Morgunblaðið - 13.05.2006, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 13. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
BINDING kolefnis úr andrúmsloft-
inu í gróðri og jarðvegi er stór þáttur í
gildandi stefnumörkun Íslands í loft-
lagsmálum frá árinu 2002. Þetta kom
fram í máli Huga Ólafssonar, skrif-
stofustjóra í umhverfisráðuneytinu, á
morgunverðarfundi sem Land-
græðsla ríkisins, Landbúnaðarhá-
skóli Íslands og Skógrækt ríkisins
stóðu fyrir í gær. „Reyndar má með
nokkrum rétti segja að binding sé
veigamesti þátturinn þar, ef horft er
annars vegar til beinna fjárframlaga
ríkisvaldsins og hins vegar til árang-
urs við að minnka nettólosun,“ sagði
Hugi og benti á að ríkisstjórnin hefði
árið 1997 sett af stað sérstakt átaks-
verkefni til að auka bindingu kolefnis
með skógrækt og landgræðslu og að
reikna mætti með að það átak ásamt
öðrum aðgerðum við að efla land-
græðslu og skógrækt hefði leitt til
þess að Íslendingar bindi nú um 200
þúsund tonnum meira af koltvíoxíði
úr andrúmsloftinu á ári hverju miðað
við viðmiðunarárið 1990.
Að mati Huga hefur Ísland mikla
sérstöðu varðandi möguleika á bind-
ingu kolefnis og segir hann okkur í
raun bera skyldu til að skoða og meta
þá möguleika. Tekur hann fram að
hugmyndin um kolefnishlutlaust Ís-
land sé ekki óhugsandi útópía. „Við
höfum mikla möguleika á að auka
bindingu jafnframt því að draga úr
losun, t.d. með þróun á nýju og lofts-
lagsvænna eldsneyti, möguleikum
djúpborana til öflunar varmaorku og
þróunaraðstoð í jarðhitamálum,“ seg-
ir Hugi og nefnir einnig að æskilegt
væri að hvetja til notkunar á loftslags-
vænni bílum.
Að sögn Huga stendur nú yfir end-
urskoðun á stefnumótum stjórnvalda
og þarf í því samhengi að spyrja
ákveðinna grundvallarspurninga.
„Við þurfum að gera upp við okkur
hver langtímamarkmið okkar eigi að
vera. Er það að standa við skuldbind-
ingar Kýótó, sem eru alþjóðleg viðmið
um það hvað ætlast er til af Íslandi,
eða viljum við gera enn betur? Ef við
viljum eingöngu standa við skuld-
bindingar Kýótó þá lítur flest út fyrir
að við verðum innan marka Kýótó
2008–2012, en við þurfum einnig að
skoða framtíðina eftir 2012, en þá
gæti staða okkar verið þrengri. Ef við
viljum gera enn betur vakna ákveðna
spurningar um það hverjar áhersl-
urnar eigi að vera. Á að minnka losun
fremur en að auka bindingu eða öf-
ugt? Og einnig þurfum við að gera
upp við okkur hvernig eigi að græða
upp landið og huga að kostnaði. Hvað
þjóðfélagið er tilbúið að kosta miklu
til að binda og minnka nettólosun
meira en lagaleg skylda kveður á um
samkvæmt alþjóðasamningum,“ seg-
ir Hugi.
Kolefnishlutlaust Ísland
ekki óhugsandi útópía
Morgunblaðið/Þorkell
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
Í gangi er átaksverkefni til að binda kolefni með skógrækt og landgræðslu.
„MIKIÐ svakalega er hún há. En ég get klárlega teiknað hana.“ Það má
vera að börnin úr Fossvogsskóla, sem sátu við fætur Leifs heppna, hafi
hugsað á þessum nótum, er þau teiknuðu kirkjuna fyrir framan sig, sjálfa
Hallgrímskirkju.
Verkefnið var ekki lítið og hugsanlega nokkuð erfitt að horfa á móti sól-
inni á hina tignarlegu byggingu en turn hennar er einir 73 metrar á hæð
og er kirkjan hæsta bygging borgarinnar.
Annar og þekktari teiknari hefur eflaust velt verkefninu enn meira fyrir
sér en börnin úr Fossvogsskóla. Húsameistari ríkisins, Guðjón Samúelsson,
hófst handa við að teikna kirkjuna árið 1937. Bygging kirkjunnar hófst
ekki fyrr en árið 1945 en hún var svo vígð árið 1986.
Morgunblaðið/Ómar
Turninn teiknaður
ÍSLAND gæti orðið fyrirmynd ann-
arra þjóða heims í verndun loftslags
ef yfirvöld settu sér það markmið að
hér eigi sér ekki stað meiri losun
gróðurhúsalofttegunda af manna
völdum en unnt er að mæta með
bindingu koltvísýrings í gróðri og
jarðvegi. Þetta segir Andrés Arn-
alds, fagmálastjóri Landgræðslu
ríkisins, en hann var meðal fyrirles-
ara á morgunverðarfundi sem
Landgræðsla ríkisins, Landbúnað-
arháskóli Íslands og Skógrækt rík-
isins stóðu fyrir í gær undir yfir-
skriftinni: „Verndun loftslags. Getur
Ísland orðið hlutlaust í losun gróð-
urhúsalofttegunda?“
Að sögn Andrésar hefur hér á
landi, rétt eins og annars staðar í
heiminum, ævintýralegt magn af
kolvetni losnað úr landinu á síðustu
1.100 árum. Bendir hann í því sam-
hengi á að skógarhula landsins hafi
horfið frá því að vera um 25% af
flatarmáli landsins niður í aðeins
1%.
Getum bundið meirihlutann
„Með aukinni starfsemi í land-
græðslu, skógrækt og friðun lands
getum við bundið meginhluta þess
koltvísýrings sem við erum að losa
frá okkur af manna völdum. Vita-
skuld þurfum við samtímis að draga
úr losun eins og mögulegt er, en síð-
an binda í gróður og jarðveg allt það
sem upp á vantar. Og þar með gæti
Ísland orðið fyrirmynd annarra
þjóða í verndun loftslags þannig að
eftir því yrði verulega tekið á al-
þjóðavettvangi. Það væri afskaplega
kærkomin fyrirmynd sem við mynd-
um skapa með þessum hætti,“ segir
Andrés og bætir við að mikilvægt sé
að styrkja fræðigrunninn á þessu
sviði hérlendis og stórefla rannsókn-
ir.
Að mati Andrésar fara í bindingu
kolefnis í náttúrunni saman fjölþætt
markmið. „Þannig má sem dæmi
nefna að kolefnið í formi lífræns efn-
is er undirstaða vatnsmiðlunar á Ís-
landi. Gróður og jarðvegur bindur
úrkomuna í sér og miðlar henni
hægt frá sér og það hefur svo aftur
áhrif á rennsli lækja og áa,“ segir
Andrés og bendir á að fylgni sé milli
þess að bæta heilsu vatnasviða og
bættrar veiði í ám.
200 milljónir í landgræðslu
Aðspurður hversu stórt skóg-
ræktar- og landgræðsluátak þurfi til
þess að binda kolefni hérlendis og
hvað það muni kosta segir Andrés
ráðlegt að setja sér markmið til
næstu 30 ára og að setja þurfi um
200 milljónir árlega í verkefnið hið
minnsta. „Gróflega reiknað þyrftum
við á næstu 30 árum að græða og
rækta skóg á um milljón hektara
svæði til að mæta þeirri losun sem
eftir stendur miðað við að losun
muni dragast saman í samgöngum
og fiskiskipaflotanum vegna inn-
lendra sjálfbærra orkugjafa,“ segir
Andrés og tekur fram að á sama
tíma sé áætlað að alvarlegt jarð-
vegsrof muni á sama tíma nema um
fjórum milljónum hektara.
Spurður hver eigi að leggja til það
fjármagn sem þurfi til uppgræðsl-
unnar segir Andrés afar æskilegt að
þeir sem mengi taki þátt í kostn-
aðinum við bindinguna, en einnig
þurfi ríkið að koma að verkefninu,
enda sé markmiðið að bæta landið
fyrir komandi kynslóðir. „Einnig
geta félagasamtök gegnt gríðarlega
stóru hlutverki, eins og þau gera
raunar nú þegar í dag,“ segir Andr-
és og nefnir í því samhengi að þús-
undir sjálfboðaliða og einstaklinga
séu að bæta landkostinn. „En þegar
upp er staðið eru bændur öflugasti
hópurinn,“ segir Andrés og bendir
sem dæmi á að Landgræðsla rík-
isins sé nú þegar í samstarfi við um
600 bændur víðs vegar um landið í
verkefni sem nefnist Bændur græða
landið sem hægt væri að stórefla
fengist til þess fjármagn.
Gætum verið öðrum
þjóðum fyrirmynd í
verndun loftslags
LANDVERND vill fara svipaða
leið við lagningu Dettifossvegar og
farin var við vegalagningu á Þing-
völlum. Þetta kemur fram í tilkynn-
ingu frá félaginu en í henni er
Landvernd að bregðast við gagn-
rýni sveitarstjórnar Skútustaða-
hrepps í kjölfar umsagnar samtak-
anna um áform um Dettifossveg og
ályktunar Húsavíkurbæjar um
sama mál.
Landvernd tekur fram að mik-
ilvægt sé að skoðanaskipti um ólík
sjónarmið fari fram með málefna-
legum hætti.
„Landvernd hefur í umsögn sinni
vegna áforma um Dettifossveg bent
á að ferðamenn sækja svæðið fyrst
og fremst vegna þeirrar einstöku
náttúru sem þar er að finna. Til
langs tíma litið fara því hagsmunir
náttúruverndar og ferðaþjónustu
saman í þessu máli sem svo mörg-
um öðrum. Í umsögn sinni mæla
samtökin með að vestan Jökulsár á
Fjöllum verði lagður vegur sem
miðast við náttúruvæna ferðaþjón-
ustu en ekki uppbyggður heils-
ársvegur. Bent er á að uppbyggður
heilsársvegur ætti betur heima
austan megin. Þá gerir stjórn
Landverndar athugasemd við þá
ákvörðun Vegagerðarinnar að miða
hönnun vegarins innan þjóðgarðs-
ins við 90 km hámarkshraða og
kynna ekki valkost með lægri há-
markshraða sem auðveldara væri
að fella að landslagi og náttúru. Að
miða veginn við 90 km/klst er og
andstætt því sem lagt var upp með
í matsáætlun.
Í þjóðgarðinum á Þingvöllum er
lítið uppbyggður vegur sem fellur
ágætlega inn í landslagið. Góð
reynsla er af veginum á Þingvöllum
og hefði verið full ástæða til þess að
fjalla um sambærilegan veg sem
valkost í mati á umhverfisáhrifum.
Með slíkum vegi mætti að líkindum
halda umhverfisáhrifum og röskun
innan þjóðgarðsins vestan Jökulsár
í lágmarki.“
Vilja svipaðan
veg að Detti-
fossi og er á
Þingvöllum
1.800
Óborganlegur farsi eftir meistarann Ray Cooney í
snilldarþýðingu Gísla Rúnars Jónssonar. Landslið gamanleikara
fer á kostum í fyndnasta gamanleik ársins. Leikstjóri Þór Tulinius.
Í STAÐ 2.900*FÁ MIÐANN Á
*bóka þarf miðana fyrir frumsýningu 19. maí
VISA-KREDITKORTHAFAR