Morgunblaðið - 06.05.2006, Síða 26

Morgunblaðið - 06.05.2006, Síða 26
26 LAUGARDAGUR 6. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR AKUREYRI LANDIÐ Dýrafjörður | „Við berum miklar tilfinningar til staðarins og þætti súrt í broti ef staðurinn yrði seldur án þess að hugað yrði að varðveislu þeirrar miklu sögu sem þarna hefur orðið til,“ segir Ólafur Sigurðsson, úr hópi gamalla nemenda Núps- skóla sem beitir sér fyrir stofnun Hollvinasamtaka Núpsskóla. Hug- myndin er að stofna samtökin á Núpi 24. júní í sumar. Mikil mannvirki eru á Núpi í Dýrafirði en illa nýtt. Skólastarf í Héraðsskólanum féll niður fyrir all- mörgum árum og nú hefur rekstri sumarhótels einnig verið hætt. Ver- ið er að athuga hvað gert verður við eigur ríkisins og Ólafur segir að svo virðist sem áhugi sé á því að selja þær. Meginmarkmið væntanlegra Hollvinasamtaka Núpsskóla verður að varðveita minninguna um skól- ann. Nauðsynlegt að varðveita muni Núpsskóli var stofnaður árið 1906 af séra Sigtryggi Guðlaugs- syni og fleirum og starfaði við góð- an orðstír fram til ársins 1992. Þá var komið til breytt skipulag í skólamálum og skólans ekki lengur þörf. Á þessum áratugum sótti fjöldinn allur af ungu fólki nám að Núpi, fólk af Vestfjörðum og víða af landinu. Ólafur segir að þrátt fyrir margra ára framhaldsnám segist margir nemendur aldrei geta gleymt skólavist sinni á Núpi. Að sögn Ólafs eru ýmsir munir í húsnæði skólans sem nauðsynlegt er að skrá og varðveita. Nefnir hann kennslutæki, bækur, málverk og ekki síst myndir. Hyggjast Hollvinasamtökin beita sér fyrir því. Ólafur segir að vonandi verði hægt að fá aðstöðu í húsnæðinu til þess. Þá hefur hópurinn sem stend- ur að stofnun samtakanna áhuga á að láta skrá sögu skólans. Eins verður það liður í starfsemi þeirra að hvetja til tengsla á meðal eldri nemenda skólans en Ólafur segir að þau séu raunar sterk í mörgum ár- göngum. Á stofndegi Hollvinasamtakanna, 24. júní næstkomandi, verður heim- ili séra Sigtryggs sem nú er menn- ingarminjasafn haft til sýnis og flaggstöng í anda hans reist, auk hátíðar- og fundarhalda á vegum samtakanna. Þröstur Sigtryggsson, einn af stofnendum félagsins, er á Núpi og geta áhugasamir haft sam- band við hann, (sparrow@visir.is). Samtök til að varðveita minninguna um Núpsskóla Ljósmynd/Mats Wibe Lund Núpur í Dýrafirði Á Núpi eru miklar fasteignir í eigu ríkisins en líka marg- ar minningar sem gamlir nemendur vilja halda til haga til framtíðar. Naustabryggja 4 - 110 Reykjavík Falleg 134,8 fm 4ra - 5 herb. íbúð á 2. hæð í viðhaldslitlu lyftuhú- si, ásamt sér bílastæði í lokaðri bílageymslu. Sérlega snyrtileg, björt og rúmgóð íbúð, stórar stofur, tvennar svalir. Sameign fyrsta flokks. Ásett verð 31,5 millj. opið hús Fr u m Opið hús, Naustabryggja 4 - 110 Rvk í dag kl.14:00 - 16:00, bjalla merkt 204 ÖRN Ingi Gíslason, listamaður á Akureyri, fer ekki alltaf troðnar slóðir. Kannski aldrei. Í dag frum- sýnir hann eigin bíómynd í fullri lengd, í listhúsi sínu, Arnarauga við Óseyri. Enginn leikaranna fær greitt fyrir framlag sitt og Örn Ingi fer sjálfur með öll hlutverkin hinum megin við myndavélina: skrifaði handritið, er leikstjóri og kvikmyndatökumaður, hljóðmaður og sá um eftirvinnslu. Kvikmyndin, Flóttinn, hefur verið þrjú ár í vinnslu. „Hug- myndin varð upphaflega til í sam- vinnu við ungt fólk; ég er með nemendur í öllum grunnskólum bæjarins í kvikmyndagerð sem valgrein. Svo varð verkefnið „full- orðins“ og ég gerði handrit um það hvað gæti gerst ef einhver sleppur út af geðdeild,“ segir Örn Ingi í samtali við Morgunblaðið. Lögreglan fær það verkefni að leita þess sem slapp. „Annríkið er mikið á þeim bæ og því gengur brösuglega að finna hann, en svo kemur til óvænt aðstoð þannig að málin leysast í lokin. Endirinn er mjög óvæntur; ég hef aldrei séð þessa lausn í kvikmynd.“ Spennistöð „Myndin fjallar um starfsemi hugans; um heilabúið í verklegum stellingum flóttans. Ímyndun eða ótta eða skemmtanagildi, og það gæti orðið erfitt fyrir suma að átta sig á því hvort þeir eigi að hlæja eða gráta. Eða hvort það sé hægt samtímis. Það voru einmitt við- brögðin sem ég fékk frá eina manninum sem hefur séð myndina; hann vissi ekki hvernig hann átti að stjórna tilfinningunum,“ segir Örn Ingi. „Það hefur sem sagt enginn leikari enn séð myndina og ég er hræddur um að á frumsýningunni verði þeir með hjartað einhvers staðar annars staðar en venjulega! Hér verður spennistöð! Allt þetta fólk var beðið um að koma inn í ákveðnar senur en fékk aldrei að sjá handritið.“ Örn Ingi kveðst enga fjárstyrki hafa fengið vegna kvikmyndarinn- ar og því ekki vera skuldbundinn neinum. „Myndin þarf ekki að vera ókei vegna peninga. Ég gat þess vegna leikið mér meira og held það hafi gert myndina betri.“ Átti tækin hvort eð er . . . Hann sá um alla tæknivinnu sem fyrr segir. Auk þess að skrifa handritið leikstýrði hann sjálfur, kvikmyndaði, sá um hljóðið og samsetninguna. „Ég er alls ekki að hæla mér af því. Ég varð bara að gera þetta svona vegna þess að ég hafði enga peninga og það fær enginn neitt fyrir að leika í mynd- inni. Þess vegna er þetta sjálf- stæðisbarátta Akureyringa í kvik- myndagerð.“ Þegar spurt er hvernig í ósköp- unum hann geti búið til heila bíó- mynd án styrkja, svarar listamað- urinn: „Ég átti tækin hvort eð er.“ Peningar koma málinu ekki við, segir hann. „Þessi mynd er ekki gerð af vanefnum, taktu eftir því; en peningar eru ekki inni í mynd- inni. Svo á eftir að koma í ljós hvort þetta skilar einhverju, en ég vildi ekki gera þessa mynd á þeim forsendum að þurfa að bíða eftir því að já kæmi úr einhverjum kvikmyndasjóðum í Reykjavík. Ég vildi frekar gera þetta svona, og þetta er myndin, sem annaðhvort verður til þess að ég geri aldrei fleiri eða þá ég muni gera fleiri og reyni þá að fá ein- hverja peninga til þess að geta stofnað vinnuhóp þannig að fólk sé ekki í annarri vinnu á meðan og hægt sé að standa almennilega að verkefninu.“ Hann segir ekki skynsamlegt að taka mynd á svona löngum tíma, því svo margt geti breyst. „Ég þurfti að gera ýmsar breyt- ingar, það urðu veikindi og árs- tíðabreytingar. Ég þurfti að senda einn leikarann á rakarastofu í myndinni til þess að það skildist hvers vegna hann var allt í einu kominn með minna hár. Það var auðvitað klúður, en ég var ekki með neitt starfslið sem hugsaði um svona hluti. Niðurstaðan er sú að þetta er ekki hægt. Það sem ég gerði var ekki hægt; það er að minnsta kosti algjört rugl að reyna að endurtaka það. Það er ekki skynsamleg fag- mennska að gera hlutina svona. Samt eru kostir við þetta; ég fékk leikarana til þess að treysta mér, það komst samband á milli mín og þeirra sem varð til þess að verkið gekk vel. Ég var líklega helmingi fljótari að taka sum skot vegna þess að ég var einn. Leikstjóri þarf að horfa í sérstakan mónitor til að sjá hvernig myndatökumað- urinn vinnur, en ég þurfti þess ekki vegna þess að ég hélt sjálfur á myndavélinni.“ Listamaðurinn vinnur nú að gerð nokkurra kvikmynda um þekkta Íslendinga, sem fæddir eru úti á landi, m.a. leikkonuna Elvu Ósk Óskarsdóttur. „Þetta verða heimildarkvikmyndir, ekki sjón- varpsþættir. Klukkutíma langar myndir, og eflaust frumsýndar hér í salnum.“ Hann myndaði Elvu Ósk m.a. á tökustað þar sem hún lék í Kaldri slóð „og þar voru 40 tæknimenn í kringum tvo leikara,“ segir hann og brosir að sam- anburðinum. En til hvers er hann þá eig- inlega að þessu? Er það bara ástríða? Hann jánkar því. Eftir að hafa gert 25 sjónvarps- þætti á sínum tíma með fyrirtæk- inu Samveri keypti hann sína eigin vél. „Hún kostaði 300 þúsund krónur. Ég hafði aldrei tekið myndir og las bæklinginn í hálfan mánuð áður en ég kveiki á vélinni! Hvaða maður gerir svona?“ Örn Ingi fann fljótt að vélin var einhvers konar framlenging á hon- um sjálfum. „Þá hringdi ég í inn- flytjandann og sagði honum að ég Örn Ingi Gíslason – handritshöfundur, leikstjóri, myndatökumaður og hljóðmaður – frumsýnir í dag kvikmynd í Sjálfstæðisbarátta Akureyringa í kvikmyndagerð Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Örn Ingi Gíslason: Ég er frjáls í þessu hugtaki sem tíminn er. Ég hef gaman af hinu óvænta. Óvænt atburðarás getur orðið til þess að listaverk verður betra. Eftir Skapta Hallgrímsson skapti@mbl.is Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.