Morgunblaðið - 13.05.2006, Page 22

Morgunblaðið - 13.05.2006, Page 22
22 LAUGARDAGUR 13. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT LEIÐTOGAR Evrópusambandsins og ríkja í Róm- önsku Ameríku hafa verið á fundi í Vín í Austurríki þar sem viðskipti og verslun og önnur samskipti þeirra hafa verið til umræðu. Þegar þeir að gömlum og góðum sið höfðu stillt sér upp fyrir ljósmyndara, brá sér upp á sviðið heldur fáklæddur Grænfriðungur til að mótmæla þeirri mengun, sem stafar frá trjá- kvoðuverksmiðjum. Eins og sjá má höfðu sumir gam- an af, til dæmis Tony Blair, forsætisráðherra Bret- lands, en nú er það bara spurningin hvort hafi vakið meiri athygli, mótmælin gegn menguninni eða mót- mælandinn sjálfur. Reuters Menguninni mótmælt Ósló. AFP. | Múslímar eru hvattir til að efna til árása í Noregi, Danmörku og Frakk- landi í myndbandi sem birtist á netinu í gær en maðurinn sem sendir út þessi tilmæli er Líb- ýumaðurinn Mohammed Hass- an, sem tengist al-Qaeda- hryðjuverkanetinu og strauk úr bandarísku fangelsi í Afgan- istan á síðasta ári. Í myndbandinu hvetur Hass- an til árása á fyrrgreind lönd og er birting skopmynda af Múhameð spámanni nefnd sem réttlæting slíkra árása. „Músl- ímar, hefnið spámannsins … Við óskum þess heitt að litla ríkið Danmörk, Noregur og Frakkland … verði fyrir hörð- um árásum og þannig eyði- lögð,“ segir Hassan í mynd- bandinu. Jonas Gahr Störe, utanrík- isráðherra Noregs, brást við þessum skilaboðum í gær en hann sagði þá að hryðjuverka- ógnin hefði ekkert aukist í Noregi við birtingu þessa myndbands. „Okkur berast reglulega hótanir um ofbeldi frá þessum samtökum og ég legg ekkert meira upp úr þess- ari hótun en fyrri hótunum,“ sagði hann. Talsmaður danska utanríkisráðuneytisins sagði hins vegar að verið væri að kanna hversu alvarlega bæri að taka hótunina. Hvatt til árása á Noreg og Danmörku Washington. AP, AFP. | Kröfur banda- rískra þingmanna um að stjórnvöld geri hreint fyrir sínum dyrum varð- andi upplýsingar um, að þau stefni að því að skrá öll símtöl í landinu, verða æ háværari. Hugsanlegt er einnig, að málið ráði einhverju um hvort öldungadeildin staðfesti út- nefningu Michael Haydens sem næsta yfirmanns CIA, bandarísku leyniþjónustunnar, en hann hafði yfirumsjón með símtalaskráning- unni er hann var yfirmaður Þjóð- aröryggisstofnunarinnar, NSA. George W. Bush, forseti Banda- ríkjanna, svaraði gagnrýninni í gær og sagði þá, að staðinn væri „góður vörður“ um borgaraleg réttindi landsmanna. Sagði hann, að aldrei væri hlustað á símtöl án réttar- heimildar en nefndi þó aldrei sím- talaskráninguna á nafn. Upplýsingarnar um þetta eftirlit, sem dagblaðið USA Today skýrði frá í fyrradag, kunna að valda Bush og stjórn hans nokkrum erfiðleik- um en vinsældir hans meðal kjós- enda hafa aldrei verið minni en nú. Samkvæmt könnun, sem dagblaðið The Wall Street Journal birti á vef- síðu sinni í gær, telja aðeins 29%, að Bush standi sig vel í embætti. Er meginástæðan óánægja með Íraksstríðið og hátt bensínverð auk ýmissa annarra mála eins og við- bragða ríkisstjórnarinnar við afleið- ingum fellibylsins Katrínu í ágúst í fyrra. Í þessu máli, símtalaskrán- ingunni, vegur það hins vegar á móti, að ný skoðanakönnunum sýn- ir, að 63% Bandaríkjamanna eru sammála skráningu af þessu tagi, komi hún að gagni í hryðjuverka- baráttunni, en 35% eru henni and- víg. Þingmenn demókrata í fulltrúa- deildinni hafa krafist þess, að sér- stök rannsóknanefnd kanni starf- semi Þjóðaröryggisstofnunarinnar en Jay Rockefeller, sem á sæti í leyniþjónustunefnd öldungadeildar- innar, segir, að hún hafi ekki fengið nægar upplýsingar þótt lög kveði á um annað. Ýmsir repúblikanar eru líka óhressir með símtalaskráningu NSA, til dæmis John Boehner, leið- togi meirihluta repúblikana í full- trúadeildinni. Kvaðst hann efast um tilganginn með henni en þeir, sem verja hans, segja, að hún geti komið að gagni í baráttunni gegn hryðju- verkamönnum. Efast um lögmæti skráningarinnar Margir efast um, að símtala- skráningin eigi sér nokkra stoð í lögum og nú er fyrir dómstólum mál gegn einu símafyrirtækjanna, AT&T, sem er sakað um að hafa brotið á einkalífi fólks með því að afhenda NSA skrár um 300 milljón símtöl og um mikið af tölvupósts- amskiptum. Bandaríska dómsmála- ráðuneytið ætlar hins vegar að fara fram á, að málinu verði vísað frá með tilliti til laga um ríkisleynd- armál. Það leggur þó áherslu á, að með því sé ekki verið að staðfesta, að umrætt eftirlit eigi sér stað. Hvíta húsið ítrekaði í gær stuðn- ing sinn við Michael Hayden hers- höfðingja sem næsta yfirmann CIA en hann er fyrrverandi yfirmaður NSA. Ætlaði hann að eiga sinn fimmta fund með þingmönnum í gær en þingmenn demókrata segja, að upplýsingar um símtalaskrán- inguna muni gera yfirheyrslur yfir honum harðari og hugsanlega hafa einhver áhrif á staðfestingu öld- ungadeildarinnar. Krefjast rannsóknar á símtalaskráningu -    D%L <#=A  $! N*1 /8#! A %#I  5O/ ,68'8 *; 58'"L 8' ?!6 :! /     *  %       "+     ,  - * ) !+    .  &/$              TALSMENN uppreisnarsveita úr röðum tamílsku tígranna á Sri Lanka vöruðu í gær stjórnina við því að þeir myndu gera árásir á herskip sem kæmu inn á svæði þeirra, eftir að a.m.k. 67 fórust í sjóorrustu hers- ins og uppreisnarmanna í fyrradag. „Ef herskip stjórnarinnar trufla starfsemi okkar munum við ekki hika við að gera árásir,“ sagði í yf- irlýsingu uppreisnarmanna í gær. Þá sökuðu uppreisnarmenn nor- rænu eftirlitssveitirnar (SLMM) um að gæta hagsmuna sjóhers stjórn- arinnar, með því að vera einskonar „lifandi skildir“ fyrir þá. „Norrænu eftirlitssveitirnar hafa sett fólk sitt í hættu til að veita her- skipum stjórnarinnar vernd. Á sama tíma hafa sveitirnar ekki verndað okkar hermenn og herskip okkar.“ Mikil ólga er í landinu eftir árás tí- granna á herskip stjórnarinnar í norðurhluta landsins á fimmtudag, en stjórnvöld gerðu sama dag loft- árásir á flugvöll tígranna á norður- hluta eyjarinnar í hefndarskyni. Í apríl féllu um 200 í átökum fylk- inganna og er óttast að allsherj- arátök kunni að brjótast út í landinu. Segjast í fullum rétti Stjórnmálaleiðtogi tígranna, SP Thamilselvan, gaf í gær lítið fyrir þau rök að umferð sveita hans á sjó gengi gegn ákvæðum vopna- hléssamninganna og sagði það tryggja valdajafnvægi í landinu að sveitir sínar hefðu fullan rétt til að ferðast á sjó nærri yfirráðasvæðum sínum. Þá vísaði Thamilselvan einnig á bug þeim ásökunum Ulf Henricsson, yfirmanns norrænu eftirlitssveit- anna, að árásin á fimmtudag væri brot á vopnahléinu. „Enginn hefur rétt til að leggja dóm á okkar rétt til að ferðast um í lofti og á legi nærri svæðum okkar,“ var haft eftir Thamilselvan á vefsíðu tígranna í gær. Stjórnvöld hafna alfarið þessari túlkun. „Þetta var alvarleg árás og gróft brot á skilmálum vopna- hlésins,“ sagði Keheliya Rambuk- wella, talsmaður stjórnarinnar, í gær. Harðorður í garð tígranna Robert Nilsson, talsmaður SLMM, tók í sama streng í samtali við Morgunblaðið í gær og sagði ljóst að alþjóðalög heimiluðu ekki að tígrarnir sigldu utan yfirráðasvæða sinna. Þá sagði Nilsson að sam- kvæmt vopnahléinu hefðu eftirlits- sveitirnar fullan rétt til að fylgjast með herskipum stjórnarinnar. Nilsson var harðorður í garð tígr- anna vegna árásarinnar á fimmtu- dag og sagði að árásarmennirnir hefðu án efa séð fána eftirlitssveit- anna um borð í þeim skipum sem þeir gerðu skothríð á. Þrír eftirlits- menn voru þá í fylgd sjóhersins, frá Svíþjóð, Noregi og Finnlandi. Segir árásina brot á vopnahléinu Tígrarnir saka norrænar eftirlitssveit- ir á Sri Lanka um að styðja stjórnina Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is Reuters Thamilselvan, stjórnmálaleiðtogi tígranna, á fréttamannafundi. London. AFP. | Harðar deilur brutust út í lávarðadeild breska þingsins í gær um frumvarp þess efnis að leyfa eigi dauðvona fólki að binda enda á þjáningar sínar með því leyfa lækn- um að veita þeim lyf sem aðstoða þá við að stytta sér aldur. Flutningsmaður frumvarpsins, Joel Joffe, telur að læknar eigi að hafa rétt til þess að gefa sjúklingum sínum slík lyf. „Þar sem við erum hluti af umhyggjusömu samfélagi getum við ekki látið það viðgangast að dauðvona sjúklingar sem þjást óbærilega skuli halda áfram að þjást samfélagsins vegna,“ sagði Joffe í gær, en hann byggir tillöguna á sam- bærilegu fyrirkomulagi í Oregon- ríki í Bandaríkjunum. Trúarhópar, góðgerðasamtök og ýmsir hópar hafna hins vegar tillög- unni og segja rangt að aðstoða manneskju við að enda líf sitt. Þá telja andstæðingar frumvarpsins að það kunni að leiða til þess að fárveik- ir sjúklingar fari að telja það skyldu sína að spara spítölum dýra meðferð, með því að fremja sjálfsmorð. Umdeilt mál Joffe, sem áður stundaði lög- mennsku á sviði mannréttinda, hefur nokkrum sinnum lagt fram svipuð frumvörp en hefur ekki haft erindi sem erfiði. Búist er við að deilur um það muni harðna, þegar það verður tekið fyrir í neðri deild þingsins. Tillagan er mjög umdeild og ný- legar kannanir sýna það. Þannig segjast þrír af hverjum fjórum kjós- endum styðja frumvarpið en 73% lækna voru því andvíg. Deilt um líknardráp í Bretlandi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.