða 59% stúlkna og 43% drengja, næst- flestir sögðu fjölskyldu sinni frá eða 34% stúlkna og 26% pilta, en fæstir sögðu opinberum aðilum eða sér- fræðingum frá (21% stúlkna og 9% pilta). Bryndís sagði þetta leiða hug- ann að því hve mörg mál færu ekki lengra. Algengustu ástæðurnar fyrir því að ungmennin sögðu ekki frá þessu voru að þau skömmuðust sín, fengu sig ekki til þess, voru hrædd um að vera ekki trúað, vildu forða fjölskyldunni frá vandræðum, eða forða gerandanum, þeim var hótað eða höfðu lofað að þegja. 8–9% orðið fyrir misnotkun Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, dró saman þær niðurstöður könnunarinnar sem hann taldi skipta Barnaverndarstofu mestu. Hann nefndi fyrst umfang kynferðisbrota gegn börnum. Kynnt- ar voru niðurstöður tveggja spurn- inga sem vörðuðu kynferðisbrot gegn börnum (fyrir 18 ára aldur). Önnur var almenn, þar sem spurt var hvort viðkomandi hafi orðið fyrir kynferðislegri misnotkun, og hin sér- tæk þar sem spurt var hvort svar- endur hafi verið sannfærðir, þving- aðir eða neyddir til kynferðislegra athafna fyrir 18 ára aldur. „Það er at- hyglisvert að niðurstöðurnar við báð- um spurningunum eru mjög áþekk- ar. Það er ekki þar með sagt að þetta sé sami hópurinn sem svarar játandi eða neitandi í þessum tilvikum. Könnunin segir okkur að 8–9% barna að meðaltali á þessum aldri hafa orð- ið fyrir kynferðislegri misnotkun.“ Bragi benti á að þessar tölur væru lægri en oft hefði heyrst vitnað til í fjölmiðlum til þessa. Hér væri um að ræða 2–3% drengja og 12–14% stúlkna. Hingað til hefði verið talað um að 10% drengja og 25% stúlkna, eða um 17% að meðaltali, hefðu orðið fyrir kynferðislegri misnotkun. Bragi sagði að þar hefði verið vísað í óbirta rannsókn Hrefnu Ólafsdóttur. Vegna þess að rannsóknin er óbirt sagði Bragi ekki hægt að fullyrða um hvernig þær niðurstöður náðust en varpaði fram þeirri tilgátu að þar hafi ekki einungis verið svarað spurning- um um kynferðislega misnotkun heldur einnig kynferðislega áreitni. Bragi sagði að af niðurstöðunum sem nú voru kynntar mætti sjá að börnin og ungmennin sem svöruðu henni legðu þann skilning í hugtakið kyn- ferðisleg misnotkun að það sé eitt- hvað meiriháttar. Snerting eða jafn- vel kynmök, kynferðisleg misnotkun en ekki kynferðisleg áreitni. Bragi sagði að þótt þessar tölur séu lægri en hingað til hafi verið vitn- að til í fjölmiðlum séu þær engu að síður alvarlegar. Þetta sé veruleiki sem þurfi að horfast í augu við og glíma við. Hækkun lögaldurs kynlífs Niðurstöður könnunarinnar um á hvaða aldri ungmennin hefja kynlíf eru einnig athyglisverðar, að mati Braga. Hann sagði að ekki hafi verið gerðar margar rannsóknir á þessu atriði hér á landi. Þær tölur sem hingað til hafi verið notaðar hafi bent til þess að fleiri byrjuðu yngri að stunda kynlíf en þessi rannsókn gef- ur til kynna. Samkvæmt þessari rannsókn hafi innan við 15% ung- linga haft kynmök áður en þeir náðu 15 ára aldri. Bragi kvaðst hafa setið í nefnd um vændi á vegum dómsmála- ráðuneytisins, sem m.a. fór yfir laga- ákvæði um kynferðisbrot. Bragi kvaðst hafa þá verið á móti því að hækka kynferðislegan lögaldur úr 14 ára í 15 ára. „Þessi vitneskja hefur fengið mig til að skipta um skoðun. Nú er ég orðinn fylgjandi því að hækka hann í 15 ára, ekki síst í ljósi þess að meirihluti stúlkna í þessu úr- taki er að biðja um aukna vernd.“ Bragi segist túlka svör stúlknanna þannig að þær vilji hækka kynferð- islegan lögaldur. Könnunin leiðir einnig í ljós út- breiðslu ofbeldis inni á heimilunum. Bragi sagði að samkvæmt opinber- um tölum sé sennilega 5–10 sinnum líklegra að kynferðisbrot sé tilkynnt til barnaverndaryfirvalda en ofbeld- isbrot. Kerfið sé árlega að fást við um 200 mál sem varða grun um kynferð- isbrot gegn börnum en mál sem lúta að líkamlegu ofbeldi séu ekki nema 20 til 40 á ári. Þessi könnun segi að 11–12% barna verði sjálf fyrir líkam- legu ofbeldi inni á heimilunum eða verði vitni að því. Bragi kvaðst vilja þakka sérstak- lega öllum þeim börnum og ung- mennum sem tóku þátt í könnuninni. Hann sagði ljóst að þau hafi tekið hlutverk sitt alvarlega og svarað spurningunum af hreinskilni, þrátt fyrir að þær hafi verið nokkuð nær- göngular á köflum.                                       ! "   #! !" ##        $       %&     '  & % &()( *                                 " !! !! " ! !+ #,           -.//01.2        2         2  &               ## ! # #" 3                        !   #           -.//01.2               &                 " , !3  !   "                           )*45* $   % & 678*8   % &  '   "  &                "  #$% $   & ' ( )% !&, !&3 & +& !&3 &, & &" "  *+,$,   & #$% $    *+,$,  -& Könnun á kynhegðun ungs fólks og kynferðislegri misnotkun byggist á 10.472 svörum Piltar skoða klám og stúlkur fyrri til kynlífs Morgunblaðið/Eyþór Bryndís Björk Ásgeirsdóttir, félagsfræðingur og kennari við HR, og Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, kynntu skýrsluna í gær. gudni@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.