Morgunblaðið - 06.05.2006, Side 21

Morgunblaðið - 06.05.2006, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. MAÍ 2006 21 VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF Ævintýralegt málþing á Þjóðminjasafninu! kl. 13.00-16.45 Málþing og örsýning um ævintýri á vegum Félags þjóðfræðinga, Þjóðminjasafns og Árnastofnunar í minningu Hallfreðar Arnar Eiríkssonar Þjóðminjasafn Íslands: Óvæntir atburðir og alltaf flottar sýningar! Opið alla daga í sumar kl. 10.00-17.00. Álfapottur Bókaðu strax besta verðið á plusferdir.is Tenerife 37.330 kr. á mann mi›a› við 2 fullor›na og 2 börn, 2ja–11 ára, á Parque de las Americas í 1 viku. Net-verðdæmi 25. maí Benidorm á mann mi›a› vi› 2 fullor›na og 2 börn, 2ja–11 ára, Innifali› er flug, gisting í 7 nætur á Buenavista og flugvallarskattar. Net-verðdæmi 17., 24. maí og 21. júní 37.998 kr. Marmaris 32.600 kr. á mann mi›a› vi› 2 fullor›na og 2 börn, 2ja–11 ára. Innifali› er flug, gisting í 7 nætur á Öz-ay og flugvallarskattar. Net-verðdæmi 23. og 30. maí Portúgal á mann mi›a› við 2 fullor›na og 2 börn, 2ja–11 ára. Innifali› er flug, gisting í 7 nætur á Elimar og flugvallarskattar. Net-verðdæmi 23. og 30. maí 43.410 kr. Krít 49.980 kr. á mann mi›a› vi› 2 fullor›na og 2 börn, 2ja–11 ára. Innifali› er flug, gisting í 7 nætur á Skala og flugvallarskattar. Net-verðdæmi 3. og 10 júlí, 21. og 28. ágúst, 18. og 25. sept. Mallorca á mann mi›a› við 2 fullor›na og 2 börn, 2ja–11 ára. Innifali› er flug, gisting í 7 nætur á Pil Lari Playa og flugvallarskattar. Net-verðdæmi 16., 23. maí og 20. júní 39.980 kr. Plúsferðir · Lágmúla 4 · 105 Reykjavík · Sími 535 2100 SumarPlús HAGNAÐUR Marels nam 43 millj- ónum króna á fyrsta fjórðungi árs- ins samanborið við 246 milljónir króna á fyrsta fjórðungi í fyrra, og var undir væntingum. Sala fyrsta ársfjórðungs 2006 nam 32,5 millj- ónum evra (ISK 2,5 milljarðar) samanborið við 29,9 milljónir (ISK 2,4 milljarðar) á sama tíma árið áð- ur. Salan jókst því um 8%. Verkefnastaða í lok mars 2006 var um 22 milljónir evra samanbor- ið við 16,0 milljónir evra í árslok 2005. Hagnaður fyrir skatta og fjár- magnsliði (EBITDA) nam 1,9 millj- ónum evra. „Afkoma ársfjórðungsins er slök sem er í samræmi við það sem til- kynnt var í tengslum við uppgjör síðasta árs,“ segir Hörður í til- kynningu til Kauphallar Íslands. „Ársfjórðungurinn einkenndist af tregðu í pöntunum framan af, erf- iðu gengisumhverfi og því að skipulagsbreytingar hjá Carnitech voru í hámarki á tímabilinu. Pant- anir jukust mjög þegar leið á fjórð- unginn og hefur verkefnastaðan ekki áður verið betri en hún var í lok mars sl. Rekstarumhverfi fyr- irtækisins hefur breyst mjög til batnaðar með veikingu íslensku krónunnar frá áramótum. Horfur fyrir seinni hluta ársins eru því góðar.“ Greiningardeild KB banka segir að þrátt fyrir að tekjur Marels hafi verið hærri en gert var ráð fyrir hafi hagnaður félagsins verið undir væntingum. „Tekjur félagsins voru aðeins hærri en spá Greiningar- deildar gerði ráð fyrir. Tekjurnar námu samtals 32,7 m. evra en spá okkar hljóðaði upp á 28,5 m. evra. EBITDA félagsins er mun lægri en spá okkar gerði ráð fyrir. Spá okk- ar hljóðaði upp á 3 m. evra en nið- urstaðan var 1,9 m. evrur. Helstu ástæður þessa mismunar eru hærri gjaldfærslur vegna flutnings Carnitech frá Danmörku til Slóv- akíu,“ segir í Hálffimmfréttum greiningardeildar KB banka. Forstjóri segir af- komu Marels slaka FJÓRFALT meira tap varð á rekstri Ríkisútvarpsins (RÚV) á síðasta ári en árið þar áður. Tapið í fyrra nam 196,2 milljónum króna samanborið við 49,7 milljónir árið 2004. Í tilkynningu til Kauphallar segir að stór hluti hallans sé vegna kostnaðarliða ut- an áætlunar, s.s. úrskurðar frá skattayfirvöldum vegna verk- takagreiðslna. Einnig varð rekstrarkostnaður meiri en áætlað var. Í upphafi ársins 2005 var eigið fé RÚV 10,2 milljónir en var nei- kvætt um 186,2 milljónir í lok ársins. Rekstrartekjur í fyrra voru 3,5 milljarðar króna og rekstrargjöld 3,2 milljarðar. Hagnaður af rekstri fyrir afskriftir varð 271,7 milljónir samanborið við 391 milljón árið áður. Afskriftir fastafjármuna voru 258,5 milljónir og jukust um 29,7 milljónir á milli ára. Þá urðu hrein fjármagnsgjöld 209,4 milljónir og jukust um 33,3 milljónir milli ára. Í tilkynningu RÚV til Kauphallar í gær segir að á undanförn- um árum hafi stofnunin tekist á við stöðugan rekstrarvanda sem megi rekja til minnkandi rauntekna og skuldbindinga vegna greiðslna af lífeyrisláni. Þessi rekstrarvandi hafi m.a. leitt til þess að fjárfestingar hafi orðið minni en skyldi, en fjárfestingar ársins voru 138,2 milljónir. Fjöldi starfsmanna var að meðaltali 317. Fjórfalt meira tap á rekstri Ríkisútvarpsins Morgunblaðið/Árni Sæberg Rekstrartekjur samstæðunnar námu 5,6 milljörðum króna, sam- anborið við 4,1 milljarð í fyrra, en fleiri félög eru nú í eigu Kögunar en þá. Í uppgjörinu er tekið tillit til allra dótturfélaga, sem eru Verk- og kerfisfræðistofan, Kögurnes, Ax hugbúnaðarhús, Hugur, Landstein- ar-Strengur, Skýrr, Teymi, Opin kerfi, Hands í Noregi og SCS í KÖGUN tapaði 100 milljónum króna á fyrstu þremur mánuðum þessa árs. Þetta er heldur verri af- koma en á sama tímabili í fyrra, sem skilaði 105 milljóna króna hagnaði, en umfram þær áætlanir sem lagt var af stað með í upphafi árs, segir Gunnlaugur Sigmunds- son, forstjóri Kögunar. EBITDA hagnaður Kögunar á tímabilinu, þ.e. hagnaður fyrir vexti, afskriftir og skatta, var 439 milljónir og hækkaði um 30% frá sama tímabili árið 2005. Gengistap vegna vaxta- skiptasamnings frá síðasta ári nam 316 milljónum króna. Bandaríkjunum. Veltufré frá rekstri fyrstu þrjá mánuði ársins var 22 milljónir, samanborið við 374 milljónir á síðasta ári. Hand- bært fé frá rekstri nemur 244 millj- ónum, sem er aukning um 53 millj- ónir milli ára. Fjárfest var fyrir 1,7 milljarða króna á tímabilinu, sem er aðallega vegna kaupanna á SCS og stórum hlut í EJS. Nýverið keypti Dagsbrún meiri- hluta hlutafjár í Kögun og hefur sem kunnugt er gert yfirtökutilboð í bréf félagsins. Gangi yfirtakan eftir verður félagið afskráð úr Kauphöll Íslands. 100 milljóna tap hjá Kögun TAP varð á rekstri Vinnslustöðvar- innar í Vestmannaeyjum upp á 107 milljónir króna á fyrsta fjórðungi ársins. Á sama tímabili á síðasta ári var hagnaður félagsins 459 milljónir. Tekjur án vörusölu, voru hins vegar þær hæstu síðastliðin 5 ár. Heildartekjur félagsins voru 1.769 milljónir og jukust um 4,4% frá sama tímabili í fyrra. Tekjur fiskvinnslu jukust um 18% en tekjur útgerðar jukust lítillega. Rekstrargjöld lækk- uðu milli ára úr 1.241 milljón í 1.232 milljónir. Framlegð félagsins (hagnaður fyr- ir afskriftir og fjármagnsliði) var sú næst hæsta síðastliðin fimm ár og nam rúmlega 537 milljónum króna og jókst um 18,6% frá fyrra ári. Framlegðarhlutfall hækkaði úr 26,8% í fyrra í 30,4% í ár. Taprekstur hjá Vinnslu- stöðinni AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.