Morgunblaðið - 13.05.2006, Blaðsíða 32
32 LAUGARDAGUR 13. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
ÞRÍTUGASTA og öðru starfsári
Myndlistaskólans á Akureyri
lýkur með stórri sýningu á verk-
um nemenda í dag.
Sýningin er að þessu sinni tví-
skipt. Lokaverkefni þeirra
fimmtán einstaklinga sem
brautskráðir verða í vor eru til
sýnis í því rými sem ætlað er
starfsemi Listasafnsins á Ak-
ureyri í framtíðinni, á efstu hæð
í Kaupvangsstræti 12. Í húsnæði
skólans að Kaupvangsstræti 16
verða verk nemenda forn-
ámsdeildar, listhönnunar- og
fagurlistadeildar. Þar gefur að
líta sýnishorn af því helsta sem
nemendur hafa verið að fást við í myndlist og hönnun á þessu skólaári.
Nemendur útskrifast að loknu þriggja ára námi í sérnámsdeildum með
því að vinna lokaverkefni innan sérgreinarinnar og skrifa rannsókn-
arritgerð. Að þessu sinni útskrifast 15 einstaklingar og eru útskriftarverk
þeirra sérstaklega kynnt á sýningunni.
Auk þess sem að ofan er talið verða sýnd verk eftir börn sem hafa stund-
að nám í barnalistadeild skólans um lengri eða skemmri tíma.
Vorsýningin verður opin í dag og á morgun frá kl. 14 til 18.
Vorsýning Mynd-
listaskólans opnuð
Útskrift Nemendurnir 15 sem útskrifast
að loknu þriggja ára námi í sérnáms-
deildum Myndlistaskólans á Akureyri.
SUÐURNES
AKUREYRI
Laufás | Sumarstarfið við Gamla
bæinn í Laufási hefst formlega á
morgun, sunnudag 14. maí, er hinn
forni vinnuhjúaskildagi, en skv.
gamalli hefð skal allt vinnufólk koma
þennan dag til sinnar vistar þar sem
það hefur ráðið sig.
Á morgun er sérstök dagskrá í
Laufási milli kl. 14 og 16, þar sem
m.a. fer fram upplestur um þennan
merkisdag fyrri alda. Gestum og
gangandi verður þá boðið upp á
kaffi/kakó og nýsteiktar lummur í
„nýja“ eldhúsinu í Gamla bænum .
Þennan dag verður enginn að-
gangseyrir innheimtur í Gamla bæ-
inn, og því kjörið að skoða bæinn og
kirkjuna og njóta þess sem fram
verður borið á þessum opnunardegi.
Gamli bærinn í Laufási verður síð-
an opinn í allt sumar frá kl. 9 til 18.
Gítartónleikar | Jón Helgi Svein-
björnsson gítarleikari heldur fram-
haldsprófstónleika í sal skólans að
Hvannavöllum 14 á morgun, sunnu-
dag, kl. 15.30. Jón Helgi hefur
stundað nám við Tónlistarskólann á
Akureyri undir leiðsögn Indreks
Pajus. Á tónleikunum leikur hann
verk eftir M.Giuliani, H.Villa-Lobos,
J.S. Bach, I. Albeniz og A. Vivaldi.
Reykjanesbær | Íbúavefurinn Mitt
Reykjanes, mittreykjanes.is, var
opnaður á íbúafundi sem Árni Sig-
fússon, bæjarstjóri, hélt í Akurskóla
í Innri Njarðvík á miðvikudags-
kvöld. Þar gefst íbúum kostur á að
reka erindi sín við stjórnsýslu bæj-
arins á rafrænan hátt.
Dagný Gísladóttir, kynning-
arstjóri Reykjanesbæjar, kynnti
nýja íbúavefinn á fundinum. Allir
íbúar bæjarins eldri en 18 ára fá að-
gang að eigin síðu á íbúavefnum. Í
tilefni sumarkomu færir Reykjanes-
bær fjölskyldum 2000 kr. sem hægt
er að nota á Mínu Reykjanesi til að
greiða niður kostnað vegna nám-
skeiða barna og ungmenna í sumar.
Á vefnum geta íbúarnir nálgast
upplýsingar um greiðslustöðu sína
hjá Reykjanesbæ. Þar er hægt að
leggja fram formleg erindi til bæj-
arins, óformlega fyrirspurn og nálg-
ast eyðublöð til að sækja um þjón-
ustu eða starf hjá bænum, erindið er
meðhöndlað á sama hátt og erindi
sem berast bréflega.
Á svonefndum lýðræðishluta vefj-
arins fara fram umræður. Bærinn
getur líka kannað skoðanir bæj-
arbúa á ýmsum málum og þar eru
auglýstar tillögur að skipulagi.
Inni á heimasíðu sinni á Mínu
Reykjanesi geta íbúar einnig nálgast
upplýsingar um skóla barna sinna í
gegn um Mentor, meðal annars
stundaskrá.
Fundurinn í Akurskóla var fyrsti
íbúafundur bæjarstjórans í Reykja-
nesbæ á þessu ári. Næstu daga
fundar hann með íbúum annarra
hverfa. Fjölmenni var á fundinum,
enda eru nýju hverfin í Innri Njarð-
vík að byggjast hratt upp þessa
mánuðina og nýtt fólk að flytja inn
næstum daglega.
Árni fór yfir þau mál, sem unnið
hefur verið að og komist hafa í fram-
kvæmd á undanförnum árum, og
þær ákvarðanir sem fyrir liggja um
framhaldið. Hann fór ítarlega yfir
þjónustu bæjarfélagsins. Fór sér-
staklega yfir stöðu fjármála og sam-
starfið við Eignarhaldsfélagið Fast-
eign hf. um uppbyggingu fasteigna
bæjarfélagsins. Fullyrti bæjarstjóri
að tekist hefði að lækka bygging-
arkostnað verulega, viðhald eign-
anna hefði batnað og lánskjör Fast-
eignar væru betri eða að minnsta
kosti jafn góð og bæjarins sjálfs.
Starfsmenn bæjarins skrifuðu
niður athugasemdir sem fram komu
á fundinum og óskir um úrbætur í
málefnum hverfisins. Umferðarmál
og umhverfismál virtust liggja fund-
armönnum mest á hjarta. Það virtist
brenna sérstaklega á ýmsum fund-
argestum hvað nýju göturnar í
hverfinu eru þröngar.
Vefurinn Mitt Reykjanes
opnaður á borgarafundi
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Íbúar Fulltrúar A-listans minntu íbúa Innri Njarðvíkur á framboðið með
því að færa fundargestum gos og flögur, í litum framboðsins.
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna
sveitarstjórnarkosninga sem fram fara
laugardaginn 27. maí 2006, er hafin.
Kosið er frá kl. 09:00 til 21:00 á skrifstofu
embættisins að Hafnarstræti 107, Akureyri, 2. hæð,
frá mánudegi til föstudags og milli kl. 14:00 og
17:00 á laugardögum og sunnudögum.
Á kjördag er opið frá kl. 10:00 til 21:00.
Á skrifstofu embættisins í Ráðhúsinu á Dalvík er
kosið milli kl. 09:30 og 13:30 frá mánudegi til
föstudags.
Kosið er hjá hreppstjórum í Grýtubakkahreppi og
Grímsey eftir samkomulagi við þá. Kosið er á
skrifstofu bæjarins í Hrísey á opnunartíma
skrifstofu.
Sýslumaðurinn á Akureyri, 12. maí 2006,
Björn Jósef Arnviðarson
Reykjanesbær | „Besta sundfólk
landsins þurfti betri aðstöðu,“ sagði
Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykja-
nesbæjar, um ástæðu þess að Eign-
arhaldsfélagið Fasteign hf. réðst í
byggingu 50 m innilaugar í Reykja-
nesbæ, sem vígð var við hátíðlega
athöfn í gær. Sundlaugin mun einn-
ig bæta sundkennslu tveggja
grunnskóla, ásamt því að nýtast
áhugasömu sundfólki.
Á sama tíma var yfirbyggður
vatnagarður vígður en hann mun
fyrst og fremst vera yngstu kyn-
slóðinni til yndisauka og auka
hreyfingu hennar. Vatnaveröldin,
en svo er garðurinn nefndur, á ekki
síður að höfða til ferðamanna sem
leið eiga um bæinn, en þetta er
fyrsti vatnsleikjagarðurinn á land-
inu innandyra.
Mikið fjör verður í Vatnaveröld-
inni í dag en milli kl. 13 og 17 verð-
ur opinn sunddagur fyrir alla og
fjölbreytt dagskrá í boði.
420 blöðrum hafði verið komið
fyrir í neti í miðri lauginni sem tákn
um þá 420 daga sem tók að ljúka
mannvirkinu. Fyrsta skóflustunga
var tekin í apríl 2005 og menn unnu
hratt. Eftirlit með verkinu hafði
Verkfræðistofa Suðurnesja en ýms-
ir aðilar komu að framkvæmdinni,
verkfræðingar, arkitektar og verk-
takar, auk þess sem fulltrúar bæj-
aryfirvalda fylgdust náið með verk-
inu frá upphafi og tóku virkan þátt
í sköpun þess. Áætlað er að kostn-
aður við verkið verði um 680 millj-
ónir króna sem er innan upphaf-
legrar kostnaðaráætlunar.
Bestu sundmenn Íþrótta-
bandalags Reykjanesbæjar (ÍRB),
þau Birkir Már Jónsson og Erla
Dögg Haraldsdóttir syntu yfir laug-
ina og sóttu lykil í henni miðri. Lyk-
illinn var afhentur Árna Sigfússyni
og Ragnari Atla Guðmundssyni
framkvæmdastjóra Fasteignar hf.
við bakkann, sem síðan afhentu
Jóni Jóhannessyni, forstöðumanni
Sundmiðstöðvarinnar, lyklavöldin.
Þá stungu elstu sundiðkendurnir
sér til sunds, sóttu blöðrurnar 420
og afhentu yngstu iðkendunum sem
biðu við bakkann. Þau þustu svo yf-
ir í nývígða Vatnaveröld og máttu
vígslugestir forða sér undan vatns-
gusunum sem gengu í allar áttir í
fjörinu. Það var Jóhann B. Magn-
ússon, formaður ÍRB, sem klippti á
borðann.
Fyrsta sundmótið í nýrri 50
metra innilaug verður Aldursmeist-
aramót Íslands sem fram fer 22.
júní nk. Við vígsluna undirrituðu
fulltrúar Reykjanesbæjar, Kaup-
félags Suðurnesja, sundliðs ÍRB og
Sparisjóðsins samning vegna stuðn-
ings fyrirtækjanna við mótið. Í til-
efni dagsins var öllum grunn-
skólabörnum í Reykjanesbæ í gær
afhentur sundpoki og sundkort og
þau hvött til að vera dugleg að
stunda sund í sumar, en ókeypis er
fyrir börn í sund. Þegar þau hafa
fyllt kortið eftir 40 sundferðir fá
þau glaðning frá Reykjanesbæ.
Yngstu íbúarnir hvattir til meiri hreyfingar
Eftir Svanhildi Eiríksdóttur
Þau eldri hvetja yngri Elstu sundiðkendurnir afhentu þeim yngri blöðrur í
tilefni dagsins og færðu þeim um leið táknræna hvatningu. Þessir ungu
menn fengu mikla hvatningu og voru ánægðir með.
Vatnaveröld Sundiðkendur í Reykjanesbæ voru tilbúnir að hlaupa yfir í
Vatnaveröldina eftir að Jóhann B. Magnússon, formaður ÍRB, hafði klippt á
borðann. Honum til aðstoðar var Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar.