Morgunblaðið - 13.05.2006, Side 81

Morgunblaðið - 13.05.2006, Side 81
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. MAÍ 2006 81 ÖLL laugardagskvöld á Listahátíð verða miðnæturtónleikar sem fara fram í Iðnó kl. 23.30. Í kvöld ríða á vaðið tónlistarmennirnir Sólrún Bragadóttir sópransöngkona og Sig- urður Flosason saxófónleikari. Þau hafa sett saman dagskrá sem þau kalla Lögin okkar. „Við ætlum að spila okkar útgáfur af mjög þekktum klassískum íslenskum sönglögum og nokkrum þjóðlögum í þessari óvenju- legu samsetningu sem er sópran óp- erusöngkonurödd og djasssaxófónn,“ segir Sigurður sem blaðamaður hitti ásamt Sólrúnu þar sem þau voru að ljúka æfingu. „Þetta er þvert á móti hefðbundum útsetningum,“ bætir Sólrún við. „Það er ofsalega gaman að syngja þessi lög í svona útsetningum, þetta snertir sköpunarkraftinn.“ Þau segja það vera leyndarmál hvaða lög eru á efnisskránni en gefa þó upp að það séu sönglög eftir tón- skáld eins og Kaldalóns, Pál Ísólfsson og Sigfús Einarsson. „Teygjanleiki þessara þekktu laga og þanþol er ótrúlega mikið, miklu meira en flestir halda. Við förum djúpt inn á tilfinn- ingarnar á bak við text- ann, það eru þær sem við erum að tjá. Þetta verður ljúf stemning og skemmti- leg, við leikum á allan til- finninga- og styrk- leikaskalann,“ segir Sólrún. Sólrún og Sigurður voru búin að þekkjast lengi áður en þau fóru út í þetta samstarf. „Það er gaman eftir svona langan tíma að við skyldum finna þennan flöt til að vinna saman,“ segir Sólrún. „Þegar við byrjuðum að æfa fannst okkur þetta svo gaman. Við höfum verið með nokkrar styttri uppákomur með þess- um útsetningum og það hefur mælst mjög vel fyrir.“ Þeim líst vel á að spila á miðnæt- urtónleikum. „Þetta verða um klukkutíma tónleikar sem ganga hratt fyrir sig og það gerist mjög margt. Sumt kemur á óvart og eng- um ætti að leiðast,“ segir Sigurður og bætir við að það megi búast við því að þau fari víðar með þessa tónleika að lokinni Listahátíð. Sólrún býr nú í Danmörku og fyrir utan almennan söng og tónleika þá er hún að hleypa af stokkunum söng- skóla. „Ég er nýflutt á búgarð í Dan- mörku og ætla að halda þar námskeið í söng fyrir langt komið söngfólk og atvinnusöngvara. Maðurinn minn er að útbúa fyrir mig sal í húsinu þar sem ég verð með alls konar tónleika- iðkanir,“ segir hún. Eins og áður segir hefjast tónleik- arnir kl. 23.30 í Iðnó í kvöld og má bú- ast við mikilli skemmtun því óp- erusöngkona og djasssaxafónleikari eru líklega með ólíklegustu pörum á listasviðinu, fulltrúar tveggja heima sem sjaldan skarast. Tónleikar| Miðnæturmúsík í Iðnó í kvöld Sönglög í óvenjulegum búningi Morgunblaðið/RAX Sigurður Flosason og Sólrún Bragadóttir flytja þekkt íslensk sönglög og þjóðlög. Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is mbl.is ókeypis smáauglýsingar SILVÍA Nótt vakti mikla athygli í Aþenu í gær, en þá hélt hún óvenjulegan blaðamannafund í kjölfar sinnar fyrstu æfingar, sem var í meira lagi skrautleg. Mikil eftirvænting ríkti þegar ís- lenski hópurinn steig á svið vegna þeirrar um- ræðu sem verið hefur um blótsyrðið „fucking“ í texta lagsins „Congratulations“. Silvía lét sér hins vegar fátt um finnast og notaði orðið án þess að hika, og bætti svo um betur með því að sýna áhorfendum fingurinn. Fjölmargir áhorfendur púuðu þá á Silvíu, en flestir áhorfendur í salnum voru blaðamenn frá austantjaldslöndunum. Silvía brást ókvæða við þessum viðbrögðum áhorfenda og kallaði þá meðal annars „fjandans hálfvita“. Þegar hún söng svo lagið aftur datt hljóðneminn á gólfið, en hún sendi þá tæknimönnum kveðjur á kjarnyrtri ensku og sagði meðal annars að hún ynni ekki með áhugamönnum. Hún gekk loks á braut og lét nokkur vel valin orð fylgja. „Þau elska mig. Ég var frábær. Ég var fullkomin!“ Ársfrí á Íslandi Í kjölfar æfingarinnar hélt Silvía ásamt fríðu föruneyti á blaðamannafund. Áður en hún kom á fundinn skipaði hins vegar kærastinn hennar, Romario, blaðamönnum að horfa ekki í augu ís- lensku stjörnunnar, annars yrði þeim vísað á dyr. „Ég býð ykkur öll velkomin til þess að njóta veru minnar í Aþenu,“ sagði Silvía þegar hún kom á fundinn. „Ég er alþjóðleg stórstjarna og þið eruð öll börnin mín,“ bætti hún við. Silvía bað síðan tæknimennina afsökunar á að hafa skammað þá og sagðist hafa verið undir miklu álagi og því gengið of langt. Hún sýndi hins vegar sitt rétta andlit þegar hún lýsti yfir meint- um áætlunum íslensku ríkisstjórnarinnar: „Ís- lenska ríkisstjórnin er búin að skipuleggja eins árs frí á Íslandi eftir að ég vinn,“ sagði hún, við mikla furðu viðstaddra. Þá var hún spurð talsvert um karlamál sín, meðal annars hvort það væri rétt að þau Páll Óskar væru gamalt kærustupar. Hún staðfesti það, en neitaði að svara fleiri spurningum um ástamál sín þar sem núverandi kærasti væri með henni í för. Einn blaðamaður var næstum lentur í klónum á lífvörðunum þegar hann spurði hvort Silvía væri með demantshringinn stóra, sem sést í myndbandinu með laginu, og hvort hann mætti nota hringinn til að biðja hennar. Silvía sagði að slíkar spurningar væru afar óviðeigandi. Einn blaðamannanna á fundinum spurði Silvíu út í meintar ósæmilegar athugasemdir hennar um hollensku fulltrúana í Treble, í beinni útsend- ingu í sjónvarpi í Litháen. „Ég sé að þú ert að horfa á mig, þú verður að líta undan,“ sagði Silvía við blaðamanninn. „Ég læt henda þér út. Þú ert ennþá að horfa á mig. Fjarlægið hann!“ Í kjölfar- ið greip lífvörður Silvíu til sinna ráða og bar blaðamanninn út úr fundarsalnum, viðstöddum til mikillar undrunar. Stuttu síðar ákvað Silvía að nóg væri komið, og sleit fundinum. Fólk | Silvía Nótt vekur mikla athygli í Aþenu Púað á Silvíu á sviðinu Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is Lífvörður Silvíu Nóttar henti einum blaðamanni út fyrir að horfa beint í augu hennar. Vakti atburðurinn mikla athygli fjölmiðla.Pepe, Silvía Nótt og Romario svara spurningum. Fatnaður Silvíu Nóttar var að vanda glæsilegur. Morgunblaðið/Eggert Áhorfendur bæði púuðu og klöppuðu þegar Silvía Nótt steig á svið í gær. Silvía Nótt vakti gríðarlegan áhuga ljósmyndara á blaða- mannafundinum í Aþenu í gær. Silvía Nótt lét bæði áhorfendur og tæknimenn heyra það á sinni fyrstu æfingu í gær, en æfingin tókst annars vel.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.