Morgunblaðið - 13.05.2006, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 13.05.2006, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 13. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Virðing RéttlætiVR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS Stjórnar þú með stíl? Fyrirtæki ársins er árleg könnun VR á stjórnun, aðbúnaði og ánægju starfsfólks íslenskra fyrirtækja. Niðurstöður verða kynntar 19. maí. F í t o n / S Í A ÓVÆNT umskipti hafa orðið í skoð- anakönnunum í Mexíkó vegna vænt- anlegra forsetakosninga í júlí, vinstrimaðurinn Andres Manuel Lopez Obrador, fyrrverandi borg- arstjóri í Mexíkóborg, hefur glutrað niður traustu forskoti sínu. Helsti keppinautur hans, hægrimaðurinn Felipe Calderon úr PAN, Þjóð- arframtaksflokki Vicente Fox for- seta, var í liðinni viku með 40% stuðning í könnun blaðsins Reforma en Lopez Obrador aðeins 33%. Í mars voru hlutföllin nánast þver- öfug. Aðrar kannanir sýna minni mun en samt sem áður Calderon í hag. Þriðji í röðinni var Roberto Madrazo, forsetaefni gamla valdaflokksins, Stofnvædda byltingarflokknum, PRI, sem í reynd stóð fyrir flokks- einræði í rúma sjö áratugi þar til Fox sigraði árið 2000. Kannanir gefa einnig til kynna að PAN muni verða stærsti flokkurinn á þingi. Vinsæll borgarstjóri og talinn óspilltur Obrador er frambjóðandi PRD, sem nefna mætti Lýðræðislega bylt- ingarflokkinn. Hann var geysilega vinsæll borgarstjóri, ekki síst vegna þess að hann lifði engu munaðarlífi og hafði orð á sér fyrir að vera laus við spillingu sem er heldur sjaldgæft um mexíkóska stjórnmálaleiðtoga. „Hann lifir fábrotnu lífi og það er ekki sýndarmennska,“ segir Serhio Aguayo, stjórnmálaskýrandi í Mexíkó. Um helmingur Mexíkóa býr undir skilgreindum fátækt- armörkum þótt kjör þjóðarinnar hafi batnað mjög síðustu áratugi. Nær fjórðungur kjósenda býr í höf- uðborginni en um 100 milljónir í landinu öllu. Obrador naut einkum vinsælda meðal fátækra borgarbúa en auðkýfingar óttuðust hann mjög. Hægrisinnar benda einnig á að Obrador hafi ekki hikað við að efna til mikilla opinberra útgjalda án þess að til væri fyrir þeim og halli er nú á rekstri Mexíkóborgar. Oft sýndi Obrador mikla seiglu þegar hann varðist tilraunum andstæðinga til að setja hann af vegna meintra brota. Stjórnmálaskýrendur eru þó á því að deila megi um árangur hans í emb- ætti 2000–2005, að sögn tímaritsins The Economist. Mörg spillingarmál komu upp í tíð hans og glæpafárið í borginni, sem er alræmt, dvínaði ekki. Obrador hefur síðustu mánuði átt í hörðum, persónulegum deilum við Fox forseta og ekki sparað stóryrðin, talið er að þetta hafi farið illa í marga kjósendur. Að sögn George Grayson, sérfræðings í málefnum Mexíkó við William & Mary-háskólann banda- ríska, „grefur [Obrador] sína eigin gröf með tungunni“. The Economist segir að eitt helsta einkenni Obradors sé að hann telji sig ávallt vita best. Hann hafi mótast á unga aldri er hann var liðsmaður PRI í tíð flokkseinræðisins sem að vísu var farið að molna síðustu ára- tugina fyrir valdatöku Fox. En margir Mexíkóar telji að sigri Obra- dor í júlí sé um að ræða dulbúna end- urkomu PRI að stjórn landsins. Obrador hefur oftar en einu sinni sagt Fox að „halda sér saman“ sem mörgum þykir óviðeigandi að segja opinberlega við þjóðhöfðingjann. Ræður Obradors eru að sögn ritsins oft lítt fallnar til að sameina þjóðina, hann er mjög hvassyrtur. „Dramb- semi hefur augljóslega valdið honum tjóni,“ segir Jorge Castaneda, fyrr- verandi utanríkisráðherra í stjórn Fox og nú þekktur fréttaskýrandi. Segir Castaneda í grein í tímaritinu Newsweek að Obrador hafi mistekist að umbreyta sjálfum sér úr manni sem höfðaði fyrst og fremst til hags- muna fátæklinga í stjórnmálaleið- toga á landsvísu með skírskotun til fleiri samfélagshópa. Öfgasinnar í flokki hans hafi komið í veg fyrir þá þróun, hann sé nánast í gíslingu þeirra. Obrador beitir gjarnan aðferðum pópúlista með því að lofa almenningi öllu fögru. En Calderon hefur einnig heitið því að efla heilbrigðiskerfi og samgöngur og hækka bætur til fá- tæklinga, einkum í sveitahéruðum en þar er talið að Obrador hafi víða minni stuðning en í borgunum. Flestir vilja hægfara breytingar en ekki byltingu Það er talið hafa aukið efasemdir margra miðjukjósenda að andstæð- ingar hans líkja Obrador við Hugo Chavez í Venesúela. Þótt Mexíkóar vilji breytingar eru þeir ekki margir sem vilja ganga jafn langt og Chavez sem á í köldu stríði við Bandaríkja- menn og alþjóðleg olíufyrirtæki í landi sínu. Jorge Casteneda segir að flestir landsmenn vilji hægfara breytingar en enga byltingu. Og þótt fátækt sé vandamál er margt á réttri leið síð- ustu árin, verðbólga og vextir lægri en nokkru sinni, atvinnuleysi fer minnkandi og Fox hefur aldrei notið meiri stuðnings í könnunum en núna sem kemur Calderon til góða. Ekki hefur það mælst vel fyrir að Obrador skyldi neita að mæta í fyrri sjónvarpskappræðurnar í liðinni viku. Bar hann því við að hann vildi ekki trufla ferðalag sitt um landið þar sem skipulagðir hafa verið stutt- ir fundir á fjölmörgum stöðum. Hann hefur auk þess fullyrt, ýmist háðskur eða reiður, að ekkert sé að marka kannanir sem sýni dvínandi fylgi við sig; Calderon hafi greitt fyrir þær. „Ég held því fram að við séum 10 prósentustigum hærri ... ég er alveg sannfærður um að við erum á réttri braut,“ sagði Obrador sl. þriðjudag. Sama dag höfðu birst niðurstöður könnunar blaðsins Milenio sem sýndi Calderon með heldur meira fylgi en Obrador. „Grefur sína eigin gröf með tungunni“ Vinstrimaðurinn Obrador ekki lengur viss um sigur í kosningunum í Mexíkó Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is AP Helstu frambjóðendurnir í forsetakosningunum í Mexíkó, frá vinstri Felipe Calderon, Andres Manuel Lopez Obra- dor og Roberto Madrazo. Mikil umskipti hafa orðið á fylgi frambjóðendanna í könnunum að undanförnu. Harare. AFP. | Verðbólgan í Afr- íkuríkinu Zimbabwe mælist nú hærri en 1.000% og er hvergi hærri í heiminum. Mikill skortur er á matvælum, eldsneyti og er- lendum gjaldeyri í Zimbabwe, en Robert Mugabe, forseti landsins, hefur kennt óvinum sínum, inn- lendum sem erlendum, um þessa þróun mála. Hagstofan í Zimbabwe greindi frá nýjum verðbólgutölum í gær en þær þýða að vörur eru að jafn- aði ellefu sinnum hærri nú en þær voru fyrir ári síðan. Seðlabankinn í Zimbabwe hafði sagt að stefnt væri að því að ná verðbólgunni niður fyrir 500% í júní á þessu ári og svo niður fyrir 100% á næsta ári. Nýjar tölur hagstofunnar eru því mikið áfall fyrir ráðamenn þar. Hjálparstofn- anir telja að meira en fjórar millj- ónir manns þurfi á mataraðstoð að halda í Zimbabwe en íbúarnir eru alls þrettán milljónir. 1.000% verðbólga í Zimbabwe Jakarta. AP. | Yfirvöld í Indónesíu til- kynntu í gær að fallið hefði verið frá öllum ákærum á hendur Suharto, fyrrverandi einræðisherra í landinu, en hann sætti ákærum fyrir fjár- drátt. „Suharto er ekki lengur sak- borningur, hann er frjáls maður,“ sagði Abdul Rahman Saleh ríkissak- sóknari. Suharto er 84 ára gamall. Hann er á sjúkrahúsi í Jakarta en hann er sagður heilsuveill mjög. Mátti ráða af yfirlýsingu Rahmans í gær að veikindi Suhartos hefðu haft áhrif á ákvörðunina um að fella niður ákær- ur gegn honum. Rahman tók hins vegar fram að málarekstur yrði mögulega hafinn að nýju, ef „aðstæð- ur breyttust“. Suharto var við völd í Indónesíu í 32 ár en var steypt af stóli fyrir átta árum í kjölfar mikils umróts og óeirða. Árið 2000 voru lagðar fram ákærur á hendur honum, þar sem hann var sakaður um að draga sér 600 milljónir Bandaríkjadala í valda- tíð sinni. Suharto hefur hins vegar aldrei komið fyrir rétt, enda héldu verjendur hans því fram að nokkur heilablóðföll hefðu valdið því að hann hefði hlotið varanlegan heilaskaða. Sú ákvörðun, að hætta mála- rekstri gegn Suharto, er umdeild en stjórnartíð hans þótti einkennast bæði af spillingu og harðneskjulegri framgöngu yfirvalda. Efast sumir um að Suharto sé í raun veikur, aðrir leggja áherslu á að hann biðji þjóð sína afsökunar eða skili þeim pen- ingum, sem hann er sagður hafa stungið undan. Fella niður ákærur á hendur Suharto Suharto, fyrrv. forseti Indónesíu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.