Morgunblaðið - 13.05.2006, Blaðsíða 80

Morgunblaðið - 13.05.2006, Blaðsíða 80
80 LAUGARDAGUR 13. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ MENNING ÞEGAR gengið er inn í Safn á Laugavegi 37 tekur auður salur fyrst á móti gestum, utan hvað nöfn 40 listamanna sem Safn á verk eftir, eru númeruð í línu sem gengur í gegnum rýmið. Þetta er sýnilegi hluti verks sem þýska listakonan Karin Sander hefur skapað fyrir sýningu sem verður opnuð í dag í tengslum við Listahátíð í Reykjavík. Einnig verður opnuð sýning á verk- um eftir Ceal Floyer, sem fæddist í Pakistan en er búsett í Berlín og London. „Gestir sem koma hér inn fá heyrnartæki og geta hlustað á hvern þessara 40 listamanna fjalla um efni sem tengist verkum þeirra,“ segir Karin Sander þar sem verið er að leggja lokahönd á upp- setningu sýninganna. Nöfnin eru eins og lína í rýminu og vísa þannig inn á stigann þar sem er verk eftir Ceal. Í upptökunum tala sumir um verkin sem Safn á eftir þá, aðrir flytja tónlist eða lesa upp texta; þetta eru margbreytilegar upp- tökur. Margir þessara listamanna hafa sýnt hér, eins og Roni Horn sem sýndi í þessu sama rými fyrir nokkrum mánuðum og talar einmitt um verkin sem voru hér þá. Að þessu sinni er Listahátíð í Reykjavík helguð því sem fólk heyr- ir; ég var að hugsa um að láta myndlistina heyrast,“ segir hún og brosir. Ceal Floyer kemur í sama mund gangandi til okkar og bætir við: „Já auðvitað, þetta er hljóðverk til að horfa á – myndir til að hlusta á!“ Verk Karinar Sander hafa verið sýnd víða á liðnum árum, meðal annars innsetningar í MoMA og Guggenheim-safninu í New York. Hún hefur í tvígang sýnt áður á Ís- landi, á Annarri hæð, forvera Safns, og í gallerí i8. Varar við þrepunum Verkum Ceal Floyer hefur verið lýst sem ljóðrænni og persónulegri endurröðun á textum og hlutum úr hversdagslífinu. Hún vinnur mest með myndbönd og hljóðverk, og verkin bera í sér fínlega naum- hyggju. „Ég er að setja verk upp í þess- um þrönga stiga sem liggur milli allra hæðanna; á hvert einasta þrepanna 27 set ég skilti sem varar við þrepinu: MIND THE STEP,“ segir Floyer. „Stiginn rennur eins og hryggur gegnum bygginguna og það er allt að því fáranlegt áreiti að sjá þetta endurtekið við hvert þrep. Grunnupplýsingar sem eiga að vera upplýsandi verða sjónrænar. Maður fer að hugsa um þrepið sem hlut frekar en þá aðgerð að klífa stigann. Ég vona bara að enginn falli í stiganum við að horfa á merk- inguna,“ segir hún hlæjandi og leið- ir blaðamann upp á aðra hæð. Í einu rýminu þar er verið að setja upp tvö verk eftir hana sem eru í eigu Safns, ljósmyndaverk og mynd- band. „Það er svolítið merkilegt að Safn á tvö verk eftir mig og þau fjalla bæði um sorp og úrgang,“ segir hún hugsi Þá eru einnig sýnd í Safni fleiri verk eftir Karen Sander, sem eru í eigu hjónanna Péturs Arasonar og Rögnu Róbertsdóttur. Karin Sander og Ceal Floyer sýna í Safni Hljóðverk til að horfa á Morgunblaðið/Einar Falur Myndir að hlusta á og ábendingar til gesta. Karin Sander og Ceal Floyer. ÞRIÐJA SAMSÝNING leir- listakvennanna Guðnýjar Magn- úsdóttur, Koggu og Kristínar Garð- arsdóttur verður opnuð í sýning- arsal Hönn- unarsafns Íslands í dag. Sýninguna nefna þær 3x3 og eru öll verkin á sýningunni unnin sérstaklega fyrir hana. „Þetta er í þriðja sinn sem við þrjár sýnum sam- an. Það eru samt engin merki um að þetta sé sein- asta samsýning okkar eins og seg- ir í að allt sé þegar þrennt er. Okkur líkar vel að vinna saman og okkur finnst gaman að stilla verkum okk- ar saman og von- um að öðrum finnist það líka,“ segir Guðný Magnúsdóttir. „Við erum mjög ólíkar listakonur að mörgu leyti þótt við höfum sameiginlegan sterkan tón. Það er ákveðinn ein- faldleiki og afgerandi aðkoma að verkum okkar, við höfum allar sterka sýn á það sem við erum að gera. Kristín vinnur seríukennt í hönnunaranda, þetta eru mjög stíl- hreinir og fallegir nytjahlutir, nán- ast til daglegs brúks, og hún notar mikið steypt postulín og gler. Kogga er með þrykkta steinhluti, hún vinnur líka í seríum en á allt annan hátt en Kristín. Kogga gerir nytjahluti en margir þeirra eru til að njóta í stærri skilningi. Mín verk eru svo mótuð þrívíddarverk sem hafa svolítið aðra viðveru en verk hinna, þau eru á mörkum þess að njóta eða nota.“ Leirlistakonurnar þrjár sýndu fyrst saman í Ósló og síðan í Stykk- ishólmi þannig að þetta er fyrsta samsýning þeirra á höfuðborg- arsvæðinu. 3x3 opnar í dag og stendur til 18. júní. Hönnunarsafn Íslands er á Garðatorgi 7 í Garðabæ og er opið alla daga nema mánudaga frá 14:00 til 18:00. Guðný Magnúsdóttir við eitt verka sinna. Þrjár leirlistakonur Leirlist | 3x3 í Hönnunarsafni Íslands Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is Morgunblaðið/Ómar Stofnun Djass- klúbbs Húna- þings vestra HINN 28. apríl sl. var stofnaður djass- klúbbur í Félagsheimilinu Hvamms- tanga. Það var Karl B. Örvarsson á Reykjaskóla sem hafði forgöngu um stofnun klúbbsins. Í fréttatilkynningu segir m.a.: „Karl segist hafa gengið með þessa hugmynd lengi í maganum áður en hann fór að viðra hana við menn og hrinda henni í framkvæmd. Sjálfur er Karl tónlistarmaður og hef- ur á undanförnum árum samið fjölda laga sem heyrst hafa á öldum ljósvak- ans. Ekki var ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur því fengið var til leiks landsins besta úrval af djassgeggj- urum á sjálfu stofnkvöldinu. Þar var Útlendingahersveitin á ferð, skipuð þeim Árna Scheving, Pétri Östlund, Árna Egilssyni, Jóni Páli Bjarnasyni og Þórarni Ólafssyni. Þeir félagar fóru á kostum og heilluðu viðstadda upp úr skónum með færni sinni. Það var sannarlega einstök upplifun að fá að sjá alla þessa snillinga samankomna á einu sviði. Á laugardagskvöldinu var svo blás- ið til annarrar tónlistarveislu á Þing- húsi-bar á Hvammstanga. Þangað mættu til leiks Guitar Islancio sem skipað er þeim Gunnari Þórðarsyni, Birni Thoroddsen og Jóni Rafnssyni. Það þarf ekki að fjölyrða um hæfi- leika þessara manna og eins og fyrra kvöldið gerðu áheyrendur mjög góð- an róm að spilamennsku þeirra.“ Í Djassklúbb Húnaþings vestra hafa nú um 40 félagar skráð sig og hefur verið skipuð stjórn sem starfar fram að formlegum stofnfundi klúbbsins og er hún auk Karls B. Örvarssonar skipuð þeim Ágústi Oddssyni og Birni Traustasyni. Djassklúbbnum er ætlað að efla áhuga fólks á djasstónlist með því að fá á svæðið úrval djassflytjenda sem og að ferðast á djasstónleika innan lands og utan, ef tækifæri gefast. Stofnun klúbbsins hefur vakið eft- irtekt margra og hafa nokkrir gerst félagar þrátt fyrir að búseta þeirra sé fjarri Húnaþingi vestra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.