Morgunblaðið - 13.05.2006, Side 57
fjölbreytts félagsstarfs meðal
aldraðra.
6. Bæta starfsaðstæður þeirra hópa
sem sinna umönnun aldraðra.
Eldri borgarar eru fólkið sem lagði
grunninn að samfélagi dagsins í dag,
samfélagi þar sem flestir lifa í vel-
lystingum. Þeir eiga betra skilið en
það viðmót sem endurspeglast í
skeytingarleysi núverandi rík-
isstjórnar sem leggur meiri áherslu
á að lækka skatta þeirra sem hafa úr
mestu að moða en að tryggja öldr-
uðum mannsæmandi ellilífeyri og
tækifæri til að lifa betra lífi. Verk
þessara flokka segja allt sem segja
þarf um forgangsröð þeirra sem
fylkja sér undir merkjum þeirra.
Þess vegna þarf að gefa þeim frí,
bæði í komandi sveitarstjórnarkosn-
ingum og í alþingiskosningum að
ári. Þess vegna þarf nýjan meiri-
hluta í bæjarstjórn Akureyrar í vor.
Þess vegna þarf nýja ríkisstjórn að
ári.
Höfundur skipar 2. sæti framboðs-
lista Samfylkingarinnar á Akureyri.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. MAÍ 2006 57
UMRÆÐAN
opið:
mán.–föstud. 11–18
laugard. 11–16
MIRALE
Grensásvegi 8
108 Reykjavík
sími: 517 1020
afmælisveisla
2 ára
Full búð af spennandi
afmælistilboðum
10–40% afsláttur
LOKADAGUR
15% afsláttur af öllum
sérpöntuðum húsgögnum
Nýtt kortatímabil
B-LISTINN í Reykjavík leggur
mikla áherslu á forvarnir í sinni
stefnuskrá. Forvarnir sem stuðla að
því að öll börn í Reykjavík alist upp
við aðstæður og um-
hverfi sem eflir
sjálfstraust þeirra og
sjálfsmynd, einkenn-
ist af samkennd og
býr yfir viðeigandi
stuðningsúrræðum
þegar þörf er á.
Þau verkefni sem B-listinn vill
setja í forgang í forvarnarmálum hjá
borginni eru:
Uppeldisnámskeið fyrir alla nýja
foreldra og aðgengileg uppeld-
isráðgjöf fyrir alla foreldra.
Einstaklingsmiðað nám þannig að
kennsluaðferðir og kennsluefni
komi enn frekar til móts við mis-
munandi getu, áhuga og hæfileika
barna og með því að leggja meiri
áherslu á kennslu í lífsleikni, verk-
legum greinum og listum.
Í grunnskólum verði áhersla lögð á
samþættingu bóknáms, íþrótta,
listnáms og tómstunda í sam-
felldum skóladegi.
Kannaðir verði kostir þess að taka
upp skólafatnað í skólum til að fyr-
irbyggja einelti, auka samkennd og
tryggja jafnrétti.
Stoðþjónusta grunnskólanna verði
efld.
Forvarnarfulltrúar verði á meðal
nemenda í öllum grunnskólum
borgarinnar sem starfa svo þétt
með félags- og þjónustumiðstöðv-
unum í hverfunum.
Öll börn í borginni, 5 til 18 ára, fái
frístundakort að upphæð 40 þús-
und kr. á ári til íþrótta- og tóm-
stundaiðkunar.
Félagsmiðstöðvar verði opnar um
helgar.
Efla barnavernd Reykjavíkur til
að tryggja að öll mál fái jafnskjóta
afgreiðslu og að nauðsynleg úrræði
séu í boði.
Opna útideildina á ný á hverf-
isgrunni, tengda þjónustu-
miðstöðvum, félagsmiðstöðvum,
skólum og lögreglu.
Sýnilega löggæslu og aukna
hverfalöggæslu, Reykjavík á að
vera örugg borg og við eigum ekki
að þurfa að óttast um börnin okkar.
Við berum öll samfélagslega
ábyrgð á að börnin okkar alist upp í
öruggu og jákvæðu umhverfi sem
heldur utan um þau og er uppbyggj-
andi. Ertu með?
Forvarnir á stefnuskrá
B-listans
Eftir Marsibil J. Sæmundardóttur
Höfundur skipar 3. sæti
B-listans í Reykjavík.
ÍÞRÓTTIR fyrir alla. Þessi setning hefur hljómað í
eyrum landsmanna síðan ungmennafélögin voru stofn-
uð hvert á fætur öðru á sínum tíma. Þessi hugsun
byggðist á því að allir hefðu rétt til að
stunda íþróttir eftir því sem áhugi og
tími leyfði. Öll vinna hjá þessum fé-
lögum var byggð á sjálfboðavinnu bæði
við uppbyggingu íþróttamannvirkja eða
þjálfun hjá viðkomandi félagi.
Nú hafa tímar breyst og kröfur aukist
eftir því sem þéttbýliskjarnarnir
stækka og minni tími hjá einstaklingum
til að leggja fram sjálfboðavinnu. Ungmennafélögin
hafa breyst í íþróttafélög sem velta milljónum á hverju
ári. Allir þjálfarar eru launaðir, reka þarf dýr íþrótta-
hús og til að taka þátt í íþróttum þarf að greiða æf-
ingagjöld og ferðakostnað við þátttöku í mótum.
Með aukinni tekjuskiptingu í þjóðfélaginu er að
myndast gat milli „vel stæðra“ foreldra og þeirra sem
minna hafa milli handanna. Þetta leiðir af sér þá sorg-
legu staðreynd að sumir foreldrar geta ekki eða eiga
erfitt með að greiða æfingagjöld fyrir börnin sín og
einnig er það til í sumum tilfellum sem foreldrar hafa
mismunandi forgangsröð í útgjaldaliðum heimilanna,
þannig að þessi útgjaldaliður lendir fyrir aftan eitthvað
annað. Það er staðreynd hjá öðrum sveitafélögum sem
hafa tekið upp niðurgreiðslu eða greiða alveg æf-
ingagjöld fyrir börn upp að ákveðnum aldri hefur iðk-
endum fjölgað um allt að 40% og félagsleg vandamál
barna og unglinga hafa stórminnkað.
Í ljósi af reynslu annarra sveitarfélaga er það alveg
ljóst að ég mun beita mér fyrir því af alefli að Akureyr-
arbær komi miklu meira að þessum málum til að jafna
aðstöðu foreldra, jafnframt því að auka fjármagn inn í
rekstur íþróttafélaganna eins og gert er víða annars
staðar.
Íþróttir fyrir alla
Eftir Önnu Höllu Emilsdóttur
Höfundur er leikskólakennari og skipar
2. sæti L-lista á Akureyri.
nærri að verðgildi þess lands sem
bærinn lætur af hendi sé um mörg
hundruð milljónir króna
Við bæjarbúar gerum auðvitað ráð
fyrir því að sjálfstæðismenn í bæj-
arstjórn reyni að hámarka sölutekjur
bæjarins af þessu landi. Annað væri
óábyrg fjármálastjórn, ekki satt?
Hvað myndir þú gera kæri
Garðbæingur ef þetta landsvæði
væri þín eign?
Bæjarlistinn vill rifta þessum
samningi við Klasa. Bæjarlistinn vill
koma framkvæmdum á aðgerðarstig
þannig að þróun miðbæjarkjarna
Garðabæjar geti hafist fyrir alvöru
og mannlíf og atvinnulíf þar þróast
með eðlilegum hætti. Við Garðbæ-
ingar eigum þá sjálfsögðu kröfu að
geta sest inn á kaffihús í miðbæ
Garðabæjar með fjölskyldu eða vin-
um og notið þess að vera til. Þessa
sjálfsögðu kröfu hafa sjálfstæð-
ismenn hins vegar hundsað.
X-A Bæjarlistinn!
Höfundur er í 4. sæti
Bæjarlistans í Garðabæ.