Morgunblaðið - 13.05.2006, Síða 66
66 LAUGARDAGUR 13. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Guðný Friðriks-dóttir fæddist á
Sunnuhvoli í
Blönduhlíð 15. júní
1934. Hún lést á
Landspítalanum við
Hringbraut 7. maí
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Friðrik Kristján
Hallgrímsson bóndi
á Sunnuhvoli, f. 14.
janúar1895, d. 30.
maí 1990, og kona
hans Una H. Sigurð-
ardóttir, f. 25. októ-
ber 1898, d. 10. janúar 1979. Systk-
ini Guðnýjar eru Elín, f. 1923,
Sigurður, f. 1924, d. 1997, Hall-
grímur, f. 1926, d. 1929, Helga, f.
1927, d. 1961, Friðrik, f. 1928, Þór-
unn, f. 1929, Hallgrímur, f. 1931,
Halldóra Sigríður, f. 1936, Hall-
dóra Ingibjörg, f. 1937, Árni Hún-
fjörð, f. 1939, Bjarni Leifs, f. 1940,
og Guðrún, f. 1943.
Guðný giftist 10. júlí 1954 Sveini
Jónssyni frá Hóli í Sæmundarhlíð.
Foreldrar hans voru Jón Sveinsson
bóndi á Hóli, f. 14. maí 1887, d. 19.
mars 1971, og seinni kona hans
Petrea Óskarsdóttir, f. 30. júní
1904, d. 27.12. 1998.
Börn þeirra Guðnýjar og Sveins
eru: 1) Jón Pétur, f. 19.12. 1953,
kvæntur Sigurveigu Friðgeirsdótt-
ur, f. 23.12. 1953. Börn Jóns eru
Guðný, f. 16.4. 1982, Smári Jökull,
f. 17.10. 1983, og Einar Elías 1.3.
eph Passburg, f. 4.8. 1963. Börn
þeirra eru Joseph Richard, f. 2.10.
1989, Kristin Hildur, f. 30.7. 1994,
og Karen Lind, f. 17.8. 1996. 7) Sig-
urður, f. 20.1. 1967.
Guðný ólst upp á Sunnuhvoli í
stórum systkinahópi við almenn
sveitastörf, bæði utan húss og inn-
an. Sem ung stúlka byrjaði hún að
vinna í kaupavinnu á sumrin, fyrst
í Blönduhlíðinni og síðar í Sæ-
mundarhlíðinni, en þar lágu leiðir
þeirra Sveins saman. Hún starfaði
einn vetur á saumastofu í Reykja-
vík. Guðný stundaði nám við Hér-
aðsskólann á Laugum í Reykjadal
veturinn 1950–1951 og í Hús-
mæðraskólanum á Löngumýri vet-
urinn 1952–1953. Haustið 1953
flutti hún til Sveins á Hóli í Sæ-
mundarhlíð. Þar bjuggu þau til
1957 er þau fluttu á Hjallaland.
Þau höfðu þá lokið við byggingu
íbúðarhúss þar og stofnað nýbýli
úr þriðjungi af landi Hóls. Á Hjalla-
landi voru þau hjónin með bland-
aðan búskap í byrjun en síðar ein-
göngu með kúabú. Þau hættu
formlegum búskap árið 2000, en
hafa búið áfram á jörðinni. Guðný
var mjög virk í félagsmálum alla
sína tíð. Sem ung kona gekk hún í
Kvenfélag Staðarhrepps og starf-
aði innan þess allt til dauðadags,
meðal annars sem formaður. Hún
var meðlimur í Skógræktarfélagi
Íslands og vann síðustu árin við að
koma upp skógrækt heima á
Hjallalandi. Hún gekk í Félag eldri
borgara í Skagafirði og starfaði
þar af kappi í stjórn félagsins.
Útför Guðnýjar verður gerð frá
Sauðárkrókskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 11. Jarðsett verð-
ur á Reynistað.
1984. Börn Sigur-
veigar eru Árni Geir,
Ævar Örn og Elín
Ása, Magnúsarbörn.
2) Sigríður Halldóra,
f. 20.1. 1956, gift Ey-
mundi Þórarinssyni,
f. 26.8. 1951. Börn
þeirra eru: a) Þórar-
inn, f. 19.1. 1977,
sambýliskona Sigríð-
ur Gunnarsdóttir,
börn þeirra eru Ey-
mundur Ás, f. 24.9.
2002, og Þórgunnur,
f. 29.10. 2005, b) Hall-
grímur, f. 19.5. 1978, og c) Heiðrún
Ósk, f. 30.9. 1985. Dóttir Eymund-
ar er Ástríður Margrét. 3) Una, f.
1.4. 1957. Var gift Gunnari Sigur-
finnssyni, f. 23.8. 1956. Börn þeirra
eru: a) Sveinn Guðni, f. 3.8. 1975,
kvæntur Sigríði Björk Einarsdótt-
ur, synir þeirra eru Sólon Birkir, f.
16.9. 1997 og Sölvi Freyr, f. 20.2.
2006, b) Ólafur Ingi, f. 27.5. 1985, c)
Ómar Logi, f. 29.8. 1987, og d) Est-
er Petra, f. 21.6. 1991. 4) Gígja, f.
10.3. 1961. Börn hennar eru Krist-
ófer Kristófersson, f. 24.4. 1990, og
Sara Björk Másdóttir, f. 13.10.
1993. 5) Hallfríður, f. 21.7. 1962,
sambýlismaður Guðmundur Helgi
Helgason, f. 29.6. 1961. Dóttir
þeirra er Katrín Helga, f. 20.3.
1997. Dóttir Hallfríðar er Kolbrún
Dögg Sigurðardóttir, f. 27.9. 1983,
unnusti Magnús Freyr Gíslason. 6)
Anna, f. 27.1. 1965, gift Steven Jos-
Ég hef augu mín til fjallanna: Hvaðan kem-
ur mér hjálp?
Hjálp mín kemur frá Drottni, skapara him-
ins og jarðar.
Hann mun eigi láta fót þinn skriðna,
vörður þinn blundar ekki.
Nei, hann blundar ekki og sefur ekki,
hann, vörður Ísraels.
Drottinn er vörður þinn, Drottinn skýlir
þér, hann er þér til hægri handar.
Um daga mun sólarhitinn eigi vinna þér
mein, né heldur tunglið um nætur.
Drottinn mun vernda þig fyrir öllu illu,
hann mun vernda sál þína.
Drottinn mun varðveita útgöngu þína og
inngöngu héðan í frá og að eilífu.
(121. Davíðssálmur.)
Kallið kom snöggt, Drottinn hefur
tekið þig til sín. Við eigum margar
spurningar sem ekki verður svarað.
Hafðu hjartans þökk fyrir alla þína
ástúð, umhyggju og kærleika. Þakka
þér fyrir það veganesti sem þú hefur
gefið okkur og megi það verða okkur
dýrmætur fjársjóður til eftirbreytni.
Þakka þér fyrir bænirnar sem þú
kenndir mér. Allar hannyrðir léku í
höndum þér eins og allt annað sem þú
tókst þér fyrir hendur. Sannkölluð
listakona, fljót að sjá út handbragðið,
vandvirk, samviskusöm og trúföst.
Þú varst ákaflega félagslynd og at-
hafnasöm og hrintir ótrúlegustu hlut-
um í framkvæmd og oft var vinnu-
dagur þinn mjög langur. Þú saumaðir
og prjónaðir allt á okkur fram að
fermingu og varst gjarnan að sauma
á nóttunni og prjónaðir yfir pottun-
um.
Það má segja að þér hafi aldrei fall-
ið verk úr hendi. Ég var aðeins átján
ára þegar elsti sonur minn fæddist á
Sauðárkróki. Hann er ykkar fyrsta
barnabarn og heitir eftir ykkur báð-
um. Þú tókst honum sem þínu eigin
barni og var hann öll sumur hjá ykk-
ur pabba til sautján ára aldurs, þ.e.
bættist við í þinn stóra hóp, en allaf
var pláss hjá ykkur. Lýsir það hversu
stórt hjarta þú áttir fyrir alla ástvini
þína sem dvöldu lengur og skemur á
heimili ykkar. Barnabörnin mín eru
orðin tvö og þú náðir að sjá yngri
drenginn núna í mars og vera við-
stödd brúðkaup Sveins Guðna og Sig-
ríðar í október. Yngsti sonur minn,
Ómar, hefur verið í skóla á Sauðár-
króki í vetur og var hann umvafinn
kærleika þínum og umhyggju og
dvaldi oft um helgar frammi á Hjalla-
landi. Ég get aldrei þakkað þér nógu
mikið fyrir allt sem þú hefur verið
mér, en minning þín mun lifa með
okkur og ég veit í hjarta mér að þér
er ætlað nýtt hlutverk á himnum hjá
algóðum Guði sem hefur kallað þig til
sín. Megi englar Drottins vaka yfir
öllum ástvinum þínum og varðveita
þá og blessa.
Ég votta þeim öllum mína dýpstu
samúð. Drottinn styrktu pabba og
hughreystu hann.
Mamma, mjúka milda höndin þín,
mörgum blessun færði.
Mikla þökk vér höfum þér að færa
og margt við máttum af þér læra.
Þín dóttir
Una Sveinsdóttir.
Á meðan nóttin líður,
vaki ég hjá þér mamma mín,
vaki hjá þér og bíð eftir kallinu til þín.
Hugsa um morgun í maí,
þú varst hjá mér og nýfæddum syni.
Þá var sól, þá vor eins og nú
þegar þú kveður þennan morgun í maí.
Elsku mamma mín hafðu þökk fyr-
ir allt.
Guð geymi þig.
Þín dóttir
Gígja.
Það var fallegur sumardagurinn
er þú kvaddir þennan heim elsku
mamma mín.
Svo bjartur og góður eins og allar
minningarnar um þig.
Svo hlýr eins og ástríkur faðmurinn þinn.
En samt svo óvænt og sárt.
Drottinn blessi þig og fallega minningu
þína.
Þinn sonur
Sigurður.
Elsku besta Guðný mín, tengda-
móðir mín, nú er komið að kveðju-
stund. Þú kvaddir okkur eftir stutta
en erfiða sjúkralegu, það var eins og
þú værir að gefa okkur tíma til að átta
okkur og að koma öll saman, því sum-
ir komu um langan veg.
Hann er stór hópurinn ykkar
Sveins, Guðný mín, börn, barnabörn
og barnabarnabörn, sem öll eiga góð-
ar minningar um þig, hvert og eitt.
Ég minnist þess þegar ég kom í
fyrsta skipti að Hjallalandi hvað allt
var fínt og snyrtilegt og þið hjónin
tókuð vel á móti mér. Það vantaði nú
ekki veisluborðin hjá þér og alltaf
passaðir þú upp á að allir fengju nóg
að borða.
Það fyrsta sem við gerðum þegar
við heimsóttum ykkur var að fara
með þér út í garð og skoða gróðurinn,
þú undir þér svo vel í garðinum og
okkur fannst gott að vera þar. Þú
hafðir sannarlega yndi af blómum og
trjám. Fyrir nokkrum árum rættist
draumur þinn, þegar þið Sveinn hóf-
uð skógrækt handan við bæjarlæk-
inn, og dáist ég að dugnaði ykkar.
Áttum við saman margar góðar
stundir, röltum um og skoðuðum
trén, hvað þau höfðu vaxið mikið síð-
an síðast.
Þú varst dugnaðarforkur, mín
kæra, alltaf eitthvað að sýsla, hann-
yrðir, bakstur og starfaðir í kven-
félaginu.
Okkar bestu stundir voru heima í
eldhúsinu á Hjallalandi þegar við vor-
um að ganga frá og spjalla saman og
settumst svo niður með kaffibolla, því
nærvera þín var góð og yndisleg.
Elsku Guðný mín.
Sitji Guðs englar saman í hring,
sænginni yfir þinni.
Þín tengdadóttir,
Sigurveig Friðgeirsdóttir.
Amma, þú ert minn himneski eng-
ill.
Allt sem þú varst er það sem ég
þrái að vera. Heimili þitt, væntum-
þykja og allt það sem er gott.
Faðmur þinn var ætíð opinn til að
vernda mig frá öllum meinum, hjarta
þitt ætíð fullt af ást, orð þín full af
vonum.
Hafðu hjartans þökk fyrir þinn
mikla kærleika og umhyggju, þín
verður sárt saknað.
Þín barnabörn og barnabarnabörn,
Sveinn Guðni, Ólafur Ingi,
Ómar Logi og Ester Petra.
Sólon Birkir og Sölvi Freyr.
GUÐNÝ
FRIÐRIKSDÓTTIR
Pantanir í síma 562 0200
Á fallegum og notalegum
stað á 5. hæð Perlunnar.
Aðeins 1.350 kr. á mann.
Perlan
ERFIDRYKKJUR
Elskuleg móðir mín, amma og langamma,
SIGRÚN EIRÍKSDÓTTIR,
Eiríksgötu 2,
Reykjavík,
lést sunnudaginn 7. maí.
Jarðarförin fer fram frá Fossvogskapellu þriðju-
daginn 16. maí kl. 11.00.
Óskar Pálsson,
Páll Rósinkranz Óskarsson, Sigríður Margrét Ólafsdóttir,
Jóhannes Óskarsson, Valgerður Guðsteinsdóttir,
Sigrún Óskarsdóttir, Hannes S. Sigurðsson,
Erna Elísabet Óskarsdóttir
og barnabörn.
Hjartkær eiginkona, dóttir, móðir, tengdamóðir,
amma, systir og mágkona,
ÁGÚSTA S. JÓNSDÓTTIR ROSARIO,
(Dúva),
andaðist á heimili sínu, 8100 Mona Avenue, Nor-
folk WA 23518, miðvikudaginn 10. maí.
Útförin fer fram í Norfolk, Virginiu, Bandaríkjun-
um. Minningarathöfn verður auglýst síðar.
Romio D. Rosario,
Ágústína G. Ágústsdóttir,
Romio A. Rosario, Kimberly Rosario,
Ágústína Sara Epps Rosario,
Sverrir F. Rosario, Tamy Rosario,
Gísli B. Jónsson,
Kristrún B. Jónsdóttir, Magnús Sigurðsson.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma,
HELGA SIGRÍÐUR HANNESDÓTTIR,
síðast til heimilis í
Jöklaseli 23 í Reykjavík,
sem lést á Landspítala háskólasjúkrahúsi Foss-
vogi aðfaranótt 6. maí sl., verður jarðsungin í dag,
laugardag 13. maí, frá Sauðárkrókskirkju og hefst
athöfnin kl. 14.00.
Sigurður Hauksson, Björk Helgadóttir,
Þorsteinn Hauksson, Birgitta Bjargmundsdóttir,
Þráinn Jensson,
Hrafnhildur Hauksdóttir, Bolli Valgarðsson,
Vala Hauksdóttir
og barnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinar-
hug við andlát og útför ástkærs sambýlismanns
míns, föður, sonar, bróður og mágs,
GUÐJÓNS SVEINSSONAR
verktaka,
Suðurtúni 7,
Álftanesi.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Heima-
hlynningar Krabbameinsfélagsins, deildar 13G á LSH við Hringbraut og
líknardeildar LSH í Kópavogi.
Hrönn Árnadóttir,
Sveinn Guðjónsson,
Freyja Leópoldsdóttir,
Jónas Sveinsson,
Ágústa Sveinsdóttir, Örn Bragason,
Leópold Sveinsson, Þorbjörg Albertsdóttir.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
GISSUR ELÍASSON
hljóðfærameistari,
Laufásvegi 18,
Reykjavík,
lést á Landspítala Fossvogi að morgni sunnudags-
ins 7. maí.
Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík þriðju-
daginn 16. maí kl. 13.00.
Elías Ragnar Gissurarson, Vera Snæhólm,
Þórdís Gissurardóttir, Sverrir Þórólfsson,
Hákon Örn Gissurarson, Valdís Kristinsdóttir,
Hjördís Gissurardóttir, Geir Gunnar Geirsson,
Magnús Þórarinn Gissurarson, Anna Ágústa Hauksdóttir,
Ásdís Gissurardóttir, Ragnar Th. Sigurðsson,
afabörn og langafabörn.