Morgunblaðið - 13.05.2006, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 13.05.2006, Qupperneq 10
10 LAUGARDAGUR 13. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR SVEITARSTJÓRNARKOSNINGARNAR í vor í Kópavogi snúast um þjónustu við fólk og hvernig búið er að því fólki sem býr í Kópavogi. „Í því sambandi leggjum við áherslu á að sveit- arfélagið á ekki að reka eins og fyrirtæki heldur á að reka það eins og samfélag. Þjónusta við bæj- arbúa á að vera í forgangi og með því meðal ann- ars að reka kröftuga menningarstefnu gerum við þetta að öflugra og sterkara samfélagi. Bærinn á að vera fyrir alla íbúana og við segjum þröskuld- ana burt. Þegar við segjum það erum við ekki bara að tala um þröskulda sem hindra aðgengi, heldur erum við einnig að tala um þröskulda sem hafa áhrif á það hvernig fólk getur tekið þátt í samfélaginu,“ sagði Ólafur Þór Gunnarsson, fyrsti maður á lista VG í Kópavogi meðal annars á fundi í gær þar sem stefna VG í Kópavogi var kynnt. Vígi félagshyggjunnar Fram kom að flokkurinn vill að bærinn verði aftur vígi félagshyggjunnar eins og áður var og að virk þátttaka bæjarbúa í stefnumörkun í mál- efnum hans verði efld. „VGK leggur í starfi sínu megináherslu á fjölskyldu-, velferðar- og um- hverfismál. Flokkurinn vill byggja upp þróttmik- ið samfélag á grunni jafnaðar og velferðar í sátt við umhverfið.VGK leggur einnig áherslu á að sveitarstjórnarstigið verði eflt, og sveitarfélög- unum verði gert kleift, með viðunandi gjaldstofn- um, að takast á við ný verkefni,“ segir m.a. í stefnuskrá flokksins. Meðal stefnumála má nefna að flokkurinn vill taka upp ókeypis leikskóla í bæjarfélaginu strax og hætta gjaldtöku í grunnskólum, auk þess sem skólamáltíðir í leik- og grunnskólum verði ókeyp- is. Hámark á að setja á stærðir bekkjardeilda í grunn- og leikskólum og allt nám yngstu barnanna, eins og hvað varðar listir og íþróttir á að vera innan heildstæðs grunnskóla. Einnig á að veita 40 þúsund kr. á ári vegna íþrótta-, lista- og tómstundanáms. Þá vill flokkurinn marka bæjarfélaginu heild- stæða stefnu í öldrunarmálum og að bærinn leggi Sunnuhlíð til 500 milljónir króna til viðbyggingar við hjúkrunarheimili samtakanna. Heimaþjón- ustu á að efla og aldraðir að fá niðurfellingu á hluta fasteignagjalda og fella á niður gjöld aldr- aðra vegna líkamsræktar, akstursþjónustu og strætisvagna. Framboðið vill einnig að Kópavogur segi skilið við Launanefnd sveitarfélaga og taki frumkvæði að því að bæta launakjör þeirra sem vinna við uppeldis- og umönnunarstörf. Einnig að launa- kjör bæjarstjóra, bæjarfulltrúa og pólitískt ráð- inna embættismanna verði gagnsæ. Framboðið vill einnig vernda græn svæði í bænum fyrir ágangi verktaka. Skipulagsmál séu umhverfismál og að marka þurfi ákveðna heild- ræna stefnu í verndun óspilltrar náttúru í landi bæjarins. VG í Kópavogi leggur fram stefnuskrá vegna sveitarstjórnarkosninganna Sveitarfélagið á að reka eins og samfélag en ekki eins og fyrirtæki Morgunblaðið/Eyþór Ólafur Þór Gunnarsson og Guðbjörg Sveinsdóttir eru í tveimur efstu sætum á lista VG í Kópavogi. Eftir Hjálmar Jónsson hjalmar@mbl.is EIGENDUR jarðanna Hofs og Kvískerja í Öræfum munu líklega leita réttar síns fyrir Mannrétt- indadómstóli Evrópu vegna dóma Hæstarétt- ar Íslands varð- andi þjóðlendur í Öræfum síðast- liðinn fimmtu- dag. Þar dæmdi Hæstiréttur að lönd eyði- jarðanna Fjalls og Breiðármerkur væru þjóðlendur. Eigendur Hofs I, II og IV og Litla-Hofs eiga þó rétt til hefðbundinna nota af beitarlandi og fjöru Fjalls og eigendur Kví- skerja rétt til hefðbundinna nota af beitarlandi Breiðamerkur og yfir helmingi Breiðamerkurfjöru fyrir þjóðlendunni. Í máli Kvískerja ehf. gegn ríkinu staðfesti Hæstiréttur dóm héraðsdóms um að Ærfjall, milli Hrútárjökuls og Fjallsjökuls, væri þjóðlenda en viðurkenndi að Ærfjallið væri afréttur jarðarinnar Kvískerja. Ólafur Björnsson hrl., sem var lögmaður landeigendanna í báðum málunum, taldi líklegt að reynt yrði að fara með málin fyrir Mann- réttindadómstólinn en sagði það enn í skoðun, enda skammur tími liðinn frá niðurstöðu Hæstaréttar. Hann taldi að ákvörðun yrði tekin fljótlega um að kæra til Mannrétt- indadómstólsins. „Það verður gert á þeim for- sendum að niðurstaðan leiði í raun til ólögmætrar eignaupptöku,“ sagði Ólafur. „Við teljum að þarna sé gengið lengra í kröfum um sönnunarreglur en almennt gildir og að það að leggja svo þunga sönnunarbyrði á landeigendur sé brot á bæði meðalhófsreglu og jafnræðisreglu.“ Ólafur sagði að eigendur Hofs hefðu samkvæmt öllum heimildum átt eyðijörðina Fjall í rúm 600 ár. Eyðijörðin Breiðamörk hefði ann- ars vegar verið eign eigenda Kvís- kerja, samkvæmt afsali frá 1937, og hins vegar eigenda Fells í Suð- ursveit samkvæmt samningi við Hofsmenn frá 1854 og viðurkenn- ingu allra þar um, m.a. landaskrá sem gerð var 1985. Þá voru gerð landamerkjabréf fyrir jarðirnar 1922. Strangar sönnunarkröfur Ólafur sagði að engin dæmi væru um að gerðar hefðu verið at- hugasemdir við eignarhald þessara bænda á jörðunum svo vitað væri hingað til. „Niðurstaðan bendir til þess að Hæstiréttur geri afar strangar sönnunarkröfur í þessum málum. Kannski vegna þess að um eyðijarðir er að ræða. Þær hafa þó verið nytjaðar með öllum mögu- legum hætti til beitar, veiði og fjör- unytja.“ Ólögmæt eignaupp- taka forsenda kæru                          !   !" #   $ ! %                                                !""#$#  %   #$&''#"# #                  Ólafur Björnsson Nýlegir Hæstaréttardómar um þjóðlendur í Öræfum líklega kærðir til Mannréttindadómstóls Evrópu Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is HÁLFDÁN Björnsson, bóndi og fræðimaður á Kvískerjum í Öræfum, sagðist síður en svo vera ánægður með dóm Hæsta- réttar. „Við höf- um alltaf litið á Ærfjall og hluta af Breiðamerkur- sandi, sem pabbi keypti, sem okkar eign. Ærfjall telst til fjallanna okk- ar hér á Kvískerjum og hefur verið nýtt alla tíð sem maður veit um. Það var nú heldur,“ sagði Hálfdán. Hann sagði að faðir sinn, Björn Pálsson frá Svínafelli, hefði keypt helming Breiðamerkurfjöru af Björgvini Vigfússyni, sýslumanni Skaftfellinga, eftir að hafa haft hana á leigu nokkuð lengi og nýtt reka. Hálfdán sagði bændur á Kvískerj- um vera því hlynnta að landeigend- urnir leituðu réttar síns hjá Mann- réttindadómstólnum, því þeim þætti þetta óréttlæti. „Maður er ekki ánægður með þegar tekið er af manni sem maður á,“ sagði Hálfdán. Hálfdán Björnsson á Kvískerjum Finnst þetta óréttlæti DÓMUR Hæsta- réttar olli Erni Bergssyni, bónda á Hofi I í Öræfum, miklum vonbrigðum, að hans sögn. Hon- um þótti eft- irtektarvert að sönnunarbyrð- inni virðist snúið við í þessu máli miðað við það sem gerðist í þjóð- lendumáli Biskupstungnamanna. „Í dómsorði varðandi Árnessýslu stendur að það verði ekki lagt á landeigendur að sanna að það hafi verið órofa framsal á eignarrétti frá landnámi til dagsins í dag,“ sagði Örn. „Varðandi jörðina Fjall er sýnt fram á að hún er komin í eigu Hofskirkju 1343, sem þá var bændakirkja. Hæstiréttur við- urkennir að kirkjan hafi átt þetta, en telur að á miðöldum hafi bænd- ur glatað hinum beina eignarrétti því við höfum ekki nógu sterkar heimildir. Við eigum beitarrétt en við höfum glatað hinum fullkomna eignarrétti.“ Örn kvaðst fylgja því eindregið að kæra málið til Mannréttinda- dómstólsins. „Búnaðarþing 2005 ályktaði, varðandi þjóðlendumálin, að Bændasamtökin myndu styðja við bakið á þeim sem færi með prófmál fyrir Mannréttinda- dómstólinn,“ sagði Örn. Hann rifj- aði upp að haldinn var stór fundur í Austur-Skaftafellssýslu 15. febr- úar 2001 um kröfur óbyggða- nefndar. Fundinn sóttu m.a. 14 ráðherrar og þingmenn. „Þar lýstu þingmenn og ráðherrar því yfir að ef þinglýstar eigur yrðu teknar af mönnum myndu þeir breyta þjóð- lendulögunum. Nú er það þeirra að standa við stóru orðin,“ sagði Örn. Örn Bergsson, bóndi á Hofi I Sönnunarbyrði snúið við Frelsis- svipting þyngdi dóminn HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt 17 ára pilt til tveggja og hálfs árs fangelsisvistar fyrir frelsissviptingu og rán í september á sl. ári. Áður hafði pilturinn verið dæmdur í tveggja ára fangelsi í héraði. Ákærði, í félagi við tvo aðra menn, fór inn á vinnustað pilts og þvingaði með ræsibyssu til að yf- irgefa staðinn. Var pilturinn settur í farangursrými bifreiðar og ekið var með piltinn á afvikinn stað. Þar var pilturinn krafinn um peninga og skaut ákærði úr ræsibyssunni skammt frá honum. Fram kemur í dómi héraðsdóms að það var til þess fallið að vekja mikinn ótta hjá piltinum sem hélt að um raunveru- legt skotvopn var að ræða. Í kjöl- farið var pilturinn þvingaður í far- angursrýmið á nýjan leik og neyddur til að taka út fé af banka- reikningi sínum úr hraðbanka. Var piltinum haldið föngnum í um hálfa klukkustund. Ákærði framdi brotin aðeins örfá- um klukkustundum eftir að honum var birtur skilorðsdómur sem er talið bera vott um styrkan og ein- beittan brotavilja. Málið dæmdu hæstaréttardómar- arnir Árni Kolbeinsson, Hjördís Björk Hákonardóttir og Ingibjörg Benediktsdóttir. Sigríður Elsa Kjartansdóttir sak- sóknari flutti málið af hálfu ákæru- valdsins en Kristján Stefánsson hrl.varði piltinn. Hæstiréttur dæmir 17 ára pilt í 2½ árs fangelsi
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.