Morgunblaðið - 13.05.2006, Blaðsíða 50
50 LAUGARDAGUR 13. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
ÞAÐ VAR skrítið að fylgjast
með fréttamönnum RÚV af-
greiða Baugsmálið í beinni. Nú
er það náttúrulega svo að allt
orkar tvímælis þá gert er og að
sama skapi er okkur dauðlegum
fyrir framan skjáinn ýmislegt
hulið og sínum augum lítur hver
silfrið og allt það. Niðurstaðan
verður oft sú svo sem marg-
ítrekað er að við tölum af van-
þekkingu um menn og málefni
að mati þeirra sem matreiða
slíkt ofan í okkur. Í þessu tilfelli
ætla ég að sé ekkert tilefni til að
láta RÚV njóta vafans. Ég
horfði og hlustaði. Það var ekk-
ert sagt frá neinu ítarefni sem
ég ætti að kynna mér til að
skilja samhengi fréttarinnar við
raunveruleikann, þetta var raun-
veruleiki RÚV þessi maíkvöld.
Baugsmálið samkvæmt ríkisfjöl-
miðlinum. Ég hafði nefnilega á
tilfinningunni að í stað þess að
afgreiða Baugsmálið hefði frétta-
stofan lemstrað eigin trúverð-
ugleika. Það var ótrúlegur farsi
að horfa á fréttamanninn rekja
gamlar garnir úr Jóni Geraldi,
gögn sem við fyrir framan skjá-
inn héldum að dómstólar hefðu
vegið og fundið léttvæg fyrir
nokkru a.m.k. í þess tíma sam-
hengi. Það var sárgrætilegt að
hlusta á þær útskýringar frétta-
mannsins að fyllsta jafnræðis
hefði verið gætt, þeim sem born-
ir voru þyngstum sökum í þætt-
inum var boðið að mæta í þátt-
inn að verja æru sína gagnvart
ásökunum um þjófnað og svik.
Þeir fengu boðið með tæplega
þriggja sólarhringa fyrirvara.
Það var náttúrulega augljóst af
öllu þessu að RÚV taldi sig ráða
yfir gögnum sem aðrir hefðu
ekki séð áður, engan tíma mátti
missa. Ef ekki yrði tekið á mál-
inu þar og þá yrði það ónýtt. Ég
er á því að það sé skikkanlegt og
viðbúið að ríkisútvarp sé leið-
inlegt en að það þurfi að sama
skapi að vera vitlaust get ég
ekki sætt mig við. Þeir sem
stjórna róðrarsveitinni á RÚV
verða að átta sig á því að það er
engin eftirspurn eftir þátttöku
ríkisins í samkeppni um fréttir.
Þessir þættir staðfestu að þar er
fréttastofu ríkisins alls ekki
treystandi, þetta var hin full-
komna innihaldslausa frétt, ekki-
frétt, bull. Mér er fyrirmunað að
skilja af hverju ég á að borga
fyrir útsendingartíma á efni af
þessu tagi. Ef ríkið hyggst vera
áfram í fréttaflutningi þá ætti
það að einbeita sér að fréttum
sem það getur staðið við og
snerta þá sem borga brúsann.
Ég verð að viðurkenna að sam-
skipti Jóns Geralds og Baugs
eða Aðfanga eru bara ekki
áhugaverð. Það er öllum sama
nema einhverju fólki á Mogg-
anum og RÚV. Þessi árátta að
setja stefnuna fyrir dómstólana
er óþolandi, dómsmál á að láta
ganga þá kurteislegu leið gagn-
vart fórnarlömbum af hvaða tagi
sem er að einskorða fréttaflutn-
ing við ákæruna þegar hún er
birt og dómsúrskurðinn þegar
hann liggur fyrir. Það er hluti af
réttarríkinu, sem er okkur öllum
verðmætt, að dómstólar fái að
sinna hlutverki sínu í friði fyrir
sjálfskipuðum réttargæslumönn-
um samfélagsins.
En það er björt hlið á þessu
máli, hún er sú að sennilega er
þetta einn naglinn enn í kistu fá-
ránleika rekstrar ríkisins á fjöl-
miðlum.
Kristófer Már Kristinsson
Ríkið í frétta-
flutningi
Höfundur er námsmaður í HÍ.
FRÁ OG með 2. janúar sl. er
frítt í sund fyrir öll börn á grunn-
skólaaldri.
Markmið Reykjanesbæjar með
þessari ákvörðun er að hvetja til
aukinnar hreyfingar barna og ung-
linga en vaxandi
áhyggjur eru af auk-
inni þyngd íslenskra
barna.
Þó íþróttaþátttaka
barna í Reykjanesbæ
sé með mesta móti á
Íslandi er full ástæða
að hvetja til enn meiri
hreyfingar eins og
gert er með þessu
móti.
Í Reykjanesbæ eru
fjórar sundlaugar, þar
af tvær fyrir almenn-
ing og um helgina
verður tekin í notkun
ný 50 m innisundlaug
við Sundmiðstöð
Keflavíkur ásamt
vatnaveröld sem er
leiksvæði fyrir yngstu
sundgestina. Hægt er
að skipta innilauginni
í tvær 25 m laugar og
er önnur með upp-
hækkanlegum botni
til að auðvelda sund-
kennslu og öryggi
yngstu barnanna.
Frítt í strætó
Undanfarin þrjú ár hefur verið
frítt í strætisvagna í Reykjanesbæ.
Talsverðar vegalengdir eru á
milli áfangastaða í bæjarfélaginu,
sérstaklega eftir sameiningu
Njarðvíkur, Keflavíkur og Hafna.
Eftir að strætó varð gjaldfrjáls
hefur aðsókn í vagnana tvöfaldast.
Mest er um börn og unglinga sem
nýta vagnana bæði í skóla, í sund,
tónlistarnám, íþróttir og til að
heimsækja vini og kunningja. Ekið
er fram hjá helstu þjónustustofn-
unum bæjarins og í helstu hverfi.
Akstur er frá 7.30 til 23.00 á 30
mínútna fresti, virka daga til kl.
19.00 en á klukkutíma fresti eftir
það til kl. 23.00.
Frítt í strætó dregur úr þörf
fjölskyldunnar á aukabíl og auð-
veldar ekki síst börnum og öldr-
uðum að ferðast á milli staða án
þess að vera í slysa-
hættu sem gangandi
vegfarendur. Þá mun-
ar allar fjölskyldur
um hundruð króna
sem það myndi annars
kosta daglega að fara
á milli með gjaldtöku
eins og tíðkast á höf-
uðborgarsvæðinu.
En það er fleira
sem gert hefur verið á
undanförnum árum í
Reykjanesbæ til að
stuðla að aukinni
hreyfingu og aukinni
og virkari þátttöku
barna og ungmenna í
íþrótta- og tómstunda-
starfi.
Má þar nefna:
– Frítt í strætó (fyr-
ir alla)
– 5 sparkvellir lagð-
ir gervigrasi við hvern
grunnskóla (upphit-
aðir, upplýstir og af-
girtir). Fyrsti völl-
urinn var lagður 1999,
áður en KSÍ hóf að
styrkja uppbyggingu slíkra valla í
bæjarfélögum.
– Lágt gjald í Frístundaskóla
fyrir nemendur í 1.–4. bekk. Með
samvinnu við íþróttahreyfinguna
eru æfingatímar barna á þessum
aldri settir í forgang við úthlutun
tíma í íþróttahúsum. Þær hefjast
því strax að lokinni kennslu grunn-
skóla og á að vera lokið á starfs-
tíma frístundaskólans. Íþrótta-
æfingagjald er innifalið í gjaldi
skólans (ein íþróttagrein að eigin
vali), börnum er ekið til og frá æf-
ingum og í annað tómstundastarf
(samstarf við KFUMK og Skáta).
Eini Frístundaskólinn á landinu
sem er opinn í vetrarfríum grunn-
skóla.
– Aðstoð við greiðslu þjálf-
aralauna barna- og ungmenna
nema rúmum 11 milljónum króna
á ári.
– Samningar við 50 félög og
klúbba, þar af um 20 sem hafa
barna- og ungmennastarf á sínum
snærum.
– Öflugar félagsmiðstöðvar/
ungmennahús með virkri þátttöku
ungmenna.
– Listaskóli barna er starf-
ræktur á sumrin til þess að skapa
mótvægi við íþróttir og annað
hefðbundið tómstundastarf og
auka fjölbreytni.
– Tónlistarnám fer fram í grunn-
skólum á starfstíma þeirra. For-
skóli í 1.–2. bekk er gjaldfrjáls.
– Reykjanesbær gerir FFGÍR
(foreldrafélögum og foreldraráðum
grunnskóla Reykjanesbæjar) kleift
að ráða starfsmann í 50% stöðu til
að sinna forvarnarmálum og sam-
starfi heimilis og skóla með rausn-
arlegum fjárstyrk á hverju ári.
– SOS – hjálp fyrir foreldra.
Samræmd uppeldisáætlun í einu
bæjarfélagi sem notuð er í leik- og
grunnskólum auk þess sem boðið
er upp á námskeið fyrir foreldra.
Tilvísunum vegna sérfræðiþjón-
ustu hefur í framhaldi fækkað.
– Vinnuskóli sem er starfandi
allt árið og gerir samning við
grunnskólann um starfs- og
áhugamiðað nám fyrir nemendur í
efstu bekkjum sem ekki finna sig í
námi samkvæmt samningi við
nemanda, foreldra og fyrirtæki og
skóla.
Um leið og ég óska íbúum
Reykjanesbæjar til hamingju með
Vatnaveröldina í Sundmiðstöðinni
hvet ég alla sem leið eiga til bæj-
arins að líta við.
Þjónusta við börn og
ungmenni í Reykjanesbæ
Ragnar Örn Pétursson segir
frá íþrótta- og tómstundastarfi
í Reykjanesbæ
Ragnar Örn Pétursson
’MarkmiðReykjanesbæjar
með þessari
ákvörðun er að
hvetja til auk-
innar hreyfingar
barna og ung-
linga …‘
Höfundur er forvarnar- og æskulýðs-
fulltrúi Reykjanesbæjar.
Opið: Alla virka daga kl. 9:00 -18:00 og laugadaga kl. 12:00 -16:00.NOTAÐIR BÍLAR
50.000kr.
Nú fylgir 50.000 króna bensínkort frá Ego með hverjum notuðum bíl frá Ingvari Helgasyni.
Fjárfestu í góðum bíl og keyrðu frítt fyrstu 403 lítrana!*
* 50.000 kr. jafngilda 403,5 lítrum af 95 oktan bensíni hjá Ego miðað við verðlag 11.05.06.
afbensíni fylgjaöllumnotuðumbílum