Morgunblaðið - 06.05.2006, Side 69
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. MAÍ 2006 69
Síðastliðið miðvikudagskvöldhélt bandaríski tónlistarmað-urinn Iggy Pop tónleika í
Hafnarhúsinu við Tryggvagötu.
Tónleikarnir áttu upphaflega að
fara fram í Laugardalshöllinni en
nokkrum dögum fyrir tónleikana
var ákveðið að færa þá í Hafn-
arhúsið í ljósi þess að miðasala gekk
mun verr en tónleikahaldarar höfðu
vonast til. Laugardalshöllin rúmar á
bilinu 4.500 til 5.000 manns en sam-
kvæmt heimildarmönnum Morg-
unblaðsins sóttu innan við 1.000
manns tónleikana á miðvikudaginn,
og því ljóst að mikið vantaði upp á
til þess að fylla Laugardalshöllina.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
tónleikahaldarar hér á landi hafa
þurft að minnka við sig með þessum
hætti, og ef heldur fram sem horfir
er þetta ekki í það síðasta. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
gengur sala á fjölmarga tónleika
sem framundan eru ekki eins vel og
vonast hafði verið til, og má meðal
annars nefna tónleika Ian And-
erson, Roger Waters og Ahmet og
Dweezil Zappa. Þá hefur heyrst að
miðasala á Manchester tónleikana í
kvöld hafi ekki staðist væntingar.
Ástæður þessarar lélegu miða-
sölu eru trúlega nokkrar.
Fyrst ber að nefna miðaverðið,
sem í mörgum tilfellum er of hátt.
Sem dæmi má nefna að miðar á tón-
leika Ian Anderson í Laugardals-
höllinni kosta á bilinu 5.500 til 8.900
krónur og miðar á syni Frank
Zappa á sama stað kosta 5.300 eða
6.300 krónur, auk miðagjalds. Það
er því ljóst að ef pör eða hjón ætla
að skella sér á tónleika getur verið
um umtalsverð útgjöld að ræða.
Þá getur verið að hið mikla fram-
boð af erlendum tónlistarviðburðum
sem verið hefur hér á landi að und-
anförnu hafi gert það að verkum að
fólki finnst ekki eins merkilegt að
sjá fræga tónlistarmenn og áður.
Líklegasta ástæðan er þó sú að
tónleikahaldarar eru í mörgum til-
fellum að fá til landsins tónlist-
armenn sem Íslendingum þykja
ekki mjög áhugaverðir, að minnsta
kosti ekki nógu áhugaverðir til þess
að fylla Laugardalshöllina. Það er
til dæmis óðs manns æði að búast
við því að synir Frank Zappa fylli
Höllina. Frank Zappa sjálfum hefði
líklega ekki tekist að fylla hana,
væri hann á lífi í dag. Án þess að
vera að gera lítið úr Zappa-sonum
hugsa ég að þeir væru betur settir á
minni stað, til dæmis á NASA. Þeir
eiga örugglega sína aðdáendur hér
á landi sem vilja án efa frekar sjá þá
fyrir fullu húsi á NASA en í hálf-
tómri Laugardalshöll.
Þá er ekki víst að það sé nóg að fá
söngvara eða forsprakka gamalla
hljómsveita til þess að vekja athygli
Íslendinga. Þótt Roger Waters muni
flytja Pink Floyd efni á tónleikum
sínum hér á landi, er ekki um Pink
Floyd að ræða, og hið sama gildir
um tónleika Ian Anderson úr Jethro
Tull.
Þótt ótrúlegt megi virðast eru
fjölmörg tónleikahús af öllum
stærðum og gerðum til á Íslandi, til
dæmis Gaukur á Stöng, Broadway,
NASA, Hafnarhúsið, Kaplakriki,
Laugardalshöllin og Egilshöll. Tón-
leikahaldarar ættu að hafa vaðið
fyrir neðan sig og velja frekar
minni staði en stærri ef þeir eru
ekki með þeim mun meiri stór-
stjörnur í pokahorninu. Ef miðasal-
an gengur vel geta þeir þá frekar
bætt við aukatónleikum, eins og
gert var þegar Nick Cave kom hing-
að til lands, en miðar á tónleika
hans á Broadway seldust upp á
stuttum tíma.
Þessi pistill er ekki skrifaður til
þess að draga kraftinn úr íslenskum
tónleikahöldurum sem hafa að
mörgu leyti staðið sig vel á und-
anförnum árum og boðið upp á frá-
bæra viðburði á borð við tónleika
Metallica, Duran Duran og Nick
Cave, svo fátt eitt sé nefnt. Það er af
hinu góða að framboðið sé mikið, en
það verður hins vegar að haldast í
hendur við eftirspurnina. Aðstand-
endur þessara tónleika verða því að
íhuga hvaða listamenn geta fyllt
byggingar á borð við Laugardals-
og Egilshöllina, en þeir virðast ekki
vera margir. Það er af sem áður var
að Íslendingar fjölmenni á alla tón-
leika erlendra poppstjarna. Fram-
boðið er það mikið hér á landi að Ís-
lendingar velja einfaldlega það sem
þeir virkilega vilja sjá, annað láta
þeir vera.
Hallæri í
tónleikahaldi
’Það er til dæmis óðsmanns æði að búast við
því að synir Frank Zappa
fylli Laugardalshöllina.
Frank Zappa sjálfum
hefði líklega ekki tekist
að fylla hana, væri hann á
lífi í dag.‘
Morgunblaðið/Ómar
Færa þurfti tónleika Iggy Pop vegna lélegrar miðasölu. jbk@mbl.is
AF LISTUM
Jóhann Bjarni Kolbeinsson
Morgunblaðið/Golli
Aukatónleikum var bætt við þegar Nick Cave kom hingað til lands, en mið-
ar á fyrri tónleikana seldust upp á 50 mínútum.
Morgunblaðið/KristinnFrá miðasölu á tónleika Nick Cave árið 2002.
SIGURJÓN Sighvatsson framleið-
andi heldur að þessu sinni til kvik-
myndahátíðarinnar í Cannes með
tvær nýjar myndir í farteskinu.
Önnur þeirra Zidane: 21. aldar
mannlýsing fjallar um knatt-
spyrnusnillinginn franska Zined-
ine Zidane en í myndinni er fylgst
með Zidane í heilan knattspyrnu-
leik með hjálp nýjustu tækni á
sviði kvikmyndaframleiðslu.
Hin myndin, Destricted, fjallar
um skilin á milli listar og kláms en
innan myndarinnar er að finna sjö
stuttmyndir eftir þekkta lista- og
kvikmyndagerðarmenn, þar á
meðal Matthew Barney. Var stutt-
myndasafnið valið á Critics Week í
Cannes.
Heimildamyndin um Zidane var
valin í flokkinn Official Selection
en hún verður þó ekki í keppninni
um Gullpálmann. Reikna má með
því að yfirlýsing Zinedine Zidane á
dögunum um að hann muni leggja
skóna á hilluna að lokinni heims-
meistarakeppninni muni auka
áhuga fólks á kvikmyndinni.
Sigurjón Sighvatsson hlaut Gull-
pálmann í Cannes árið 1992 þegar
hann framleiddi Wild at Heart í
leikstjórn Davids Lynch.
Kvikmyndir | Sigurjón Sighvats með
tvær myndir á Cannes
Knattspyrna
og klám
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Leonardo da Vinci
Education and Culture
H
Ö
N
N
U
N
,
M
Y
N
D
L
IS
T
,
A
R
K
IT
E
K
T
Ú
R
?
MYNDLISTA- OG HÖNNUNARSVIÐ / FORNÁM
MYNDLISTASKÓLINN
Í REYKJAVÍK
býður upp á heilsdagsnám í tveim
deildum skólaárið 2006 – 2007,
til undirbúnings háskólanámi
í sjónmenntum.
KERAMIKKJÖRSVIÐ
21 einingar, í samvinnu við Iðnskólann í
Reykjavík.
MYNDLISTA- OG
HÖNNUNARSVIÐ / FORNÁM
39 einingar, skipulagt með hliðsjón
af aðalnámskrá framhaldsskóla.
Inntökupróf fyrir Myndlista-
og hönnunarsviðið verður
haldið laugardaginn 27. maí.
UMSÓKNARFRESTUR
RENNUR ÚT 17. MAÍ
Nánari upplýsingar um inntökuskilyrði
deildanna er að finna á heimasíðu skólans.
og KERAMIKKJÖRSVIÐ
www.myndlistaskolinn.is • mynd@myndlistaskolinn.is • fornam@myndlistaskolinn.is
Allir kennarar skólans
eru starfandi mynd-
listamenn, hönnuðir
eða arkitektar.
MÓDEL-
TEIKNING
5 daga námskeið,
15. - 19. maí.