Morgunblaðið - 06.05.2006, Page 64
64 LAUGARDAGUR 6. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Flottur stíll felst í fleiru en að kaupa
réttu flíkurnar. Um helgina endurskoðar
hrúturinn forgangsröðina til þess að
bæta lífsmáta sinn. Hæfar manneskjur í
kringum þig gera algerlega gæfumun-
inn.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Nautið spyr hvort það eigi eftir að finna
sálufélagann sem lætur því líða vel á
margvíslegan og undursamlegan hátt.
Himintunglin beina sjónum að frábær-
um eiginleikum þínum. Um leið og þú
sérð þá tekst þér að laða að þér aðra sem
sjá þá líka.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Tvíburinn notar hæfileika sína til þess að
afla peninga. Spennandi svið sem vert er
að kanna eru fasteignir og lítil fyrirtæki.
Ekki hafa áhyggjur þótt engir samn-
ingar takist í dag, þú færð annað tæki-
færi.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Krabbinn er eins opinn og hugsast get-
ur. Ef einhver reynist ekki traustsins
verður í dag, tekur krabbinn því sem vís-
bendingu fyrir framtíðina. Innsæi þitt
hjálpar þér við að greina sannleikann frá
skáldskap.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljónið finnur leið til þess að tala og það
sem meira er, hlusta, á heillandi mann-
eskjur. Það þarf ekki nema einn spenn-
andi fund til þess að bjarga deginum,
opna nýja veröld, breyta lífinu.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Himintunglin draga barnslega forvitni
meyjunnar fram í dagsljósið. Hún sér
heiminn á furðulegan máta og er sífellt
að uppgötva eitthvað. Til þess að halda
því áfram þarftu að sneiða hjá þung-
meltu og hefðbundnu viðhorfi.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Bestu tækifærin í dag koma í formi
óformlegs boðs eða náttúrulegra hvata.
Þú gætir uppgötvað mikilfengleika al-
heimsins á gönguferð í trjálundi eða með
barn í fanginu.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdrekinn uppgötvar nýjar leiðir til
þess að frelsa sálu sína. Möguleikar
koma í ljós þegar þú tekur eitthvað af
verkefnalistanum eða hættir við fram-
kvæmdir sem þú ert ekkert spenntur
fyrir. Kunningsskapur við hrút færir þér
heppni.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Viðhorf bogmannsins er að hallmæla
ekki því sem hann hefur ekki prófað. Til-
raunastarfsemi getur af sér tekjur, nýja
vini eða ný áhugamál. Bara það að keyra
nýja leið heim, gæti kveikt neista að
nýrri hugdettu.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Leyfðu þér að fljóta með atburðarásinni,
barátta af einhverju tagi er bara tíma-
sóun. Ef þú tilgreinir nákvæmlega hvað
þú vilt, er líklegra að þú fáir það fyrr.
Spáðu í þetta: Flutningur gæti orðið til
þess að endurnýja þig.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þó að vatnsberinn vilji helst ekki viður-
kenna það, skiptir útlit máli. Það verður
gaman að einbeita sér að yfirborðsþátt-
um tilverunnar í dag. Vel útfærður stíll
er beinskeytt tjáning á virðingu fyrir
sjálfum sér.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Maður sáir eins og hann uppsker, það er
gömul saga og ný. Haltu loforð og skuld-
bindingar sem þú hefur gert við fjöl-
skylduna. Þannig verða óskir þínar virt-
ar á móti. Börnin haga sér vel, full sjálfs-
trausts, og bera þér þannig fagurt vitni.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
Tungl í meyju og sól í
nauti eru eins og vinir sem
rotta sig saman um að
jarðtengja okkur við betri raunveruleika.
Að lifa vel er spurning um gæði frekar en
magn. Hvort sem við erum að versla,
vinna eða taka það rólega blundar þráin
eftir munaði undir niðri.
Tónlist
Café Aroma | Snilldarhljómsveitin Menn
ársins spila í kvöld.
Café Rosenberg | Í tilefni af útgáfu geisla-
disksins „Leiðin er löng“, mun Halli Reynis
halda útgáfutónleika á föstudags- og
laugardagskvöld.
Digraneskirkja | Tónleikar eldri félaga
Karlakórs Reykjavíkur sunnudaginn 7. maí
kl. 17. Söngstjóri: Kjartan Sigurjónsson,
einsöngvari: Óskar Pétursson, undirleikari:
Bjarni Þór Jónatansson.
Grand Rokk | Fjóðri parturinn í young’n-
’fresh tónleikaseríunni kl. 22. Þar koma
fram hljómsveitirnar: Ourlives, Gavin Port-
land og Oak Society. Aðgangur kr. 500.
Grensáskirkja | Lillukórinn í Húnaþingi
vestra heldur tónleika kl. 15. Kórstjóri er
Ingibjörg Pálsdóttir, undirleikari og stjórn-
andi er Guðjón Pálsson. Efnisskráin er fjöl-
breytt, bæði innlend og erlend lög. Kórinn
hefur gefið út tvo geisladiska: Ég hylli þig
Húnaþing og Sendu mér sólskin.
Hafnarfjarðarkirkja | Vortónleikar kórs
Hafnarfjarðarkirkju með kór Lindakirkju,
sunnudaginn 7. maí kl. 17. Flutt verður
messa e. Gounod, verk e. Mozart o. fl. Ein-
söngvarar: Gréta Jónsdóttir, Hrönn Haf-
liðadóttir, Jóhannes A. Jónsson og Svava
K. Ingólfsdóttir. Píanó: Antonia Hevesi.
Komið og njótið. Frír aðgangur.
Kaffi Cosy | DJ Amman spilar á jazz, fönk,
diskó og elektro-popí kvöld kl. 22–05.30.
Ókeypis inn og allir velkomnir á meðan
húsrúm leyfir.
Klúbburinn við Gullinbrú | Hljómsveitin
Oxford spilar í kvöld.
Laugarneskirkja | Vortónleikar Álafoss-
kórsins verða sunnudaginn 7. maí kl. 16.
Stjórnandi : Helgi R. Einarsson. Meðleikari:
Arnhildur Valgarðsdóttir. Einsöngvarar: Íris
Hólm Jónsdóttir og Viktor A Guðlaugsson.
Aðgangur kr. 1.000.
Loftkastalinn | Neyðarhjálp úr norðri
stendur fyrir fjölskylduskemmtun í Loft-
kastalanum kl. 14. Fram koma yfir 100 tón-
listarmenn og skemmtikraftar. Ágóði renn-
ur til fórnarlamba flóða í Tékklandi.
Miðaverð kr. 1.500 og miðasala hefst í Loft-
kastalanum kl. 12 á hádegi.
Salurinn, Kópavogi | Tónleikar kennara
Tónlistarskóla Kópavogs kl. 13. Frönsk 20.
aldar píanótónlist fyrir tvo. Nína Margrét
Grímsdóttir og Sólveig Anna Jónsdóttir
leika píanótónlist fyrir tvo flygla eftir
Fauré, Debussy og Milhaud.
Seltjarnarneskirkja | Listahátíð Seltjarn-
arneskirkju lýkur sunnudaginn 7. maí kl. 17
með tónleikum sinfóníuhljómsveitar
áhugamanna og kammerkórs Seltjarnar-
neskirkju ásamt einsöngvurum kórsins.
Stjórnandi Pavel Manasek. Í framhaldi af
því verða einsöngstónleikar Vieru Mana-
sek. Allir velkomnir og aðgangur ókeypis.
Ýmir | Vortónleikar Kvennakórs Reykjavík-
ur ásamt Friðriki Ómari í Ými fim. 11. maí og
föst. 12. maí kl. 20. Flutt verða lög úr vin-
sælum söngleikjum. Forsala hjá kórfélög-
um í síma 896-6468 og á kvkor@mmedia-
.is Verð kr. 2000 í forsölu, 2.300 við inn-
ganginn.
Myndlist
101 gallery | Steingrímur Eyfjörð - Bein í
skriðu. Opið fim.–laug. kl.14–17. Til 3. júní.
Akranes | Kjartan Guðjónsson sýnir olíu-
verk í Listasetrinu Kirkjuhvoli, Akranesi til
7. maí.
Anima gallerí | Björg Örvar barnasaga/
fiskisaga – málverk. Til 21. maí.
Aurum | Sunna Dögg Ásgeirsdóttir, sýnir
grafíkverkin Pá - lína sem eru prentuð á
striga til 15. maí.
Bókasafn Garðabæjar | 13 myndlistar-
nemar úr Garðabæ með málverkasýningu í
húsnæði Bókasafns Garðabæjar.
Café Karólína | Gunnar Kristinsson sýnir
málverk, teikningar og prjónaskap þar sem
sigurlið heimsmeistarakeppninnar í knatt-
spyrnu 2006 er kynnt. Til 2. júní.
Classic Rock | Myndlistasýningin „Slettur“
á veggjum staðarins.
Energia | Kristín Tryggvadóttir – Rauður
þráður. Til 19. maí.
Gallerí Dvergur | „MUCUS“ Magnús Árna-
son myndlistarmaður flytur gjörning 6., 13.
og 17. maí kl. 20–20.30. Gjörningurinn
stendur aðeins yfir í 20 mínútur.
Gallerí Fold | Tryggvi Ólafsson sýnir mál-
verk til 14. maí.
Gallerí Lind | Listamaður maímánaðar hjá
Gallerí Lind er Guðrún Benedikta Elíasdótt-
ir, hún sýnir akrílmálverk sem eru að mestu
máluð í Frakklandi á síðastliðnu ári. Til 20.
maí.
Gallerí Sævars Karls | Graeme Finn sýnir
300 teikningar sem mynda innsetningu í
Galleríinu.
Gallerí Úlfur | Gallerí Boreas frá New York
sýnir verk eftir Adam Bates. Sýningin
„Sögur“ stendur yfir til 31. maí.
Gallerí Úlfur | Torfi Harðarson er með sýn-
ingu á hestamálverkum til 7. maí.
Grafíksafn Íslands | Marlies Wechner –
Innsetning: … og ekkert dylst fyrir geisla-
glóðinni … opnun í dag kl. 14.00 í Graf-
íksafni Íslands – sal íslenskrar grafíkur,
Tryggvagötu 17, hafnarmegin.
Guðrún Halldórsdóttir, vinnustofa og
sýningarsalur | Guðrún Halldórsdóttir með
sýningu á nýrri verkum sínum og myndum
af fyrri verkum í sýningarsal í Ármúla 1.
Opið fyrir alla. Hafið samband í síma
660 8441 fyrir heimsóknir framvegis.
Hafnarborg | Rósa Sigrún Jónsdóttir er
myndhöggvari mánaðarins í Hafnarborg.
Verkin sem Rósa sýnir nú í kaffistofu
Hafnarborgar ganga undir heitinu „Svart-
hvítir dagar“. Til 29. maí.
Hafnarborg | Örn Þorsteinsson mynd-
höggvari sýnir í öllum sölum Hafnarborgar,
menningar- og listatofnunar Hafnarfjarðar.
Til 29. maí.
Hallgrímskirkja | Sýning á olíumálverkum
Sigrúnar Eldjárn stendur til 30. maí.
Karólína Restaurant | Joris Rademaker
sýnir ný verk Mjúkar línur/ Smooth lines.
Til 6. okt.
Ketilhúsið Listagili | Sýning Soffíu Sæ-
mundsdóttur „einskonar landslag“ í Ketil-
húsinu Listagilinu Akureyri hefur verið
framlengd til 7. maí.
Listasafn ASÍ | Kees Visser sýnir málverk í
Listasafni ASI. Opið 13–17. Aðgangur
ókeypis. Til 28. maí.
Listasafn Reykjanesbæjar | Í EYGSJÓN?
Sex færeyskir málarar. Myndefnið er fær-
eysk náttúra.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Ásmundur Sveinsson – Maður og efni. Sýn-
ing á úrvali verka úr safneign Ásmundar-
safns, sem sýnir með hvaða hætti lista-
maðurinn notaði mismunandi efni – tré,
leir, stein, brons, og aðra málma – og
hvernig sömu viðfangsefni birtast í ólíkum
efnum.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Sam-
starfsverkefni Listasafns Reykjavíkur og
Listaháskóla Íslands þar sem um 75 nem-
endur í útskriftarárgangi myndlistar- og
hönnunarsviðs sýna verk sín. Til 25. maí.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Sýning fyrir unga listunnendur sem sett er
upp í tengslum við útgáfu nýrrar bókar
Eddu útgáfu um myndlist fyrir börn þar
sem kynnt eru verk úr safneign Listasafns
Reykjavíkur. Til 3. des.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Innsetningar eftir Joseph Kosuth og Ilja &
Emiliu Kabakov sem eru fremstu kons-
eptlistamenn heimsins í dag. Á sýningunni
vinna þau með ólík þemu úr ævintýrum
sagnaskáldsins mikla, H.C. Andersen. Hluti
sýningarinnar fer einnig fram í porti Hafn-
arhússins. Til 5. júní.
Listasalur Mosfellsbæjar | Sundrun – sýn-
ing á verkum Marissu Navarro Arason
stendur nú yfir til 24. maí
Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs|
Humberto Velez, listamaður frá Panama
kemur með suður-ameríska strauma.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos/
Skráning viðburðar í Staður og stund er á
heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos
Skráning viðburða
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 myndarleg, 8
óframfærni maðurinn, 9
minnast á, 10 tala, 11 vit-
lausa, 3 raunin, 15 slátra,
18 búa til saft, 21 lengd-
areining, 22 skrifar, 23
viljuga, 24 brjóstbirtu.
Lóðrétt | 2 Asíuland, 3
skrika til, 4 sigruðum, 5
örðug, 6 gauf, 7 erta, 12
gljúfur, 14 geisa, 15
gamall, 16 smá, 17 ákveð,
18 mikli, 19 fáni, 20 eðlis-
far.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 þyrma, 4 hækil, 7 áburð, 8 ýlfur, 9 nár, 11 rótt,
13 ónáð, 14 ágeng, 15 jarl, 17 nema, 20 Ægi, 22 dapur,
23 læðan, 24 sárin, 25 tærar.
Lóðrétt: 1 þráir, 2 raust, 3 auðn, 4 hlýr, 5 kofan, 6 lærið,
10 áfeng, 12 tál, 13 ógn, 15 Júdas, 16 rípur, 18 eiður, 19
Agnar, 20 æran, 21 illt.