Morgunblaðið - 13.05.2006, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 13. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Villti
sveitamaðurinn
á morgun
Guðni Franzson
klarínettleikari
ÚR VERINU
BJÖRN Kalsö sjávarútvegsráð-
herra Færeyja og föruneyti kemur í
opinbera heimsókn til Íslands 15.
maí nk. í boði Einars K. Guðfinns-
sonar sjávarútvegsráðherra. Ráð-
herrarnir ræða á óformlegum fundi
um þau mál sem efst eru á baugi í
samskiptum þjóðanna á sjávarút-
vegssviðinu. Í kjölfarið kynnir Kalsö
sér nokkur íslensk fyrirtæki bæði á
höfuðborgarsvæðinu og á Vestfjörð-
um. Hann heimsækir Marel og HB-
Granda, bregður sér til Bolungarvík-
ur, skoðar 3x-Stál á Ísafirði, þorsk-
eldi í Súðavík, snjóflóðavarnir á
Flateyri og leikskóla sem Færeying-
ar gáfu Súðvíkingum og Flateyring-
um í kjölfar snjóflóðanna 1995. Með
Birni í för verða Hennibeth Kalsö
eiginkona hans og Rógvi Reinertell-
er ráðuneytisstjóri. Heimsókninni
lýkur 17. maí.
Sjávarútvegs-
ráðherra Fær-
eyja í heimsóknSauðárkrókur | Undanfarið hefur verið unnið við að setjaupp próteinverksmiðju í Verinu á Sauðárkróki. Verk-
smiðjan, Iceprotein ehf. var áður í húsnæði HB-Granda
á Akranesi en samningar um flutning hennar norður
voru undirritaðir í febrúar. Verksmiðjan er í eigu Rann-
sóknarstofnunar fiskiðnaðarins, en Háskólinn á Hólum
og Fisk-Seafood koma nú að starfsemi hennar.
Verkefni verksmiðjunnar eru margþætt, en líta má á
að markmiðin séu aðallega rannsóknir og bein aðkoma
að matvælaframleiðslu. Í samvinnu við Fisk-Seafood á
að vinna prótein úr beingörðum og afskurði eftir flökun
og snyrtingu fisks. Allt verður hakkað fínt og sett í svo-
kallaða sýrubasameðferð. Því næst er vatn fjarlægt úr
þessum massa og eftir standa fiskprótein sem sprautað
er inní flökin. Með þessu er hægt að auka þyngd fisks-
ins um 10–15% auk þess sem hann verður fallegri og
betri.
Í vatninu sem fjarlægt er eru einnig prótein og er
hugmyndin að finna leiðir til að nýta þau í framleiðslu
fæðubótarefna. Miklar rannsóknir tengjast vinnslu á
próteinum og eru vísindamenn próteinverksmiðjunnar
þátttakendur í nokkrum Evrópuverkefnum um þetta
viðfangsefni og ljóst að þær tilraunir sem gerðar eru
hjá Iceprótein geta komið öðrum til góða hérlendis og
erlendis.
Sigurður Hauksson hjá Rf vinnur við uppsetningu á
verksmiðjunni. Hann vonast til að tilraunakeyrsla geti
hafist í byrjun júní en segir að starfsemin verði vart
komin í fullan gang fyrr en í byrjun næsta árs. Ef allt
gengur að óskum varðandi starfsemina gætu þarna orð-
ið 5–10 ársverk í framtíðinni.
Iceprotein komið norður
Undirritun Sjöfn Sigurgísladóttir, forstjóri Rf, Skúli
Skúlason, skólameistari Hólaskóla, og Jón E. Frið-
riksson, framkvæmdastjóri Fisk-Seafood.
Morgunblaðið/Örn Þórarinsson
ICELANDIC Asía haslar sér völl í
eldi og vinnslu á beitarfiski, tilapiu, í
Kína Icelandic Asía, dótturfélag Ice-
landic Group, hefur skrifað undir
viljayfirlýsingu um
kaup á 51%
eignarhlut í
fyrirtæki í eldi
og vinnslu í Kína og
er meginafurð þess beitarfiskur.
Unnið er að gerð áreiðanleikakönn-
unar á félaginu og er gert ráð fyrir að
henni ljúki fyrir maílok. Félagið er
þriggja ára gamalt og hefur verið í
eigu stjórnenda þess. Þeir munu
starfa áfram við félagið og eiga 49%
eignarhlut. Núverandi árleg fram-
leiðsla er um 6 þúsund tonn en áætl-
anir eru um að tvöfalda afkastaget-
una á næstu tólf mánuðum og að velta
félagsins muni nema um 25 milljónum
dollara. Félagið hefur verið birgir
Icelandic USA og eru Bandaríkin
mikilvægasti markaður félagsins.
Kaupverð, sem verður fjármagnað
með lánsfé, er trúnaðarmál.
Beitarfiskur er hvítfiskur sem
neysla hefur vaxið mjög á undanfarin
ár á kostnað dýrari tegunda svo sem
þorsks. Beitarfiskur er næststærsta
fiskeldistegundin í heiminum og á
árinu 2004 voru framleiddar um tvær
milljónir tonna. Á árinu 2004 var beit-
arfiskur í 6. sæti yfir mest seldu sjáv-
arafurðir í Bandaríkjunum en þorsk-
ur í 8. sæti. Fyrirsjáanlegt er að
neysla á beitarfiski muni vaxa áfram.
Kaupin eru liður í stefnu Icelandic
Group að styrkja stöðu sína í öflun
hráefnis og framleiðslu. Jafnframt
mun öflugt sölu- og markaðskerfi Ice-
landic USA nýtast betur en áður.
Icelandic
Group í eldi
á beitarfiski
í Kína
EINAR K. Guðfinnsson, sjáv-
arútvegsráðherra, sótti sjáv-
arútvegssýninguna í Brussel 9. og
10. maí. Þetta er stærsta fagsýning
í heimi á sviði sjávarútvegs og taka
meira en 1600 fyrirtæki frá hátt í
70 löndum þátt í henni. Um 30 ís-
lensk fyrirtæki kynna starfsemi
sína á sýningunni. Sýnendur nota
gjarnan tækifærið til að kynna nýj-
ungar í framleiðslu sinni og afhjúp-
aði sjávarútvegsráðherra við sér-
staka athöfn nýja gerð kerja frá
Sæplasti.
Á sýningunni átti sjávarútvegs-
ráðherra óformlegan fund með Pat-
rick Tabone, sem stýrir skrifstofu
framkvæmdastjóra Evrópusam-
bandsins í sjávarútvegsmálum.
Meðal annars skoðuðu þeir nýjan
vef sem hefur verið opnaður um um-
hverfismerkingar sjávarafurða.
Vefurinn er kostaður og vistaður af
framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins en unnin í samvinnu fram-
kvæmdastjórnarinnar og íslenska
sjávarútvegsráðuneytisins. Hann er
aðgengilegur á vef Evrópusam-
bandsins og í gegnum heimasíðu
sjávarútvegsráðuneytisins.
Sýningar Erlendur Arnarson hjá Sæplasti og Einar K. Guðfinnsson bregða
á leik eftir að sjávarútvegsráðherra svipti hulunni af nýju kerunum.
Vefur um umhverfis-
merkingar opnaður
HEILBRIGÐIS- og trygginganefnd Alþingis leggur til að
gerðar verði breytingar á lögum um tóbaksvarnir, með hlið-
sjón af dómum Hæstaréttar frá því í apríl sl. en í dómunum
er komist að þeirri niðurstöðu að tóbaksverslanir megi hafa
tóbak sýnilegt. Nefndin leggur þó til að tóbak og vörumerki
þess verði einungis sýnilegt þegar inn í sérverslanirnar er
komið.
Í 6. mgr. 7. gr. laga um tóbaksvarnir segir að tóbaki og
vörumerkjum tóbaks skuli komið þannig fyrir á útsölustöð-
um að það sé ekki sýnilegt viðskiptavinum. Hæstiréttur taldi
að löggjafinn hefði með ákvæðinu farið út fyrir mörk tján-
ingar- og atvinnufrelsisákvæða stjórnarskrárinnar, þ.e. ekki
hefði verið sýnt fram á þörfina fyrir að láta bannið taka til
sérverslana með tóbak.
Í nefndaráliti sínu, sem dreift hefur verið á Alþingi, og
varða reyndar aðrar breytingar á tóbaksvarnarlögum, segir
heilbrigðis- og trygginganefnd að með hliðsjón af fyrr-
greindum dómum Hæstaréttar leggi hún til að gerð verði
undantekning frá banninu í 6. mgr. 7. gr. laganna þegar í
hlut eiga sérverslanir með tóbak. Nefndin skilgreinir sér-
verslun með tóbak sem verslun sem einkum hafi tóbak og
reykfæri á boðstólum. „Til að tryggja virkt eftirlit og koma í
veg fyrir hugsanlega misnotkun þessarar undantekningar
felur breytingartillaga nefndarinnar í sér að til reksturs sér-
verslunar með tóbak þurfi, auk almenns leyfis til smásölu,
sérstakt leyfi heilbrigðisnefndar. Mat á því hvort umsækj-
andi uppfylli skilyrði laganna til að reka sérverslun sé jafn-
framt í höndum heilbrigðisnefndar, þ.m.t. taki nefndin af-
stöðu til þess hvort verslun uppfylli það skilyrði að hafa
(einkum) tóbak og reykfæri á boðstólum. Þannig er ætlunin
að tryggja að tóbak og vörumerki tóbaks sé eingöngu sýni-
legt þeim sem gagngert vilja kynna sér tóbak og kaupa það.“
Nefndin tekur fram að í breytingartillögu hennar felist að
einungis sé heimilt að koma tóbaki og vörumerkjum þess
þannig fyrir innan sérverslunar að það sé sýnilegt viðskipta-
vinum þegar inn í verslunina er komið. „Þannig sé óheimilt
að koma tóbaki og vörumerkjum tóbaks þannig fyrir innan
verslana, t.d. í búðargluggum eða á annan hátt, að það verði
sýnilegt þeim sem ekki eiga erindi í viðkomandi verslun. Þá
er gert ráð fyrir að sérverslanir með tóbak skuli auðkenna
sérstaklega samkvæmt nánari ákvæðum í reglugerð,“ segir í
áliti nefndarinnar.
Heilbrigðis- og trygginganefnd um tóbaksvarnarfrumvarpið
Heilbrigðisnefndir heimili
rekstur tóbaksverslana
Eftir Örnu Schram
arna@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
HEILBRIGÐIS- og
trygginganefnd Alþingis
leggur til að tillögur um
bann við reykingum á
veitinga- og skemmti-
stöðum frá og með 1. júní
2007, verði samþykktar.
Tillögurnar eru að finna
í frumvarpi til laga um
breytingar á lögum um
tóbaksvarnir. Frum-
varpið hefur verið af-
greitt úr nefnd.
Í áliti nefndarinnar um
frumvarpið segir m.a. að
með frumvarpinu sé lögð
áhersla á að tryggja
þeim sem starfa á veit-
inga- og skemmtistöðum
sömu vinnuvernd og öðr-
um og þann rétt að þurfa
ekki að anda að sér lofti
sem er mengað tóbaks-
reyk af annarra völdum.
„Leggur nefndin áherslu
á mikilvægi þessa auk
forvarnagildis þess að
fækka stöðum sem heim-
ilt er að reykja á.“
Í álitinu kemur fram
að nefndin hafi rætt
hvort fara ætti sömu leið
og í Svíþjóð og heimila
sérstök reykherbergi á
veitinga- og skemmti-
stöðum. Niðurstaða
nefndarinnar hafi hins
vegar verið sú að ekki
væri tilefni til þeirrar
undanþágu, m.a. vegna
vinnuverndarsjónarmiða
gagnvart þeim starfs-
mönnum sem hefðu þar
þrif með höndum.
Mæla með
reykingabanni