Morgunblaðið - 22.05.2006, Side 37

Morgunblaðið - 22.05.2006, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. MAÍ 2006 37 DAGANA 13. og 14. maí fóru fram í Laug- ardalshöllinni Íslandsmeistaramót í línudöns- um og samkvæmisdönsum dönsuðum með grunnaðferð. Samhliða Íslandsmeistara- mótunum fór fram Bikarmót í samkvæm- isdönsum dönsuðum með frjálsri aðferð. Það var mótanefnd Dansíþróttasambands Íslands sem bar hitann og þungann af skipulagi keppn- innar. Fimm erlendir dómarar komu til lands- ins til þess að dæma og voru það þau Diana Pedersen frá Danmörku, David Trueman frá Englandi, Trond Harr frá Noregi, Hans B. Sandström frá Svíþjóð og Susanne Nauhaus frá Þýskalandi. Dagskráin hófst með keppni í línudansi. Keppt var í tveimur aldursflokkum, þ.e. Full- orðnir I ( 16–49 ára) og Fullorðnir II (50 ára og eldri). Í yngri flokknum kepptu 7 hópar og komu þrír þeirra utan af landi. Keppt var í tveimur dönsum. Fyrst var dansaður skyldu- dans og síðan val. Sigurvegarar voru Stælkon- ur og Stubbarnir frá UFA. Þau hafa verið mjög sterk á þessum mótum. Þetta er fjölmennur hópur sem hefur stundað línudansinn af kappi á Akureyri og er mikil dansgleði hjá þeim. Í eldri flokknum keppti einn hópur og voru því að sjálfsögðu Íslandsmeistarar. Það var hópur sem kallar sig Fjögurra blaða smárar frá Hvönn í Kópavogi. Þegar keppendur í línudansi höfðu lokið sín- um dansi fór fram innmars keppenda og setn- ing móts og fánahylling. Það var formaður Dansíþróttasambands Íslands, Birna Bjarna- dóttir, sem setti mótið. Hún tilkynnti að hún gæfi ekki kost á sér áfram í formannssætið á næsta tímabili og einnig kom fram að tveir aðr- ir stjórnarmeðlimir ætluðu ekki að gefa kost á sér áfram. Vil ég því nota tækifærið og þakka þeim fyrir sín störf í þágu dansins. Að setningu lokinni fór fram danssýning. Þar komu fram fyrrverandi heimsmeistarar atvinnumanna í 10 dönsum, þau Adam Reeve og Karen Björk Björgvinsdóttir. Þau dönsuðu þrjá dansa við mikinn fögnuð áhorfenda. Þau tilkynntu einnig að þau væru hætt keppni og legðu því skóna á hilluna. Þau hafa verið fulltrúar Dansráðs Ís- lands á keppnum atvinnumanna undanfarin ár og staðið sig frábærlega. Dansráð Íslands er fé- lag danskennara og atvinnumanna í dansi á Ís- landi og er aðili að alþjóðafélaginu World Dance & Dance Sport Council en það félag stendur fyrir dansmótum fyrir atvinnumenn í samkvæmisdansi. Síðan hófst keppni í samkvæmisdönsum. Keppendum er skipt eftir aldri og síðan er keppendum skipt í þrjá flokka innan hvers ald- ursflokks. Fyrstu keppendur sem mættu inn á dansgólfið voru í B-riðlum. Þar eru dansarar sem eru að stíga sín fyrstu skref á danskeppni og voru skráð 79 pör til leiks. Það er gaman að fylgjast með þessum hópi og þá sérstaklega yngstu flokkunum, þar sem ýmislegt úr um- hverfinu fangar athygli barnanna og er þá dansinn ekki endilega efstur í huga, þurfa þau t.d. að veifa til mömmu eða pabba í miðjum dansi. Þarna má oft sjá efnilega dansara sem gætu orðið okkar bestu í framtíðinni. Næsti hópur sem keppti er A-riðill. Þar eru dansarar sem hafa keppt áður í dansi og eru farnir að æfa dans reglulega. Þar voru skráð til keppni 63 pör. Mörg þessara para eru orðin mjög frambærileg í dansinum og væri gaman að sjá einhver þeirra færa sig upp í næsta styrkleikaflokk næsta vetur. Síðasti og sterkasti hópurinn er K-riðill. Í þessum flokki eru dansarar sem eru farnir að stunda dansinn sem sína keppnisgrein. Til keppni voru skráð samtals 33 pör í alla flokka. Þegar komið er upp í þennan flokk þá er pörum farið að fækka í hverjum aldursflokki. Í yngsta flokknum, sem er Börn I (9 ára og yngri) keppti eitt par í báðum greinum, þau Pétur Fannar Gunnarsson og Aníta Lóa Hauksdóttir frá dansdeild ÍR. Þau dönsuðu ljómandi vel og voru mjög krúttleg á gólfinu. Í flokknum Börn II (10–11 ára) voru fimm pör skráð til leiks. Þar var röðun í sæti sú sama í báðum greinum. Sig- urvegarar voru Oliver Sigurjónsson og Re- bekka Helga Sigurðardóttir frá dansdeild ÍR. Þau eru mjög efnilegir dansarar og hafa sýnt mikla framför í vetur. Í öðru sæti voru Elvar Guðmundsson og Arna Rut Arnarsdóttir frá Dansíþróttafélagi Kópavogs og í þriðja sæti voru Guðlaugur Agnar Valsson og Ólöf Rún Erlendsdóttir frá dansdeild ÍR. Í flokki Unglinga I (12–13 ára) voru 9 pör skráð til keppni í standard-dönsum og 13 í suð- ur-amerískum dönsum. Sigurvegarar í báðum greinum voru þau Pétur Geir Magnússon og Jóna Kristín Benediktsdóttir frá Dansíþrótta- félagi Kópavogs. Þau eru frábærir dansarar og voru vel að sigri komin. Þau sýna mikinn lík- amstakt í suður-amerísku dönsunum og mýkt og yfirvegun í standard-dönsunum. Í öðru sæti í standard-dönsum voru Þorkell Jónsson og Malín Agla Kristjánsdóttir frá Dansíþrótta- félaginu Gulltoppi. Þau dönsuðu ljómandi vel og voru með gott danshald. Helst vantaði upp á mýktina hjá þeim. Í þriðja sæti í þessari grein voru þau Karl Friðrik Hjaltason og Maren Jónasardóttir, einnig frá Dans- íþróttafélaginu Gulltoppi. Þau náðu sér vel á strik í þessari grein og voru mjög kraftmikil. Mér fannst úrslitahópurinn í þessum flokki skiptast í tvennt og þessi þrjú pör standa upp úr. Í suður-amerísku dönsunum voru Andri Fannar Pétursson og Lena Rut Sverr- isdóttir frá Dansíþróttafélagi Hafnarfjarðar í 2. sæti. Þau eru mjög stílhreinir dansarar. Í þriðja sæti voru síðan Þorkell Jónsson og Malín Agla Kristjánsdóttir frá Dansíþróttafélaginu Gulltoppi. Mjög góðir dansarar en náðu sér ekki alveg nógu vel á strik til þess að skáka hin- um pörunum. Í dömuflokki í Unglingar I K keppti einungis eitt par í suður-amerísku dönsunum. Það voru þær Inga Lóa Karvelsdóttir og Klara Svein- björnsdóttir frá Dansíþróttafélaginu Gulltoppi. Snaggaralegir dansarar en þurfa aðeins að bæta fótavinnuna. Flokkur Unglinga II (14–15 ára) var mjög jafn í báðum greinum og þá sérstaklega í suður- amerísku dönsunum. Sigurvegarar í stand- ard-dönsum voru þau Fannar Örvarsson og Hjördís Hjörleifsdóttir frá Dansíþrótta- félaginu Hvönn. Mér fannst þau jöfnust í öllum dönsunum. Í öðru sæti voru Arnar Hrafn Snorrason og Björg Guðlaugsdóttir frá Dansíþróttafélaginu Gulltoppi. Þau dönsuðu ágætlega og voru þessi pör örugglega nokkuð jöfn. Í þriðja sæti voru síðan þau Einar Örn Guðnason og Kristrún Sveinbjörnsdóttir frá Dansíþróttafélaginu Gulltoppi. Í suður- amerísku dönsunum sigruðu þau Orri Jónsson og Erna Dögg Pálsdóttir þau voru mjög örugg og vel í takt við tónlistina. Í öðru sæti voru Arnar Hrafn Snorrason og Björg Guð- laugsdóttir frá Dansíþróttafélaginu Gull- toppi. Þau voru mjög ákveðin en notuðu stundum of mikinn kraft. Í þriðja sæti voru þau Gunnar Ingi Friðriksson og Bergþóra Bergsdóttir, einnig frá Dansíþróttafélaginu Gulltoppi. Þau voru nokkuð jöfn í öllum döns- unum en mættu rétta betur úr hnjám í Cha cha cha og Rúmbu. Í öðrum aldursflokkum í K-riðli kepptu ýmist eitt eða tvö pör. Í lokin fór fram bikarkeppni í dansi með frjálsri aðferð og þar voru skráð til keppni 42 pör. Sú keppni var mjög spennandi þó að það hafi vantað einhver pör í hópinn vegna próf- lesturs. Keppnin gekk að mestu leyti hnökralaust fyrir sig. Það var að vísu eitthvað um að klæðnaður keppenda væri ekki eftir settum reglum. Það er mikilvægt að þjálfarar og kennarar keppenda séu vel upplýstir um þessar reglur og passi upp á að keppendur séu klæddir og dansi samkvæmt reglum. Það kemur í veg fyrir að það þurfi að gera breytingar á keppnisdegi. Mér finnst stundum eins og fólk sé alltaf að leita eftir glufum í klæðareglum í staðinn fyrir að fylgja þeim. David Trueman, dómarinn frá Englandi, sagði að í heild- ina hefði keppnin verið í háum gæðaflokki en honum fannst vanta upp á að pörin væru í réttum takti og dönsuðu í réttu hljómfalli við tónlistina. Hann sagði að til þess að ná árangri í dansinum þá væri mikilvægt að læra réttan grunn og tækni og taka það fram yfir sporin. Dans- sporin gerðu mann ekki að meistara heldur danskunnáttan. Nú er vetrarstarfi lokið og sum- arið framundan með fríi. Samt reikna ég með að einhver paranna noti sumarið til þess að undirbúa sig enn frekar fyrir næsta vetur. Óska ég öllum góðs gengis og gleðilegs sumars. Hægt er að sjá öll úrslit á heimasíðu Dansíþróttasambands Íslands: www.danssport.is. Síðasta danskeppni vetrarins DANS Laugardalshöllinni Pétur Geir og Jóna Kristín, Íslandsmeist- arar í báðum greinum Unglinga I-K. Stælkonur og Stubbarnir, Íslandsmeistarar í línudansi. Birna, Svanhildur og Friðrik, fráfarandi stjórnarmeðlimir Dansíþróttasambands Íslands. Björn og Hanna Rún, bikarmeistarar Ung- menna í báðum greinum í F-riðli. Morgunblaðið/Jón Svavarsson Adam og Karen í Quickstep-sveiflu. Kara Arngrímsdóttir ÍSLANDSMEISTARAMÓT Í DANSI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.