Morgunblaðið - 06.05.2006, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 06.05.2006, Qupperneq 38
38 LAUGARDAGUR 6. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. ÁFALL FYRIR VERKAMANNAFLOKKINN Úrslit sveitarstjórnar-kosninganna í Bretlandieru áfall fyrir Verka- mannaflokkinn og Tony Blair. Ef úrslit kosninganna eru yf- irfærð á landsvísu er Verka- mannaflokkurinn orðinn þriðji stærsti flokkurinn á eftir Íhaldsflokknum og Frjálslynd- um demókrötum. Staða Íhalds- flokksins er mjög sterk undir nýrri forystu með um 40% at- kvæða. Blair hefur verið snar í snún- ingum og tilkynnti umtalsverð- ar breytingar á ríkisstjórn sinni í gærkvöldi. Hann hefur notað tækifærið og ýmist losað sig við ráðherra, sem hafa blan- dazt inn í hneykslismál í brezkri pólitík að undanförnu eða lækkað þá í tign með ýms- um hætti. Stóra spurningin er hins veg- ar sú, hvenær röðin kemur að Tony Blair sjálfum að standa upp. Líklegt má telja að með breytingum á ríkisstjórn beint í kjölfar kosningaósigurs muni Blair vinna nokkurn tíma. En það er ekki víst að sá tími verði langur. Bretar eru sérfræðing- ar í að vega stjórnmálamenn með rýtingum í bakið, þegar þeir sýna einhvern veikleika. Þannig hefur nánast alltaf verið farið með forystumenn Íhalds- flokksins og svipaða sögu er að segja af Verkamannaflokknum. Nú eru rýtingarnir farnir að sjást í kringum Tony Blair og að því kemur að hann fellur fyrir einhverjum þeirra. Valdatími Blair er orðinn glæsilegur að því leyti til að hann hefur setið lengi í Down- ingstræti 10 en það er ekki þar með sagt, að hann hafi fengið miklu áorkað á þessum áratug. Verkamannaflokknum hefur ekki tekizt að draga úr ójöfnuði í brezku samfélagi. Stéttaskipt- ingin, sem þar hefur alla tíð verið til staðar er sú sama og hún hefur alltaf verið. Íhaldsflokkurinn sækir nú undir forystu Cameron að Verkamannaflokknum úr nýrri átt, þ.e. frá miðjunni. Það er eina leiðin fyrir Íhaldsmenn til að ná völdum og eina spurn- ingin, hvort hægri armurinn í flokknum hefur vit á að láta hann í friði, þangað til hann hefur tryggt flokknum meiri- hluta í brezka þinginu. Alla vega er ljóst að með þeim kosningaúrslitum, sem liggja fyrir fer að styttast í valdatíma Tony Blair. HVER ER MUNURINN? Sigríður Anna Þórðardóttir,umhverfisráðherra, hefur réttilega fordæmt auglýsingu um jeppaferðir á Íslandi, sem birt var í nafni Ferðamálaráðs í blaðinu Kaupmannahafnarpóst- inum. Í auglýsingunni birtist texti, sem efnislega var á þá leið, að á Íslandi væru það risa- jeppar, sem ryðji vegina. Birting auglýsingarinnar hefur verið stöðvuð eins og eðlilegt er. En eftir stendur þessi spurn- ing: Hver er munurinn á því að eyðileggja hálendið með því að risajeppar æði þar um eða hvort það er gert með því að Vega- gerðin leggi vegi um hálendið með bundnu slitlagi eða athafna- menn byggi hótel hér og þar? Við hneykslumst, þegar dóm- greindarskortur auglýsinga- manna kemur upp um hugarfar þeirra, sem telja sjálfsagt að gera hvað sem er á hálendinu. Af hverju hneykslumst við ekki ef það á að byggja vegi með hefðbundnum hætti um hálend- ið? Stefnumörkun í hálendismál- um á að vera skýr. Hún á að vera sú, að það verði ekki byggðir upp vegir og malbikaðir á miðhálendinu. Hún á að vera sú, að það verði ekki frekari framkvæmdir leyfðar á hálend- inu. Það er einfaldlega nóg kom- ið. Af þessum sökum væri æski- legt að umhverfisráðherra gangi til liðs við þá, sem berjast gegn frekara raski á hálendi Íslands. Það er ekki nóg að ráðherrann snúist gegn auglýsingum af þessu tagi. Sigríður Anna verður að snúast gegn öllum frekari framkvæmdum á þessu svæði. Það er tímabært að slá skjald- borg um hálendið og að þjóðin sameinist um þá stefnu að láta það í friði. Það eru enn til verndaðir staðir á Íslandi, þar sem sjá má árangur þess að friða stór svæði fyrir ágangi „menningarinnar“. Slík svæði má t.d. sjá á Hornströndum. Þótt náttúran hafi orðið að láta undan síga á mörgum svæð- um á hálendinu eru þó eftir þar stór svæði, sem eru ósnortin. Tökum höndum saman um að þau verði það áfram. Það er erfitt að trúa því,þegar blaðamaður ogljósmyndari renna í hlaðvið Búðarklett og gamla pakkhúsið, rétt við Brákarey í Borgarnesi, að eftir rétt rúma viku eigi þar eftir að opna stórglæsilegt Landnáms- og Egilssögu setur. Handan gapandi skurðar og til- heyrandi skurðgrafna sem öslast í vegagerð fyrir framan húsin, vinnur hópur iðnaðarmanna af kappi við að klæða veggi, leggja rafmagn, mála, setja upp ljós, svo ekki sé minnst á að ljúka við smíði tengibyggingar á milli húsanna, þar sem gjafaverslun og miðasala á sýningarnar tvær verða til húsa. „Þetta lítur vissulega út eins og þetta klárist aldrei í tíma, en við er- um vön því í leikhúsinu að hlutirnir séu að smella saman alveg fram á frumsýningardag,“ segir Sigríður Margrét Guðmundsdóttir, sem ásamt eiginmanni sínum Kjartani Ragnarssyni, hefur unnið að und- irbúningi Landnámssetursins und- anfarin þrjú ár. „Þetta er mikið af leikhúsfólki sem er að vinna með okkur, leikmyndasmiðir, ljósahönn- uðir og tæknihönnuðir. Það eru allir vanir því að vinna undir svona álagi.“ Menningartengd ferða- þjónusta lyftistöng Hugmyndin að Landnámssetrinu kviknaði á ferðalögum þeirra hjóna um landið, en á þeim kynntu þau sér menningartengda ferðaþjónustu sem hefur verið byggð upp á Norð- urlandi, m.a. Vesturfarasetrið á Hofsósi og Síldarminjasafnið á Siglufirði, sem bæði hafa verið gríð- arleg lyftistöng fyrir ferðaþjónustu og samfélag á svæðunum þar í kring. „Við erum búin að vera far- arstjórar á hestbaki í fimmtán ár, og Íslendingasögurnar verða svo skemmtilegar þegar maður upplifir þær í umhverfinu þar sem þær ger- ast,“ segir Kjartan. „Alltaf þegar maður er að segja útlendingum sög- urnar í sínu umhverfi þarf maður að byrja á að segja söguna af landnám- inu, þessari einstöku sögu um hvernig fólk kom til Íslands. Þess vegna vildum við reisa Landnáms- setur þar sem maður segir útlend- ingnum eða skólabarninu söguna sem maður verður að segja hverjum manni áður en hann kemur til Þing- valla. Við segjum hana á einfaldan, skýran og skemmtilegan hátt.“ Söguleg verslunarhús Húsin tvö sem hýsa Landnáms- setrið og sýninguna um Egil Skalla- grímsson eru meðal elstu húsa Borgarness. Pakkhúsið, þar sem sýningarnar tvær eru, er byggt árið 1883 af Thor Jensen, sem þá var verslunarstjóri hjá norskum kaup- manni, en Búðarklettur, sem hýsir veitingastað og aðra þjónustu við gesti setursins, er byggður árið 1903, ofan á grunni húss sem byggt var árið 1860. Setrið er samstarfsverkefni hjónanna og Borgar Stærstu einstöku bakhjar efnisins eru hjónin Ólafur og Ingibjörg Kristjánsd Ólafur er sonur Ólafs Sver sem lengi var kaupfélag Borgarnesi og konu han „Það var svolítið sérstak ákváðu að gera þetta til m um hjónin og þegar þau spu Þau Kjartan og Sirrý hafa hrifist mjög af menningartengdri ferð Landnámssetur og sýning um Egil Skallagrímsson Ólík upp tveimur sý Morgunblað Landnámssetur eitt kostafagurt verður opn- að í Borgarnesi eftir rétta viku. Svavar Knút- ur Kristinsson og Eyþór Árnason brugðu sér bæjarleið og heimsóttu hjónin Sigríði Margréti Guðmundsdóttur og Kjartan Ragnarsson, sem hafa átt veg og vanda af bygg- ingu setursins.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.