Morgunblaðið - 13.05.2006, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. MAÍ 2006 49
UMRÆÐAN
HREYFING og útivera er allra
meina bót og hér á suðvesturhorni
landsins er aðstaðan orðin ein-
staklega góð. Á undanförnum árum
hefur hundruðum milljóna verið var-
ið í að leggja göngu- og hjólastíga og
hestareiðgötur innan borgarinnar og
í nágrenni hennar. Fólk getur nú
farið á hjóli, hestum eða tveimur
jafnfljótum hvert sem það vill á þar
til gerðum götum og stígum, en það
sitja ekki allir við sama borð.
Einn hópur hefur þó orðið út-
undan. Torfærumótorhjólakarlar og
-konur sem sum nota gangbrautir,
göngustíga og hestastíga til að iðka
vélhjólaíþróttina. Þegar hafa orðið
slys á hestamönnum þegar hestar
þeirra hafa fælst við að mæta mót-
orhjólum á hestastígum og einnig
eru dæmi um að gangandi vegfar-
endur hafi orðið fyrir torfærumót-
orhjóli á göngustíg. Ökumenn tor-
færumótorhjóla verða að átta sig á
því að þegar þeir aka á stígum og
svæðum sem ekki eru ætluð mót-
orhjólum bera þeir einir ábyrgðina.
Ef ökumaður hjóls veldur tjóni ber
hann sjálfur alla fjárhagslega
ábyrgð þess og ef annar vegfarandi
verður fyrir skaða hefur hann kröfu-
rétt á ökumanninn sem gæti numið
milljónum. Þeir sem eiga og nota
torfærumótorhjól verða að endur-
skoða framkomu sína og hátterni
annars er ekki spurning um hvort
heldur hvenær alvarlegt slys kastar
rýrð á vélhjólaíþróttina í heild. Vél-
hjólaíþróttaforustan reynir sitt
besta til að bæta úr aðstöðuleysi en
hana vantar tilfinnanlega fjármagn
til framkvæmda.
Fjölmargir aðilar ættu að sjá hag
sinn í að byggja upp aksturssvæði
fyrir þessa nýju og skemmtilegu
íþrótt. Ef heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytið legði fé í uppbygg-
ingu stíga og svæða mætti koma í
veg fyrir mörg óhöpp og slys á
göngustígum og hestareiðgötum.
Umhverfisráðuneytið gæti skipulagt
vegi og götur eða hannað svæði með
þarfir og óskir mótorhjólamanna í
huga, þá væru torfæruhjólin ekki á
stígum ætluðum öðrum íþróttum
hvað þá að stunda utanvegarakstur í
óspilltri náttúru. Fjármálaráðu-
neytið fær bæði tolla og virð-
isaukaskatt af innfluttum mót-
orhjólum, bætt aðstaða iðkunar
myndi hvetja til fleiri ökumanna og
aukins innflutnings. Jafnvel sam-
gönguráðuneytið ætti að sjá kosti
torfærusvæðis, ráðuneytið fær 40%
af verði hvers bensínlítra og miðað
við stærð hjólanna þurfa þau lygi-
lega mikið bensín á góðum degi. Ef
þessi ráðuneyti tækju sig saman um
úthlutun fjármagns til að skapa að-
laðandi aðstöðu fyrir iðkendur
íþróttarinnar er næsta víst að mörg
vandamál leysist í einu. Innan vél-
hjólageirans vantar hvorki þekkingu
né vilja til að framkvæmda og er-
lendis sjá iðkendur sjálfir ósjaldan
um gerð aksturssvæða og mót-
orhjólastíga fyrir ríki og borg með
frábærum árangri.
Í Morgunblaðinu fyrir skemmstu
var bent á samtök í Bandaríkjunum
þar sem mótorhjólafólk sjálft hann-
ar og byggir upp svæði og stíga með
gróðurvernd og öryggi notenda að
leiðarljósi. Þessi samtök, National
Off-Highway Vehicle Conservation
Council (www.nohvcc.org), eru rekin
fyrir opinbert fé og fengu nýverið
290 milljónir bandaríkjadala til að
vinna að slóðagerð, öryggismálum
og skipulagningu torfærusvæða.
Gera má ráð fyrir að nýúthlutuðu
aksturs- og snjósleðasvæði í Jós-
efsdal nægi um tíu milljónir til við-
unandi uppbyggingar. Tíu milljónir
er ekki há upphæð til að tryggja ör-
yggi hestamanna og þeirra sem nota
göngu- og hjólastíga.
Um 3000 einstaklingar stunda tor-
færumótorhjólaíþróttina, um það bil
1% þjóðarinnar, en ekkert er gert
fyrir þennan hóp. Ökumenn eru
ábyrgir fyrir slysum og tjónum sem
þeir kunna að valda, hinir réttu not-
endur stíga og gatna munu kvarta
og ef til vill verða gróðurskemmdir
en varla er við ökumennina eina að
sakast? Árið 2005 voru flutt til
landsins um það bil 1000 torfær-
umótorhjól eingöngu ætluð til tor-
færuaksturs utanvegar. Af þessum
tækjum hafa innflutningsgjöld og
virðisaukaskattur numið 400–600
milljónum og runnið beint í ríkissjóð
(á einu ári). Flestum hlýtur að þykja
eðlilegt að hluti þessa fjár fari í for-
varnir og uppbyggingarstarf? Það
mátti heyra urg hjá hestamönnum
þegar skeifur voru skattlagðar til
reiðstígagerðar en þeir peningar eru
aðeins lítið brot af þeirri upphæð
sem vélhjólamenn borga árlega í rík-
iskassann.
Ef skoðaður er innflutningur mót-
orhjóla, kostnaður af keppnishaldi
og uppákomum sem vélhjólafólk hef-
ur staðið fyrir á síðustu fimm árum
má áætla að um og yfir tveir millj-
arðar hafi skilað sér í ríkiskassann.
En stjórnvöld draga lappirnar þegar
komið er að því að endurgjalda þetta
framlag. Í ráðherratíð Sivjar Frið-
leifsdóttur hjá umhverfisráðuneyt-
inu var þó lögð til ein milljón til upp-
byggingar á mótorcrossbraut á
Álfsnesi. Þessari milljón var vel var-
ið því þarna hefur verið mikið ekið
síðustu þrjú árin. Brautin er samt of
lítil og svæðið engan veginn nægi-
lega stórt fyrir alla iðkendur íþrótt-
arinnar. Plássleysið er sambærilegt
við að öllum sem stunda fótbolta á
höfuðborgarsvæðinu væri gert að
nota tvo fótboltavelli.
Torfærumótorhjólin af
hesta- og göngustígum
Gunnar Friðriksson fjallar
um bifhjólamenningu
’Plássleysið er sam-bærilegt við að öllum
sem stunda fótbolta á
höfuðborgarsvæðinu
væri gert að nota tvo
fótboltavelli.‘
Gunnar Friðriksson
Höfundur er bifhjólalögreglumaður
í Reykjavík.