Morgunblaðið - 13.05.2006, Blaðsíða 48
48 LAUGARDAGUR 13. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
ÞAÐ setur iðulega að manni létt-
an hroll við að sjá hið þrönga og
innmúraða sjónarhorn Morg-
unblaðsins, í hinni pólitísku um-
ræðu. Þessi staða blaðsins er lævís
og undirförul, því hún er pökkuð
inn í yfirvegaða skynsemi. En und-
ir sauðargærunni
leynast varðhundar
íhaldsins.
Fyrir nokkru var til
dæmis leiðari um mál-
efni aldraðra. Þar var
í löngu máli talað um
stöðu aldraðra í sam-
félaginu, nauðsyn þess
að sýna þeim hópi
sem byggt hefur land-
ið virðingu og
áhyggjulaust ævi-
kvöld. Í lok leiðarans
var bent á það, sem
var látið hljóma sem
skemmtileg tilviljun, að Sjálfstæð-
isflokkurinn ætlaði að leggja sér-
staka áherslu á þennan málaflokk í
kosningabaráttunni. Reynt er að
klifa á því að færsla Hringbrautar
hafi verið mistök Reykjavíkurlista
og Dags B. Eggertssonar. Þó allir
sem vilja kynna sér málið sjái að
ákvörðunina má rekja til tíma Dav-
íðs í borginni og byggingar brúar-
innar á Miklubraut við Landspít-
ala. Reynt er að nota
Hringbrautina sem einhverja grýlu
líkt og Morgunblaðið klifaði á
sprungusvæðinu við Rauðavatn á
sínum tíma, en hefur nú komið sér
þar fyrir á fallegum stað. Ráðhúsið
er hinsvegar áfram sem steypu-
klessa í tjörninni og minnisvarði
þess að valdahroki Sjálfstæð-
isflokksins getur staðið í vegi þess
að bestu lausna sé leitað í mik-
ilvægum málum.
Nýlega var skrifað um leiðtoga
stóru flokkanna í Reykjavík, Sam-
fylkingar og Sjálfstæðisflokks.
Taldi blaðið að Dagur B. Eggerts-
son og Vilhjálmur Vilhjálmsson
hefðu báðir haldið sig
nokkuð til hlés og ekki
verið beinskeyttir í
kosningabaráttunni.
Forvitnileg túlkun á
þessu háttalagi for-
ystumanna framboð-
anna fylgdi með. Dag-
ur talinn lítt grimmur
á framlínunni af því að
hann væri ungur og
óreyndur stjórn-
málamaður. Haldið
var áfram og jafnvel
talið að hann væri svo
hugmyndasnauður að
hann hefði ekkert fram að færa.
Öðru máli gegndi um túlkun blaðs-
ins á meintri hlédrægni Vilhjálms,
sem var alls ekki vegna þess að
hann væri orðinn gamall og þreytt-
ur. Hún var talin hluti af einhverri
herkænsku. Henni var jafnvel
hægt að finna hliðstæðu í kosn-
ingasigri Gunnars Thoroddsen á
liðinni öld. Í reynd er það fagn-
aðarefni fyrir Reykvíkinga, en ef til
vill ekki Morgunblaðið, að kjós-
endur geti valið ferskleika og
mannkosti Dags B. Eggertssonar.
Tel að hinn almenni kjósandi geti
gert þennan samanburð í kjörklef-
anum, með bros á vör og án að-
stoðar Morgunblaðsins.
Á fimmtudag er leiðari sem heit-
ir „Lykilstaða Sjálfstæðisflokks“.
Blaðið metur stöðuna svo að miklar
líkur séu á að Sjálfstæðisflokkurinn
nái hreinum meirihluta í komandi
kosningum. Ef það gangi ekki eftir,
séu góðar líkur á samstarfi við alla
flokka nema Samfylkinguna. Síðan
er gerð grein fyrir því að margt sé
líkt með áherslum Sjálfstæð-
isflokks og Vinstri grænna. Frjáls-
lyndir eru því næst að vera taldir
óskilgetið afkvæmi flokksins og
samstarf við Framsóknarflokk ekki
talið ólíklegt.
Af þessu má draga einfalda
ályktun sem er vegvísir að nið-
urstöðu í vali á milli framboða.
Samfylkingin er í ákveðinni sér-
stöðu í komandi kosningum í
Reykjavík. Það er eini flokkurinn
sem getur hindrað valdaframsal til
Sjálfstæðisflokksins. Það er lyk-
ilstaða, sem er Morgunblaðinu ekki
að skapi. Hinn almenni borgarbúi,
skapandi, skynsamir, rómantískir
og félagslega sinnaðir ein-
staklingar, hljóta hinsvegar að vera
þakklátir fyrir að eiga þetta val.
Lykilstaða Samfylkingar
Gunnlaugur B. Ólafsson
gerir athugasemd við
leiðara Morgunblaðsins ’Samfylkingin er íákveðinni sérstöðu í kom-
andi kosningum í Reykja-
vík. Hún er eini flokk-
urinn sem getur hindrað
valdaframsal til Sjálf-
stæðisflokksins.‘
Gunnlaugur B. Ólafsson
Höfundur er framhaldsskólakennari.
ÞAÐ ER staðreynd að tónlistar-
kennsla á Íslandi er góð og skarar
jafnvel fram úr
kennslu annarra
þjóða. Mikill metn-
aður er, og hefur
ávallt verið lagður í
kennslu, og jafnframt
lögð áhersla á að ár-
angur sé sýnilegur.
Svo sannarlega er ár-
angurinn sýnilegur.
Um það vitnar m.a.
glæsileiki Sinfón-
íuhljómsveitar Ís-
lands, frammistaða
íslenskra óp-
erusöngvara heima
og heiman og gróska
íslenskra djassista og
dægurtónlist-
armanna.
Það sló mig því
eftirminnilega, þegar
við, skólastjórar
nokkurra tónlistarskóla, vorum
boðaðir til fundar niðr’í borg og
tilkynnt um skerðingu og sam-
drátt í fjárframlögum til skólanna,
„að forráðamönnum borgarinnar
þætti nóg um ágæti tónlistarskól-
anna“ og okkur uppálagt að draga
úr gæðum kennslunnar!
Þetta var þvílíkt reiðarslag að
stundina man ég sem gerst hefð’ í
gær. Ekki svo mjög skert framlög
til kennslu, því tónlistaskólastjór-
ar hafa alltaf þurft að velta fyrir
sér hverri krónu til að láta enda
ná saman. Nei, reið-
arslagið var að vera
tilkynnt að kennsla
væri of góð og okkur
bæri að draga þar úr.
Ýmislegt er okkur til
lista lagt, tónlist-
armönnum, en að
„performera“ undir
gæðum og getu er
ekki til í okkar upp-
eldi. Þetta hefur því
smátt og smátt orðið
til þess að skuldir
hafa safnast upp hjá
skólum, sem ekki hafa
treyst sér til að draga
úr gæðum námsins, og
skert fjárframlög þar
af leiðandi ekki staðið
undir kostnaði.
Næsta reiðarslag
reið svo yfir nokkru
síðar; hömlur voru lagðar á að
nemendur gætu stundað tónlist-
arnám utan síns sveitarfélags,
þeim gert að ganga með betlistaf
fyrir sína sveitarstjórn og fá þar
samþykkta „beiðni“ – leyfi til að
stunda tónlistarnám utan lögheim-
ilissveitarfélags. Ekki nóg með
það, þriðja og síðasta reiðarslagið;
aldurstakmörkum beitt, hömlur
settar á hverjir gætu sótt um og
stundað nám í tónlist, búseta og
aldur látin ráða frekar en mat tón-
listarskólanna á hæfileikum um-
sækjenda.
Þetta vandræðamál er yfir
flokkadrætti hafið og allir flokkar
ættu að get komið sér saman um
að berjast gegn mismunun vegna
aldurs og búsetu, enda gilda slíkar
takmarkanir ekki í neinu öðru
námi. Samkvæmt núgildandi lög-
um er kostnaður við tónlistar-
fræðslu alfarið í höndum sveitarfé-
laga og það er þeirra að leysa
þann ólukkuhnút sem málaflokk-
urinn er nú í, ekki varpa vand-
anum yfir á herðar nemenda.
Ég skora á sveitarstjórnarmenn
að axla ábyrgðina. Söngskólinn í
Reykjavík býður þeim stjórn-
málaöflum, sem vilja beita sér í
málinu, söngvara og píanóleikara
úr röðum nemenda og kennara
skólans, til að koma fram á kynn-
ingarfundum flokkanna, þeim að
kostnaðarlausu, gegn því að flokk-
arnir taki ábyrga afstöðu í mál-
efnum tónlistarnema og þori að
lýsa yfir óréttlætinu sem felst í
þessum aðgerðum. Sem sagt;
vekja athygli á máli sem kemur til
með að takmarka aðgang of
margra, sem virkilega eiga erindi,
að tónlistarnámi en eru „of aldr-
aðir“ að mati ráðamanna.
Hugsið ykkur ef Kristinn Sig-
mundsson hefði verið stoppaður af
vegna aldurs eða búsetu, eða
Kristján Jóhannsson eða Viðar
Gunnarsson! Allir, og miklu fleiri,
voru með óvinveitta kennitölu þeg-
ar þeir hófu tónlistarnám.
Kjósendur! Ef tónlistarmenn úr
Söngskólanum í Reykjavík koma
fram á kynningarfundum stjórn-
málaaflanna er það sönnun þess
að viðkomandi flokkur er tilbúinn
að axla ábyrgð í málefnum tónlist-
arnema á Íslandi.
Stjórnmálamenn! Látið okkur,
tónlistarskólana, um að gera það
sem við kunnum best, mennta tón-
listarmenn til framtíðar. Það er
nefnilega staðreynd að tónlistar-
kennsla á Íslandi er góð og skarar
jafnvel fram úr …
Opið bréf til allra
stjórnmálaflokka
Garðar Cortes skrifar
um málefni tónlistarnema
Garðar Cortes
’Þetta vand-ræðamál er yfir
flokkadrætti haf-
ið …‘
Höfundur er skólastjóri
Söngskólans í Reykjavík.
Fréttir í tölvupósti
www.listahatid.is
www.listahatid.is
Tónleikaþrennur
á Listahátíð
1. hluti, í fyrramálið kl. 11.00
Flytjendur: Miklós Dalmay og Helga
Bryndís Magnúsdóttir
Efnisskrá: Davidsbündlertänze ópus 6,
Carnival ópus 9.
2. hluti, sunnudaginn
21. maí kl. 11.00
Flytjendur: Ástríður Alda
Sigurðardóttir og Richard Simm
Efnisskrá: Sinfónískar etýður ópus 13,
Fantasiestücke ópus 12.
3. hluti, sunnudaginn
28. maí kl. 11.00
Flytjandi: Kristín Jónína Taylor
Efnisskrá: Fantasía í C dúr ópus 17,
Kreisleriana ópus 16.
Í kvöld kl. 23.30
Íslenskur sönglagasirkus!
Dívan og djassmaðurinn: Sigurður
Flosason saxófónleikari og Sólrún
Bragadóttir sópransöngkona.
Laugardagskvöldið 20. maí kl. 23.30
Bjartasta vonin!
Benni Hemm Hemm – stórhljómsveit
Þrumandi skemmtilegt
miðnæturprógramm.
Laugardagskvöldið 27. maí kl. 23.30
Vorvindar!
Tríó Björns Thoroddsen ásamt
Andreu Gylfadóttur.
Nýjar útsetningar á gömlum
íslenskum sönglögum.
Iðnó, 13., 20. og 27. maí kl. 23.30
Miðaverð: 2.500 kr.
Kynnir: Halldór Hauksson
Ýmir 14., 21. og 28. maí kl.
11.00 fyrir hádegi.
Miðaverð: 2.300 kr.