Morgunblaðið - 13.05.2006, Blaðsíða 56
56 LAUGARDAGUR 13. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Vegna mikils aðstreymis aðsendra greina í aðdraganda bæjar- og sveitarstjórnarkosninganna verður
formi þeirra greina, sem lúta að kosningunum, breytt. Er þetta gert svo efnið verði aðgengilegra fyrir les-
endur og auka möguleika Morgunblaðsins á að koma greinunum á framfæri fyrir kosningar.
Bæjar- og sveitarstjórnarkosningar
SUÐURLAND er gjöfulasta og
fjölbreyttasta landbúnaðarsvæði
landsins.
Þar er að finna öll
svið landbúnaðar,
hverju nafni sem
þau nefnast og flest-
öll í sókn. Hér er
sama hvert litið er,
hvort um er að ræða
hefðbundna land-
búnaðarframleiðslu,
garðyrkju, ferðaþjónustu, hrossa-
rækt og hestamennsku, kornrækt
o.fl. o.fl.
Úrvinnsla og verslun með afurðir
landbúnaðarins er vaxandi atvinnu-
grein.
Selfoss í sveitarfélaginu Árborg
er höfuðstaður Suðurlands, sem
sækir styrk til athafnasemi Sunn-
lendinga allra um leið og Selfoss er
mikilvægasti þjónustu- og byggð-
arkjarni fyrir Suðurland. VG hafa
sett fram málefnaskrá fyrir næstu
sveitarstjórnarkosningar þar sem
sett er á oddinn að Sveitarfélagið
Árborg verði leiðandi sveitarfélag í
umhverfismálum á Íslandi. Þessi
stefnumótun er leiðarljós um
hvernig haga skuli áherslum í hin-
um ýmsu málum sem varða vöxt og
þróun samfélagsins. Við leggjum
þunga áherslu á að varðveita þá
ímynd sem Suðurland hefur í um-
hverfismálum og viljum styrkja þá
ímynd. Við viljum stórefla úr-
vinnslu landbúnaðarafurða á Sel-
fossi og rannsóknir á matvælasviði í
samvinnu við aðila landbúnaðarins,
úrvinnsluaðila og aðra sem að mál-
um koma. Við viljum að umhverf-
isstefna Árborgar leiði til þess að
Árborg verði eftirsótt gæða vöru-
merki, notað á vörur sem fram-
leiddar eru hér og þjónustu sem
veitt er. Verslun og þjónusta með
vistvænar og lífrænt framleiddar
vörur verði aðalsmerki sveitarfé-
lagsins. Við viljum efla alla mennt-
un í sveitarfélaginu frá leikskóla til
háskóla. Við leggjum mikla áherslu
á að stofnað verði Háskólasetur
Suðurlands með þátttöku allra há-
skólanna á Íslandi og vísinda- og
rannsóknarstofnana á Suðurlandi.
Háskólasetrið sjái um að halda utan
um kennslu á háskólastigi bæði
varðandi fjarnám og staðbundna
kennslu þannig að fólk á Suður-
landi eigi kost á að stunda flestar
greinar háskólanáms til fyrstu
prófgráðu í heimabyggð. Há-
skólasetrið verði líka regnhlíf yfir
rannsóknar- og fræðastörf og um
leið aflvaki til frekari starfsemi á
sviði rannsókna og fræða.
Við viljum stórefla símenntun
með því að sveitarfélagið leggi
fram 20 milljónir á næstu 4 árum til
símenntunar. Lagt er til að
Fræðsluneti Suðurlands verði falin
framkvæmd verksins í samvinnu
við stéttarfélögin. Átakið á einkum
að ná til þeirra sem minnsta mennt-
un hafa og gera þeim þannig kleift
að taka þátt í uppbyggingu há-
tækni- og þekkingarfyrirtækja sem
við leggjum áherslu á að eflist hér í
ríkum mæli. Þessi tegund fyr-
irtækja þarf á að halda fjölda fólks
með tölvukunnáttu, tungumála-
kunnáttu, góða hæfni í samskiptum
o.s.frv. þótt ekki sé um háskólapróf
að ræða. Kröftug símenntun fólks
með litla formlega grunnmenntun
veitir því tækifæri, sem það hefur
lengi beðið eftir en fáir sinnt með
viðeigandi hætti. Hér er um að
ræða fólk sem af margvíslegum
ástæðum hefur hætt formlegu
skólanámi. Það þarf að hitta þetta
fólk og aðstoða það við að afla sér
frekari menntunar sér að kostn-
aðarlausu. Grunnmenntun á grunn-
og framhaldsskólastigi á að vera
ókeypis burt séð frá aldri.
Efling ferðaþjónustunnar mun
einnig sækja í þennan námshóp í
ríkum mæli því þar vantar fólk með
fjölbreytta þjálfun og þekkingu.
Stóriðja samrýmist ekki ímynd
Suðurlands, hún er stílbrot á svæði
sem leggur höfuðáherslu á þróun
framleiðslu, verslunar og þjónustu
á vistvænum nótum. Við leggjum
áherslu á uppbyggingu starfsemi
sem samrýmist umhverfisstefnu
VG og ímynd Suðurlands og höfn-
um stóriðjuframkvæmdum á Suð-
urlandi.
Við viljum samfélag „Fyrir okkur
öll og á ábyrgð okkar allra“.
Styrkur Árborgar er sérstaðan!
Eftir Jón Hjartarson
Höfundur er 1. maður
á lista VG í Árborg.
ÞAÐ ER yndisleg tilfinning að eignast sitt fyrsta barn.
Fullur tilhlökkunar tekst maður á við hið mikilvæga for-
eldrahlutverk og fylgist með litla krílinu sínu vaxa og
dafna.
Áður en ég eignaðist dóttur mína fyrir
rúmu ári hélt ég að það væri sjálfsagt og
einfalt mál að finna henni viðverustað á
daginn þegar fæðingarorlofi lyki. Við for-
eldrarnir komumst að því að skipulags-
leysi ríkir í málefnum yngstu barnanna,
9–18 mánaða. Við erum þakklát fyrir það
á hverjum degi að vera svo ótrúlega
heppin að dóttir okkar komst að hjá yndislegri dag-
mömmu.
Skortur á skipulagi og yfirsýn
En auðvitað ættu allir foreldrar að geta sótt þjónustu fyr-
ir börnin sín þegar fæðingarorlofi lýkur. Staðan er því
miður ekki góð í dag og ekki liggur ljóst fyrir hversu mikil
þörfin er. Dagforeldrar eru sjálfstæðir verktakar og því
er ekki haldið utan um það, á kerfisbundinn hátt, hverjir
bíða eftir þjónustu þeirra, að því er ég best veit. Hins veg-
ar heyrir maður af því að dagforeldrar fái allt upp í tugi
símtala á dag, þannig að þörfin virðist brýn. Foreldrar
þurfa að huga að því jafnvel á meðgöngu hvað taki við
þegar fæðingarorlofi lýkur. Ég þekki það af eigin raun
hversu furðuleg tilfinning það er að hringja og spyrja um
pláss handa ófæddu barni.
Óviðunandi svör
Ég hef hlustað eftir svörum fulltrúa meirihlutans í borg-
arstjórn í vetur við því hvernig vandinn verði leystur. Þau
svör sem ég heyrði oftast voru þau að þegar góðæri ríkti í
þjóðfélaginu fengist ekki fólk til umönnunarstarfa. Slíkt
svar sætti ég mig ekki við. Börnin eru það mikilvægasta
sem við eigum og þess vegna eigum við að veita þeim
bestu mögulegu þjónustu og ekki sætta okkur við neitt
annað, hvernig sem ástandið er í efnahagslífinu.
Við í frambjóðendahópi Sjálfstæðisflokksins ætlum að
stuðla að því að foreldrar geti valið um úrræði um vistun
barna frá níu mánaða aldri. Þetta gerist með auknum
stuðningi við dagforeldra og með því að opna smá-
barnadeildir í leikskólum í hverju hverfi, auk þess að börn
njóti sama stuðnings óháð því hvar þjónustan er sótt. Við
viljum að börnin njóti þess besta og að foreldrar geti farið
út á vinnumarkaðinn aftur eftir að fæðingarorlofi lýkur,
lausir við áhyggjur af vistunarúrræðum fyrir barn sitt.
Leysa verður dagvistunarvandann strax!
Eftir Guðrúnu P. Ólafsdóttur
Höfundur er viðskiptafræðingur og skipar 20. sætið á
framboðslista sjálfstæðismanna í Reykjavík.
MOSFELLSBÆR er eitt fárra sveitarfélaga í landinu sem hafa ekki
tryggan aðgang að hjúkrunarrýmum fyrir aldraða. Þessi staða er óvið-
unandi fyrir ört vaxandi sveitarfélag sem telur um 7.300 íbúa.
Á vegum bæjarfélagsins eru 20 íbúðir fyrir aldraða í
íbúða- og þjónustuhúsnæði við Hlaðhamra þar sem rekin er
umfangsmikil sólarhringsþjónusta. Í sama húsi er þjónustu-
og félagsmiðstöð fyrir aldraða.
Til að mæta ört vaxandi þjónustuþörf hafði bæjarstjórn
Mosfellsbæjar árlega sótt um styrk til Framkvæmdasjóðs
aldraðra til byggingar hjúkrunarheimilisdeildar í tengslum
við Íbúða- og þjónustuhús aldraðra við Hlaðhamra. Þessu
var ætíð synjað. Hugmyndir bæjaryfirvalda voru í þá tíð að
byggja 24 rýma hjúkrunarheimili þar sem nú eru að rísa öryggisíbúðir.
Á þessu kjörtímabili eða árið 2003 tóku bæjaryfirvöld ákvörðun um að
ganga til samstarfs við Eir um uppbyggingu öldrunarseturs í Mosfellsbæ
þ.e. byggingu 40 rýma hjúkrunarheimilis, öryggisíbúða og þjónustu-
miðstöðvar. Með samstarfinu var líka leitast við að tryggja Mosfellingum
eftir atvikum vistun á Eir uns búið væri að byggja hjúkrunarheimili í bæj-
arfélaginu. Í lok síðasta árs dvöldu 15 Mosfellingar á Eir og hafa alls 23
fengið hjúkrunarrými þar frá 2003. Þetta samstarf hefur gjörbreytt þeim
aðstæðum sem sjúkum öldruðum í Mosfellsbæ og aðstandendum þeirra var
gert að þola. Vart er hægt að hugsa sér í hvaða stöðu við værum í dag ef
ekki hefði komið til samstarfsins við Eir.
Rekstur hjúkrunarheimilis og öryggisíbúða undir sama þaki er hag-
kvæmur kostur bæði þegar tekið er tillit til nýtingar húsnæðis og reksturs
þjónustunnar. Þannig er hægt að veita umfangsmikla heimaþjónustu og
draga úr kostnaðarsamri og ótímabærri stofnanaþjónustu. Þannig er öldr-
uðum gert kleift að búa sem lengst á eigin heimilum og halda ráðstöf-
unarrétti yfir eigin tekjum og halda þar með fjárhagslegu sjálfstæði sínu.
Staðan í dag
Hafin er bygging 39 öryggisíbúða sem gert er ráð fyrir að verði tilbúnar í
ársbyrjun 2007. Öryggisíbúðirnar verða samtengdar þeim 20 íbúðum sem
þegar eru fyrir hendi í bæjarfélaginu og verður þeim íbúðum einnig breytt
í öryggisíbúðir. Óskað hefur verið eftir framkvæmdaleyfi frá heilbrigð-
isráðherra fyrir byggingu hjúkrunarheimilisins án mótframlags og lögð
fram áætlun þess efnis. Búið er að breyta deiliskipulagi þess svæðis sem
byggja á hjúkrunarheimilið á og hefur frumhönnun farið fram. Þar er gert
ráð fyrir 40 rýma heimili samansettu af fjórum 10 rýma einstaklings-
rýmum á fallegum stað í miðbæ Mosfellsbæjar. Þar er einnig gert ráð fyrir
þjónustumiðstöð.
Við sjálfstæðismenn í Mosfellsbæ viljum taka við þjónustu aldraðra frá
ríkisvaldinu og byggja upp öfluga einstaklingsmiðaða þjónustu í bæj-
arfélaginu. Við munum byggja þjónustumiðstöð við Hlaðhamra þar sem
veitt verður heildstæð þjónusta og viljum samþætta heimahjúkrun og fé-
lagslega heimaþjónustu til að hægt sé að mæta mismunandi þörfum fólks, í
Mosfellsbæ þar sem allir skipta máli.
Öldrunarþjónusta í Mosfellsbæ
Eftir Herdísi Sigurjónsdóttur
Höfundur er forseti bæjarstjórnar Mosfellsbæjar og formaður fjölskyldunefndar
og skipar 3. sæti framboðslista sjálfstæðismanna í Mosfellsbæ.
MÁLEFNI eldri borgara hafa ver-
ið mjög í sviðsljósinu uppá síðkastið
og sú umfjöllun hefur leitt í ljós að
átaks er þörf í mál-
efnum þessa hóps.
Núverandi stjórn-
arflokkar hafa ekki
séð ástæðu til þess
að taka á málum
þessa hóps þau 11 ár
sem þeir hafa verið
við stjórnartaumana en þessa dag-
ana er enginn skortur á frambjóð-
endum Sjálfstæðisflokks og Fram-
sóknarflokks sem ætla að bæta ráð
sitt og flokka sinna.
Samfylkingin ætlar að gera mál-
efni aldraðra að forgangsmáli strax
og hún kemst til valda hvort heldur
er í sveitarstjórnum eða landsstjórn-
inni. Við munum ekki bíða í 11 ár,
eða lengur. Við sem bjóðum okkur
fram undir merkjum Samfylking-
arinnar á Akureyri ætlum svo sann-
arlega að vinna að því að aldraðir
verði forgangshópur samfélagsþjón-
ustunnar á næstu árum. Áherslumál
okkar fyrir komandi sveitarstjórn-
arkosningar, málin sem við munum
vinna að þegar við erum komin í
meirihluta í bæjarstjórn á Akureyri
eru eftirfarandi:
1. Að tryggja að málefni aldraðra
verði verkefni sveitarfélagsins til
frambúðar.
2. Sjá til þess að öldruðum Akureyr-
ingum bjóðist fjölbreyttir bú-
setukostir
3. Efla enn frekar þá þjónustu sem
nauðsynleg er til þess að fleiri geti
búið lengur heima, heimaþjón-
ustu, heimahjúkrun og heilsuefl-
andi heimsóknir.
4. Tryggja að nægt framboð sé á
hjúkrunarrýmum og sjá til þess að
sú aðstaða uppfylli nútímakröfur.
5. Stuðla að uppbyggingu öflugs og
Eru þeir traustsins verðir?
Eftir Sigrúnu Stefánsdóttur
SAGA miðbæjarins í Garðabæ er
löng saga. Dapurlegt merki um full-
komið getuleysi á öllum sviðum
stjórnsýslu, skipulagsvinnu og fram-
kvæmdar. Skoðum
þetta betur.
Umræðan um
miðbæ í Garðabæ
nær langt aftur án
þess að nokkuð gerð-
ist lengi vel. Fyrir
fjórum árum var
haldin hugmyndasamkeppni um
hönnun miðbæjar í Garðabæ. Þrjár
athyglisverðar tillögur hlutu verð-
laun, síðan hefur ekkert til þeirra
spurst.
Um einu og hálfu ári síðar var aug-
lýst eftir samstarfsaðilum til að vinna
áfram með hugmyndir að miðbæ og
úr hópi þriggja fyrirtækja var Klasa
úthlutað verkinu. Klasi var þá í eigu
Sjóvár og Íslandsbanka en nú hefur
forstjóri Klasa og hans fjölskylda
bæst í eigendahópinn Klasi lagði
fram sínar tillögur og kom þá í ljós að
einn stærsti vinnustaður í Garðabæ,
Vistor, átti bara að víkja. Ræddi
bærinn örugglega við eigendur og
stjórnendur Vistors?
Óánægjuraddir heyrðust líka með-
al atvinnurekenda á Garðatorgi og
var kvartað yfir skorti á samráði.
Klasa-menn fóru því aftur að
teikniborðinu og gerðu nýja mynd af
miðbæjarskipulaginu, nú með Vistor
á sínum stað. Sú mynd er enn meira
klúður og um það eru menn sam-
mála.
Það vakna margar spurningar
þegar maður veltir fyrir sér þessu
ótrúlega langa ferli sjálfstæð-
ismanna, en ég læt hér duga að varpa
fram eftirfarandi spurningum:
Hvað fær bærinn fyrir það land-
svæði sem á að fara undir miðbæj-
arframkvæmdir Klasa? Það hefur
ekki komið fram að Klasi ætli að
greiða fyrir landið, en það lætur
Hvar er miðbærinn í Garðabæ?
Eftir Þorgeir Pálsson
34.900kr.
SÓL
Mallorca - Krít
Portúgal - Tyrkland
Benidorm/Albir
*
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
RV
3
26
96
05
/2
00
6
Mallorca - Marina Plaza í 7 nætur - 16. maí
á mann m.v. 4 í íbúð með 1 svefnherb. 44.900 kr. ef 2 ferðast saman.
39.900kr. *
Krít - Elisso í 7 nætur - 22. maí
Verðdæmi:
Verðdæmi:
á mann m.v. 4 í íbúð með 1 svefnherb. 49.900 kr. ef 2 ferðast saman.
* Innifali›: Flug, gisting í 7 nætur, flugvallarskattar
og íslensk fararstjórn.
Fleiri eða færri?
Finndu verð á þinni ferð og kynntu þér tilboðin
á öðrum brottförum og öðrum áfangstöðum
á www.urvalutsyn.is
Bókaðu á netinu, það borgar sig.
Ódýrt