Morgunblaðið - 06.05.2006, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. MAÍ 2006 63
DAGBÓK
VANTAR ÞIG GISTINGU
Í DANMÖRKU?
Við erum staðsett í Hedensted á
Jótlandi og bjóðum upp á
huggulega heimagistingu á
sveitabæ með stórkostlegu útsýni
og friðsælu umhverfi. Heima-
gistingin verður opnuð í lok maí nk.
Nánari uppl. á www.fuglesangbb.dk
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
Raðhús í Fossvogi óskast
Traustur kaupandi
óskar eftir raðhúsi í
Fossvogi nú þegar.
Nánari upplýsingar veita Sverrir og Kjartan.
ÍGerðarsafni verður í dag opnuð yfirlitssýn-ing á verkum Guðmundar frá Miðdal. „Á sýningunni eru verk GuðmundarEinarssonar frá öllum tímabilum listferils
hans,“ segir Guðbjörg Kristjánsdóttir, forstöðu-
maður Gerðarsafns.
„Hilmar Malmquist, forstöðumaður Náttúru-
fræðistofu Kópavogs, átti hugmyndina, þessar
tvær stofnanir ákváðu að taka höndum saman og
standa að þessari sýningu undir yfirskriftinni:
„Maðurinn í náttúrunni og náttúran í manninum.“
Þetta er svo kjörið því Guðmundur sótti í náttúr-
una og málaði og mótaði bæði landslag og dýr, það
er örstutt á milli safnanna, skiptingin varð sú að
hinum ástsælu leirstyttum af dýrum skyldi komið
fyrir í sýningarkössunum í anddyri Náttúrufræði-
stofu en málverkum, grafík og vatnslitamyndum,
fáeinum höggmyndum, keramiki, ýmsum styttum
og hönnun af ýmsu tagi er svo búið að koma vel
fyrir í sölum Gerðarsafns.
Er Guðmundur sérstaklega margbreytilegur
sem listamaður?
Já, það er einmitt þessi fjölbreytni sem ein-
kennir Guðmund, hann er myndhöggvari og mál-
ari og er frumkvöðull að leirmunagerð á Íslandi
og líka í grafík. Hann var fyrst í listnámi í Kaup-
mannahöfn og síðan í München. Þar lærði hann
höggmyndagerð, grafík og leirmunagerð. Hann
skrifaði og bókina Fjallamenn, var mikill fjalla-
garpur og veiðimaður,“ segir Guðbjörg.
„Ari Trausti, sonur Guðmundar var okkur mjög
hjálplegur. Hann, Hilmar Malmquist og ég erum
sýningarstjórar.
Guðmundur frá Miðdal stofnaði Listvinahúsið
1930 og fór að gera leirmuni og þeir urðu gríðar-
lega vinsælir, styttur hans voru til á öðru hverju
heimili. Ef við setjum þetta í sögulegt samhengi
við postulínsgerðina og skoðum hefðina t.d. í Dan-
mörku og víðar í Evrópu sjáum við hversu sér-
stæðar þessar styttur hans Guðmundar eru.“
Hvert telur þú að sé hans frægasta verk?
„Fálkinn! Íslandsfálkinn var gersemi, fluttur út
frá miðöldum, það er fyrirmyndin og fálkastyttan
var að vissu leyti tákn Íslands. Hin hliðin á þessari
styttugerð eru svo rjúpurnar tvær sem kúra sam-
an. Einnig bjó hann til mót af mörgum smáfugl-
um, svo sem músarrindlum, þröstum og maríu-
erlum. Svo eru til eftir hann styttur af mörgum
sjófuglum. Það er svo skemmtilegt við þessar litlu
fuglastyttur að engin þeirra er alveg eins þótt
mótin séu þau sömu. Liturinn í glerungnum er
alltaf mismunandi. Hilmar Malmquist hefur stillt
upp í sýningarkassana mörgum styttum af sama
fuglinum, þetta eru hópfuglar svo þetta er vel við
hæfi. Svo megum við ekki gleyma málverkunum,
höggmyndunum, vatnslitamyndunum og grafik-
myndunum.
Var Guðmundur vinsæll listamaður á Íslandi?
Einstaklega, á sýningunni eru m.a. hlutir sem
til voru á mjög mörgum heimilum, svo sem krukk-
ur og krúsir, kertastjakar, öskubakkar og bók-
stoðir. Slíkt er hjá okkur á Gerðarsafni. Sumir
segja þegar þeir sjá þetta: „Það er eins og maður
sé kominn heim til afa og ömmu!“
List | Yfirlitssýning á verkum Guðmundar frá Miðdal í Gerðarsafni
Fjölhæfur listamaður
Guðbjörg Kristjáns-
dóttir er forstöðumað-
ur Gerðarsafns í Kópa-
vogi. Hún er listfræð-
ingur, nam í Sorbonne í
París. Hún kenndi um
árabil listasögu í Hand-
íða- og myndlistarskóla
Íslands og stundaði
rannsóknir á íslenskri
miðaldalist. Hún er gift
Benjamín Magnússyni
arkitekt og eiga þau tvo syni.
Íslandsmótið.
Norður
♠Á7
♥DG74 V/AV
♦G852
♣G76
Vestur Austur
♠65 ♠G10832
♥9852 ♥ÁK10
♦1063 ♦9
♣K1098 ♣D532
Suður
♠KD94
♥63
♦ÁKD74
♣Á4
Vestur Norður Austur Suður
– Pass 1 spaði Dobl
Pass 2 hjörtu Pass 2 grönd
Pass 3 grönd Allir pass
Engin sögn er beinlínis góð á suð-
urhöndina – þau eru full sterk í eitt
grand eða tvo tígla, en doblið hættir
því að makker fjúki upp í fjögur hjörtu
á fimmlit og slöttungsspil. En eitthvað
verður að gera og hér lendir suður á
löppunum.
Vestur hittir á gott útspil – lauftíu.
Níu slagir eru á borðinu, en er hægt að
ná í þann tíuna?
Eftir opnun austurs er ekkert leynd-
armál að hann heldur á meginstyrk
varnarinnar og þar með sennilega ÁK í
hjarta. Með tilliti til þess er kannski
hægt að gera honum erfitt um vik að
valda spaðann.
Til að byrja með er nauðsynlegt að
dúkka fyrsta laufið. Næsti slagur fæst
á laufás og síðan eru tíglarnir teknir.
Austur getur hent einum spaða, einu
hjarta og einu laufi. En fimmti tígull-
inn setur hann í vanda.
Spaða má austur alls ekki henda, en
ef hann kastar síðasta laufinu mun
sagnhafi spila hjarta. Austur svarar
því best með litlum spaða, en það dugir
ekki til – sagnhafi getur til dæmis
drepið á ásinn, spilað spaða aftur og
neytt austur til að stinga upp tíu. Það
er drepið, en síðan lendir austur aftur
inni á háhjarta og verður að spila spaða
frá Gx í gegnum gaffal suðurs.
En austur getur haldið sagnhafa í
níu slögum með því að henda öðrum
hámanninum í hjarta! Hann geymir
eitt lauf og þar með sambandið við
makker til að taka þar tvo slagi.
Spilið er frá undankeppni Íslands-
mótsins síðastliðinn laugardag.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
Laun í krónum og prósentum
ÉG var í hópi fólks sem var að tala
um setuverkfall þeirra sem vinna við
umönnunarstörf eldri borgara. Það
vissi enginn í hópnum hver launin
voru í krónutölu, vissu bara að þau
höfðu hækkað um 4%. Það er alltaf
verið að tala um hversu hátt laun
hækka í prósentutölu en ekki hvað
þau hækka í krónutölu. Það tók sig
því einn til og hringdi á skrifstofu
Hrafnistu og spurði hver þessi
lægstu laun væru á mánuði í krónu-
tölu og fékk það svar að þau yrðu um
117 þús. á mánuði eftir hækkunina.
Þetta eru náttúrulega engin laun.
Sagt var á skrifstofunni að þeir sem
væru með háskólamenntun fengju
hærri laun þótt þeir væru að vinna
sömu vinnu og aðili sem er ómennt-
aður. Það væri fróðlegt að fá upplýs-
ingar um þetta.
190923-4799.
Eindagi
ÉG vil vekja athygli á því að ef mað-
ur er með reikninga sem eru með
gjalddaga 1. apríl og eindagi 30. apr-
íl heldur maður að það sé hægt að
borga hann á fyrsta vinnudegi í
banka eftir 1. maí en það dugar ekki
til því þá lendir maður í að borga
dráttarvexti fyrir þessa daga. Fólk
varar sig ekki á þessu og heldur að
hægt sé að borga fyrsta vinnudag í
banka.
Skattborgari.
Þyrlur varnarliðsins
ÞAR sem bandaríski herinn er á för-
um er lágmarkskrafa að við fáum
a.m.k. tvær þyrlur varnarliðsins +
eldsneytisvélina en Japanir hafa
verið að fá ýmiss konar varnarbúnað
í sárabætur vegna lokunar þar.
Þetta myndi leysa vanda Landhelg-
isgæslunnar sem hefði þá yfir 4 þyrl-
um að ráða.
Ingi Stein.
Innbundinn Moggi í óskilum
LAUGARDAGINN 29. apríl sl. um
hálffjögurleytið, fannst í Bólstaðar-
hlíð innbundin pappamappa með
Mogganum frá 1.–13. febrúar 2005.
Mappan er mjög vel farin, og er úr
brúnum þykkum pappa. Framan á
stendur: Moggi, Febrúar 2005, I.
Eigandi hafi samband í síma
845 7040.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
1. d4 Rf6 2. Rf3 e6 3. e3 c5 4. Bd3 Rc6 5.
c3 d5 6. Rbd2 Dc7 7. 0-0 Bd7 8. a3 Bd6 9.
dxc5 Bxc5 10. b4 Bd6 11. Bb2 Rg4 12. h3
Rce5 13. Rxe5 Rxe5 14. Be2 0-0 15. c4
Rxc4 16. Rxc4 dxc4 17. Dd4 f6 18. Had1
Bh2+ 19. Kh1 Ba4 20. g3 Bxd1 21. Dxd1
Bxg3 22. fxg3 Dxg3 23. Hf3 Dc7 24. Bc3
Had8 25. Dg1 e5 26. Dg4 b5 27. h4 Dd7
28. Dg2 Dd5 29. Hf1 De6 30. h5 f5 31.
Dg3 Hfe8 32. Kh2 Hd7 33. Hf2 Hf7 34.
Bd1 Hd7 35. Bc2 Hf7 36. Dh3 e4 37.
Hg2 Dd6+ 38. Dg3 Dh6 39. Dg5 Dxg5
40. Hxg5 He6 41. a4 Ha6 42. axb5 Ha2
43. Hg2 Kf8 44. Bd4 g6 45. hxg6 hxg6
Staðan kom upp í SM-flokki Fyrsta
laugardagsmótsins í Búdapest í Ung-
verjalandi sem lauk fyrir skömmu.
Gyula Pap (2.389) hafði hvítt gegn tyrk-
neska alþjóðlega meistaranum Adnan
Sendur (2.400). 46. Bxe4! Hxg2+ 47.
Bxg2 Hc7 48. Bc6 He7 49. e4! fxe4 50.
Bc5 hvítur stendur nú til vinnings þar
eð hvítreiti biskupinn nær auðveldlega
að stöðva frípeð svarts. Lokaleikir skák-
arinnar urðu eftirfarandi: 50. … Kf7 51.
Bd5+ Kf6 52. Bxe7+ Kxe7 53. Bxc4
Kd6 54. Kg3 Ke5 55. Kf2 Kf4 56. Ke2
g5 57. Bf7 g4 58. Be6 g3 59. Bh3 Ke5
60. Ke3 Kd5 61. Bf1 Ke5 62. Bg2 Kd5
63. Bxe4+ Kc4 64. Bd3+ Kc3 65. Bf1
Kxb4 66. Kf3 g2 og svartur gafst upp .
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
80 ÁRA afmæli. Kristín Guð-mundsdóttir, Kirkjusandi 1,
Reykjavík, verður áttræð næstkom-
andi sunnudag, 7. maí. Af því tilefni
mun hún ásamt fjölskyldu sinni taka á
móti gestum í sal Þróttar í Laugardal
(við gervigrasvöllinn) milli kl. 17 og 19
á afmælisdaginn.
40 ÁRA afmæli. Í dag, 6. maí, erfertug Margrét Sigurðardóttir
(Magga massi), vaxtarræktardrottn-
ing og einkaþjálfari í Pumping Iron.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
BÓKAFORLAGIÐ Bjart-
ur hefur gefið út í kilju
sakamálasöguna
Krosstré eftir Jón Hall
Stefánsson. Liðlega
fertugur arkitekt
finnst lífshættulega
slasaður við sumar-
bústað sinn við Þing-
vallavatn. Valdimar Eggertssyni rann-
sóknarlögreglumanni er falið að
kanna málið.
Prentun var í höndum Odda hf.,
Ásta S. Guðbjartsdóttir annaðist
kápuhönnun, verð kr. 1.890.
Nýjar bækur